Ný vikutíðindi


Ný vikutíðindi - 26.10.1962, Blaðsíða 2

Ný vikutíðindi - 26.10.1962, Blaðsíða 2
2 NT VIKUTIÐINDI / ' .. " : N NY VIKUTIÐINDI koma út á föstudögum og kosta 5 kr. Otgefandi: Geir Gunnarsson. Ritstjóri: Baldur Hólmgeirsson. Auglýsingastjóri: Emilía V. Húnfjörð. Ritstjórn og auglýsingar: Höfðatúni 2, simar 19150 og 14856. Stórholtsprent h. f. Eitrað tízku- fyrirbrigði Undanfarið hefur um fátt verið meira rætt og rit- að undafarið en ofneyzlu nautnalyfja, sem farið hafa vaxandi meðal fólks á öllum aldri. Þarf ekki að fara í grafgötur með, hver hætta er hér á ferðum, og ber að fagna því, að hið opinbera hefur loks látið til skar- ar skríða að kveða ófögnuð þennan niður, og ber að vænta þess, að það heppnist á þessu stigi málsins, eða áður en í ógöngur er komið. Lyf þau, sem aðallega hefur verið neytt, eru oft byrjunarstigið af eiturlyfjaneyzlu, og leiða smám saman til fíkni í sterkari, lyf, ef menn venjast á þetta á annað borð. Eins og bent hefur verið á hér í blaðinu hefur um alllangt skeið verið harla auðvelt að komast yfir talsvert magn af lyfjum þessum !með lítilli fyrirhöfn, og eiga læknar landsins, sumir hverj- ir, ekki hvað minnsta sök á, er þeir gefa út lyfseðla fyrir lyfjum þessum algjörlega út í bláinn, án tillits til, hvort viðkomandi manneskja hefur af völdum sjúkdóma nokkra þörf fyrir lyfin. Starf hins opinbera í þá átt að kveða niður far- aldur þennan, sem virðist vera einskonar tízkusjúk- dómur hjá þjóðinni, hættulegur ef ekki verður lækn- aður í tíma, hefur aðallega beinzt að því að hafa eft- irlit með þeim, sem grunaðir voru um neyzlu þeirra og jafnvel dreifingu, taka af þeim, sem fundust með þetta, og þar við látið sitja. . Hefði þó sannarlega verið nær að byrja á byrjun- inni og herða á eftirliti með því að taka með öllu fyrir lyfseðlaskriftir lækna á lyfjum þessum, nema brýn- ustu nauðsyn bæri til. Nauðsyn deyflyfja skal þó ekki dregin í efa, þeg- ar svo á við, en notkun örvandi lyf ja virðist harla hæpin, ekki sízt ef þeim er útlilutað í hugsunarleysi til fólks. Þetta er sök læknanna fyrst og fremst, og ætti tafarlaust að koma í veg fyrir áframhald slíks. Sá stóri hópur, sem sannanlega neytir örvandi lyf ja til þess eins að flýja veruleikanj^og leita óminnisins í stað þess að sigrast á erfiðleikunum með sálarþreki og kjarki, er slík meinsemd og liætta í þjóðfélaginu, að erfitt er að gera sér fyllilega grein fyrir. Engin ráð eru of kostnaðarsöm, ef takast mætti að kveða ófögnuðinn niður. Og í málum eins og þessum duga engm vettlingatök. — b. hljómplöturabb * VEGIR LIGGJA TIL ALLRA ÁTTA Það er nánast ótrúlegt, hvað lagið hans Sigfúsar fór gjörsam lega fyrir ofan garð og neðan hjá manni í kvikmyndinni 79 af stöðinni. Það er leikið í upp- hafi myndarinnar, hverfur nán- ast í kynningu, skvaldri og at- burðum, og eftirá man maður naumast eftir að hafa heyrt það. Þó er hér um að ræða afburða skemmtiiegt lag, sem unnið er af auðheyrilegri nostursemi, en nýtur sín sem sagt ekki fýrr en maður lieyrir það í róleg- heitum af plötu. Nú fyrir skemmstu kom plat- an á markaðinn i útgáfu Hljóð- færaverzlunar Sigríðar Helga- dóttur. Eg geri ráð fyrir, að þetta sé s'ama upptakan og not- uð var í myndinni. Henni fylgja engar upplýsingar aðrar en þær, að Elly Vilhjálms syngur, textinn er eftir Indriða G. Þor- steinsson, og við fáum ekki bet- ur heyrt en það sé Ólafur Gauk ur, sem meginþáttinn á í vel- lukkaðri músík með gítarleik sínum. Útsetningin er snjöil, enda unnin af Jóni Sigurðssyni. Um söng Elly er það að segja, að hún hefur oft verið mýkri en þarna, stundum finnst manni hún sleppa laglínunni eins og höstuglega, og það er ekki fall- egt. Hún er miklu blíðari, þeg- ar hún syngur um litla fluglinn hinum megin á plötunni, en það lag hrífur mann engan veginn eins og Vegirnir, sem liggja til allra átta. * RAGNAR A TOPPPLÖTU Það var víst einhvern tíma í útvarpsiþáttunum vinsælu, sem Svavar Gests fór að rifja upp gömul, næstum gleymd dægur- lög, og blés svo rækilega í gaml- ar glæður, að síðan hefur hvert gamla lagið á fætur öðru komið með þeim félögum og verið fagn að innilega