Skátablaðið


Skátablaðið - 01.11.1994, Blaðsíða 34

Skátablaðið - 01.11.1994, Blaðsíða 34
Hvað þurfa unglingar Sigurður Júlíus Grétarsson: Erindi flutt á skátaþingi í september sl. Stundum horfir fólk með miklum söknuði til eigin unglingsára og finnst eins og þá hafi allt haft annan róm og betri, himinninn var blárri, mannlífið rismeira og jafnvel for- tíðarþráin dýpri og mikilfenglegri. Þá var til Spur, Póló og Sínalkó (Vallas, Mix og Cream-soda fyrir norðan) og þá kunnu unglingar að bjarga sér betur en nú er. Önnur hlið á unglingsáradýrkun er að horfa angurvær á ungt fólk og segja: „Unglingsárin eru bestu ár lífs þíns, þú átt aldrei eftir að hafa það betra en einmitt nú." Pið getið rétt ímyndað ykkur að slíkar yfirlýsingar hljóta að hafa verið ógnvekjandi fyrir einhverja. Oft stend ég sjálfan mig að svona daðri, en stöðva þá oft við minningu sem kveður mig í kútinn. Eg stóð svona 17 ára í undarlegu slabbi í Lækjargötu. Ekki veit ég af hverju það var ekki frosið fast, kannski salt, kannski galdrar, en vara- þurrksnorðanátt með einhverju torkenni- legu fjúki frá Esjunni nísti menn og bfla inn í merg. Ég horfði af einhverjum ástæðum fullkomlega dapur á Mennta- skólann í Reykjavík. Þarna strengdi ég þess heit að ég mundi aldrei halda því fram að unglinsárin hefðu verið yndisleg án þess að minnast fyrst þessa dags. Ég er búinn að gleyma tilefninu, en man daginn og heitið og þess vegna byrja ég á að skýra frá þessu hér. En auðvitað er hvort tveggja jafnrangt að hugsa um unglingsár sem einbera sælu- tíð og að ímynda sér þau sem ógurlegar hremmingar, það segir sig sjálft. En hér ætla ég að segja frá því sem nú telst ofarlega á baugi eða almælt sannindi í þeim greinum félagsvísinda sem hafa reynt að bregða ljósi á unglinga, þetta merka fyrirbæri, og reyna svo að draga einhverjar ályktanir af þeim fræðum sem hafa mætti gagn af þegar skátastarf er skipulagt. Hvað er unglingur? Hefðbundin byrjun á umfjöllun um unglinga er að benda á hversu óljóst það er um hverja er verið að tala. Við hvað á að miða þegar byrjað er að fjalla um unglinga. Líkamlegar breytingar á unglingsárum, vöxtur með tilheyrandi hraðvaxtarskeiði, kynþroski. Hvort tveggja skiptir auðvitað miklu máli og hefur áhrif á fólk á svonefndum unglings- árum en dugir ekki til skilgreiningar. í fyrst lagi væri þá um það bil tveggja ára munur á því hvenær stúlkur og drengir verða að unglingum. í öðru lagi er mikill munur á því frá einum til annars hvenær kynþroski eða hraður vöxtur hefst. Og í þriðja lagi er það ólíkt frá kynslóð til kynslóðar hvenær unglingsár hefjast, en líkamsþroski bama er nú til dags hraðari en fyrir 100 árum. Svo varla gengur að nota bara líkamsþroska, eða hvað? I menningarlegum skilningi er það líka breytilegt frá einni tíð til annarrar hverjir teljast unglingar. Hugmyndin um ungl- ingsár, eins konar biðsal milli æsku og fullgildrar aðildar að samfélaginu, kann jafnvel að vera tiltölulega nýleg. Og ég vona að það sé ekki þreytandi tugga fyrir ykkur að minna á að fyrir þrjú hundruð árum, árið 1694, voru unglinsár tæpast til í nútímaskilningi. í svonefndu bænda- samfélagi fóru börn miklu fyrr að eiga aðild að veröld hinna fullorðnu en nú er; veröldin var þá einfaldari í sniðum eins og oft er sagt. Nútímaheimurinn er flóknari og verkaskipting harla margbrotin. Nú þarf því lengri tíma til að búa sig undir þennan heim. Sumir hafa reynt að skil- greina unglingsár með tilvísan í þann tíma sem ungmenni eru að búa sig undir lífíð, til dæmis í námi. Ef sú skilgreining er notuð eru unglingsárin alltaf að lengjast og unglingum að fjölga. Og sérfræðingar og doktorar í innkirtlasjúkdómum kemst þá til dæmis ekki af unglingsskeiði fyrr en hálffertugt. Slík skilgreining hrekkur því ekki alla leið. Og sé litið til landanna allt í kring, og með nokkrum hrolli til þess sem kann að vera að gerast í íslensku samfélagi, þá er talsverður hópur unglinga sem ekki er að búa sig undir eitt eða neitt nema það að vera atvinnulaus. Þróunarkenningin Sé litið til minnar fræðigreinar, sál- fræðinnar, þá mótast hennar sjónarhorn mjög af ofangreindum lýsingum. Ungl- ingsár er aðeins að hluta unnt að skýra eða skilgreina með vísan til líkamlegs þroska og að hluta með félagsfræðilegum kenni- merkjum. Reyndar varíupphafi aldarinnar og í lok hinnar síðustu, þegar þróunar- kenning Darwins var að vinna sér sess, algeng sú hugmynd að einstaklingsþróun endurspeglaði tegundaþróun. Með öðrum orðum var sú kenning tekin alvarlega að hver og einn einstaklingur þroskaðist á ferli sínum í gegnum hliðstæð þroska- skeið og tegund hans hafði gert í ár- milljónir. Rökin komu upphaflega úr samanburði á fóstrum sem voru í upphafi Látum Ijós okkar skína 34

x

Skátablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skátablaðið
https://timarit.is/publication/801

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.