Ný vikutíðindi - 22.02.1963, Page 2
t
NY VIKUTIÐINDI
/" 11 ......... 11 ..........
NÝ VIKUTÍÐINDI
koraa út á föstudögum og kosta 5 kr.
Utgefandi: Geir Gunnarsson.
Ritstjóri: Baldur Hólmgeirsson.
Auglýsingastjóri: Emilia V. Húnfjörð.
Ritstjórn og auglýsingar: Höfðatúni 2,
simar 19150 og 14856.
Stórholtsprent h. f.
Fjölskyldutengsl og ,show'
Æskulýðsráð borgarinnar hefur boðað, að það ætli
að fara að beita sér fyrir heimiliskvöldvökum einu
sinni I viku. Er meiningin sú að hvetja foreldra til
að sinna bömum sínum eitt kvöld í viku, þá komi
f jölskyldan. saman um eitthvert áhugamál og eyði
kvöldinu við upplestur, leiki, söng og fleira.
Ætli einn skaðvænlegasti bresturinn í þjóðlífi okk-
ar geti komið greinilegar fram en einmitt í þessari
opinbem viðurkenningu á því, að bömunum sé hvergi
nærri sinnt nauðsynlega á heimilunum, og nú verði
að fara að efna til sérstaks „show“ fyrir þau til að
skapa hið nauðsynlega samband foreldra og bama?
Ætli það sé ekki miklu hollara að reyna að kom-
ast fyrir rætumar á meinsemdinni, sem er að grafa
um sig hjá okkur, eitra þjóðlíf okkar og hugarfar
barnanna? Því að hvað getur verið dýrmætara en vel-
ferð bamanna okkar?
Sú kynslóð, sem nú annast uppeldi, ólst sjálf upp
í umhyggju foreldra og langforeldra- Væru pabbi
og mamma of upptekin af einhverjum störfum, var
alltaf hægt að leita til afa og ömmu með vandkvæði
sín. Þar fann maður skilning, — og alltaf fannst
manni þau hafa tíma til að sinna manni, a. m. k.
gáfu þau sér það.
Það er því furðulegra, að við — uppalandi kyn-
slóðin — skulum gera okkar bezta til að kasta fyrir
borð þeim uppeldisáhrifum, sem sterkust vom í okk-
ar lífi. Bömunum köstum við á vöggustofur og dag-
heimili til að geta unnið sem mest úti, konur jafnt
sem karlar. íbúðir okkar gemm við sem nýtízkuleg-
astar, án nokkurs tillits til, hvort fyrir nokkm öðm
sé hugsað en íburðarmikilli, sólríkri og víðáttumikilli
setustofu, einhverju svefnherbergi handa okkur sjálf-
um og skonsu handa krökkunum. Þau era hvort eð
er ekkert heima á daginn, koma rétt inn til að borða,
og svo í háttinn á kvöldin.
Hvað gamla fólkinu viðvíkur, þá á það ósköp illa
heima í þessum nýtízkuíburði, enda nóg um elliheim-
ili til að taka við þeim, þegar þar að kemur.
Það þýðir ekkert fyrir okkur að neita því, að svona
hugsum við, og hvort sem við skömmumst okkar fyr-
ir eða ekki, þá sýnum við þetta þó alltaf í verki!
Fjölskyldutengsl, sem varanleg áhrif hafa til góðs,
verða ekki sköpuð með „show“-i í fínu stofunni eitt
kvöld í viku- Þau verða aðeins sköpuð með samhug
og ósvikinni umönnunarlöngun. Á það mætti benda
fólki.
Og afleiðingarnar myndu fljótlega sýna sig í minnk
andi afbrotum og hverskyns óreiðu unglinga. Að ekki
só minnst á bætandi áhrifin, sem ábyrgðarskynjunin
hefði á okkur sjálfa.
Eða — er í rauninni fram á of mikið farið? — b.
BOOMERANG
Kópavogsbíó.
Það er ánægjulegt, hverjum
stakkaskiptum þýzk kvikmynda
gerð hefur tekið á undanförn-
um árum. Sannleikurinn er sá,
að maður var hreint að gefast
upp á að fara í bíó, væri mynd-
in þýzk. Kauðahátturinn, af-
dönkuðu fyrirstríðssjarmörarn-
ir, settlegheitin, allt tilheyrði
þetta væmnustu vinnukonureyf-
urum löngu liðinna líma. Og
líklega má fullyrða, að Þjóð-
verjarnir hafi á flestum öðrum
sviðum en í kvikmyndagerð
rétt fljótlega við eftir stríðið.
Nú hafa þeir hinsvegar, að því
er virðist, snúið sér að henni
af sinni einstæðu alúð, enda
kemur hver ■ myndTtí1 'ani'tarri
betur gerð þaðan.
Það er hið fornfræga kvik-
myndafélag UFA, sem á heiður-
inn af myndinni, sem Kópavogs
bíó sýnir um þessar mundir og
nefnir eftir þýzka heitinu
BOOMERANG. Nafngiftin ligg-
ur ekki í augum uppi og hverj-
um og einum frjálst að draga
sínar ályktanir af. Við erum
með svo margar hugmyndir, að
það tekur því ekki að telja þær
allar upp hér, svo að við skul-
um sleppa þeim.
