Fylkir


Fylkir - 23.12.1965, Síða 13

Fylkir - 23.12.1965, Síða 13
JÓLABLAÐ FYLKIS 1965 ---------------------------- Ur skrínu Þórðar í Skógum Þórður Tómasson, safnvörður og kcnnari í Skógum. hann hefur ritað margar bækur um þjóðleg fræði. — Þórður þekkir vel sögu Eyjanna og hefur öðrum þræði safnað ýms- um fróðleik héðan, enda saga land- manna og Eyjabúa um margt sam- ofin. — Þórður gefur út tímaritið Goðastein ásamt Jóni R. Hjálmars- syni, skólastjóra í Skógum. T FORMÁLI. Kæri Björn. Eg fór að huga að því, hvort ég hefði eitthvað nýti- legt efni að senda þér, og fann fátt, sízt jólalegt. Fjörurnar eru ekki eins rekasælar og fyrir nokkr um árum og það tekur sinn tíma að vinna úr keflunum, sem ég hef ver- ið að draga undan sjó. Hér fara svo úr hlaði þrír full- trúar sagnamanna minna, þeir Sig- urður J. Árness, ættfræðingur, Jón Sverrisson, fyrrv. yfirfiskimats- maður og Sigurður Þórðarson frá Brunnhóli í Hornafirði. Sigurður J. Árness var mörg ár heimamaður í Vestmannaeyjum um síðustu alda- mót, draumspakur og forvitri öðr- um fremur. Hefur hann skráð margt um þá reynslu sína frá Eyja- árum og gefið mér í handriti , sumt af því raunar áður birt á prenti. Sendi ég eina sögu hans um reynslu annars manns. Sigurður dvelur nú í hárri elli á Sólvangi í Hafnarfirði. Jón Sverrisson í Háagarði þekkja fjölmargir Vestmannaeyingar. Hann er einn mesti mætismaður, sem ég hef kynnzt. Á tíræðisaldri hef- ur hann hugsun og minni fram yf- ir marga unga menn, og er gott við hann að ræða fyrir þá, sem fíknir eru í forn fræði. Sagan um Magn- út í Skaftárdal er smádæmi um það, sem hugur Jóns geymir frá gamalli tíð. X mörg ár hef ég dregið afla úr minnissjó Sigurðar Þórðarsonar Hornfirðings. Hann kom ungur vermaður til Vestmannaeyja og var þar margar vertíðir. Allan efri hluta ævinnar hefur hann átt heimili í Árnessýslu, en málfari og minnum sveitar sinnar, austur á Mýrum ,hefur hann ekki glatað, og vel sé honum fyrir það. Eg sendi svolítið sýnishorn af því, sem ég hef „safnað í sarpinn" frá Sigurði á liðnum árum Jólavers huldufólksins, sem ég læt í lokin, er skráð eftir frú Arn- dísi Jónsdóttur frá Tungu í Fljóts- hlíð. II. HREKKUR STEINSSTAÐA-KOLA í Efra-Þorlaugargerði bjó Pétur Benediktsson og Ingibjörg Sigurð- ardóttir, Pálssonar bónda á Arnar- drangi. Pétur var fjörmaður mikill, ákafaverkmaður og fljóthuga, blót- samur nokkuð, ef því var að skipta. Veturinn 1898 réri Pétur á Farsæli hjá Kristjáni Ingimundarsyni í Klöpp. Kristján þótti með betri formönnum í Eyjum, veðurglöggur og fiskheppinn, prúðmenni mikið. Jafnan hafði hann valið lið. Hann kunni því betur, að menn sínir kæmu í tækan tíma að skipi. Pét- ur í Þorlaugargerði átti lengst til að sækja en lét þó aldrei bíða eftir sér. Taldi Kristján gott að hafa hann til fyrirmyndar. Venjulega hljóp Pétur niður í sand, hvort sem dimmt var eða bjart. Dag nokkurn, í birtingu, hitti Pétur Þórð á Steinsstöðum. Töluðu þeir um að eiga skipgöngu saman og kvaðst Þórður ætla að koma ferðbúinn að Þorlaugargerði eftir fimm minútur. Þær liðu og aðrar fimm mínútur til og ekki kom Þórður. Leiddist Pétri þá biðin og lagði af stað. Hljóp hann við fót að venju. Við Norður-Garðshlið- ið sýndist Pétri maður fara skammt á undan sér. Stikaði sá stórum og gaf engan gaum að Pétri. Pétur sá óglöggt til hans, því ekki var full- bjart. Hann hugsaði með sér: „Hver getur þetta verið? Er þetta Þórður? Eg skal ná í helvítið". Hann hlýtur að sjá mig eins og ég hann“ Hvatti Pétur svo sporið á eftir manninum og gætti ekkert að hvert leiðin lá, fyrir ákafanum. Gekk svo, unz maðurinn hvarf skyndilega, líkt og jörðin hefði gleypt hann. Pétur snarstanzaði og mátti ekki seinni vera, því hann var þá kominn . á blábrúnina á Kaplagjótu. Hann hafði þá orð fyr- ir sér og bölvaði venju fremur hraustlega til að fæla þennan ó- fögnuð frá sér. Þetta var í eina skiptið, sem Pét- ur náði ekki til skips í tæka tíð. Hann tók á móti félögum sínum á Farsæli, þegar þeir lentu, og sagði frá atvikum að því, að