Ný vikutíðindi - 05.07.1963, Qupperneq 8
KNATTSPYRNUÞANKAR
í 1. deild mjög fvísýn
Skipun landsliðsins — Skrilslæti
á leikjum úti á landi
tJrslitin í 1. deild hafa aldrei verið tvísýnni en ein-
mitt nú; rúmum helmingi leikjanna er lokið. Má segja,
að fimm félögin hafi svo til jafna möguleika til að
hreppa hinn fagra og eftirsóknarverða bikar ásamt
heitinu Bezta knattspymufélag fslands. Aðeins eitt má
heita fallið úr baráttunni um bikarinn — og þó geta
furðulegustu hlutir gerzt í sambandi við það eins og
annað í þessari duttlungafullu viðureign.
MÓTIÐ HÁLFNAÐ
Leikir þeir, sem lokið er í
mótinu, hafa margir farið
svo furðulega, að enn er ekki
nokkur leið að segja til um,
hver hreppi að lokum hinn
fagra bikar. Áhugi manna
fyrir mótinu er líka með
mesta móti, enda þótt efcki
verði sagt, að knattspyrnu-
mennirnir okkar hafi alltaf
orðið áhorfendum til ánægju
með glæsilegri knattspyrnu,
eins og sum liðanna virðast
þó éiga til í fórum sínum, en
því miður grípa alltof sjald-
an til.
Þá verður heldur naumast
sagt, að af opinberri hálfu
hafi verið stuðlað að áhuga
almennings. Á getraununum
hefur ekkert bólað, og að-
eins smáspor stigið í rétta
átt — í tveim dagblaðanna
— að minnast svolítið á leiki
fyrirfram. Þetta eru sömu
aðilar og útbásúnuðu hvað
mest landsleikinn í frjálsum
íþróttum við Dani, íþróttafor
ústa, sem aðeins er landinu
til skammar og ætti að hafa
vit á að snúa sér að öðrum
verkefnum.
EINSTÖK
K NATTSP Y RNIJLIR.
Upp á síðkastið hafa Akur
eyringamir einna helzt kom-
ið á óvart með prýðilegri
frammistöðu, enda voru
„ÓKROSSAÐUR" hefur
sent okkur bréf um orður
og krossa. Vill hann vita
hversu orðuskattur er hár,
og hvort skatturinn sé
hækkandi í samræmi við
stig orðunnar!
Aðalefni bréfsins er þó
það, hvort hugsanlegt sé að
nauðungaruppboð verði
haldið á orðtmni, ef slíkur
skattur sé ekki greiddur!
Hann hefur nefnilega litla
von með að krækja sér i
medalíu nema honum takizt
iiý—
Er það satt, að Friðjón
Skarphéðinsson eigi að
verða ráðherra fyrir AI-
þýðflokkinn í stað Guð-
mundar 1. Guðmundssonar?
að fá hana fyrir lítið verð
á uppboði.
EIGINKONAN lá vakandi
í rúminu og beið — og var
I alveg voðalegu skapi, þeg-
ar eiginmaðurinn kom heim
klukkan 4 um nóttina, rak-
ur vel.
„Hvar hefurðu verið?“
spurði hún.
„Hjá sjúkum vini,“ svar-
aði hann.
„Æ, gamla sagan ennþá
einu sinni. Og hvað heitir
svo þessi vinur þinn, ef ég
má spyrja?“
Hann þagði andartak,
svo birti yfir svip hans, og
hann sagði sigri hrósandi:
„Hann var svo veikur að
hann gat ekki sagt nafnið
sitt.“
ÞEGAR Islendingar báru
höfuð og herðar yfir Dani
í milliríkjakeppni í íþróttum
fyrir nokkrum ámm, gátu
dönsku blöðin um það fyr-
irsagnalaust í tveimur smá-
letruðum línum á íþrótta-
fyrstu leikir þeirra svo slak-
ir að við lá að aðdáendur
þeirra misstu móðinn. En
jafnteflisleikir þeirra syðra
við sterkustu Reykjavíkur-
liðin, KR og Val, og sigur
þeirra yfir Val nyrðra, virð-
ist gefa til kynna, að ekki
verði mörg stig sótt í greip-
ar þeirra norður, en allir
leikir þeirra, sem eftir eru í
mótinu, verða leiknir nyrðra.
Þeir eru nú með fimm stig;
hreppi þeir öll stigin nyrðra,
verða þeir með þrettán — og
það þarf ekki meira til að
vinna mótið!
KR-INGAR náðu ekki
nema jafntefli við norðan-
menn, og hafa imnið naum-
an sigur yfir Keflvíkingum
í tveim leikjum. Það má
vera, að þeir verði sigur-
sælli gagnvart hinum Reykja
víkurliðunum og Skagamönn
um — jafnvel, að þeir sæki
stig norður, en sannast að
segja er.það ekki sennilegt.
Til þess er KR-liðið hvergi
nærri nógu sterkt núna.
VALUR á nú á að skipa
ungum og harðskeyttum
(Framh. á bls. 4)
síðum sínum. Þeir skömm-
uðust sín.
Við slárnn þvi hiná veg-
ar upp í okkar blöðiun, að
við höfum eklri lengur roð
við Baununum. Kunnum við
kannske ekki að skammast
okkar ?
!
