Fylkir - 17.06.1978, Qupperneq 4
4
FYLKIR
SLGURGEIR ÓLAFSSON, stýrimadur:
Sj ómannadagsræda
SJÓMENN —
GÓÐIR HÁTÍÐARGESTIR
Sjómannadagurinn hcfur verid há-
tídlega haldinn á íslandi frá 1937. Árid
1941 var fyrst efnt til hátídarhalda á
sjómannadaginn hér í Eyjum og hefur
hann sídan borid höfud og herdar yfir
önnur hátídarhöld hér í bæ. Hann hefur
sídan verid sá dagur. sem sjómenn hafa
í alvöru skipt um föt, gladst á þann hátt.
Æm þeim einum er lagid. Sjómanna-
dagurinn hefur ekki verid baráttudagur
sjómanna, heldur hefur hann verid
þcirra hátídardagur og um leid fjár-
öflunardagur. Dvalarheimilis fyrir
aldrada sjómcnn.
Sjómannadagurinn er ekki eingöngu
hátídardagur sjómanna. Hann er ekki
sídur hátídardagur sjómannskonunnar
sem svo oft hefur bedid milli vonar og
ótta. Konunnar. senr sjómadurinn
leggur á herdar þvngri byrgdi og meiri
skvldur. en menn annarra stétta, t.d. í
uppeldi barna og ad vera í flestu og oft
ad öllu levti forsvari þess heintilis sem
þau hafa í sameiningu stofnad.
Þad er þetta fólk. sérstaklega þetta,
sem gerir sér dagamun á Sjómanna-
daginn.
Þegar rætt er um sjómenn og sjósókn
er oft rxtt samtímis um mjög samtengt
mál. slysavarnir og björgun manna úr
sjávarháska. Saga slysavarna á Islandi
er ol' langt og yfirgripsmikid mál til ad
gera því nokkur vidhlítandi skil hér. Þó
\il ég adeins minnast á nokkra þætti
þess.
Björgunarfélag Vestmannaeyja var
stofnad 4. ágúst 192S og vcrdur því 60
ára á þessu ári. Adal hvatamadur ad
stofnun þess var Karl Einarsson. sýslu-
ogalþingismadur. Á þessum áruni voru
bátar hér smáir og vanbúnir. en hart
sótt. Bátstapar voru tídir og slysin
geigvænleg. Frá aldamótum til 1917
fórust hér 160 sjómenn. Fyrir stofnun
Björgunarfélagsins voru hér uppi
háværar raddir urn naudsyn þess ad
Vestmannaeyingar eignudust sitt eigid
Björgunarskip til öryggis fyrir sjómenn
og til gæslu veidarfæra, sem urdu fyrir
miklum ágangi erlendra togara, sem
ullu á þeim geysilegu tjóni. Einnig átti
skipid ad vera vardskip og gæta land-
helginnar hér vid Eyjar. A þingmála-
fundi 7. apríl 1918 var deilt mjög hart á
Karl Einarsson fyrir ad hafa ekkert gert
til framdráttar þeirri fjögurra ára
gömlu hugmynd ad Vestmannaeyingar
eignudust Björgunarskip og fengju til
þess lítilsháttar ríkisstyrk. Á fundinum
var samþykkt tillaga um, ad þing-
madurinn beitti sér fyrir því á Alþingi
ad fá landsstjórn til ad veita þennan
styrk. Hér heima gekk hugsjónar-
madurinn Sigurdur Sigurdsson lyfsali
og skáld frá Arnarholti í hvert hús og
safnadi fé og brýndi fyrir fólki naudsyn
þess ad hrinda málinu í framkvæmd
sem fyrst. Þad er líkast því ad lesa eda
heyra ævintýri, þegar madur les eda
heyrir um þá samstödu, sem nádist um
þetta mál. Dæmi eru til ad fjölmargir
ungir, sem aldnir, gáfu sinn sídasta eyri
því til framdráttar. í ágúst 1918 má
segja ad Karl Einarsson hafi fært
Björgunarfélagi Vestmannaeyja þad í
vöggugjöf á lokudum fundi ad sam-
þykkt hafi verid á Alþingi ad veita 40
þús. kr. til kaupa á Björgunarskipi fyrir
Eyjamenn. Ádur en fundinum lauk
höfdu safnast 30 þúr. kr. í hluta eda
stofnbréfum í hid nýja Björgunarfélag.
