Fylkir - 22.01.1971, Qupperneq 1
Vestm.eyjum, 22. jan. 1971
Qísli Qíslason
cinróma cndurkförinn §or
maður $ulltrúaráðsins
2. tbl.
SINFIS8-fiviimsluvéliir
OG MABURINN Á
¥10 ÞÆR
Allir Vestmannaeyingar
kannast viö hann Sigmund.
Hann heitir ekki Sigmundur,
eins og svo margir, heldur
bara Sigmund, í nefnifalli, og
er Jóhannsson. Þetta þótti
mörgum í Eyjum skrýtið til að
byrja með, en það vandist er
frá leið. Allir Eyjabúar og
margir aðrir landsmenn vita
líka, að Sigmund fæst við að
finna upp ýmiskonar vélar og
tæki í sambandi við fiskveið-
ar og þó einkum fiskiðnað.
Hann nefnir þessar vélar sín-
ar einu nafni eftir sjálfum sér
og þeim verkefnum, sem þeim
cr ætlað að fást við, þ. e.
SIMFISK.
Færri hafa gert þá grein
iyrir því, sem vert væri, að
vmsar hinar eldri uppfinning
ar Sigmunds hafa gerbreytt
afkasta- og nýtingarmöguleik
um í fiskafurðavinnslu á til-
teknum sviðum og eru nú í
notkun víða í verstöðvura
landsins, og hafa auk þess
verið útfluttar til fjögurra
þjóðlanda. Ýmsar hinar nýrri
vélar hans gefa einnig fyrir-
heit um enn bætta nýtingu
sjávaraflans og verðmæta út-
flutningsafurð úr þeim pört-
um fisksins, sem vegna óhag-
kvæmni í vinnslu hefur hing-
að til vcrið fleygt í mjöl.
A'lar SIMFISKvélar, sem
Sigmund sjálfur hefur látið
framleiða og ábyrgist að gæð
um, eru frá upphafi smíðað-
ar í Vélaverkstæðinu Þór hér
í Eyjum, af séræfðum mönn-
i'm til þeirra hluta.
Vélaverkstæðið Þór var
stofnað seint á árinu 1964, og
þá ’einkum ætlað til þjónustu
við viðhald og viðgerðir á
vélabúnaði, ýmiskonar, eins
og gengur og gerist um lang-
flrst þessháttar fyrirtæki hér
á landi. En tilkoma SIMFISK
vélanna hefur orðið til þess
að verkstæðið hefur meðfram
viðgerðaþjónustunni lagt á-
herzlu á þjálfun starfsliðs til
j nýsmíða og aðdrætti smíða- I
véla og tækja í því skyni. j
Þannig hefur hér í Vest- j
mannacyjum skapazt vísir að
þcss konar iðnaði, sem ekki
cr algcng. r út urn byggðir
landsins.
Sigmund hefur sjálfur ekk
ert unnið að smíðinni á verk-
stæðinu. Þar hefur þungi
dagsins einkum hvílt á herð-
um Stefáns Ólafssonar, verk-
stjóra. Brögð eru að því, að
eftirlíkingar að vélum Sig-
munds hafi verið smíðaðar |
í Reykjavík. Sú framleiðsla
mun á tímabili hafa komið
einhverju óorði á SIMFISK
vélar, meðan viðskiptavinir
vissu ekki hvernig í pottinn
var búið. En þær vélar, sem
framleiddar hafa verið hér
heima, hafa orð á sér fyrir
gæði. Þær eru nú orðnar
milli 3 og 4 hundruð talsins.
Þar af hafa um 50 verið út-
fluttar.
_ _ _
Hver er svo Sigmund Jó- |
hannsson? Hvaðan kom hann
hingað út til Eyja og hvers I
vegna? Hlýtur ekki maður
sem finnur upp vélar, sem
gerbreyta framleiðsluviðhorf-
um á veigamiklum sviðum í
höfuðatvinnuvegi þjóðarinn-
ar, að vera hámenntaður
tæknimaður? Hvaðan hefur
hann háskólapróf? Berlín?
London? Kaliforníu? Eða
kannski þaðan, sem sumir ís-
lendingar halda vera tækni-
nafla heimsins: Kaupmanna-
haínarháskóla?
