Mjölnir - 11.04.1990, Page 5
Gaman að
vera gamall!
í tilefni af afhendingu íbúöa fyrir aldraöa þótti Mjölni viö
hœfl að heimsœkja einn íbúann ó hinu glœsilega
dvalarheimili og heyra í honum hljóöiö og vita hvernig
vistin og tilveran vœri í hans augum.
Fyrir valinu varö Jónas Trygvason en hann flutti inn í íbúö
sína í desember síöastliöinn.
Jónas þekkja allir en hann hefur verið mjög virkur í
félagsmólum ekki síst í leiklistinni, hann fór meðal annars
meö stórt hlutverk í kvikmyndinni Land og synir.
Gaman að verða
gamall!
Blm. Mjölnis heimsótti á
dögunum Jónas Tryggvason, sem er
einn af heimilismönnum á
Dvalarheimili fyrir aldraða á
Siglufirði. Jónashefurkomið sérmjög
vel fyrir í sinni vistarveru og ekki
vantaði veitingamar hjá þeim mæta
manni.
Blm.: Nú fluttir þú Jónas úr litlu
einbýlishúsi við Hólaveginn í
einstaklingsíbúð á Dvalarheimilinu.
Voru þetta mikil viðbrigði fyrir þig?
Jónas: Já, það má segja að
viðbrigðin hafi verið töluverð, þ.e. að
koma úr einbýli og koma hér í
fjölmennið, en sú breyting var góð.
Ég get ekki hugsað mér að hægt sé að
fá betri þjónustu en hér er.
Blm.: Þú ert þá ánægður með
þjónustuna og þann félagsskap sem
þú færð umfram það sem var meðan
þú bjóst einn.
Jónas: Já, það er einmitt það sem
ég var að sækjast eftir þ.e. að fá
félagsskapinn. Ég var orðinn svolítið
leiður á að vera svona einn, var búinn
að vera það í 11 ár. Mér þótti sjálfsagt
að breyta þar um og ekki hefi ég orðið
fyrir neinum vonbrigðum.
Blm.: Nú er verið að byrja að byggja
upp starf semi innan veggja heimilisins.
Jónas: Við höfum nú verið að halda
málfundi og reynt að komast að
einhverri niðurstöðu um hvemig best
væri að haga sér í því verkefni, sem er
framundan hjá okkur. Ég held að við
séum búin að komast að sæmilegri
niðurstöðu í þeim efnum. Það er
meiningin að Félagsmálaráð
Siglufjarðar haldi hér með okkur
dansleiki á hverjum laugardegi.
Tíminn verður síðan að leiða í ljós
hvort við höldum okkur við að dansa
einu sinni í viku eða e.t.v. tvisvar
sinnum í mánuði.
Blm. Komið þið sem búið hér ekki
til með að hafa töluverð áhrif á það
hvemig starf semin verðurí framtíðinni
hér innan veggja?
Jónas: Það er meiningin. Við
höldum okkar fundi hér í eldri manna
félaginu”
Blm. Eitthvað heyrði ég um 70
manna fund hjá ykkur er það rétt?
Jónas. Það passar, síðasti fundur
var þetta vel sóttur.
Blm. Sennilega væru ýmis
félagasamtök hér í bæ ánægð með
slíka fundarsókn.
Jónas: Já a.m.k. þætti þetta gott hjá
Verkalýðsfélaginu (hlær við).
Blm. Eitthvað heyrði ég af því að
þú hafir verið kosinn húsvörður hér, er
það rétt?
Jónas: Nei, það ernú ekki rétt. Við
vomm kosnir þrír í nefnd, auk mín
Jóhann Þorvaldsson og Pétur
Baldvinsson til þess að sjá um
félagsskapinn hér innanhúss eða eftiriit
með húsinu. Það er t.d. okkar að sjá
um að loka húsinu og einnig ef einhver
mál koma upp hér innan húss. Þá
reynum við að leysa þau. En hér hefur
ekkert reynt á slikt ennþá. Enda
samfélagið svo ljómandi gott hér það
sem af er og ég vona að það versni
ekki. (Þegar Jónas segir þetta kemur
fjörglampi í augu hans).
Blm. Þú varst hér áður fyrr mjög
áberandi í leikstarfsemi í bænum.
Jónas. Já ég var það í kringum 40
ár.
Blm.: Þú bæði lékst og leikstýrðir.
Jónas: Já, ég leikstýrði bæði hér og
innl í Fljótum. Setti þar upp þrjú stykki.
Ég var starfsmaður í skólanum í 21 ár
og þar setti ég upp 17 stykki með
krökkunum, það var dýrðlegur tími að
vinna með þeim.
Blm.: Em einhveijirhér á heimilinu
sem voru með þér í leikstarfseminni?
Jónas: Já Pétur Bald var með mér.
Blm.:Hefur ykkur ekkert dottið í
hug að halda áfram á þeirri braut hér.
þ.e. að setja eitthvað upp hér?
Jónas: Jú, það er nú svo sem búið
að láta sér detta það í hug t.d. samtal
milli 2-3ja persóna. En ég hefi svo
sem ekki nefnt það við neinn ennþá.
Gaman væri það. Hér er t.d. töluvert af
fólki sem kann vel að syngja.( Hér
lyftist Jónas allur og upplifirgreinilega
gamla túna).
Blm.: Spilar héreinhver á hljóðfæri.
Jónas: Nei því er nú verr og miður.
Petur Bald spilar á munnhörpu og þar
með er það upptalið.
Blm.: Einhverlokaorðfráþér Jónas
til þeirra sem hafa hug á að flytja hér
inn.
Jónas: Ég held að enginn þurfi að
hræðast það að flytja hér inn.
Einhveijum fannst, að óséðu, að hér
væru bara “hundakompur”, en þeim
hefur nú flestum snúist hugur eftir að
hafa komið hingað og skoðað staðinn.
í sumar á að laga lóðina hér í kring
og hver veit nema fólk geti þá ræktað
eitthvað hér í hh'ðinni fyrir ofan t.d.
kartöflur og kál.
Það eina rétta er að koma hingað
með iéttu hugarfari, því hér er alveg
dásamlegt að vera. Ekki hefði ég
'ímyndað mér að ég ætti eftir að fá þá
þjónustu í ellinni eins og hér er. Ég
segi bara nú er gaman að verða gamall,
miðað við það sem áður var. Ég man
eftir því þegar ég var lítill drengur
þegar ég sá að verið var að flytja
gamlingjana hreppaflutninga. Jafnvel
fólk boðið upp á hreppsfundum og
ekki var verið að taka hæsta tilboði.
Síðan var þessum bjálfum ekið á sleða
eða kerrum milli staða. Ég man að ég
kenndi í brjósti um þetta fólk sem
krakki.
Ég held að við þetta eldra fólk
eigum reyndar þessa þjónustu inni við
eium búin að leggja það af möricum til
þjóðaibúsins.
Blm. tekur undir þessi síðustu orð
Jónasar “Þið eigið þetta inni” Njótið
þess. Brynja Svavarsd.
BÍLASALAN VIÐ DALBRAUT KNATTBORÐSSTOFAN
AKUREYRI Vantar allar tegundir bíla á skrá . WlM Q -íspinnar - frostpinnar IVIO - toppís - pakkaís ofl.
Góður sýningarsalur - ekkert innigjald - MARKAÐUR:
Símar 11300- 11301 - 11302 Simar: 71562 og 71960
11. apríl 1990
Mjölnir 5