Skátablaðið


Skátablaðið - 01.11.1994, Qupperneq 19

Skátablaðið - 01.11.1994, Qupperneq 19
Endurskinsmerki fyrir öll böm - Skátahreyfingin dreifir um þessar mundir endurskinsborðum til allra 6 ára barna. Endur- skinsborðarnir eru bornir utan yfir skjólfatnað og eru mjög áberandi og má með sanni segja að með þeim geti börnin látið Ijós sín skína. Endurskinsmerki hafa fyrir löngu sannað gildi sitt - ef þau eru notuð. Okkur þykir öllum sjálfsagt að hafa Ijósabúnað á bflum. Á öllum bflum em etnnig endurskinsmerki að aftan sem tryggj a að þeir sjáist þótt þeir séu ljóslausir eða þeim hafi verið lagt í vegarbrún. Þetta er gert til þess að koma í veg fyrir slys. Fólk í umferðinni er litlar þústir sem getur verið erfitt að koma auga á ef ekkert sérstakt er að gert. Endurskinsmerki á réttum stöðum geraótrúlegt gagn. Langtum fyrren ella sjá bflstj órar fólkið sem er á gangi þegar myrkrið hefur skollið á. Erþví ekki alveg sjálfsagt að við öll bemm endurskinsmerki — alltaf? Varist falskt öryggi! En endurskinsmerki geta valdið fölsku öryggi. Aldrei skyldi treysta blint á gagn endurskinsmerkjanna og ganga áhyggju- laust um götur og stræti þegar dimmt er örðið. Göngum ávallt á móti umferðinni, ef engin er gangstéttin, eins langt úti í kanti og mögulegt er. Lítum vel til beggja hliða áður en gengið er yfir götu og göngum beint yfir hana. Gangstígar og gangstéttar eru .S***, sérstaklega gerð fyrir okkur sem erum á ferðinni gangandi og því sjálfsagt að nota í stað þess að setja okkur í hættu á götunum. Slys em ekki einkamál þeirra sem verða fyrirþeim, þau snertaokkuröll. Sameinumst því um að koma í veg fyrir þau. Skátahreyfingin og Umferðarráð skora á alla landsmenn að nota endurskinsmerki - alltaf — því merkin geta bjargað mannslífum. - og foreldra Svona vel virka endurskinsmerkin ð er klæddur dökkum fötum. h er klæddur Ijósum fötum og C ermeð endurskinsmerki. Fjarlægðin gefur okkur til kynna hvenær fttennimir sem em fótgangandi sjást. Á 50 krn/klst. hefur bflstjórinn enga möguleika á að stöðva bflinn í tæka tíð ef gangandi yegfarandinn erekki meðendurskinsmerki. T akið eftir að sá sem er með endurskins- tterki sést 98-110 metrum fyrr! Skdtablaðið 19

x

Skátablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skátablaðið
https://timarit.is/publication/801

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.