Fylkir


Fylkir - 23.12.1965, Síða 27

Fylkir - 23.12.1965, Síða 27
JÓLABLAÐ FYLKIS 1965 ÚR DAGBÓKARBLÖÐUM AGNESAR AAGAARD. Framhald af 25. síðu. fararinnar. Kl. 11—12 gengum við þangað niðureftir. Kistan stóð í gestastofunni, þar sem var búið langborð fyrir lægra sett fólk. Við hin komum saman í einkaherbergjum hennar. Borðið svignaði undan smurðu brauði og jólakökum, sem var borðað með kaffi. Það tók lík- lega nokkrar klukkustundir. Síðan var kistan borin út og sett niður utan við húsið, þar söfnuðust menn um hana og þá hélt presturinn mjög fagra ræðu. Því næst fylgdu allir kist- unni í kirkju. Kistan var falleg, eftir því sem gerist um íslenzka smíði, svartmáluð og breið í höfðalagið og þrengri til fóta. Á hana voru settar til skrauts hvítar, renndar kúlur, og á henni miðri lá lyngkrans. Kirkjan var klædd svörtum dúk og kistan var sett fyrir fram an altarið, og nú sat maður skelfilega lengi og beið. Eg hélt að þetta væri venja, en heyrði seinna, að það hefði verið vegna þess, að ekki var búið að taka gröfina, af því að hvað eftir annað hefði frá báðum hliðum steypzt gamlar kistur ofan í gröf ina. Loksins komu líkmennirnir og presturinn hélt aftur ræðu og var hún einnig lagleg. Síðan var kistan borin út -í kirkjugarð- inn undir klukknahljómi og fylgdi allur hópurinn. Prestur- inn kastaði á hana mold og síð- an byrjuðu 6 menn að fylla gröf- ina og allan tímann, sem þeir unnu að þvi, söng öll líkfylgdin sálma. Síðan gengu allir aftur í kirkju og þar voru aftur sungn- ir sálmar og þá fyrst hurfu menn burtu og var klukkan þá orðin fjögur. Hvernig líst ykkur á svona útför? Hér er enginn graf- ari. Þurfi að jarða einhvern, verða aðstandendur að annast töku grafarinnar. Hinsvegar eru hér líkmenn. í kirkjugarðinum var lesið fallegt kvæði, sem einn bændanna hér hafði ort. Hún naut almennra vinsælda og hennar verður mikið saknað.“ Þetta hefur verið óvenjuleg útför bæði að viðhöfn og tímalengd, enda spunnust af henni miklar sög- ur um reimleika og afturgöngur, sem hefðu átt að torvelda töku grafarinnar. Síðan heldur frásögnin áfram: „Nýársdag kom lænirinn hér á lcið frá kirkju og bauð okkur til súkkulaðidrykkju næsta dag í tilefni af afmæli elztu dóttur hans. Við fórum þangað öll þrjú, þrátt fyrir nístandi kulda og fengum mjög þunnt súkkulaði. Kl. 3 fórum við heim, en kl. 7 fórum við þangað aftur í te. Þar var mjög snoturt kvöldborð: sardínur, hangikjöt, kæfa (ís- lenzkur réttur, sem er búinn til svona: Heill kindarskrokkur eða minna er soðinn svo að hægt er að taka kjötið af beinunum í mjög smáum stykkjum. Síðan er það aftur sett í pottinn og hrært saman við alla feitina og mikið saltað. Á eftir er það sett í dós- ir og látið standa um tíma. Þá er hægt að skera það í sneiðar eins og sultu og það er bragð- gott), spægipylsa, stokkendur, ostur, bæheimsöl og te. Þetta var ágætt . . . En í næstu viku var ég önnum kafin við að sjóða hangikjöt, saltkjöt og rúllupylsu, af því að við ætluðum að bjóða heim prestshjónunum og læknis- hjónunum eitthvert kvöldið. En veðrið versnaði með hverjum degi, svo að við gátum ekki beð- ið prestshjónin að ganga þessa löngu leið hingað niðureftir. Við ákváðum því að bjóða lækn- ishjónunum einum á sunnudag. Þau komu að sjálfsögðu og ég sat hjá konunni og var í öngum mínum við tilhugsunina um það, hvernig ég ætti að hafa ofan af fyrir þeirri konu. Um tíma skoð- uðum við allar mínar ljósmynd- -------------------------------27 ir, en á eftir var leiðinda þögn, þangað til ég í örvæntingu sótti spil og stakk upp á að við slægj um í slag og það féll í góða jörð. Jafnvel eiginmaðurinn sleit sig úr samræðum við Maríus og spilaði með okkur og þannig leið kvöldið þolanlega. í þessari viku verða prestshjónin hjá okk- ur. Það er ólíkt auðveldara að skemmta prestsfrúnni, af því að hún getur rætt um hitt og þetta.