Ný vikutíðindi - 01.12.1961, Blaðsíða 7

Ný vikutíðindi - 01.12.1961, Blaðsíða 7
NÝ VIKUTÍÐINDI 7 Krossgáta L á r é 11 : 1. Hjölt — 5. Aragrúi — 10. Drykkjumann — 11. Kúr- ir — 13. Hljóðst. — 14. Bælni — 16. Farga — 17. Samteng. — 19. Leiði — 21. Óværa — 22. Grunar — 23. Reiðtýgi — 26- Flennu — 27. Efni — 28. Gang — 30. Óða got — 31. Fugl — 32. Þræta — 33. Fangam. — 34. Sam- lilj. — 36. Aum — 38. Kapp- semi — 41. Leyfi — 43. Far- angurinn — 45. Þrír eins — 47. Heiður — 48. Duglegir — 49. Fugl — 50- Angra — 53. Elskar — 54. Tónn — 55. Rif — 57. Men — 60. Fangam. — 61. Stafir — 63. Glaðar — 65. Minka — 66. Auglýsa. Ló ðré 11 : 1. Samhlj. — 2. Æra — 3. Mánuður — 4- Kveikur — 6. í horni — 7. Þvinga — 8. Skjóta — 9. Fangam. — 10. Hungur — 12. Ær — 13. Klausturbúi — 15. Aát — 16. Biblíunafn — 18. Mánuðinn — 20. Gort — 21. Snyrta — 23. Skortur — 24. Fangam. ■— 25. Hefnir sín — 28- Róm- ur — 29. Raðtala — 35. Skjal — 36. Deyfð — 37. Hom — 38. Spilið — 39. Skessa — 40. Hvalur — 42. Lofar — 44. Samhlj. — 46. Slæpingjar — 51. Aukast — 52. Á litinn — 55. Vendi — 56. Unglegur — 58- Hlass — 59. Brýnt — 62. Fangam. — 64. Tv eir eins. KVIKMYNDIR (Framh. af bls. 3) en nú þegar byrjað er að sýna myndina, vil ég eindreg ið benda fólki á að láta ekki þetta snilidarverk fram 'hjá sér fara. Auk þess ihefur nú íslenzkum texta verið bætt inn í filmuna, isvo hver sem er gettur fylgzt með henni, — og það á þessi stórbrotna mynd sannarlega skilið. Það er ástæðulaust að taka það fram, að aðaUeikar- amir þrír skila öll verkefnum sínum með sérstökum sóma, bæði Rock Hudson og Eliza- beth Taylor sóma sér með prýði, en minnisstæðust hlýt ur myndin samt fyrst og fremst að vera vegna ein- staks afburðaleiks James De- an, sem ihlýtur að hrífa á- horfandann með sniili sinni. Slíkur leikur er fáséður á tjaldinu, og þótt ef til vill megi að einhverju leyti telja þetta tilfinningatriði, þar sem myndin er sú seinasta, sem hann lék í, verður ekki um það efazt, að þar hafi fallið frábær listamaður. Efni myndarinnar er stór- brotið, minnir að ýmsu leyti á ýms stórskáldverk, sem borizt hafa að vestan. Mynd in gerist í Suðurríkjunum, þar sem jafnan hafa verið taldir stórbrotnari persónu- Leikar en annars staðar í vesturheimi. Margt er yfir- borðskennt, og margt er raunsætt, og þó fremur hið síðarnefnda. Efnið er yfir- gripsmikið, svo að ekki verð- ur frá því sagt með nokkrum orðum, en það er gott til þess að vita, að Austurbæj- arbíó skuli hafa ráðizt í að sýna þetta listaverk. Og ekki sízt fyrir þá sök að gefa for- dæmi um að setja íslenzkan texta í myndir. Það er í raun inni engin ástæða til að krefjast þess að allir íslend- ingar kunni ensku það reip- rennandi, að þeir geti fylgzt með löngum samtölum, ekki sízt ef þau eru blandin tor- skildum mállýzkum. Þetta ættu fleiri bíó að hafa hug- fast og ekki hika við að fella texta inn í aUar stórmyndir sínar. Það myndi áreiðanlega borga sig fyrir þau. AMOR EVA SKUGGAR Ö1 og gosdrykkir Tóbak og sælgæti S ö 1 u t u r n i h n við HLEMMTORG UNDARLEG ÓVARKÁRNI. Á mánudaginn var, þegar Reykvíkingar risu úr rekkju, var alhvít jörð og hélzt snjórinn á götunum talsvert frameftir degi. Gerðust götur hálar og ástæða til að ætla, að bifreiðastjórar gættu meiri varkárni en ella, þar eð fæstir voru á keðjum, ef nokkur. En það var nú eitthvað öðru máli að gegna. Eg minn ist þess ekki í ihaust, að