hann sat af sér róðurinn. Höfðu þeir gaman af. Flestir ætluðu, að villumaðurinn hefði verið Steinsstaða-Keli, draug- ur, sem svo var nefndur og ýmsir urðu varir við. Handrit Sigurðar J. Árness, ættfræðings. III. VERMAÐUR í VESTMANNAEYJUM. Föðurbróðir minn, Magnús í Skaftárdal á Síðu, réri á æskuárum í Vestmannaeyjum og lá við í koti uppi undir Helgafelli, hjá barnlaus- um hjónum, er þar bjuggu. Hjónin sváfu í loftbaiSstofu, en undir loft- inu var rúm Magnúsar. Konan hafði verið öðrum manni heitin og misst hann. Lá hann ekki kyrr í gröf sinni og gerði sig heimakom- inn í kotinu. Unni hann hjónunum lítt svefns og værðar og varð Magn ús oft fyrir ónæði af þeim óskunda. Tók hann þá vasahníf sinn, opnaði hann og stakk í rúmstokkinn sér til varnar. Aðsókn þessi endaði ömurlega, og vil ég tilfæra um það orð Magnúsar við mig: „Einu sinni heyrði ég svo mikil læti, að ég fór upp á loft, og var þá draugurinn búinn að drepa manninn fyrir fram an konuna í rúminu“. Þótti Magn- úsi það að vonum köld aðkoma Aðra vertíð lá Magnús við fyrir of- an Hraun. í róðri vildi honum það óhapp til að verða hraunfastur, svo umbúðirnar, öngull og vað- steinn, fóru forgörðum. Fyrir birt- ingu, næsta morgun, fór Magnús niður í Kaplagjótu til að leita að hentugum steini í vaðstein. Var hann rétt að byrja að bogra í grjót- inu er slæðingur gerði vart við sig. Sagði Magnús svo frá honum: „Allt í einu fannst mér draga úr mér allan mátt, og ég kófsvitnaði. Þá beit ég á jaxlinn, gat náð í vasa- hníf minn og skar út í myrkrið allt umhverfis mig. Við það rann þetta af mér.“ Oftar komst Magnús í kynni við eitthvað svipað, svo sem þegar hann lá einn að næturlagi í stúkunni rétt austan við. Klofgil í Hafursey á Mýrdalssandi og vaknaði þrisvar við það, að hann var dreginn af einhverri veru niður að læknum. Eg spurði frænda: „Fórstu ekki að lesa bænirnar þínar?“ Hann svar- aði heldur stutt: „Eitthvað las ég, en að það hafi verið bænir“. Sögn Jóns Sverrissonar, fyrrv. yfirfiskimatsmanns. IV. FRÁ MANNLÍFI í MÝRASVEIT. (Brot). Lif mannsins frá vöggu til gral'- ar var háð venjum, sem halda bar í heiðri. Eimdi eftir af ýmsu fram á mína daga. Ógæfumerki þótti að færa að minni mönnum. Umferðarkarl, gamall og fróður, kom til foreldra minna og var vel tekið. Hann sat lengi hjá þeim og skemmti með sögum og viðræðum Stúlka af næsta bæ kom inn í baðstofuna, meðan karlinn stóð við. Hann gerði þá hlé á sögu sinni, sem hann var að segja. Hún bað hann að halda áfram að segja söguna. Karlinn tók því vel, sló upp á. gamni og spurði hvort hún vildi þá ekki sitja hjá sér. Hún setti við það á sig snúð og sagði: „Eg sit ekki hjá flökkur- um”. Honum stórþótti og varð að orði: „Þó að ég sé aumingi, þá skaltu taka eftir þeim orðum mín- um, að ævin þín er ekki úti”. Þessi stúlka giftist og átti börn en komst í armóð, svo heimilið var leyst upp og börnin tætt sitt í hverja áttina“. Höfðu foreldrar mínir þau kjör oft á orði og minntust ummæla gamla mannsins. Aldrei var það vel séð, að marg- ir settust að sama manni, sízt, ef hann var minni máttar. Það var nefnt hundaat og um leið vitnað til hins gamla orðtaks: „Sér hvað sér vesælast er.“ Dagdómar voru aldrei í metum, þó stundum væru þeir felldir. Við þá átti líka orðtakið: Margt er það í húsi hafandi, sem ekki er á borð berandi. Eg heyrði sögu af manni, sem hafði iðkað þann óvana að fella þunga dóma um náungann. Hann dreymdi, að þessi vísa var kveðin á glugganum yfir rúmi hans: Engan dæma eigum hart oss það sæmir miður. Mannsins slæma er sú art einn að flæma niður. Hann lagði, eftir það, niður vond- an munnsöfnuð og illt umtal. Vín var oft haft um hönd, heima og heiman, og var bæði til gleði og ama, eins og gengur. Menn kváðu við raust ýmsar vísur undir áhrif- um og engar oftar en þessar: Þótt ég drekki, því er ekki að neita, Framhald á 29. síðu.

x

Fylkir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fylkir
https://timarit.is/publication/878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.