Fylkir


Fylkir - 23.12.1965, Síða 23

Fylkir - 23.12.1965, Síða 23
JÓLABLAÐ FYLKIS 1965 23 Dýrmætasta j ólagj öf in cftir JOHN COLLINS IIARVEY, docent við Jolins Hopkins-sjúkrahúsið í Baltimore í Bandaríkjunum. Það er á fyrsta ári sem aðstoðar- læknir, að það lýkst til fulls upp fyrir hinum unga lækni, hvílík á- byrgð upp á líf eða dauða er lögð á herðar honum. Sú ábyrgð getur vakið mikinn ugg í brjósti hans. Alvarlegur efi um þekkingu og getu vaknar í hug hans, og hann finnur sig óverðugan. Smátt og smátt vex sjálfstraust hans undir handleiðslu reyndra starfsbræðra og við traust og þakklæti sjúklinga, sem bata hafa fengið. En það vex hægt. Er á haustið leið, sem ég var að- stoðarlæknir við Johns Hopkins- sjúkrahúsið, höfðu efasemdir mín- ar orðið það miklar, að ég hafði því nær ákveðið að yfirgefa læknisstarf ið og byrja á einhvei'ju öðru. En forlögin gripu í taumana. Laugardagsmorgun í september var þeldökk kona, Irena að nafni, lögð inn á sjúkrahúsið. Hún átti mjög bágt, var skinin beinin og beygð af áhyggjum. Hún var 39 ára, en leit helmingi eldri út. Og ættingjar hennar, sem fylgt höfðu henni til sjúkrahússins, báru merki mikillar fátæktar. Irena talaði samhengislausar setningar, reif í hár sitt og var mjög taugaóstyrk. Hún hafði ekki neytt matar um skeið, aðeins legið í fleti sínu heima, sinnulaus um allt og alla. Læknir nokkur hafði úrskurð- að hana geðsjúka, en ættingjarnir vildu ganga úr skugga um það með því að fá úrskurð lækna Johns Hopkins sjúkrahússins. Eftir hádegi rannsakaði ég hana með aðstoð eldri starfsbróður. Við komumst að þeirri niðurstöðu, að hún þjáðist af alvarlegum blóð- skorti, hjartað slarfaði erfiðlega og auk þess hafði hún ofvöxt í skjald- kirtli. Ráðstafanir voru þegar gerð- ar gegn þessum sjúkdómseinkenn- um. Röntgenmynd af maga sýndi allstórt magasár, sem þegar var snúizt til varnar gegn. Hún fékk blóðgjöf og næringargjöf í æð í nokkra daga. Smátt og smátt færðist ró yfir Irenu. Hún fór að borða. Hjartað starfaði eðlilegar. Blóðleysið hvarf, og hún varð önnur manneskja. Við urðum sannir vinir þennan veikindatíma. Hún hafði ekki notið neinnar bóklegrar fræðslu og þekkti ekki heiminn utan heima- byggðar sinnar. En hún bjó yfir heilbrigðri skynsemi, og var mikill mannvinur. Eg eyddi mörgum frí- stundum á rúmstokknum hjá henni, og hlýddi á frásögn hennar um líf- ið á sveitabænum, um það, sem á jörðinni óx, matargerð og fjölskyld- una. Hún ann blómum, en einustu blómin, sem hún gat tínt, voru villt blóm í haga, hún braut einn- ig blómstrandi greinar af trjám og runnum. Loks rann sá dagur upp, er Irena skyldi útskrifuð. Hún tók í hönd mér og sagði hjartanlega og tilgerðar laust: „Innilegar þakkir, góði lækn- ir“. Við sendum hana til læknis í heimabyggð hennar, þar sem hún hafði ekki efni á að Jcoma til Balti- more til reglubundinna rannsókna. Hún áræddi heldur ekki að ferð- ast einsömul, hún hræddist ysinn og þysinn í stórborginni. Læknir- inn sendi okkur margar skýrslur um stöðuga framför, en í erilsömu starfi mínu, sem krafðist einbeit- ingar minnar, dofnaði smátt og smátt mynd Irenu í huga mér. Svo leið að jólum. Sjúkrastofurn ar voru skreyttar, og friður að- fangadagskvölds breiddist yfir sjúkrahúsið. Eftir kvöldverðinn fór ég yfir í skrifstofubygginguna þar sem kirkjukórinn hafði sungið jóla sálmana fyrir starfsfólkið síðastlið- in 15 aðfangadagskvöld. Starfsfólk, sem var langt í burtu frá heimilum sínum og ástvinum, einmana með vandamál sín, en þó allt sameinað í starfi, að líkna og lækna, stóð og sat við handrið hæð- anna fjögurra, sem mynduðu hring laga anddyri. Lengst niðri stóð kórinn í sínum fótsíðu kórkápum og myndaði hálf- hring við hið stóra marmaralikn- eski af Kristi og hafði yfir sameig- inlega bæn, síðan hófst söngurinn. Allt var þetta fagurt og hug- næmt, en mér leið ekki vel innan- brjósts. Þetta voru fyrstu jólin að heiman. Eg reyndi að einbeita mér að söngnum, en efinn um köllun mína, óánægjan með það, sem ég hingað til hafði afrekað og almenn tilfinning um óhæfni mína, þrýsti sál minni í duftið. Að lokum var Hallelúja-kórinn úr „Messías", eft- ir Hándel sunginn, og jólatónleik- unum var lokið. Kórinn fór inn í deildirnar til þess að syngja fyrir sjúklingana. Þegar ég var á leið til minnar deildar, gaf húsvörðurinn mér merki um að koma. Hann rétti mér öskju, sem rauðu bandi var hnýtt um. Á meðan kórinn hafði sungið, hafði þeldökk kona komið og spurt eftir mér. Húsvörðurinn