Fylkir - 01.04.1966, Qupperneq 6
Ufsaumaður sængurfafnaður
og VÖGGUSETT, nýkomið
Einnig sængurver úr silkidamaski, LÖK OG KODDAVER.
GLÆSILEG VARA!
Seglagerð Halldórs
VERZLUN VIÐ HEIMATORG
-----------------------------.
Neðan frá sjó.
v_________ J
Gæftir: Veður til sjósóknar hefur
verið skaplegt að undanförnu, og
suma dagana alveg ágætt. Allur
flotinn hefur því verið úti, en því
miður hefur margur haft meira erf-
iði en erindi.
Netin: Enn er alveg sáratregt í
netin. Einn og einn bátur fær að
vísu sæmilegan róður öðru hvoru,
en yfirleitt ördeyða og líklega einna
slakast í fyrradag. Bíða nú allir í
ofvæni eftir páskahrotunni og
finnst mörgum all seint ganga, en
aðrir taka þessu aflaleysi með
meiri ró — og segja og endurtaka í
sífellu — hann kemur, hann kemur.
Botnvarpan: Eini ljósi punkturinn
hvað viðvíkur aflabrögðunum er
botnvarpan. í vörpuna hefur verið
góður afli, og hjá mörgum alveg af-
bragð. Má í þessu sambandi benda
á Suðurey, er km einn daginn með
41 tonn. Voru um 30 tonn af þorski,
hitt að mestu koli. Allt af afla Suð
ureyjar var slægt. Þá kom Baldur
inn núna í vikunni með um 30
tonn. — Af þessu sést„ að það
hefur heldur betur hlaupið á snær-
ið hjá trollbátunum.
„Nótafiskararnir“: í þorsknótina
hefur alveg verið steindautt að
undanförnu. Um seinustu helgi
fréttist af síld hérna „suður frá“.
Tóku þá nokkrir nótabátar síldar-
nætur um borð, en lítið kom „út úr
því“. Fengu 3 bátar smáslatta,
mest um 200 tunnur, — Halkion.
Ennþá eru um bátar með loðnunót.
En líklega fer þeim fækkandi úr
þessu. Mestan afla af loðnu hefur
Gjafar, alveg um 32 þús. tunnur.
íslenfur IV. fylgir honum fast eft-
ir með eitthvað dálítið minna magn.
Hefur Gunnari Jónssyni frá Mið-
ey, sem hefur verið skipstjóri á
ísleifi IV. að undanförnu, gengið
ljómandi skemmtilega, og virðist
alveg hafa náð tökum á nótaveið-
um. Er gaman til þess að vita, þeg-
ar svona vel fer á stað hjá nýbyrj-
endum.
Loðnan: Fiskimjölsverksmiðjan
h. f. er nú um það bil að ljúka við
að bræða loðnuna. Hefur lítið verið
afskipað af loðnumjöli að undan-
förnu og því miklar birgðir fyrir-
liggjandi. Er nokkur sölulregða
eins og stendur á fiskimjöli, og
nokkuð verðfall hefur átt sér stað
og þá einkum á mjöli unnið úr
loðnu. Perú-menn hafa fiskað ein-
hver ósköp að undanförnu og seg-
ir slíkt vanalega til sín í einhverju
verðfalli og sölutregðu.
Aflaskýrslan: S. 1. miðvikudags-
kvöld voru eftirtaldir bátar komnir
með 200 tonna afla og yfir:
Skálaberg ................ 410
Andvari .................. 36j
Leó ...................... 360
Pálmasunnudagur
Sú hefð hefur skapazt víða um
land að helga pálmasunnudag
kristniboðsstarfi meðal heiðinna
þjóða. Hér í Vestmannaeyjum hef
ur það verið gert við guðsþjónustu
í Landakirkju, þar sem tekið hefur
verið á móti frjálsum fjárframlög-
um til styrktar kristniboðsstarf-
semi, mun svo gert einnig að þessu
sinni, en við guðsþjónustuna kl. 2
e. h. mun cand. theol. Benedikt
Arnkelsson stíga í stólinn. Þá hef-
ir K. F. U. K. gengizt fyrir kaffi-
sölu í húsi sínu allan þann dag frá
kl. 3 e. h. og fram á kvöld, og hef-
ur ágóðinn af þeirri sölu runnið ó-
skiptur til sama starfs, og mun svo
einnig verða að þessu sinni.
