Fylkir - 07.01.1966, Qupperneq 1
Tillögur um breyting-
ar á umferð ökutækja
Á íundi bæjarráðs hinn 3. þ. m.
mætti yfirlögregluþjónn, Guðm-
undur Guðmundsson ásamt lög-
reglustjóra, Freymóði Þorsteins-
syni með tillögur um brcytingar á
umferð ökutækja hér í bæ. Hafði
Sigurður Ágústsson frá umferðar-
lögreglunni í Reykjavík dvalið hér
nokkra daga fyrir áramót og kynnt
sér aðstæður og yfirfarið tillög-
urnar og mælt með þeim. Taldi
yfirlögregluþjónn að frekari brcyt-
ingar þyrfti að gera á umferðinni,
en árangursríkara myndi að gera
þær í áföngum til þess að fólk gæti
betur áttað sig á þeim, en að taka
þær allar fyrir í einu. Bæjarráð
samþykkti tillögurnar fyrir sitt
leyti og eru þær svohljóðandi:
Bárugata.
1. Bárugata hefur einsteínuakst-
ur til suðurs frá Miðstræti að
Vestmannabraut.
2. Vinstri beygja er bönnuð af
Vestmannabraut og Vesturvegi
inn á Bárugötu.
3. Bárugata hefur biðskyldu (um-
ferðarm. A - 4) fyrir Miðstræti
og Strandvegi.
4. Ökutækjum má ekki leggja á
Bárugötu frá Strandvegi að Mið-
stræti. (Umferðarm. B - 15 og
gulir kantsteinar.
5. Tímatakmarkað stöðuleyfi verði
veitt ökutækjum sem lagt er á
Bárugötu fyrir sunnan Miðstræti.
30 min. frá kl. 9-19. (Umferðarm.
B—16).
Vcstmannabraut.
1. Vcstmannabraut hefur einstefnu
til austurs frá Bárugötu að
Kirkjuvegi.
2. Akstur af Kirkjuvegi inn á Vest
mannabraut til vesturs er bann-
aður.
3. Vestmannabraut hefur stöðv-
unarskyldu (umferðarm. B—13)
fyrir Bárugötu.
4. Ökutækjum má ekki leggja á
Vestmannabraut frá Skólavegi
að Bárugötu. (Umferðarm. B—15
og gulir kantsteinar.)
5. Tímatakmarkað stöðuleyfi verði
veitt ökutækjum, sem lagt er á
Vestmannabraut frá Bárugötu að
Kirkjuvegi. 30 mín. frá kl. 9—
19. (Umferðarm. B—16.)
Vesturvegur.
1. Vesturvegur heíur biðskyldu
(umferðarm. A—4 Bárugötu og
Heiðarvegi.
2. Bifreiðarstæði verði merkt.
Herjólfsgata.
1. Herjólfsgata hefur biðskyldu
fyrir Vesturvegi.
Ónefnd gata.
sem er í framhaldi af Urðarveg
til vesturs, hafi biðskyldu fyrir
Kirkjuvegi (Miðstræti.)
Kirkjuvegur.
1. Kirkjuvegur hefur biðskyldu
fyrir Vestmannabraut.
2. Nauðsyn getur borið til að
banna verði að leggja ökutækj-
um vestan til á Kirkjuveg frá
Vestmannabraut að Miðstræti.
Ililmisgata.
Hilmisgötu verði lokað við
Kifkjuveg, þar til frekari breyt-
ingar kunna að koma til fram-
kvæmdar.
Einstcfna.
Leggja ber ökutækjum hægra
megin á einstefnuakstursgötum.
(51. gr. umferðarl. 3. mgr. Akst-
ur og umferð bls. 22.)
í stórum dráttum eru helztu
breytingarnar þessar:
Einstefnuakstur verður á Báru-
götu til suðurs frá Miðstræti að
Vestmannabraut og bílastöður
tímabundnar þar við 30 mínútur
frá kl. 9 á morgnana til klukkan
sjö á kvöldin. Lengi hefur verið
talað um að gera Bárugötu að ein-
stefnuakstursgötu en ekki orðið af
framkvæmdum. Verður að telja
slíka ráðstöfun til bóta þar sem
Bárugata er því miður allt of'
þröng og verður ekki breikkuð, en
mjög mikil umferð er um götuna
bæði af ökutækjum og gangandi
fólki, enda ein aðal verzlunargata
bæjarins.
