Ný vikutíðindi - 05.07.1963, Page 1
RjST? wo osqj
Föstudagur 5. júlí 1963 — 27. tbl. 3. árg. — Verð kr. 5.oo.
S T Y R K I Ð
lilutlaust og óháð blað,
sem þorir að segja
ómengaðan sannleikann.
Auglýsið í Nýjum
Vikutíðindum.
Kaupið Ný Vikutíðindi.
Landskeppnin við Dani:
Iþróttaíorystan ber skömmina
Omurleg frammistaða íslenzkra frjálsíþrótfamanna
Landskeppnin í frjáls-
íþróttum við Dani er ágætur
mælikvarði á þá niðurlæg-
ingu, er forystumenn þessar-
ar íþróttagreinar hafa mark-
visst unnið að og komið
henni í, með fádæma skamm-
sýni, ofstæki, sjálfbyrgings-
hætti, ódugnaði og ábyrgðar
Ieysi á undanfömum áratug.
Sjaidan eða aldrei hefur á-
rangursleysi íþróttamanna
okkar valdið meiri vonbrigð
um og orðið þjóðinni meira
til skammar, en þessi keppni
á Laugardalsvellinum um
daginn.
Eftir óslitna sigurgöngu í
landskeppni við Dani, mörg-
uim sinnum, er árangurinn
ekki betri en það, að 58 stig
skilja á milli, sem er engan
veginn samboðin andstaða
(Framh. á bls. 5)
Er þjónustuleysi í Astrasalnum!
Hávœr orðrómur í þá átt
Við höfum orðið varir við
vaxandi orðróm um slæma
þjónustu í glersalnum á þaki
Bændahallarinnar. Þetta er
sá staður, sem flestir útlend-
ingar, sem hingað koma,
heimsækja, ýmist einir eða
í boði innlendra vina. Til
dæmis bjóða kaupsýslumenn
erlendum viðskiptavinum sín
um eða fulltrúum þeirra
gjarnan tíl snæðings á þess-
um stað, ekki sízt vegna þess
að þeir búast við fyrsta
flokks mat og þjónustu, en
jafnvel fyrst og fremst
vegna þess að þarna er að
fá glæsilega útsýn yfir hluta
af Reykjavík.
En í báðum tilfellum hef-
ur ýmislegt orðið til þess að
varpa skugga á heimsókn-
ina. Ósjaldan hefur þjónust-
an brugðizt, verið seinleg og
lítt lipur, maturinn ekki af
bezta tagi og loks er glugg-
unum ekki haldið nægilega
hreinum. Sumir ganga jafn-
vel svo langt að halda því
fram, að óhreinindin séu
ekki aðeins að utan.
Þegar staðurinn, var opn-
aður, hafði ekkert verið spar
að til þess að gera hann sem
glæsilegastan. Hann hefur
auk þess boðið upp á fjöl-
Cula hœttan
Viðsjár eru nú milli rússneskra kommúnista og kín-
verskra — meiri en góðu hófi gegnir. Vilja Kínverjar
— sem eru nálega f jórðungur mannkynsins — ekki
láta Rússa lengur líta á sig sem Iitla bróður. Þeir eru
líka að sprengja utan af sér landamærin og vantar
meira Iandrými.
Bæði Rússar og Bandaríkjamenn sjá að hverju
stefnir. Þeir óttast hvað verða mim um þennan ara-
grúa gulu mannanna, þegar þeir hafa fengið fullkom-
in vopn í hendur.
Það skyldi þó aldrei vera að ferðalag Kennedys til
Evrópu stæði í sambandi við þetta vandamál? Já,
hver veit nema þeir Kennedy og Krutseff eigi eftir að
taka höndum saman gegn gulu hættunni?
breytta rétti, og margir hafa
þá sögu að segja, að þarna
sé flest eða allt óaðfinnan-
legt. En neikvæðari orðróm-
urinn verður æ háværari og
sjálfsagt að aflaga hlutum
verði kippt í lag hið snar-
asta. — Þjónunum mætti
benda á, að þeir eiga sjálfir
talsverða sök á hinni lélegu
þjónustu.
//'
Þjóðernissinnar"
farnir að gefa út hlað
Blaðinu hefur borizt Mjölnir, fréttabréf þjóðemis-
sinna á Islandi, 1. tbl. 1. árg. Ábyrgðarmaður er J.
Hólm. Er það f jórar blaðsíður, f jölritað, í stóru broti.
I ávarpsorðum segir, að ætlunin sé að gefa blaðið
út mánaðarlega. Þar segir ennfremur:
„Þrátt fyrir hve lítið hefur borið á starfsemi flokks-
ins undanfarið hafa margir nýir meðlimir bætzt í hóp-
inn. Flestir era þetta ungir menn með heilbrigða
dómgreind, sem hinum óþjóðlegu stjórnmálaflokkiun
hefur ekki tekizt að rugla, ungir menn í leit að nýrrj
hugsjón, nýju leiðarljósi, sem þeir munu fylgja til
hins endanlega SIGURS.
..Sú stund fer að nálgast, að flokknum verður
skipt niður í flokksdeildir. Þeir meðlimir, sem hafa
yfir einhverjum hentugum fundarstað að ráða, láti
flokksstjóraina vita af því sem allra fyrst ... “
Meðal annars efnis í blaðinu má nefna áskorun til
allra um að kaupa Suður-Afrikanskar appelsínur!
"w . •••«•....'•. ........................................................... , . ............... — . ... . ■: d
Frammarar og Akureyringar eigast við — Sjá knattspymugrein á bls. 8.