“ Kóna Þorsteins læknis var Matt- hildur Magnúsdóttir úr Helgafells- sveit. Hún hefur líklega ekki ver- ið stálslegin í dönskunni óg þær frúrnar því verið á sitt hvorri bylgjulengd. Kona séra Brynjólfs var Ragn- heiður dóttir Jóns Salomonssonar, kaupmanns í Reykjafirði á Strönd- um. Frh. á 33. síðu. Gömul Eyjamynd. — Þannig var innsiglingin og höfnin í meira en þúsund ár. Framh. af 7. síðu. Það var um dagverðarleytið. Pét- ur Hjörtur, framkvæmdastjóri, sat og borðaði steikt slátur og flat- brauð, þegar Sópa-Jói kom inn og lagði stóran málmstein á borðið. Svo máttvana var Jói þá orðinn, að hann varð að slyðja sig við borðs- hornið til þess að hníga ekki nið- ur. „Hvar fannstu þennan málm- stein?“ spurði Hjörtur og dýfði slátursneiðinni ofan í pönnuna- „Hér norður í fjallinu,“ svaraði Jói. „Ertu svangur?“ spurði Hjörtur. „Ekkert of saddur", svaraði Jói. „Fáðu þér sláturbita," sagði for- stjórinn. Þennan dag liafði Helena steikt afburðagott, súrt slátur. Jói stakk smábita upp í sig. Bragðið var svo gott, að honum r lá við gráti. Hjörtur tók steininn, skoðaði hann og spurði: „Getur þú aftur fundið staðinn, þar sem þú fannst hann?“ „Já,“ svaraði Jói. Nú fór Hjörtur að virða dreng- inn fyrir sér. „Hvaðan ertu?“ „Úr Dölunum." „Getur þú lesið?“ „Ja-á.“ „Það væri gaman að heyra, hvað þú kant í kverinu. — í hvaða til- gangi skapaði Guð mennina?" „Til þess, að þeir yrðu eilíflega sælir.“ Hjörtur kinkaði kolli samsinn- andi. „Hvað ertu gamall?“ „Varð sextán ára þrem vikum eftir krossmessu." „Getur þú reiknað í huganum?“ „Ofurlítið “ i-Jói „Hvað er eftir af 17, 5, 9, 6 og 3, ef frá eru dregnir 4, 2 og 1? „33“, svaraði Jói viðstöðulaust. „Kant þú að skrifa?“ „Dálítið.“ „Hver kenndi þér það?“ „Það hefi ég lært tilsagnarlaust.“ „Blessaður fóðu þér bita,“ sagði forstjórinn og benti á pönnuna. „Þökk fyrir. Eg hefi nú þegar fengið." „Helena, Helena!“ hrópaði Hjört- ur. „Gefðu drengnum heilan kepp, hann virðist vera glorhungraður." „Sjálfsagt," sagði Helena og hneigði sig fyrir húsbónda sínum. Þar, sem Sópa-Jói fann steininn varð mikil koparnáma. Jóa-náma var hún nefnd. í sjö vikur gekk Jói til sýslu- skrifarans á „Staðnum“ og lærði reikning og skrift. Og skrifarinn sagði afdráttarlaust, að annað eins höfuð á dreng hefði hann aldrei hitt fyrr. Seinna varð Jói verkstjóri við nýju námuna. Hann fékk góð laun, svo móðir hans þurfti, aldrei fram- ar að búa til hrísvendi. En fólkið i Dölunum skammaðist sín. Þeir höfðu hlegið að honum, gert gys að lærdómi hans og sagt ,að hann læsi frá sér allt vit, urðu nú að kyngja allri sinni hótfyndni. „Maður ætti aldrei að gera gys að neinum," sagði Björn frá Grænaási. „Því sá, sem heimskastur sýnist, getur verið mesti spekingur." Það er mikið til í því. S. B. þýddi.

x

Fylkir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fylkir
https://timarit.is/publication/878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.