Þar hafdi Sigurdur lyfsali undirbúid
jardveginn. Sigurdur var valinn sem
erindreki Björgunarfélagsins og utan
fór hann til athugunar um smídi á skipi
eda í leit ad hentugu skipi, 11. okt.
1919. Skipid fann hann og kostadi þad
150 þús. kr. í því ástandi sem þad var í
og átti ad greidast út í hönd. Ákvedid
var ad kaupa skipid. Á fyrsta adalfundi
Björgunarfrlagsins 29. des. 1919 skírdi
Sigurdur frá því ad til skipskaupanna
hefdu safnast I I 1 þús kr. hér í Eyjum
og 36 þús. hefdi tekist ad safna í
Reykjavík. Þá hafdi félagid fcngid
ríkisstyrk. 40 þús. kr. í sína vörslu. Enn
fór Sigurdur af stad. Þad þurfti ad
breyta skipinu. sem hafdi verid haf-
rannsóknarskip. í björgunar og vard-
skip, áætlad var ad hreytingin myndi
kosta um 75 þús kr. Þessu fé tókst
einnig ad safna og föstudaginn 26. mars
1920 sigldi Þór. fyrsta vardskip ís-
lendinga og brautridjandi ad Land-
helgisgæslunni inn á Vestmannaeyja-
höfn, og var eign Vestmannaeyinga.
Vid skulum reyna ad gera okkur í
hugalund þann fögnud, þad stolt. og þá
öryggiskennd sem ríkt hefur í hug
fólksins hér í Eyjum þennan dag.
Ég hefi reynt ad stikla hér á stóru í
frumsögu björgunar og slysavarna í
Vestmannaeyjum. Um þessi mál væri
hægt ad skril'a margar bækur. Eftir er
ad minnast á björgunarsveit Björg-
unarfélagsins, Lódsinn og hans stóra
þátt í öryggismálum sjómanna hér,
Eykyndil og Hjálparsveit skáta o.fl.
o.fl. sem of langt yrdi ad telja upp hér.
Ég vil þó geta þess ádur en ég hætti ad
tala um Björgunarfélag Vestm.eyja, ad
félagr þess og velunnarar hafa ekki
gleymt „ganila Þór”.
Þeir ætla ad reisa honum veglegan
minnisvarda í tilefni 60 ára afmælisins.
Mér finnst nú reyna á hvot vid stöndum
okkur eins vel í fjárframlögum til
minnisvardans og þad fólk, sem rned
eigin framlögum keypti skipid sem
minnisvardinn verdur reistur um.
29. janúar 1928 var Slysavarnarfélag
íslands stofnad og átti því 50 ára afmæli
á þessu ári. SÍysavarnarfélagid hefur á
þessum 50 árum lyft grettistaki í
slysavörnum og ber þar hæst fjöldi
björgunarafreka úr sjávarháska. Hafa
þar oft verid unnin slík afrek. vid
erfidar adstædur ad undrun sætir.
Stærsti þátturinn í starfi Slysavarnar-
félagsins er starf þeirra fjölmörgu
deilda, sem starfa um allt land. En
adalstödvar félagsins eru í Reykjavík
og á vegum félagsins starfar fjöldi vel
búinna og vel æfdra björgunarsveita.
Reist hafa verid vel búin skipbrots-
mannaskýli vídsvegar um landid,
komid hefur verid á tilkynningarskyldu
allra íslenskra skipa, sem er geysi mikid
öryggismál og svo mætti lengi telja.
í starfi Slysavarnarfélagsins hefur
þáttur kvennadeildanna alla tíd verid
mjög stór og fórnfús. Þótt konur standi
ekki í fremstu röd í björgunarsveitum
félagsins, væru margar sveitirnar ekki
eins vel búnar tækjum og ödrum búnadi
ef starf kvennadeildanna nyti ekki vid.
Ein af þessum deildum er Eykyndill,
sem var stofnud 25. mars 1934 og
verdur því 45 ára á næsta ári. Gott starf
Eykyndils þarf ekki ad kynna fyrir
Vestmannaeyingum. En ég niinni á ad
ein af fjáröflunárleidum þeirra er hid
vinsæla Eykyndilskaffi, sem framreitt
er í Alþvduhúsinu hvern Sjómannadag.