annan dag hafi meira verið gert að því að ,,sviina“ á manni og glannast framúr. Það var nokkurn veginn sama, hvort maður var í mið- bænum eða í úfhverfunum. Alls staðar sama sagan. Skyldi þetta vera einhver stráksskapur, einhver á- nægja, sem menn 'hafa af þvi, að finna bilinn renna á hálkunni, líkt og strákar renna sér fótskriðu á svelli, sem veldur þessu? Eg get ekki ímyndað mér annað. En þessum hinurn sömu væri sannarlega nær að bregða sér niður á tjörn og skilja bílinn eftir, vilji þeir veita sér slíka sikemmtun. 1 vunferðinni er hún ekki aðeins hættu leg, iheldur miklu fremur fíflaleg, og verður enginn maður að meiri, þótt hann geti sagt við sjálfan sig: — Sko til, ég 'hafði það, en mikið djöfull stóð það tæpt, maður! BORGARLEIKHÚS — EÐA HVAÐ? Það eru allir að tala um Borgarleikhús eins og hvern annan sjálfsagðan hlut þessa dagana, og þá helzt í sam bandi við Leikfélag Reykjavíkur. Skilst manni helzt, að almenningur sé að fá nokkurn áhuga fyrir því, að Leikfélagið fái inni, og hafa ýmsir gáfumenn komið fram með þó nokkrar uppástungur í því siambandi, sem ekki skulu frekar ræddar hér. Mér finnst ekki rétt að rugla saman því, sem gert yrði á vegum bæjarins og þess, sem gert yrði á vegum Leikfélagsins. Leikfélagið er í byggingarhugleiðing- um, og er þegar fenginn vísir að leikhússjóði, sem vafalaust á eftir að blómgast og dafna fyrir tilstilli hagsýnna og ötulla forráðamanna. Og Leikfélagið er vafalaust fært um að koma upp sínu leikhúsi með tímanum, þar sem það heldur uppi meginstarfHemi sinni með líku sniði og verið hefur. Talið um Borgarleikhús er hins vegar af allt öðrum toga spunnið. Þar yrði að sjálfsögðu um að ræða leikhús á vegum bæjarins, með fastráðnu starfsliði, eins og á sér stað við Þjóðleikhúsið, enda allt við það miðað, að isú stofnun gæti staðið sig sem ibezt í samkeppninni. Eg vil taka það skýrt fram, að ég er sízt að mæla með því, að leikarar Leikfélagsins hafi tekjur minni en atvinnuleikararamir við Þjóðleiikhúsið. I mörgum tilfellum ber þeim jafnvel betri laun. En það, seni ég óttast í sambandi við samruna Bongarleikhúss og Leik- félagsins, er það sama og henti við tilkomu Þjóðleik- hússins: þar koímust aðeins nokkrir útvaldir að, hinir urðu eftir niðri í gamla Iðnó og hófu þar merki leik- listarinnar djarflega á loft, ekki síður en verið hafði áður, enda þótt öllum væri Ijóst, að starfssldlyrðm þar væru óviðunandi. Skyldi þá ekki fara svo, að Borgarleikhús risi upp, fleytti rjómann af leikaraliði Leikfélagsins, — en hinir yrðu eftir niðri í gömlu Iðnó, (svo lengi, sem hún fær að standa) og héldu starfinu þar áfram, í samikeppni við tvö fullkomin lei'khús? Eg þykist ekki skammsýnni maður en gengur og gerist, en þarna álit ég framundan sker, sem, hættu- legt geti orðið þvi menningarstarfi, sem Leikfélagið hef ur leyst af hendi. Almenningur virðir og dáir starfs- menn Leikfélagsins fyrir áhuga þeirra og du-gnað. Það er áreiðanlega einlæg ósk allra, að Leikfélagið fái bættan ihúsakost, að minnsta kosti þak yfir höfuðið- En Borgarleiikhús á vegum bæjarins er naumast rétta iausnin, þótt ekkert sé sjálfsagðara annað en bærinn styrki Leikfélagið ríflega í þessu skyni. G r í m k e 11 . I

x

Ný vikutíðindi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ný vikutíðindi
https://timarit.is/publication/881

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.