hafði sagt henni, að erfitt yrði að finna mig fyrr en að söngnum loknum. Hún sagðist ekki geta beðið, það væru aðeins tuttugu mínútur þar til síð- asti langferðabíllinn legði af stað heim. Eg fór með öskjuna upp á her- bergið mitt og opnaði hana. Jóla- myndir, klipptar úr blöðum voru límdar á hana. Gamalt, hálft jóla- kort var þar á meðal og með rauð um blýant var strikað yfir nafn á kortinu, en í stað þess var nafn mitt skrifað þar með barnalegum Framh. af 15. síðu. 1851, og hefur hún þá þegai' verið hennar og innanstokksmuni frá í vanhirðu, en listinn yfir muni hennar er svona: Fæðingartöng úr furu, máluð, og önnur ómáluð. (Hér mun átt við tré handföng, því að armarnir hljóta að hafa verið úr járni). 2 röndóttar léreftsundirsængur, meira eða minna músétnar. 1 langur rönd- óttur léreftskoddi, annar stuttur, báðir músétnir. 6 bómullarlök. 2 hey-madressur. 1 skásett höfuð- madressa og önnur flöt. 4 röndótt- ar léreftsábreiður og tvær ullar á- breiður, allar meira eða minna músétnar. 2 eldiviðarkassar. 1 lýsis- dunkur. 1 tepottur óskemmdur. 2 matarskálar, skemmdar. 1 loft- þyngdarmælir, nú í vörzlu sýslu- manns. 1 hitamælir. 1 rakamælir. 2 smáborð. 1 vatnstunna með loki. 4 rúlluskýlur fyrir glugga. 1 hægða- skál úr tini. 1 viðaröxi. 2 gráðu- mælar (blóðhitamælar?)). Ekki var nú útgerðin burðug enda stóð vegur hennar stutt. Þó gerði Fæðingarstofnunin eða öllu heldur sá þrifnaður, sem dr. Schleisner innleiddi í sambandi við hana, mjög mikið gagn, svo að eftir komu hans og starf Sólveigar ljósmóðui' skipti alveg um. í stað þess, að áð- ur dóu um 70% allra nýfæddra barna úr ginklofa, dó aðeins eitt 1849 og hann hætti að vera sú hræðilega landplága, sem hann hafði áður verið. Iiinn danski sýslumaður og danski héraðslæknir, sem örlögin höfðu fleytt í land á Vestmannaeyj- um, þar sem þeir elduðu oftast grátt silfur, báru þar báðir bein- in og dóu sama ár. Orstýr kapteins prentstöfum. í öskjunni voru nokkr ar grenigreinar, ferskar og fallegar. Eg vissi strax, hver gefandinn væri og hvers vegna hann hefði ekki getað beðið. Irena hafði farið þessa löngu leið til Baltimore og átti nú fjögurra stunda bílferð fyr- ir höndum heim, og það á aðfanga- dagskvöldi. Ferskar grenigreinar í fátæklega skreyttri öskju, sem um var bund- ið rauðu bandi með mörgum hnút- um á. Óásjáleg jólagjöf, frá fátækri fákunnandi konu — og dýrmæt- asta gjöfin, sern ég hef fengið á ævinni. Eg gekk að glugganum og leit upp í dimmbláan himininn með skær-lýsandi stjörnum. Eg heyrði óminn af kórsöngnum: „Gjafir vér færum, frá fjarlægu landi.“ Og sá efi, sem svo lengi hafði í- þyngt mér, var í einni svipan horf- inn. Eg þekkti köllun mína! Jóh. S. Hliðar þýddi lausl. Kohl hefur alltaf lifað í Eyjum, en það verður heldur ekki af læknin- um skafið, að hann hafi að ýmsu viljað vel og ætlað að koma betri skipan á heilbrigðismál, þótt lítið yrði úr því, því við ramman var reip að draga, þar sem var mis- sætti við sýslumann, tregða og fá- tækt alls almennings og lítill stuðn- ingur hjá stjórnarvöldum. Davidsen var síðasti danski lækn irinn í Eyjum. Næstur honum kom Magnús Stephensen og er til eftir hann mjög ófögur lýsing á menn- ingarástandi Eyjabúa. Ef til vill hefur hann verið svartsýnni fyrir þá sök, að hann var í raun og veru helsjúkur maður og dó í Vestmanna eyjum úr berklum eftir tveggja ára veru þar. Eftir hann tók við hér- aðslæknisembættinu Þorsteinn Jóns son, sem fékk viðurnefnið Eyja- jarl, því að hann lét mjög að sér kveða, var forustumaður í mörgum félagsmálum, þingmaður og oftar en einu sinni settur sýslumaður. Hann var læknir Eyjabúa frá 1865 til 1905, keypti Landlyst, sem þá þótti mjög veglegt hús, og bjó þar æ síðan, en eftir hann tengdasonur hans, Ágúst Gíslason, er síðar reisti húsið Valhöll og flutti þangað. Fæðingarstofnunin í Vestmanna- eyjum var fyrsta sjúkrahús á ís- landi, ef frá eru talin hospítölin gömlu, sem eingöngu voru hæli fyr ir holdsveikt fólk og þó jafnan lít- ið notuð. Landlyst er því sögufræg- asta hús Vestmannaeyja, fyrst sem fæðingarspítali, síðan sem sýslu- mannsbústaður og, svo um 40 ára bil aðsetur Eyjajarlsins. Vestmanna eyingar ættu að sýna því þann sóma að varðveita það, helzt í sinni upprunalegu mynd, og það sem allra lengst. FÆÐINGARSTOFNUNIN í VESTMANNAEYJUM

x

Fylkir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fylkir
https://timarit.is/publication/878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.