Skora ég á alla. nema þá sem eru í
línunni. ad gæda sér á hressandi.
Eykyndilskaffi og gómsætu kökunum,
sem á bodstólum eru. og styrkja med
því gott starf Eykyndils.
Sjómenn senda Björgunarfélagi
Vestm.eyja og Slysaívarnarfélagi Is-
lands hugheilar afptæliskvedjur og
þakkar þeim vel unnin störf í þágu
sjómannastéttarinnar Sjómenn
gleyma ekki þeirri ötryggiskennd sem
störf þessara félaga ad slysavörnunt vid
og á sjó hefur vakid og mun vekja í
hugum þeirra og starf'i.
Besta slysavörnin á sjó er adgæsla og
gód menntun skipstjórnarmanna. Fyrr
á árum var lítid um slíka menntun. Þó
voru til menn, sem skörudu fram úr í
þessum efnum. Jósep Valdason, fadir
Jóhanns Þ. Jósepssonar alþingismanns,
midladi mörgum af kunnáttu sinni.
Jósep fórst í fiskiródri 1887. Um og
eftir aldamótin tók vid Sigurdur
Sigurfinnsson hreppsstjóri á Heidi og
leidbeindi hann mörgum. Seinna i
upphafi vélbátaaldarinnar kenndi
Sigurdur siglingareglur og siglinga-
frædi. 1910 krefst IJátaábyrgdarfélag
Vestmannaeyja þess ad nýir formenn
leggi fram vottord um kunnáttu stna í
siglingafrædi og var Sigurdur próf'-
dómari.
1915 er fyrsta vélstjóranámskeidid
haldid hér í Eyjum. Námskeidid var í
nóvember og voru á því 14 nemendur.
9 gengu undir prót'. 8 nádu prófi og
fengu surnir ágætiseinkunn. Námskeid
þessi haldast allt til 1964 og veittu
réttindi á vélar allt ad 400 hestöllum.
Haustid 1968 byrjar Vélskóli íslands
hér í Vestmeyjum. Skólaárid 1968-69
luku 22 nemendur prófi 1. stigs, sem
veitti 500 hestatla réttindi. 18 af þeim
fengu tilskylda framhaldseinkunn. Mér
er ekki kunnugt um fjölda nemenda
sem útskrifast haf'a frá Vélskólanum
hér, en þad er stór hópur. Skólinn er vel
búinn tækjum og hefur nú ordid mjög
góda adstödu til ad kenna allt sem
vidkemur rafmagni. Skólastjóri Vél-
skóla íslands er einnig skólastjóri
skólans hér, en forstödumadur er
Kristján Jóhannesson.
Ég álít naudsynlegt ad Vélskólinn fái
eins og Stýrimannaskólinn sína skóla-
nefnd hér heima og hafi sinn skóla-
stjóra hér.
Fyrsta stýrimannanámskeidid á
vegum Fiskifélags íslands var haldid
hér 1918. Frá 1918 til 1940 voru hér
stýrimannanámskeid á vegum Fiski-
félagsins og var Sigfús Scheving í
Heidarhvammi oftast forstödumadur
þeirra. Réttindin sem námskeid þessu
veittu voru lítil. í fyrstu 30 tonn, sídan
60 tonn og loks 120 tonn. Frá 1945-
1957 voru hér engin stýrimanna-
námskeid, sjómönnum til mikils
óhagrædis. 1957-1964 voru hér tjögur
námskeid á vegum Stýrimannaskólans í
Reykjavík. Allan þann tíma, sem ég hef
hér talad um, þurftu þeir sjómenn sem
vildu ödlast meiri réttindi, en fyrr-
greind námskeid veittu, ad sækja þá
menntun til Reykjavíkur, hvort sem um
skipstjórn eda vélstjórn var ad ræda.
