Skátablaðið - 01.04.1966, Side 16
*er
Tinn í hrínfíínn
2. nóvember í haust liefst nýtt skátaár,
sem heitir INN í HRINGINN. Þetta
skátaár tekur við af Þjónustuárinu, sem alk
ir þekkja vafalaust. Ef flokkurinn þinn hef-
ur ekki getað tekið þátt í atburðum og verk-
efnum Þjónustuársins, skuluð þið strax
fara að huga að, hvort árið INN í HRING-
INN verði ekki vel við ykkar hæfi. Það
sama gildir náttúrlega ef þú ert ljósálfur,
ylfingur eða dróttskáti. Fyrir alla verður
ýmislegt að fást við.
Flestir spyrja vafalaust, hvað er átt við
með nafninu og svarið við því er, að á
næsta ári viljum við fá fleiri inn í skáta-
starfið. Núna eru skátar í heiminum orðn-
ir nálægt 18 milljónum og þess vegna höf-
um við ákveðið, að láta ekki okkar eftir
liggja við að fá fleiri. inn.
En munið, að við ætlurn ekki fyrst og
fremst að fá inn fleiri ljósálfa, ylfinga og
skáta, þó þeir séu velkomnir, heldur ætlum
við að leggja áherzlu á að fá inn fleiri for-
ingja, stuðningsmenn, rekka, svanna og
dróttskáta. Við þetta geta alfir lagt hönd
á plóginn og það hafa þegar verið útbúnar
ýmsar aðferðir, sem unnt er að nota.
Inn í hringinn verður skipt í þrjú tímabil.
Þau heita Réttur maður á réttum stað og
virkur þar. Víxillinn er fallinn og Skoðið
landið með skátunum.
Með þessum tímaskiptingum verður auð-
veldara að ná fyrst í fleiri foringja og síðan
í fleiri 1 jósálfa, yffinga og skáta. Allir kann-
ast sennilega við það, að margir skátafor-
ingjar hafa allt of mikið að gera í skáta-
starfi og komast þess vegna ekki yfir afft.
Á 1. timabilinu er þess vegna reiknað með
því, að þessir foringjar og aðrir sem eru á
sömu leið reyni að dreifa svolítið verkefn-
um sínum yfir á fleiri t. d. gamla skáta-
foringja, sem gjarnan vifja gera eitthvað,
leyfa aðstoðarforingjunum að komast betur
að o. s. frv., og auðvitað nær þetta líka út
í skátaflokkana. Þeir flokksforingjar, sem
láta sér detta í lnig að geyma flokkssjóðinn
eða skrifa flokksbókina, eða geyma öll áhöld-
in, eða malla matinn í öllum útilegum eða
stjórna öllum varðeldum floksins o. s. frv.,
40
SKATABLAÐIÐ