Skátablaðið


Skátablaðið - 01.11.1994, Side 31

Skátablaðið - 01.11.1994, Side 31
iAGA Ævintýri í Ungven' alandl Islenskur skáti með breskum dróttskátum í belgísku skátafélagi! Við félagar í Ibis skátafélagin í Belgíu sem eru breskir dróttskátar ákváðum að fara til Ungverjalands og hjálpa skátunum þar svolítið fjárhagslega með því að gefa þeim tjöld og hafa þetta sem sumarfrí í leiðinni. Við söfnuðum pening fyrir ferðina með því að hjálpa fólki á ýmsan hátt, eins og með garðvinnu og að flytja. Inngangur Við lögðum af stað klukkan 19 á föstu- dagskvöldinu 9. júlí. Áætluðum við að ferðin mundi taka 15 klukkustundir. Við keyrðum í gegnum Þýskaland um nóttina °g varð frekar lítið um svefn. Snemma morguns komum við til Austurrrkis og fengum okkur morgunmat, en þar sem við vorum orðin svolítið á eftir áætlun drifum við okkur af stað og þar sem það stoppuðum til að kaupa drykki. Fljótlega eftir að við stoppuðum, komum við til þorpsins þar sem tjaldstæðið var, Dunavarsany. Þar keyrðum við fram og til baka til að leita að tjaldstæðinu en gáfumst fljótlega upp og spurðum til vegar og var okkur þá fylgt þangað. Þótt að við værum mörgum klukkustundum of sein biðu ungversku skátarnirokkarenn, þegar við komum á staðinn. Okkur leist nú Ungverskir skátar við varðeldinn hafði verið lítið um svefn um nóttina duttu margir útaf fljótlega og vöknuðu ekki fyrr en við ungversku landamærin. Þar sátum við föst í biðröð í nokkra klukku- tíma þar til við komumst loks í gegn. Þegar við komumst til Ungverjalands vorum við orðin allt of sein svo að við drifum okkur aftur af stað. Þegar líða tók á daginn fór að hitna verulega og við ekkert of vel á tjaldstæðið í byrjun en vorum samt fljót að sætta okkur við það. Eina baðaðstæðan var áin sem rann framhjá og tjaldstæðið sjálft var mold og sandur. Við drifum upp tjöldin og prófuðum ána á eftir, en um kvöldið fengum við okkur að borða og fórum snemma í rúmið þar sem allri voru þreyttir eftir erfiða ferð. Sunnudagurinn ll.júlí. Fyrsta morguninn okkar í Ungverja- landi vöknuðum við um klukkan 8 þar sem við ætluðum í messu. Við gátum valið um að fara í Kaþólska kirkju eða Biskupakirkju, þar sem þorpsbúar fylgdu báðum. Eftir messu fórum við tvö og þrjú saman í hádegismat hjá skátunum og fengum að smakka ungverska máltíð. Við dvöldum í nokkra klukkutíma hjá fjöl- skyldunum en hittumst svo öll aftur og fórum í hjólreiðaferð um nágrennið. Á leiðinni stoppuðum við svo til að fá okkur ís og eitthvað að drekka. Eftir hjólreiða- ferðina drifum við okkur heim og fengum okkur sundsprett. Um kvöldið fór að kólna lítillega en við létum það ekki aftra okkur og sátum við inni í eldhúsi frameftir og kjöftuðum. Mánudagurinn 12. júlí Mánudagurinn rann upp með sól og blíðu og voru nokkrir af ungversku skátunum mættir kl. 10 til að hj álpa okkur með báta sem við ætluðum að nota um daginn. Á milli klukkan 12 og 13 vorum við búin að læra að róa og skipta um sæti úti í miðri á. Við skiptum okkur í tvo hópa. Annar hópurinn fór á tveimur bátum niður ána og hinn áhjólum meðfram ánni. Á eftir hjólreiðamönnunum kom svo einn bíllinn með nestið og myndavélar. Hjól- reiðafólkið komst fljótt á leiðarenda eftir að hafa villst nokkru sinnum og lært smá ungversku. Bátarnir áttu í svolitlum erfið- leikum þar sem bæði ár og sæti brotnuð, en komust nú samt á leiðarenda. Við hittumst klukkan 14.30 neðar við ána, borðuðum nestið okkar og skiptum síðan um hlutverk. Hjólreiðafólkið dreif sig heim og var það komið heim um klukkan fjögur en þar sem farið var að hvessa og það þurfti að róa upp ána, á móti straumn- um komu bátarnir ekki í ljós fyrr en um klukkan 6, þegar hinir voru búnir að synda og hálfnaðir með að laga kvöldmatinn. Þegar við vorum búin að borða og þrífa framhald á nœstu síðu Skdtablaðið 31

x

Skátablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skátablaðið
https://timarit.is/publication/801

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.