1964 er brotid blad í menntunarsögu
sjómanna í Vestmannaeyjum. Þá tekur
til starfa hér stýrimannaskóli, sem veitti
nemendum sínum fyllstu fiskimanna-
réttindi. Skólinn var fyrsta árid rekinn
af Vestmannaeyjabæ, en hefur sídan
smá færst yfir á ríkid og er sídustu árin
ad öllu leyti rekin af ríkinu. Fyrsti
skólastjóri var Gudjón Armann
Eyjólfsson, og var þad mikid happ ad fá
slíkan mann fyrir skólann. Vel
menntadur og fullan af áhuga. Mann
sem bar hag skólans og nemenda hans
ofar sínum eigin hag. Skólinn var strax,
og hefur verid sídan skipadur frábærum
kennurum. 1973 þurftu bædi Vél-
skólinn og Stýrimannaskólinn ad flytja
hédan, sem og adrir Vestmannaey-
ingar. Fyrir hardfylgi skólastjóranna
var nemendum ekki deilt inn í bekki
vidkomandi skóla í Reykjavík, heldur
héldu áfram námi undir handleidslu
þeirra, sem sér deild í skólunum og
útskrifudust um vorid frá skólunum í
Vestmannaeyjum. Sama var med nem-
endur II. stigs á næsta ári, þeir út-
skrifudust frá skólanum í Eyjurn, þótt
þeir væru vid nám í Reykjavík.
Eftir gosid féll svo kennsla nidur í
þessum skólum eda skólaárid 1974-75
og óttudust þá margir ad þeir myndu
med því leggjast nidur. En med hjálp og
áeggjan gódra manna sem mátu gildi
þeirra fyrir þennan bæ, tóku þeir til
starfa aftur um haustid 1975 í santkrulli
vid Idnskólann og í hans húsnædi undir
skþlastjórn Lýds Brynjólfssonar. Sídan
hafa þeir vcrid til húsa í Idnskólanunt.
Samstarf þessara þriggja skóla hefur
verid mjög gott og færir skólanefnd og
skólastjóri Stýrimannaskólans Lýdi
Brynjólfssyni bestu þakkir fyrir alla þá
alúd og dugnad. sem hann hefur lagt í
þad ad samræma þessa þrjá skóla og
óska þess ad þad fyrirkomulag, sem
verid hefur undanfarin ár megi haldast
áfram óbreytt. Skólastjóri , Stýri-
mannaskólans er Fridrik Ásmundsson.
Frá Stýrimannaskólanum hafa út-
skrifast 137 nemendur. Fjöldi ad-
komumanna hefur sótt skólann. Margir
þessara manna hafa fest hér rætur.
Ársæll heitinn Sveinsson átti sæti í
fyrstu skólanefnd skólans og var hann
þar sannspár, sem svo oft ádur, þegar
hann sagdi: ,,Vid þurfum ad ná í
strákana í skólann, svo halda stelp-
urnar okkar þeim hér." Þetta reyndist
rétt. Fjöldi af adkomnum nemendum
skólans hafa einmitt gifst hér og verid
hér sídan velmetnir borgarar og hard-
duglegir atlamenn. Undir stjórn ágætra
skólastjóra og kennara hafa þessir
skólar ekki eingöngu unnid sér ást og
virdingu nemenda sinna, heldur allra
Vestmannaeyinga. Þeir hafa skapad sér
þá sérstödu sem þeimeinum berogekki
má rjúfa. Ég hef sagt ádur ad þeir hafi
sína sérstöku sál innan sinna veggja.
Þegar ég féllst á ad flytja hátídarrædu
Sjómannadagsins spurdi ég hvort þad
væri eitthvad sétstakt, sem Sjómanna-
dagsrád vildi láta koma fram, og svarid
var:
,,Þótt Sjómannadagurinn sé ekki
baráttudagur í þess ords merkingu
viljum vid gera þad ad baráttumáli
okkar á þessum Sjómannadegi ad
Vélskólinn og Stýrimannaskólinn í
Vestmannaeyjum verdi ekki látnir falla
inn í væntanlcgt fjölbrautarskólakerfi,
heldur haldi þeir sérstödu í skóla-
kerfinu sem þeir hafa haft hingad til".
Þessi ord Sjómannadagsráds vil ég
gjarnan gera ad mínum og ætla ad fjalla
örlítid um þau í lokaordum mínum hér í
dag. Ég hef reynt í rædu minni ad skíra
frá menntun sjómanna hér í Eyjum.
Allt frá hálfgerdri sjálfsmenntun frá
námskeidum, sem veittu takmörkud
réttindi til, þeirrar adstödu, sem vid
Samleið með Sjálfstæðismönm