Fylkir


Fylkir - 23.12.1965, Side 9

Fylkir - 23.12.1965, Side 9
9 JÓLABLAÐ FYLKIS 1965 ELÍN PALMADÓTTIR: Þar m vatnið er Vandamál Vestmannaeyinga er vatnsleysi. Þess vegna datt mér í hug, að Eyjabúar kynnu að hafa gaman af að heyra um annað land- svæði, þar sem vandi íbúanna er of mikið vatn. Þetta land er Hol- land. Hollendingar þurfa ekki að leggja á sig erfiði til að ná í vatn. Ofka þeirra beinist að því að halda landinu sína upp úr vatni. Eg hafði að vísu heyrt, að 40% af Hollandi hefði verið undir sjó En talan, þó há sé, verður ekki raunveruleg fyrr en maður horfir á þessi geysilegu flæmi af landi undir sjávarmáli, skurðanetið og dælurnar á flóðgörðunum. Til að kynnast þessu, er aðgengilegra fyr- ir ferðamanninn að koma fyrst til Amsterdam með öllum sínum skurð um og fara síðan í ökuferð um norðanvert landið, sem nær öllu hef ur verið lyft úr sjó. Það sakar þá heldur ekki, þegar íslendingar eiga í hlut, að í Amsterdam er gott að verzla, ódýrar vörur og góðar, og ein borg af því tagi þarf helzt að falla inn í ramma hvers ferðalags frá íslandi. Slík ferð er t. d. hluti af utanlandsferð, sem ferðaskrif- stofan Sunna skipuleggur nokkr- um sinnum á sumri til London, Amsterdam og Kaupmannahafnar. Lent er á Shiphol flugvelli, sem er 4Vz m neðar yfirborði sjávar. Hann liggur í einu horninu á gríð- arstóru vatni, sem einu sinni var. Árið 1617 gerði frægasti verkfræð- ingur og vindmyllusérfræðingur Hollands, Jan Adriaansz Leegh- water, áætlun um að þurrka upp allt þetta vatn með 160 vindmyll- um. En það var of stór biti að gleypa á þeim dögum og allt of dýrt, svo þessi stórtæka áætlun varð ekki að veruleika fyrr en með tilkomu gufuaflsins. Ef við ökum meðfram sléttunni, sem þessi stóri flugvöllur er á, horfum við niður yfir flugbrautirnar, eins og úr lofti, og vatnsborðið á skurðun- um í kring er 4xk m ofar en gras- sléttan. Þar sem landið er dýrmætt í Hollandi og flugvélarnar nota að- eins hluta af hinum fyrrverandi vatnsbotni er þar rekið eitt af stærstu kúabúum landsins og um 100 kýr bíta þarna ótruflaðar af þotunum, sem æða upp eða inn til lendingar. Guð skapaði jörðina, en Hollend- ingar landið sitt, er sagt. En hvern- ig gera menn nú land úr sjávar- botni. Hollendingar fara þannig að. Byrjað er á að gera háa flóðgarða í kringum það grunnsvæði, sem á að taka undir land. Þegar hringn- um hefur verið lokað, eru byggðar landi sínu. Og ýmislegt óvænt gæti dælustöðvar með jöfnu millibili á hugsanlega komið fyrir, sem eng- görðunum Og vatninu er dælt út in mannshönd réði við. Til dæmis fyrir garðana í djúpa skurði, sem má sjávarmál ekki hækka mikið, liggja landmegin við þá. Skurðirnir til að Holland þurrkist út. Reiknað eru í samband við hið mikla skurða hefur verið út, að ef heimskauta- net landsins, sem leiðir vatnið út ísinn bráðnaði, þá mundi sjávar- í sjó. Áður fyrr var vatninu dælt mál á hnettinum hækka um nær með vindmyllum. Og þessar gömlu 80 m. Þetta vita Hollendingar, og í vindmyllur með risaspöðum sínum einni dælustöðinni hafa þeir gert setja enn mikinn svip á landið. upphleypt líkan af Hollandi með Þurrkaði botninn er sandborinn og dælustöðvum sínu mog skurðum leirkenndur af framburði ánna og og er hægt að hleypa á þá vatni hentar vel undir grasrækt, enda eru og dæla þurrt á nokkrum mínút- þar rekin nautgripabú. En