Skátablaðið


Skátablaðið - 01.11.1994, Síða 32

Skátablaðið - 01.11.1994, Síða 32
eftir okkur þá settumst við í kringum varðeld og þar sátum við blaðrandi langt fram eftir nótt eins og á sunnudagskvöldið. Þriðjudagurinn 13.júlí Svo rann þriðjudagurinn upp sem var dagur þar sem allir gátu ráðið sér sjálfir. Sumir hjóluðu inn í þorp og sendu póst- kort og fengu sér ís á meðan aðrir flatmöguðu í sólinni og hlustuðu á tónlist með köldum dýfum ofan í ána öðru hverj u. Þegar líða tók á eftirmiðdaginn fórum við að gera kvöldmatinn sem átti að vera um kvöldið þegar við mundum kveðj a skátana í Dunavarsany þar sem við ætluðum að færa okkur á annað tjaldstæði nær Búdapest daginn eftir. Um klukkan 4 komu ungversku skátamir og byrjuðu að búa til matinn sem þeir ætluðu að bjóða upp á um kvöldið, ungverska kjötsúpu. Þegar allt var tilbúið héldum við smá kveðjuathöfn. Brace hélt smá ræðu þar sem við gáfum þeim helminginn af tjöldunum sem við höfðum safnað fyrir. Tvö göngutjöld og eitt sex manna tjald. Við skiptum svo um klúta og fengum við öll ungverskan klút í staðinn fyrir breska klútinn okkar. I endinn gáfu þeir svo okkur öllum eina flösku af ungversku víni í þakkarskyni. Eftir þetta fengum við okkur öll að borða bæði ungverska kjöt- súpu og hamborgara. Við settumst svo í kringum eldinn og skemmtum okkur með söngvum og allskyns leikjum þar til að ungversku skátamirþurftu að dnfa sig heim, en fóru þá mörg heimilisföng á milli. En á eftir sátum við eins og endra nær við eldinn og töluðum fram á rauða nótt. Miðvikudagurinn 14.júlí Við vöknuðum snemma og byrjuðum að taka saman, bárum allt dótið í bflana og lögðum svo af stað. Roque kokkurinn okkar og Michael höfðu farið á þriðju- deginum og fundið staðinn svo að við myndum ekki þurfa að sitja í bflnum þegar við værum að færa okkur yfir á nýja tjaldstæðið. Auðvitað tókst okkur samt að villast og tók það okkur tvo tíma að komast á leiðarenda í staðinn fyrir 40 mínútur. Þegar við fundum svo loksins staðinn komumst við að því að hann var miklu betri en sá fyrri þar sem þarna var eldhús, klósett og heitar sturtur. Við drifum upp tjöldin og á meðan kom bóndinn á bænum og gerði skil á öllum reglunum sem voru heldur fleiri en á fyrra tjaldstæðinu. Við fengum okkur kvöld- mat og fórum svo yfir til franskra skáta sem voru ekki langt frá okkur og héldum við saman upp á þjóðhátíðardag Frakka, með varðeld og söng. Um klukkan tíu fórum við heim og hreiðruðum um okkur í eldhúsinu frameftir kvöldi en fórum svo að sofa. Fimmtudagurinn 15. júlí Við vöknuðum frekar seint þennan fyrsta dag á nýja tjaldstæðinu þar sem við höfðum ekki ákveðið neitt sérstakt um morguninn. Nokkrir fóru reyndar með Roque á markaðinn og var það eitthvað nýtt fyrir alla þar sem þau löbbuðu nokkra hringi í kringum básana og stoppuðu á hverjum til að reyna að finna bestu ávextina á besta verðinu. Þegar allir voru vaknaðir og komnir heim tókum við til við að færa spýtur fyrir bóndann á bænum. Við vorum fljótt búin að því og vorum við að dúlla okkur þar til að Chris kom með krikketkylfu sem hann hafði búið til úr spýtum og dró upp bolta og spiluðum við krikket þar til það fór að rigna. A meðan það rigndi skrifuðum við póstkort og hlustuðum á tónlist en fljótlega stytti upp, við fengum okkur kvöldmat og létum svo kvöldið líða eins og þau fyrri fyrir framan varðeldinn. Föstudagurinn ló.júlí Við vöknuðum snemma þar sem við ætluðum að fara í bæinn og skoða okkur um. Eftir morgunmat lögðum við af stað. Við byrjuðum á að fara í gamlan kastala þar sem við gátum séð yfir stóran hluta af B údapest og við gátum sett póstkort í póst þó það væri frekar seint þar sem við ætluðum heim á laugardeginum. Eftir að hafa farið í kastalann ákváðum við að fara í sund sem var frekar fróðlegt. Við byrjuðum að fara í sitt hvora áttina, inn í klefunum var okkur rétt hálfgerð svunta og sagt hvert við ættum að fara. Þar sem við vissum ekki hvað við ættum að gera við svunturnar og gátum ekki talað við neinn ákváðum við að fara í sundbolina og svunturnar yfir en þegar við ætluðum niður voru við stoppaðar. Af handapatinu skildum við að við mættum ekki vera í sundbolunum og fórum við úr þeim eftir mikið þras. Okkur til mikils léttis var sundlaugin kynskipt svo að við vorum bara með kvenmönnum. Þegar við komum upp úr komumst við að því að strákamir höfðu fengið sömu reynslu og við. Eftir sundið fórum við niður í miðbæ, lögðum bflunum og fórum svo og fundum okkur eitthvað í svanginn. Þegar við vorum búin að borða skiptum við okkur í tvo hópa og fórum að skoða verslunargöturnar. Við hittumst aftur um klukkan sex hj á bflunum en náðum að lenda í rigningu rétt áður en við komumst þangað. Keyrðum við svo heim í hellidembu og sátum svo í eld- húsinu þangað til að það stytti upp. Um kvöldið sátum við fyrir framan varðeldinn og töluðum um hvað við höfðum verið að gera alla vikuna. Laugardagurinn 17.júlí Við vöknuðum þegar líða tók á morguninn, þeir sem vöknuðu snemma byrjuðu að búa til morgunmatinn en þeir sem vöknuðu seint fengu það verkefni að þrífa sturtumar og klósettin. Eftir matinn tókum við dótið saman, tókum tjöldin niður og svo settum við dótið í bflana. Aður en við lögðum af stað kvöddum við fólkið á bænum og skátunum á svæðinu gáfum við hinn helminginn af tjöldunum sem eftir voru, einnig tvö göngutjöld og eitt sex manna tjald. Síðan lögðum við af stað og töluðum um liðna viku. Þegar við komum að austurrísku landamærunum fórum við beint í gegn til Austurríkis en keyrðum framhjá svipað langri röð og hafði verið þegar við vorum þar fyrir viku að reyna að komast til Ungverjalands. Leiðin heim gekk klakklaust fyrir sig og vorum við komin heim klukkan átta á sunnudagsmorguninn öll sofandi þvers og kruss yfir bílana. Fljótlega fóru foreldrar að birtast og drifum við okkur heim í góða sturtu. Arndís F. Olafsdóttir, Belgíu. Látum Ijós okkar skína 32

x

Skátablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skátablaðið
https://timarit.is/publication/801

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.