Þessi fáu orð eiga að vekja at-
hygli yðar, góðir bæjarbúar, á þess
um tveim tækifærum, sem pálma-
sunnudagur býður upp á til þess að
styrkja kristniboð meðal heiðinna
þjóða.
Áhugafólk innan þjóðkirkjunnar,
sem stendur að Sambandi íslenzkra
kristniboðsfélaga hefur um árabil
rekið kristniboðsstarf í Konsó í
Eþiópíu, sem kunnugt er. Samband
ið nýtur engra opinberra styrkja.
Allt kristniboðsstarf í Konsó er
kostað af þeim gjöfum, sem ein-
staklingar, sem unna þessu starfi,
og skilning hafa á gildi þess, leggja
fram af örlæti miklu og hlýhug,
Sem að líkum lætur eykst þörf S.
í. K. með ári hverju. í Konsó er
ört vaxandi starf, sem krefst auk-
inna bygginga, svo sem sjúkraskýl-
is, skóla, íbúðarliúsa, starfsliðs o.
fl. auk launa starfsfólks, íslenzks
og þarlends. Allt er þetta háð örlæti
og kærleika kristniboðsvina hér
heima til þessa mikilvæga mannúð-
ar- og trúarstarfs.
Þessu starfi fylgir blessun. Mik-
illi neyð er mætt og úr henni bætt
með kærleiksþjónustu. Þú, sem
Björg SU .................. 298
Sæbjöi'g .................. 296
Glófaxi ................... 296
Suðurey ................... 277
Júlía ..................... 261
Björg VE .................. 258
Lundi ..................... 246
Þráinn NK ................. 245
Stígandi .................. 243
Björg NK .................. 235
Baldur .................... 230
Ver ....................... 218
Einir ..................... 209
Stefán Árnason ............ 206
Sæfaxi .................... 200
Kristniboðsdagur.
leggur þinn skerf af.mörkum, ferð
ekki á mis við blessunina.
Verum minnug orða Drottins
Jesú Krists: „Hvað sem þú gerir
einum þessara minna minnstu
bræðra, hafið þér gjört mér.“
Vinnum í þeim anda, innum kær
leiksþjónustu af hendi með því að
styrkja Samband íslenzkra kristni-
boðsfélaga. Fjölmennum í Landa-
kirkju, fjölmennum til kaffidrykkju
í hús K. F. U. M. og.K. á pálma-
sunnudag.
Jóhann S. Illíðar.
Ósköp er nú dapurlegt fyrir krat
ana að vera að fjasa um bílastyrk
til bæjarstjórans hér í Eyjum. Það
kann nú að rifjast upp fyrir manni
og manni, að kratarnir hafa nú yfir
leitt ekki verið afskiptir, þegar um
eitthvað hefur verið að ræða hjá
ríki eða bæ. Og af þvi að vitað er
að kratarnir vilja láta Guðlaug
njóta sanngirni, og eru lausir við
að vera með órökstuddar dylgjur
í hans garð, er þá ekki alveg upp-
lagt að gera samanburð á tekjum
Guðlaugs og einhvers úr þingliði
kratanna. Það má einu gilda hver
af þessum höfðingjum er. Þegar
þessi samanburður liggur. fyrir
skýrast málin vonandi fyrir kröt-
unum og öðrum, og gæti þá ef til
vill komið í ljós, að ef aðeins væri
sneitt utan af bílastyrkjum topp-
kratanna mætti byggja heilt sjúkra
hús fyrir það, sem við það sparað-
ist.
Sigurður Stefánsson spyr í sein-
asta Eyjablaði, hvaðan það fólk
komi, sem aldrei hafi séð milbik-
aða götu. Því er fljótsvarað, það
kemur austan af Norðfirði, en þar
hafa kommarnir ráðið í tugi ára.