þó stöð- um. Sýnir það vel hver örlög Hol- ugt sé dælt til að halda landinu landi væru búin, ef eitthvað gerð- þurru, þá er það ekki þurrara en ist á borð við það, að heimskauta- svo, að bændurnir ganga enn á ísinn bráðnaði. hollenzku tréklossunum, sem eru Fyrr á öldum voru flóðin þó hentugasti fótabúnaðurinn er hugs- ekki til ills eins. í stríðum kom það azt getur á þessu vota landi. fyrir, að síðasta vörn Hollendinga Hollendingar hafa þannig verið var opna flóðgáttir og varna ó- að þurrka upp land sitt síðan þeir vinaherjum þannig að ná ákveðn- grófu fyrsta skurðinn á 12. öld. um borgum. Þetta gafst vel, nema Með nútíma tækni er það að sjálf- skurðina lagði, eins og þegar sögðu auðveldara en meðan hand- Napoleon var á ferðinni og riddara- aflið eitt var fyrir hendi. Þó hlýtur bð hans gat sprett úr spori eftir ísi að'vera mesta basl, þó ekki sé ann- lögðum skurðunum og tekið Am- að en að halda þungri skurðgröfu sterdam. á floti á svo gljúpu landi. Það þarf Vegna flóðahættunnar hafa skap- vissulega dugmikla þjóð, til að ná azt þjóðsögur Ein er sagan um upp og halda uppi 2/5 hlutum af drenginn Pieter,sem dag einn síð- Frá Amsterdam. Elín Pálmadóttir hefur starfað m. a. lijá sendiráði íslands í París og' hjá SÞ í New York. Blaðamaður hjá Vikunni 1951—57, hjá Morgun- blaðinu 1956 og síðan. Elín hefur ferðazt mikið utan lands og innan. degis kom auga á gat í einum stíflu garðinum. Hann stakk þar í fingrin um og þorði ekki að hreyfa sig, af ótta við að þá næði vatnið að brjóta skarð í garðinn. Morguninn eftir, er að var komið, var drengurinn látinn, en hafði með hetjuskap sín- um bjargað blómaborginni. Haar- lem frá því að þurrkast út. Þó þessi saga sé alls óraunveruleg, hefur hún farið svo víða, að ferðafólk í Hollandi krefst þess að fá að sjá staðinn, þar sem Pieter litli bjó og vann sína hetjudáð. Loks ákváðu Hollendingar að gera eitthvað í málinu, enda kurteisir við gesti, og fyrir 15 árum afhjúpaði Irena prinsessa styttu af drengnum Piet- er á fallegum stað við flóðgarð, svo að ferðamenn geti komið og skoðað hana, ef þeir vilja. Að minnast á blómaborgina Haar lem kemur í veg fyrir að það gleym ist, að fleira en gras grær á þessu landi, sem mannshöndin hefur gert. Á vissum árstímum má aka hvern kílómeterinn á fætur öðrum og hafa fyrir augum eitt blómahaf. Það er eins • og að horfa á skraut- legt skákborð, því hver litur en jafnan ræktaður á ferhyrndum reit. Ekki þurfum við að fara langt frá Shiphol-flugvelli, til að koma til Aalsmeersee bloemenveiling, þ. e. stærsta blómamarkaðar Evrópu, þar sem árlega eru boðnar upp og seldar 46 millj. nellikkur, 5 millj krysantemur, 50 milljón rósir, 9 millj. liljuvendir, 14 millj. bauna- grös og hundruð milljóna af öðr- um tegundum. Öll þessi blóm eru ræktuð á 1—2 mílna svæði kring- um Aalsmeer og stánda blómarækt endur sjálfir að markaðinum. Þeir skera blóm sín á nóttunni, og koma með þau áður en kaupendur mæta kl. 7 að morgni. í uppboðssölunum fimm setja uppboðshaldarar í gang nokkurskonar stóra klukku. Vísir- inn á klukkunni færist hægt niður á við á lægri tölu, meðan sýnishorni af viðkomandi blómum er haldið Frh. á 27. síðu.

x

Fylkir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fylkir
https://timarit.is/publication/878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.