TVÆR tíu ára gamlar kunn
ingjakonur okkar fóru að
horfa á landskeppnina við
Dani og voru óðamála, er
heim kom, yfir því hve illa
Iandarnir stóðu sig......
.. En mesta sportið fannst
þeim að þær skyldu geta
svindlað sig inn á völlinn.
„Og þó var bæði gaddavír
og smumingsolía sett á
girðinguna,“ sögðu þær
hróðugar.
!
FYRIRHUGAÐ er að gera
kvikmynd af ævi ensku
gleðikonunnar Christine
Keeler, sem nú er að gera
allt vitlaust í enska stjóm-
málaheiminum. Hún á sjálf
að leika aðalhlutverkið og
myndina á að taka í Dan-
mörku.
Einnig stendur til að taka
sjónvarpsmynd um enska
unglinga hér á landi og á
að sýna skólanemendur í
fríi. Ekki hefur verið látið
uppskátt um á hvaða stöð-
Hitt og þetta úr
heimspressunni
Ríkisstjórinn í New York, margmilljónamiraringur-
inn Nelson Rockefeller, er nú kvæntur Margaretta
Fitler Murphy, sem nýlega skildi við mann sinn, þekkt
an lækni. Rockefeller er 54 ára, en hún 36 ára.
Þegar Rockefeller skildi við konu sína árið 1961,
eftir 31 árs hjónaband, álitu margir að það myndi
skaða framtíð hans sem stjórnmálamanns, en sú spá
hefur ekki reynzt rétt. Vinsældir hans eru engu
minni en áður, og talið er öruggt að hann verði for-
setaefni republikana við næstu kosningar.
Frú Murphy var hægri hönd Rockefellers við rík-
isstjórakosningamar í New York 1959, og hún mim
áreiðanlega ekki láta sitt eftir liggja svo að hann
nái ennþá hærra takmarki árið 1964 — sem sé for-
setakosningunum í Bandaríkjunum.
Fréttaritari frá hinu áreiðanlega tímariti Time, hef
ur nýlega skrifað fréttagrein um starfsemi léttúðar-
drósa í Evrópu. Hann telur hana sízt fara minnk-
andi, og að eftirspurn aukist sífellt á gleðikonum,
þrátt fyrir ýmsar vamarráðstafanir liins opinbera
gegn starfseminni.
Síðasta tízka hjá þessum stúlkum segir hann vera
að stunda karlmannaveiðar í einkabílum á götunum;
þær blikki með bflliósunum eða gefi svolítið merki
með flautunni. — I Kaupmannahöfn fullyrðir hann
að séu stúlkur í „station“-bflum eða yfirbyggðum
vömbflum, úthúnum með rekkju!
Sean, sonur Errol Flynns, hefur leikið í tveimur
kvikmyndum, en ekki fengið hlutverk, sem hafa ver-
ið heppileg fyrir hann. Þess vegna er nú aftur orð/j
hljótt um nafn hans. — Þeir sem þekkja hann fullyrða
þói áð hann búi yfir óriíræðum hæfileikum og telja
vafalaust að hann verið fyrr eða síðar vinsæll kvik-
myndaleikari.
Skilnaðarmál frægra manna em ákfalega vinsælt
uniræðuefni í Englandi. Eitt hið nýjasta er mál jarls-
ins af Shrewsbury og konu hans.
Árið 1959 sóttu þau bæði um skilnað, en þótt sann-
að þætti að þau væm bæði sek um hjúskaparbrot —
hún með ritara jarlsins, en hann með Ninu Martlock
— neitaði dómarinn þeim um skilnað. — Þau væm
bæði jafn sek!
En nú hefur þeim verið veitt leyfi til að skilja, eft-
ir að jarlinn hefur játað á sig tvö hjúskaparbrot og
nefnt stað og stund. Hann segir að Nina hafi verið
ástmey sín frá því árið 1941.
Jariinn og kona hans eiga 6 böm saman og hafa
verið gift frá því árið 1936.
um myndin verður helzt
tekin, en gizkað hefur verið
á Þórskaffi og Þjórsárdal.
!
ferð, enda gengur Haukur
nú undir nafninu „síldar-
kóngurinn“.
Eggerti á Sigurpáli kvað
ekki standa alveg á sama.
SJÓSTANGAVEIÐI cr orð
in vinsæl íþróttagretn, og
f jölgar stöðugt þátttakend-
um í henni. Frá Reykjavík
fer bátur flesta daga vik-
unnar með frá 5 og upp í
sjö menn og konur hverju
sinni og á nýafstöðnu móti
í Keflavík voru um 50 þátt
takendur.
Ótrúlegustu tegundir
fiska eru dregnir og er
frægt frá Vestmam^eyja-
mótinu er Haukur Clausen,
tannlæknir, dró 167 síldar,
sem mun óþekkt fyrirbæri
með fyrrgreindri veiðiað-
SVO mikil stybba er í borg-
unum, ekki sízt frá vélknún-
iim farartækjum, að ef logn
og hiti eru í hálfan mánuð,
ehis og verið hefur í aust-
urhéruðum Bandaríkjanna,
óttast menn að banvænt eit
urloft leggist yfir sumar
stórborgimar þar.
Það er munur að hafa
kulið eins og við. Sennilega
er óvíða æskilegri veðrátta,
en hér á landi — það er
aldrei of kalt og aldrei of
hlýtt, allt árið um kring.