Fylkir


Fylkir - 23.12.1965, Page 21

Fylkir - 23.12.1965, Page 21
JÓLABLAÐ FYLKIS 1965 21 JÓLAMIN NINGAR Framh. af 17. síðu. tilbúið og snotrasti smíðisgripur, sem elzti bróðir minn, sem var tal- inn hagur vel og efni í smið, hafði heiðurinn af að hafa gjört ásamt vini sínum og frænda Jóhanni Jóns- syni frá Túni, síðar á Brekku. Það var um 3 álnir á hæð með beinu stefni og haglega telgdum greinum. Bolur og greinar vafið ræmum af grænum silkipappír. Á greinarnar voru hengdir mislitir riðnir pokar og riðnir pappírskrossar, sem þótti mikið vandaverk. Efst var fagur- lega gjörð stjarna. Úr pappírspok- unum á trénu gæddi fólkið sér og börnin; þau voru vön að koma úr nágrannahúsunum og horfa á tréð, en jólatré voru óvíða. í jólatrés- pokunum voru mest rúsínur og heimabakaðar smákökur. Um sæl- gætismunað handa börnum var ekki mikið á þesum árum. Aðfangadagskvöldið var helgað fagnaðarboðskapnum um fæðingu frelsarans. Ekki mátti raska jóla- helginni. Þannig var það heima hjá okkur, sálmar voru sungnir og guðs orð haft um hönd. Spil voru ekki hreyfð. Óþarfatal og allt slcvaldur harðbannað. Þögn átti sem mest að ríkja, varlega gengið um svo eigi heyrðust hurðaskellir. Eigi minnist ég annars frá mínum æskudögum í Eyjum, en að allt heimilisfólkið, sem var margt og víðsvegar að af landinu sumt, hafi verið samhuga um að halda uppi þessum gömlu, góðu íslenzku siðum. Ljós voru látin loga alla nóttina helgu. Börnin tímdu ekki að sofna út frá ljósunum og allri þeirri dýrð sem hugsunin um fæðingu frelsar- ans skapaði í hjörtunum. Fólkið lofaði skaparann, gjafarann allra góðra hluta. Á jóladaginn, cr fólkið var kom- ið frá kirkju, skammtaði húsmóðir- in, sem lítt átti heimangengt í jóla- messurnar, hinn eiginlega jólamat. Þeir, sem furða sig á því, að þessi gamli siður hélzt svo lengi hér úti í Eyjum, skyldu hugleiða það, að Eyjabændurnir bjuggu við sveita- búskap jafnhliða útgerðinni. Eyja- fólkið var margt aðkomið úr sveit- unum í landi. Þau munu samt hafa verið fá heimilin hér, sem héldu þessum gamla sið uppi fram á síð- ustu árin fyrir aldamót. Þannig var upp á gamla móðinn skammtað fólkinu hjá okkur. Eins og á diskana komst af kjöti, hangnu og sölfuðu, hveiti- og rúgbrauð, hvorutveggja heimabökuðu. Hveiti- brauð var aldrei bakað nema til hátíðabrigða. Með fylgdi bæði flot og tólg, vel úti látið. Samskonar skattur var framreiddur á nýársdag handa fólkinu, en það hafði gaman af að gæða börnunum og öðrum á þessum mikla mat. Á milli jóla og nýárs voru jóla- boðin, sem frændur og vinir héldu hvorir öðrum og gengið milli góð- búanna. Mest var skemmt sér við spil og tafl og unga fólkið fór í jólaleiki. Þeir voru mjög fjöl- breyttir og fylgdi þeim jafnan mik i! kátína. íþróttaleikir og ýmsar listir leik- ið af fjöri. Á þrettándanum var haldin blys- för með álfadansi og brennu á Póst- flötunum. Komu allir, sem vettlingi gátu valdið til að horfa á. Sungið var hátt og kveðið: „Nú er glatt í hverjum hól“, svo undar tók í fjöll- unum. Álfakóngur var hæsti mað- ur Eyjanna. Hann fór til Kanada. Seinna vai' álfakóngur maður jafn- hár Kristjáni konungi tíunda, að sögn kunnugra, svo eigi munaði tommu, eins og þeir komust að orði. Lengi hélzt sá siður, að grímu- klæddir unglingar færu undir leið- sögn ógrímuklæddra fullorðinna manna og gengju í hús að fengnu leyfi og sýndu sig. Mest var um þetta milli þorra og þrettánda. Margt mætti fleira tína til af sér- kennum frá þessum tíma, en ekki er rúm fyrir það hér. S. M. J. -inrr ~ "*n---- ~ — i Sendi viðskiptavinum mínum beztuóskirum , GLEÐILEG JÓL 09 farsælt komandi ár. , Þakka viðskiptin á árinu, sem er að líða. * JÓN HJALTASON IIÆSTAFtÉTTAKLÖGMAÐUB ; ***** Öskum starfsmönnum okkar og viðskiptavinum GLEÐILEGRA JÓLA Þökkum viðskiptin á liðnum árum. FISKIMJÖLSVERKSMIÐJAN H. F. Óskum starfsmönnum okkar og viðskiptavinum GLEÐILEGRA JÓLA Þökkum viðskiptin á liðnum árum. Vestmannaeyja-Bíó Samkomuhús Vesfmannaeyja h. f.

x

Fylkir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fylkir
https://timarit.is/publication/878

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.