Skátablaðið


Skátablaðið - 01.11.1994, Blaðsíða 27

Skátablaðið - 01.11.1994, Blaðsíða 27
Þá er hættast við slvsum! Flest slys á börnum í umferðinni í Reykjavík á árunum 1988 til 1990 urðu í september og desember eða 13% í hvorum mánuði. Par á eftir kemur nóvember með 10%. Af því má draga þá ályktun að haust- og vetrarmánuðir séu hættulegasti tími ársins fyrir börn í umferðinni. Þetta kemur fram í skýrslu sem Talnakönnun hf. vann fyrir umferðarnefnd Reykjavíkur. Flest börn slasast á föstudögum. í henni kemur einnig fram að flest börn slasast á föstudögum, en næst flest á þriðjudögum. Miðvikudagar virðast vera börnum hagstæðastir í þessu tilliti. Flest slys milli kl. 14 og 16. Og svo að haldið sé áfram að velta fyrir sér hvenær slysin verða, þá er ekki úr vegi að huga að því hvenær dags börn lendi helst í slysum. Verstur í því tilliti er tíminn frá klukkan 14 til 16. Þar næst kemur tíminn frá klukkan 17 til klukkan 19. Athyglisvert er að hlutfallslega fá slys verða fyrir hádegi, þar á meðal á þeim tíma þegar börn eru á leið í skóla. Þreyta barnanna orsökin? Segja má að hugsanleg skýring sé sú, að eftir því sem á daginn líði taki þreytu að gæta hjá börnum, einbeiting minnki og fyrir bragðið aukist hætta á slysum. Einnig styður þetta þá kenningu, að stór hluti slysa verði á þeim tíma þegar börn eru að leik og þar sem leikurinn færist óafvitandi út í umferðina. Þegar þau eru hins vegar úthvíld fyrri hluta dags er hættan miklu minni. Fleiri börn slasast í bílum Á undanfömum árum hefur slysum á gangandi bömum og börnum á reiðhj ólum farið fækkandi í Reykjavík. Þeim hefur á hinn bóginn fjölgað sem hafa slasast sem farþegar í bílum. Það undirstrikar mikilvægi þess að börn séu alltaf í barnabílstól eða með bílbelti í bílnum og þá gildir einu hvort þau sitja í aftursæti eða framsæti. Flest börn slasast þegar bjart er! Stundum velta menn fyrir sér hvort vera kunni að veður hafi einhver áhrif á slysahættu. Á því leikur enginn vafi. Þannig slasast 46% barna þegar veður er bjart, 32% í skýjuðu veðri, 18% í rigningu og 4% í snjókomu. Ekki er óvarlegt að áætla að bjartviðrisdagar séu mun færri en þeir dagar þar sem ský hylja himinn. Og þá vekur einnig athygli að þegar þurrt er verða 49% slysa. Við notum öll endurskinsmerki m - okkar vegna M Pkfcf Skátablaðið 27

x

Skátablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skátablaðið
https://timarit.is/publication/801

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.