Skátablaðið


Skátablaðið - 01.11.1994, Síða 38

Skátablaðið - 01.11.1994, Síða 38
Hvað þurfa unglingar? framliald af bls. 35 Breytingin úr barni í fullvaxna mann- eskju gerist hreint ekki á einni nóttu. Þegar breytingar á unglingsárum eru ræddar hér á eftir er rétt að hafa einmitt þetta í huga. Það er því rétt að muna að unglingsárin eru mörg, og þó að margt þurfi að gerast á unglingsárunum þá er eigi að síður allnokkur tími til þess að leyfa því að gerast. Þroskaverkefni unglingsins Haldi maður sig nú nokkum veginn við jörðina og forðist loftkennda umræðu um sjálfsvitund og annað dularfullt þá eru þroskaverkefni unglinga að minnsta kosti eftirfarandi: 1) Unglingurþarfað scetta sig við eigin líkama og líkamsbyggingu. Um það bil tveggja ára hraðvaxtarskeið sem stendur að jafnaði hœst hjá stúlkum um þrettán ára aldur og hjá piltum umfimmtán ára aldur snarbreytir útliti og afstöðu unglings. Þetta geristsamhliða kynþroska sem hefur íför með sér bœði breytingar á innkirtlastarfi og ytra útliti með til- heyrandi breytingu á áhugamálum. Til þess að bœta gráu á svart gerist þessi vöxtur hvorki jafnt né þétt. Hann gerist í rykkjum og er engan veginn þannig hugsaður af hálfu skaparans að sem fegurst hlutföll haldist í iíkamsbyggingu allan tímann. Þannig vaxafœtur og hendur að öllu jöfnu á undan búk, og nefvenju- lega á undan öðrum andlitshlutum. Um- svifogfasunglingsinsminnirþvístundum frekar á hrossaflugu en mannveru. 2) A sama tíma og þessi ósköp ganga yfir þarf unglingur að átta sig á sjálfum eða sjálfri sérsem samfélagsveru og sem kynveru. Hann eða hún þatfað tileinka sér hegðun sem þykir viðeigandi fyrir eigið kyn og verðurað þróa samskipti við jafnaldra afbáðum kynjum. Samgangur kynjanna öðlast auðvitað nýja brenni- depla og fyrstu unglingsárin þurfa unglingar aðfálma sig áfram ísamskiptum og átta sig á því hvernig landið liggur í þeim efnum. Mikilvœgasta leið unglinga til þroska er cefing. Unglingur þarfvel- viijaðan hóp, sœmilegt nœði og vettvang til þess að hitta hópinn, nú eða sína heitt elskuðu og sinnheitt elskaða. Sumirþurfa að byrja á því að manna sig upp í að yrða á annað fólk án þess að bráðna, aðrir þurfa að átta sig á því að snilld þeirra er ekki alls staðar og alltaf jafnvelkomin og þeir sjálfir hyggja. Unglingum erþannig víðast hvar eiginlegt að tnyrida dálitla hópa. Þar geta þeir borið sig saman, reynt eitthvað nýtt, treyst hugmyndirsínar ísessi. Þessi staðreynd erauðvitað einkar athyglisverð fyrir skátaforingja að átta sig á. 3) Unglingar þurfa líka að öðlast tii- finningalegt sjálfstœði, og efailt gengur vel, að öðlast vissu um að persónulegt og efnahagslegt sjáifstœði bíði þeirra handan við unglingsárin. Hérerafturum að rœða ferli sem ekki gerist íeinni svipan, heldur hœgfara þróun, og hér er ef til vill við- eigandi að geta þess að kerfisbundnar athuganir á þvíhvernig sé unnt að stuðla að sjálfstœði og sjálfsöryggi benda latig- flestar tiiþess að súframvinda, þau inn- grip, sem kenna unglingnum eitthvað raunverulegt, til dœmis að lesa, að skrifa, að búa sig til útivistar og ganga á fjall, þau gefast betur en tilraunir sem bara miðast einvörðungu við