Fylkir


Fylkir - 23.12.1965, Page 11

Fylkir - 23.12.1965, Page 11
JÓLABLAÐ FYLKIS 1965 11 Byggð og saga i í Landnámabók segir, að Herjólf- ur Bárðarson hafi fyrstur byggt Vestmannaeyjar og bjó í Herjólfs- dal, fyrir innan Ægisdyr, þar sem nú»er hraun „brunnit". Þessu til viðbótar er svo þjóðsaga, sem séra Brynjólfur Jónsson hefur skrásett. Þar segir svo efnislega m. a., að bær Herjólfs hafi verið í Dalnum vestanverðum, undir háu og snar- bröttu hamrafjalli. Féll skriða undra mikil niður úr fjallinu og yfir bæ Herjólfs, sem þá var í bæn- um og varð undir skriðunni. Þessi lýsing kemur mjög vel heim við staðhætti í Herjólfsdal, því undir Blátindi, sem er „hátt og snarbratt hamrafjall“ var mikill grjóthaugur, sem myndazt hafði við skriðuföll úr tindinum. Þótti því augljóst, að bær Herjólfs mundi vera undir grjóthól þessum, og var hann því nefndur Herjólfshaug- ur. Var oft grafið í hauginn í leit að bæjarleifunum, en þær tilraun- ir báru ekki árangur og ekkert fannst, er bennt gæti til þess, að þarna hefði verið bær. Árið 1912 er Matthías Þórðarson, íornminja- vörður staddur í Vestmannaeyjum og eftir ábendingu Sigurðar Sigur- finnssonar, hreppstjóra, athugaði hann rústabungu á litlum hól, um 100 metrum fyrir sunnan Daltjörn, en í rúst þessari mótti sumstaðar greina aðflutt grjót. Eftir að hafa athugað staðinn, taldi Matthías sennilegt, að þetta væru fornar bæj- arrústir. Árið 1924 kom svo Matth- ias aftur til Eyja og var þá grafið í rústir þessar. Kom þá í ljós, að hólbunga þessi var leifar af forn- býli, sem í hafði verið búið um stutt skeið. Mátti marka það af því, hve gólfskánin var þunn, en hún var aðeins um 1 cm. á þykkt. Aðalhúsið var 25 metra langt og auk þess höfðu verið þarna tvö önnur hús minni. Taldi Matthías all ar tóftirnar mjög fornar, en þó einkum langhústóftina Að þessu athuguðu 'ar það talið fullvíst, að hér væru fundnar rústir af bæ landnámsmannsins Herjólfs Bárð- arsonar. Fundur bæjarrústanna á þessum stað, þótti og taka af all- an vafa um, að sögnin um að skriðu hlaup hefði lagt bæinn í auðn, væri væri markleysa ein og ekki á rök- um réist. En — er nú rétt að afskrifa frá- sögn þjóðsögunnar um þetta efni skilyrðislaust, sem skáldskap einan. — Það er að vísu fullsannað, að skriðan úr Blátindi hefur ekki valdið beinu tjóni á bænum. Hins- vegar virðist ekki hafa verið athug að sem skyldi, að önnur og miklu meiri skriða en úr Blátindi, hefur fallið niður í Dalinn, en það er hlaupið mikla úr Hánni-Molda. Ekki er mér kunnugt um, að skriða þessi hafi nokkru sinni verið sett í samband við eyðingu Herjólfsbæj- ar, er þó ekki með öllu útilokað, að svo kunni þó að hafa verið. — Þegar inn í Dalinn er komið, ligg- ur vegurinn vestan við hæðina, þar sem augljóst er að aðallilaupið hef- ur staðnæmzt, en frá þessum stað eru ekki nema um 50 metrar vest- ur á hólinn, þar sem bærinn hefur staðið. Ekki er það ólíkleg tilgáta, að í þeim feikna nóttúruhamför- um, sem hér hafa orðið, er stór hluti fjallsins hrynur fram í Dal- inn, (e. t. c. í jarðskjálfta — Kötlu gosið mikla er t. d. árið 934) hafi meira eða minna grjótflug farið miklu lengra vestur í Dalinn en aðalhlaupið, og jafnvel allt vestur á hólinn, þar sem bærinn stóð. Þetta grjótflug gat því hafa orðið bænum að meira eða minna tjóni, þótt ekki hafi það fært hann í kaf. Þessu til stuðnings mætti benda á, að sunnan og austan í hólnum, þar sem bærinn hefur staðið, markar víða fyrir grjóti, sem nú er að mestu sokkið í jörð, en það sem sést, ber þann svip, að vel mætti ætla að þessir steinar væru úr skrið unni úr Molda. Sama máli gegnir um stein einn allmikinn, sem er inni í sjálfum bæjarrústunum, en að sjálfsögðu þarf að kanna nánar, hvort steinar þessir séu af sömu bergtegund og í aðalhlaupinu. Þótt nú skriða þessi hafi ekki beinlínis lagt bæinn í auðn, þá er þó mjög líklegt, að til hennar megi m. a. rekja aöalorsök þess, hve þar var búið um stutt skeið. Þessi mikla skriða úr fjallinu hefur fallið nið- ur á sléttar grundir Dalbotnsins og þakið með stórgrýtisurð og lagt í auðn mikið gróðurlendi, sem vel að verið hafi tún Dalsbóndans. Hafi svo áður í Dalnum orðið jarðvegs- eyðing af uppblæstri, vegna „til- kvámu mannanna og kvikfénaðar þess ,sem þeir hafa haft meðferðis“, eins og dr. Sigurður Þórarinsson gizkar á, verður skiljanlegt hvers vegna búskapur á þessum slóðum hættir svo skyndilega að næstum má líkja við flótta frá staðnum. Um lok byggðar Herjólfs í Herj- ólfsdal segir Hauksbók: „Þar er nú hraun brunnit“. Nú er það fullyrt af fræðimönnum, að brunahraun hafi ekki runnið yfir Vestmannaeyj- ar eftir landnámstíð. Sú skýring hefur verið á þessu gefin, að jarð- 'egur og gróður í Dalnum hafi blásið burt og gamla hraunið orð- ið eftir bert og nakið. En íslenzk tunga hefur einnig annað hugtak yfir „hraun“, en að það sé brunn- ið. Um þetta segir Þorvaldur Thor- oddsen m. a.: „Víða um land eru urðir kallaðar „hraun“, þó þær séu alveg óbrunnar." Um slík „hraun“ í Loðmundarfirði segir ennfremur: „Þvers yfir Hraundalsopið, yfir hálsinn hjá Stakkahlíð og að Sæv- arenda, liggja „hraunin". Það eru ógurlega úfnir garðar og hryggir, hólar og bungur af stórgrýtisurð. Það hefur verið ætlun manna, að urðir þessar væru ógurleg skriða, sem runnið hefur úr fjallinu eða hlaup.“ Þessi skilgreining á merkingu orðsins „hraun“, virðist koma mjög vel heim við það, að stórgrýtisskrið an mikla, sem fallið hefur úr Hánni niður í Dalinn, hafi e. t. v. verið nefnd „hraun“, og því sé skriða þessi það ,,hraun“, sem til er vitn- að í Hauksbók. Höfundi frásagnar- innar hefur vafalaust verið kunugt um, hve eldbrunnar Eyjarnar voru, og því talið sjálfsagt, að hér væri ekki um annað hraun að ræða en „brunnit“. S. Ó.

x

Fylkir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fylkir
https://timarit.is/publication/878

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.