Skátablaðið - 01.11.1994, Page 36
Ævintýraferð
eldri skáta til
Hollands
Nú er allt að skýrast varðandi ferð eldri skáta og fjöl-
skyldna til Hollands næsta sumar í tengslum við Al-
heimsmót skáta í Hollandi. Það er allavega vitað að
þeir sem fara hafa það að leiðarljósi að ferðin eigi að
vera skemmtileg og allir ákveðnir í að skemmta sér vel í
góðum hópi. Tímasetning ferðarinnar er 3.-17. ágúst nk.
og verður Alheimsmótið heimsótt auk fjölda annarra
spennandi staða.
Vel yfír 100 manns hafa sýnt ferðinni
áhuga og eru það skátar á öllum aldri,
dreifðir um land allt, fjölskyldufólk og
aðrir. Nú er orðið tímabært að gera upp
hug sinn, því búið er að taka frá sumarhús
fyrir um 150 manns og fljótlega þarf að
staðfesta pantanir.
Staðurínn
Dvalið verður í Eimhof, sem er einstak-
lega fallegt sumarhúsahverfi í ævintýra-
og vatnalandi þar sem fullorðnir og börn
finna sér nóg að gera í leik og afslöppun.
Eimhof stendur á „nýju“ landi sem heitir
Almere og er staðurinn í aðeins 45 mínútna
akstursleið frá Amsterdam. Á staðnum er
þjónustumiðstöð, verslanir og veitinga-
hús, allt fyrsta flokks og íþrótta- og leik-
aðstaðan er fjölbreyttari og glæsilegri en
orð fá lýst. Það sem gerir staðinn enn betri
er að aðgangur að íþróttaaðstöðu, sund-
laugum og ótal mörgu öðru er innifalinn
í heildarverði.
Sundlaugin er paradís út af fyrir sig. Þar
ríkir sannkölluð hitabeltisstemmning, suð-
rænn gróður hvar sem litið er og aðgrunn
sundlaug sem öðru hvoru breytist í „bað-
strönd“ með tilheyrandi brimi. Bama-
sundlaug og buslpollar era til staðar og á
laugarbökkunum eru sólbekkir, heitir
pottar, nuddpottar, hitaveggir, sundlaugar-
bar, borð og stólar. Að sjálfsögðu er vatns-
36
rennibraut í miðri sundlauginni svo það
er alltaf líf í tuskunum fyrir bæði börn og
fullorðna.
Við ströndina er hægt að leigja sjó-
bretti, árabáta og seglbáta, sjóskíði era til
reiðu, tilsögn og kennsla í sjóíþróttum
ávallt fáanleg og sundsprettur í sjónum
tilvalinn.
Þama eru tennisvellir, bowlinghöll,
bamaleikvellir, leikskóli, minigolf, leik-
tækjasalur og íþróttasalur. Einnig gefst
íbúum tækifæri til að fara á hjólabát um
síkin eða renna fyrir fisk í vatninu.
Sumarhúsin
Sumarhúsin sem era sérstaklega vist-
leg og þægileg era í þremur stærðum, 4
manna, 6 manna og 8 manna. Fólk er
hvatt til að sækja um þó það geti ekki fyllt
heilt hús, möguleiki er á að blanda í hús
þó það verði að skoðast í hverju tilfelli.
Aðstaðan í húsunum er mjög góð, arinn er
í setustofunni, sjónvarp í stofunni, sturta
og baðker í baðherberginu, góð aðstaða í
eldhúskróknum og húsgögn á veröndinni.
Dagskmin
Að sjálfsögðu verður þetta mjög létt
skipulögð ferð. Að sjálfsögðu verða
einhverjar skátakvöldvökur og skemmti-
legheit en að auki verður boðið upp á
ferðir t.d. í Burger Bush dýragarðinn,
Eftelin skemmtigarðinn og Amster-
damferð auk heimsóknar á Alheimsmótið.
Fjöldi annarra spennandi möguleika eru
fyrir hendi og má þar nefna putalandið
Maturodam sem spennandi valkost.
Verð og um-
sóknarfrestur
Reynt er að halda kostnaði við ferðina
í lágmarki. V erð ferðarinnar ræðst nokkuð
af því húsnæði sem fólk velur að dvelja í.
Verðið er þannig til komið að leiga fyrir
húsin í heild sinni er deilt upp í fjöldann
sem húsið tekur og við það bætt öðram
ferðakostnaði pr. mann.
4 manna kr. 70.800,- á mann
6 manna kr. 56.400,- á mann
8 manna kr. 56.800,- á mann
Verðin eru miðuð við gengi Holl. gyll.
1/10/94. Kostnaður við flugið lækkar um
ca. kr. 8.500,- fyrir börn yngri en 12 ára.
Innifalið í verðinu er flug, flugvallar-
skattur, akstur að og frá sumarhúsunum,
leiga á sængurfötum, ferðaeinkenni,
(merktur bolur, taumerki og málmmerki
og merkt húfa), umsýsla og fararstjórn.
Áríðandi er að sækja um og greiða
5.000 kr. staðfestingargjald á mann
(óafturkræft) á skrifstofu BÍS fyrir 10
des. (ekki 10 nóv. eins og kom fram í
bréfi).
Ldtum Ijós okkar skína