Myndin er afburða vel gerð.
Myndataka, atburðarásin, af-
burðaleikur — og svo loks tón-
listin, sem er kafli út af fyrir
sig.
Það voru bandarískir útvarps
menn, scm byrjuðu á jazzmúsik
sem undirspili sakamálasögu.
Peter Gunn riefndist sakamála-
saga þessi og hafa kaflar úr
músíkinni komið á plötum, sem
þykja með því bezta, sem fram
hefur komið í jazzheiminum.
1 Boomerang er raunar ekki
um nein jazzverk að ræða sem
heild — en rythminn, æsandi
og ögrandi, leynir ekki upp-
runa sínum. Það eru afburða
snjallir jazzmúsíkantar, sem þar
hafa lagt hönd á plóginn. Gam-
an hefði verið að fá að heyra
meira.
Um túlkunina er það að segja
að þarna er teflt fram marg-
víslegustu týpum. Þarna eru
ekki hinir sálarlausu byssubóf-
ar bandarisku kvikmyndanna,
heldur er hver hinna ungu af-
brotamanna gæddur sinni til-
veru, sínum sálarbrest eða sál-
arstyrk, jafnvel sinni fortíð, er
glögglega kemur fram í skýrum
skyndimyndum.
Efnisþráðurinn er skýr og út-
úrdúralaus. Engu eytt í mælgi
eða teymingar — aðalsmark
góðrar spenningsmyndar.
Hardy Kruger fer með aðal-
hlutverkið, traustur skapgerðar-
leikari, sem virðist vaxa með
hverju verkefni. Afbragðstúlk-
un hans hefði þó verið enn
gleggri við hliðina á miðlungs-
leikurum — en þeim er ekki
til að dreifa i þessari mynd.
Þarna er hver leikarinn öðrum
betri, snilldartýpur, sem unun
er að sjá í þessum hlutverkum.
Spennandi og afburða vel
gerð og leikin mynd. Af henni
ætti enginn, sem gaman hefur
af hörkuspennandi sakamála-
myndum, að missa. — b.
HLJÓMPLÖTUR
Þegar við litum sem
snöggvast inn í hljómplötu-
verzlun liér í borginni upp
úr síðustu helgi, komumst
við að raun um, að tíu vin-
sælustu plöturnar í Banda-
ríkjunum um þessar mundir
mimu vera þessar:
1. Go Away Little Girl
Steve Lawrence
2. Walk Right In
Rooftop Singers
3. Hey Paula
Paul and Paula
4. The Night Has A
Thousand Eyes
Bobby Vee
5. It’s Up To You
Ricky Nelson
6. Tell Him
The Exciters
7- Telstar
The Tornados
8. Loop De Loop
Johnny Thunder
9. My Coloring Book
Sandy Stcwart
10. Walk Like A Man
The Seasons
AF ERLENDUM
MARKAÐI:
Brenda Lee er nýkomin á
plötu, sem heitir YOU USED
TO BE, og er hún á hraðri
leið upp vinsældalistann,
eins og aðrar plötur þessarar
vinsælu og ágætu söngkonu
. . • Little Eva er einnig með
nÝ.1a plötu, þriðju metsölu-
plötuna í röð, hún heitir
Let’s Turkey Trot . . . Nýj-
asta plata Neil Sedaka heit-
ir Lísa í Undralandi .. .
Bobby Darin hefur sjálfsagt
tileinkað fallegu eiginkon-
unni sinni nýjustu pjötuna
sína, en hún heitir You’re
The Reason I’m Living . . •
Paul Anka er með nýja
plötu, sem nefnist Love Mak-
es The World Go Round, en
það er sama lag og Perry
Como gerði frægt fyrir
nokkrum árum .. . Limbo
Rock með Chubby Checker
er loks á niðurleið á vin-
sældalistanum eftir margra
mánaða dvöl uppi á toppin-
um ... Return To Sender
seldist alveg gífurlega eins
og raunar flestar plötur Pres
ley’s, og nýjasta platan hans,
sem heitir Girls, Girls, Girls
er þegar komin í 6. sæti á
vinsældalista þeirra hæg-
gengu. •.. Vinsælasta plat-
an' í Englandi um þessar
mundir er ný plata með Jet
Harris, sem eitt sinn stjóm-
aði The Shadows; heitir hún
Diamonds og komst á topp-
inn á þrem vikum ...
AF INNLENDUM
MARKAÐI:
Mest seldu plöturnar á Is-
landi í dag eru LIMBO
DANCE, BOBBY’S GIRL,
LET’S DANCE og RETURN
TO SENDER allt löngu kunn
ar plötur með bandarískum
listamönnum .. . Af íslenzku
plötunum syrpuplata með
Sigrúnu og Alfreð langvin-
sælust, og hefur selzt upp
tvívegis og bíða hundruð
pantana næstu sendingar ..
BLÁTT LÍTIÐ BLÓM EITT
ER með Hauk Morthens
ætlar að verða einhver mest
selda plata þessa snjalla
söngvara . •. VERTU SÆL.
MEY, sem Ragnar Bjarna-
(Framh. á bls. 3)