sjálfstraustið. Unglingurinn verður með öðrum orðum áncegður með sjáifan sig þegar hann finnur að hann kann eitthvað, getur eitthvað. Tilraunirtiiþessaðpeppamenn upp í að vera hressir með eitthvað sem ekkert er gefast síður vel. 4) Þetta tengistfjórða verkefni unglings- áranna, og því sem oft vekur kvíða með unglingum. Það er upphafað starfsundir- búningi. Við cetlum unglingum okkar að huga að því hvað þeir viiji verða eitis og það er stundum kallað. Vœntingar, svo maður noti dáldið hátíðlegt orðalag, breytast og rneiri kröfur um ábyrgð eru gerðar eftir því sem ungmenni eidast. Unglingsárin eru kynnt unglingunum sem eins konar undirbúningstímabilfyrir ein- mittþetta. Athugið hérað mikill munurer milli unglinga íþessu efni, eins og reyndar íölluþvísem ég heffjallað um. Sumir vita alltafhvað þeir œtla að gera, og gera það síðan. Aðrir eru sífeilt óráðnir. I báðum tilvikum œttifjölbreytt skátastarf ’að vera hagstœður vettvangur í þessu tilliti. 5) Og í síðasta iagi þarf unglingur að búa sig undir hjónaband og tileinka sér lífsgildi sem eiga að endast honum eitthvað fram á fullorðinsárin. Hérhafa frœðimenn reyntað koma auga á nokkrar megingerðir ef svo má segja, og í einni stórri rannsókn er unglingum skipt ífernt eftir því hvar þeir eru staddir í því tilliti að tiieinka sér siðferðisgildi. Hér má til gamans minna á þrjáflokka: þá sem taka upp gildiforeldranna gagnrýnislaust, þá sem siglafljótandi um og berast þangað sem vindurinn feykir þeim og þá sem reyna að endurmeta það sem þeir vita og clraga eigin ályktanir. Eg tala hér dálítið klisjukennt eins og allt þetta steingerist á unglingsárum, en minni aftur á að unglingsárin eru mörg, og svo eru líka æviárin eftir unglingsárin allmörg, og alltaf er möguleiki á að bæta sig. En ætli flestir séu ekki sammála því að manneskja sem um 25 ára aldur er allsendis vanþroskuð í öllu því sem að framan greinir sé nokkuð illa sett. Unglingurinn og skátahreyfingin Og svo er spumingin: Er eitthvað hægt að nota svona lagað í mótun skátastarfs. Eg bendi aftur á það hve fræðikenningar geta verið tvíbentar. Ég hef rey ndar haldið mig hér við almenna lýsingu á unglings- ámm og forðast hátimbraðar skýringar. Og þó að auðvitað verði skátastarf seint og vonandi aldrei skipulagt með hliðsjón af tiltekinni sálfræðikenningu, þá megi hafa nokkurt gagn af svona upplýsingum. Skátahreyfingin er uppeldishreyfing sem by ggist á hugmy ndum B aden-Po well um gildi útivistar og samvista við náttúmna fyrir uppeldi og á hugmyndum sama manns um þá tegund manngildis sem dugir best fólki úti í náttúrunni, hópi sem fæst við óvenjulegar aðstæður. Þar er um að ræða trygglyndi, sparsemi, orð- heldni og aðrar sígildar dyggðir. Hvorugt þessara atriða er gmnnur skátastarfs ef það er úr tengslum við hitt atriðið. Utivist án manngildis verður fljótt villimennska, og mannrækt án sam vista við náttúmna er einfaldlega ekki skátastarf, enda er skáta- flokkurinn forsenda þessarar mannræktar. Látum Ijós okkar skína ms 38

x

Skátablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skátablaðið
https://timarit.is/publication/801

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.