Sigmund Jóhannsson hlýtur
að vlsu að vera vel mennt-
aður á tæknisviðum ýmiskon-
ar, en hann hefur ekkert há-
skólapróf. Og það leynir sér
ekki lengi fyrir augum at-
huguls leikmanns, sem skoð-
ar SIMFISK-vélar, að mennt-
unin er ekki síður innanfrá,
því stundum finnst þar að-
eins eitt hjól, sem von var
á þremur.
Hann er fæddur í Gratang-
en í N-Noregi árið 1931. Fað-
irinn, Jóhann Baldvinsson,
skagfirðingur að ætt og upp-
runa, stakk af að heiman - úr
Fljótunum - 17 ára gamall, og
alla leið til Noregs. Þar aflaði
hann sér konu og barna, lífs-
Fulltrúaráð Sjálfstæðisfé-
laganna i Vestmannaeyjum
hélt aðalfund sinn s. 1. sunnu-
dag.
Stjórn ráðsins var öll ein-
róma kjörin, en hana skipa:
Formaður: Gísli Gíslason.
Varaform.: Sigurður Jónsson-
Ritari: Einar H. Eiríksson.
Auk framangreindra eru
formenn Sjálfstæðisfélaganna
sjálfkjörnir í stjórnina. Þeir
eru: Hörður Bjarnason, form.
Sjálfst.fél. Vestm., Ingibjörg
Johnsen form. Sjálfstæðiskv.
félagsins Eygló. Helgi Bern-
ódus, formaður Eyverja FUS.
Mörg mál voru rædd á I
j fundinum. Guðlaugur Gísla- |
j son aiþm. rædtíi t .d. ýtarlega j
gang vatnsvcituframkvæmd- |
anna og skýrði frá því, sem j
gerzt hefur í þeim málum nú
síðustu vikurnar.
Fundurinn var fjölsóttur af
ráffsmeðlimum og hinn gagn-
Gísli Gíslason
legasti, og einkermdist af
samhug og baráttuvilja með
það markmið framundan, að
gera hlut flokksins sem stærst
an í Alþingiskosningunum á
næsta vori, til hagsbóta fyrir
land og lýð.
j reynslu og ævintýra, meðal
annars á selaveiðum í íshaf- i
inu og getið hefur verið um
í bókum,
En það var með Jóhann
eins og fleiri góða íslendinga.
Hann undi sér ekki til lang-
frama fjarri ættjörðinni, og
þegar Sigmund var á fjórða
ári, fluttist fjölskyldan heim
til íslands og settist að í
Eyjafirðinum, þar sem Jó-
hann tók að sér umsjón með
vélum í síldarverksmiðju.
Eftir 7 ára dvöl í Eyjafirði
var flutt búferlum til Skaga-
í VÉLSMIÐJUNNI: Frá vinstri: Stefán Ólafs:on verkstjóri í Þór og Sigmund Jóhannsson.
strandar og þar átti Sigmund
sitt heimili unz hann flutti
til Eyja alkominn árið 1955.
Á æskuheimili Sigmunds
var alltaf eitthvað verið að
smíða, stórt eða smátt. Heim-
ilisfaðirinn var frábærlega
hagur á tré og járn og list-
hneigður. Sigmund byrjaði
svo sjálfur snemma að feta
í sömu spor, tálga út og
smíða ýmislegt smávegis,
teikna og mála.
17 ára gamall arkar Sig-
mund svo í Myndlistarskól-
ann í Reykjavík. Þá var sá
skóli í einkaeign Þjóðverja
nokkurs og ekki opinn öllum
sem seinna varð. Þá fengu ný
ir nemendur aðgang til
reynslu í tveggja til þriggja
mánaða tíma. Reynslutími
Sigmunds endaði þmaig, að
honum var vikið úr skóla við
iítirn orðstír. Sá þýzki hafði
ekki fundið þess háttar séní
í jionum, sem hann Lei: öi
að. Eins hafði komið fytir
að nemandi þessi hafði leyft
sér að teikna skrípamyndir
af skólastjóra og keanurum
á spássíur listaverkama. £n
sem sagt: þar með var hin
opinbera listabraut á enda
gengin.
En sá, sem heimsæiíh' Sig-
mund á Brekastíg 12
og sér smíðisgripina í stoíun
um, málverk á veggjum og
sitthvað fleira eftir húsbónd-
Framhald á 2. síðu.