eins og hæfir göml- um kunningsskáp. Skemmst er að mínnast sjómannvalsins SHIP OHOJ, sem Ragnar söng með hljómsveft Svavars inn á plötu fyrir skemmstu og hlaut feiknvinsældir. Nú er kominn á markaðinn ný plata með Ragn- ari, á vegum Isl. Tóna. öðrum megin er gamli sjómannavals- inn hans Ása í Bæ, er byrjar svo: Við brimsorfna kletta bár- urnar skvetta hvítfextum öldum, húmdökkum kvöldum sjómann- inn laða og seiða. Þetta er eainhver mergjaðasti sjómannasöngur, sem við eigum, og fyrst og fremst að þakka snilld Ása í Bæ, sem öllum bet- ur kann að lýsa æfintýrum sjó- mennskunnar í ljóði og tónum. Og það er ekki aðeins liressileg- ur söngur Ragnars, sem gerir plötuna skemmtilega, heldur má alls ekki gleyma Reyni Jónas- syni með harmónikuna sína. Án harmónikunnar er sjómanna- söngur líkt og áralaus bátur, en það er heldur ekki sama, hvernig á hana er leikið. Reyn- ir kann tökin á hlutunum. Hinum megin á plötunni er svo gamli slagarinn Heyr mitt ljúfasta lag, unninn af stórkost- legri prýði, og má þar kenna handbragð útsetjarans Magnús- ar Ingimarssonar. Ragnar syng- ur með hljómsveit Svavars, og kvennakór, sem fellur skínandi vel inn í og gerir sitt til að ná ánægjulegum áhrifum. Þessari plötu spáum við mikl- um vinsældum. Bæði lögin eru topplög, hvort á sinn hátt, og þeim er skilað af hreinni snilld. svo að naumast verður á betra kosið. VINSÆLUSTU LÖGIN I BANDARÍKJUNUM Tíu vinsælustu lögin í Banda- ríkjunum þessa dagana eru: 1. Monster Mash (Bobby Pickett) 2. Sherry (Four Seasons) 3. Ramblin’ Rose (Nat King Cole) 4. Do You Love Me (Contours) 5. Green Onions (Booker T.) 6. He’s Rebel (Chrystals) 7. Patshes (Dickey Lee) 8. Alley Cat (Bent Fabric) 9. Only Love Can Break a Heart (Gene Pitney) 10. Let’s Dance (Chris Montez) Fæst af þessum lögum hafa heyrzt nokkuð að ráði hér enn- þá, eitthvað að vísu í Vallarút- varpinu, að undanskilinni Rós' inni hans Nat King Cole, seni um óratíma hefur verið eitt af topplögunum og er jafnvel korn- ið á Ríkisútvarpið. Topplaff*^ hefur verið að mjaka sér na?r toppinum seinustu viikurnar, og Sherry hefur verið í efsta sæú um nökkurt skeið. Chubby Checker á ekki netna tvö lög af 100 vinsælustu, °£ er Popeye í 14. sæti, en Limb° Rock í 26., og á uppleið. Elvis á þrjú lög á listanunn King of the Whole Wide Worl er í 40. sæti, Return to Sender í 60. (á mjög hraðri uppleið) She’s Not You aftarlega, enda búin að gera það gott. Bobby Darin er að „slá * gegn“ með Babyface, sem kunn- ara er hér sem „Sveitaball“, en platan er á harðri leið upp a við, núna i 38. sæti. Bobby á annað lagið á listanum, If 3 Man Answers, í 28. sæti. á skennnnbisböÖunLjnn ÓLAFUR GAUKUR í KLUBBNUM Haukur Morthens endurskipu- lagfti hljómsveit sína fyrir nokkru, á þaiui hátt aS fá til sín liinn kunna gítarleikara Ól- af Gauk, og hefur lionum bælzt þar snjall liSsmaóur, svo að naumast var völ á bctri. Ótafur Gaukur er ekki aSeins snjall gitarleikari, heldur og er haiui í röö fremstu lítsetjara okkar, auk þess sem hann hefur sam- ÍS snjalla texta viS vinsæl dæg- urlög a8 ekki sé minnzt á dæg- urlagasmíSi. Við skruppum í Klúbbinn uin helgina, til að sjá og heyra. Það er í raun og veru ótrúlegt, hversu margir komast fyrir á þessum stað á föstudags- og laugardagskvöldum, en engum er láamdi, þótt fast sé sótt að komast inn, því þarria er sann- arlega glatt á hjalla. Það er líka ekki ónýtt að geta boöið gest- um upp á aðra eins músík og Klúbburinn gerir. NEO-tríóið og Margit Calva niðri í Italska salnum og svo Haukur Morthens með sína skemmtilegu hljóm- sveit uppi, en að öllum öðrum ólöstuðum er óhætt að fullyrða> að þarna séu tvær af skemnih legustu danshljómsveitunum 1 bænum. Haukur sagöi okkur í hléi, um .þessar mundir .væn -a koma ng plata me8 honum a markaöinn, meS lögunum Viim' IcveSja og Blátt lítiS blóm eUl er; þegar þessar línur eru 1 ^ aftar, erum viS ekki búnir uð heyra plötuna, svo aS gagnrýn in verSur aS bíSa næsta blaSs.-

x

Ný vikutíðindi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ný vikutíðindi
https://timarit.is/publication/881

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.