Önnur breyting á umferðinni er
tillagan um að gera Vestmanna-
braut að einstefnuakstursgötu til
austurs frá Bárugötu að Kirkju-
vegi. Á þessum kafla Vestmanna-
brautar er einig mjög mikil um-
ferð bæði ökutækja og gangandi
fólks. Þessi breyting gerir það að
verkum að þau ökutæki, sem
koma niður Kirkjuveg vestan Mið-
strætis og upp Bárugötu, sem við
breytinguna á að vera orðið mjög
greiðfær leið, og síðan annaðhvort
vestur Vesturveg eða Vestmanna-
braut ef þau ætla að komast inn á
Heiðarveg.
Má segja að þetta séu helztu
breytingarnar, sem til stendur að
gera í umferðinni í bili, auk breyt-
inga á biðskyldumerkjum og fleiri
merkjum, sem upp verða sett.
Breytingar þessar taka þó ekki
gildi nema að bæjarstjórn sam-
þykki þær og eftir að þær hafa
verið samþykktar og tilskilin
merki sett upp.
Skrásett ökutæki hér í bæ munu
nú orðin yfir 600 og er það miklu
hærri tala ökutækja en nokkurn
hafði órað fyrir að hér yrði á þess-
um tíma og fer þeim sífellt fjölg-
andi. Segir það sig sjálft að slík
aukning ökutækja hlýtur að leiða
af sér ákveðnari reglur í umferð-
inni til verndar bæði þeim og ekki
síður gangandi fólki. Er það því
vel að þeir aðiljar, lögreglan, sem
eftirlit hefur með þessum málum
skuli hafa vakandi auga fyrir
breytingum til úrbóta eftir því,
sem nauðsyn krefur og aðstæður
leyfa- LAHDS8GKAS/
Stoíníundur
Þann 29. desember s.l. var hald-
inn í Samkomuhúsinu stofnfund-
ur félags áhugamanna um sjón-
varp. Var fjölmenni á fundinum og
áhugi manna um að skapa skil-
yrði til þess að hægt væri að horfa
á og hafa not af þeirri einu sjón-
varpsstöð, sem hér er rekin, þ.e.
sjónvarpsstöð varnarliðsins á
Keflavíkurflugvelli. Þá var ekki
síður áhugi fundarmanna fyrir því
að þegar íslenzka sjónvarpið komi
til sögunnar að þá yrði svo um
hnútana búið að þess yrði ekki
síður not hér í Eyjum heldur en
í næsta nágrenni Reykjavíkur.
í stjórn félagsins voru kosnir:
Bragi Björnsson, lögfræðingur,
formaður,
og með honum í aðalstjórn:
Gunnlaugur Axelsson, forstjóri,
Stefán Björnsson, sölustjóri,
Guðleifur Ólafsson, fiskimatsmaður
Páll Helgason, verzlunarstjóri.
Siðleysi!
Olíufélagið Skeljungur hefir
komið upp tveimur þvottaplönum,
annað fyrir vörubíla og hitt fyrir
fólksbila, með tilheyrandi þvotta-
tækjum, til mikils liagræðis fyrir
bilaeigendur og er þjónusta þessi
útgjaldalaus fyrir neytendur.
En vegna skemmdarstarfsemi er
fullt útlit fyrir að þessari starfsemi
verði hætt cf ekki verður breyting
á.
Slöngur eru sundur skornar og
kústum stolið, svo ekki hefst und-
an að endurnýja þetta.
Allstaðar annarsstaðar á landinu
er þjónusta þessi vel þegin, og er
illt til þess að vita, ef ómenning
eins og hér um ræðir er á mun
hærra stigi, en allstaðar annars-
staðar hér á landi.
Þeir sem yrðu varir við ómenni
þessi að verki, gerðu vel að láta
lögreglu vita.
i! Ólafur Á. Kristjánsson.
2GG795
fSLAHSS