NÁTTÚRUGRIPASAFN
kaupstaðarins við Heiðarveg, er
opið sem hér segir:
Þriðjudaga kl. 8—9 e. h.
Fimmtudaga kl. 8—9 e. h.
Laugardaga kl. 5—7 e. h.
Sunnudaga kl. 4—6 e. h.
Um páskana:
Föstudaginn langa kl. 4—6 e. li.
Páskadag kl. 4—6 e. li.
Annan í páskum kl. 4—6 e. h.
Þjóðkirkjan: Messað á sunnudag
inn kl. 2 e. h. Séra Jóhann S. Hlíð-
ar prédikar. Um páskahátíðina: Á
skírdag kl. 5, séra Þorst. L. Jónsson.
Föstud. langa kl. 2, séra J. Hlíðar.
Páskadag kl. 8 f. h. Þ. L. J. og kl.
2, J. Hlíðar. 2. dag páska kl. 2 Þ. L.
Jónsson.
Betel: Samkoma n. k. sunnudag
4,^0. Barnaguðsþjónusta kl. 1.
Afmæii: Eftirtaldir borgarar
eiga afmæli á næstunni: Sigurbjörg
Benediktsdóttir, Sólhlíð 7, verður
50 ára á morgun. Sigrún Lúðvíks-
dóttir, Fífilgötu 10, verður 50 ára
9. apríl og Kristján Th. Tómasson,
Vestmannabraut 58B, verður 50 ára
10. apríl. Þann 6. apríl verður 70
ára Sigurjón Eiríksson, Boðaslóð 1.
Sigriður Árnadóttir, Vesturv. 15B,
verður 80 ára 10 apríl. Blaðið ósk-
ar öllum þessum afmælisbörnum
heilla.
Æskulýðsleiðtogi: Hér var á ferð
í vikunni séra Bragi Friðriksson,
æskulýðsleiðtogi Þjóðkirkjunnar. —
Korp hann hingað til að kynna
sóknarnefnd Landakirkju fyrirhug-
aðar byggingarframkvæmdir ung-
lingabúða er reisa á 1 nánd við
Krísuvík á sumri komanda. Verða
sumarbúðir þessar reistar á vegum
Kjalarnessprófastsdæmis, og er ætl
unin, að allir kaupstaðirnir innan
prófastsdæmisins reisi eigin skála
innan þessara unglingabúða. Af
hálfu Vestmannaeyjabæjar hefur
verið ákveðið að taka þátt í þessu
samstarfi, mun bæjarsjóður kosta
byggingarframkvæmdir, en safnaðar
nefndir innan prófastsdæmisins sjá
um rekstur.
Aðalsteinn Hallsson: Nýlega hef-
ur Aðalsteinn Hallsson, kennari ver
ið ráðinn til þess að sjá um skipu-
lagningu og cndurbætur á barna-
leikvöllum bæjarins. Aðalstéinn er
gjörkunnugur þessum málum. Til
aðstoðar Aðalsteini við þetta starf
mun verða flokkur unglinga á aldr
inum 11—12 ára. Er hugmyndin, að
þessi unglingavinna verði skipu-
lögð á þan veg, að hver flokkur
vinni í 2—3 vikur í senn. Aðal-
steinn mun taka til starfa að lok-
inni kennslu í Barnaskólanum eða
strax í maí.
Brúðkaup: Á morgun verða gefin
saman í hjónaband í Landakirkju af
séra Þorsteini L. Jónssyni, ungfrú
Kristbjörg Ágústsdóttir, Sólhlíð 7,
og Friðrik Alexandersson, stýri-
maður, Reykjavík.
Áfengisvarnarráð: Sigurður Gunn
arsson, skólastjóri, fulltrúi Áfengis
varnarráðs, var í bænum í þessari
viku, og sýndi í skólum bæjarins
fræðslukvikmyndir um skaðsemi
tóbaks og áfengis.