Ný vikutíðindi - 17.01.1964, Side 2
2
N* VIKUTIÐINDI
NÝ VIKUTÍDINDI
koma út á föstudögum og kosta 5 kr.
Ritstjóri og útgefandi: Geir Gunnarsson.
Auglýsingasími: 17333.
Ritstjórn og afgreiðsla: Laugavegi 27,
sími 14856.
Prentsmiðjan Ásrún h.f.
Kjarkmikil
ákvörðun
Almennt hefur það vakið ánægju hérlendis, að
Loftleiðir völdu þá leið að lækka fargjöldin enn yfir
Atlantshafið, þegar IATA-félögin lækkuðu sín flug-
fargjöld á þessari leið, beinlínis með það fyrir aug-
um að hnekkja veldi Loftleiða.
Þykir stjóm Loftleiða hafa tekið myndariega á
málunum og sýnt áræði og festu. Þetta er góð og
kjarkmikil ák\'örðun, sem ber vott um að eigendur
Loftleiða trenysta á hæfni starfsfólks síns til að
standast hinum eriendu risafélögmn snúning.
Allt bendir nú til þess að félagið sé að afla sér
nýrra og stærri flugvéla í stað hinna eldri og minni.
Mun ætlunin að kaupa skrúfuþötur með Rólls-Roýce-
hreyflum og 180 sætum, sem taldar eru ódýrari I
rekstri en hinar svokölluðu sexur, sem þeir nota
núna.
Þjóðin óskar þess af alhug, að þetta vinsæla flug-
félag okkar haldi velli í hinni gífurlegu samkeppni,
sem nú er framundan um farþega yfir Atlantshaf-
ið.
Hressileg nýjung
Ungur og hressilegur stórkaupmaður hefur nú
brotið margra ára ís og farið að auglýsa vissa teg-
und af tóbaki. Umboð á tóbaki hér á Iandi var lengi
í höndum einkasöluforstjóranna sjálfra, sem að sjálf-
sögðu töldu sig ekki þurfa að auglýsa vörurnar.
Þetta var látið viðgangast óátalið, þótt óneitanlega
hafi mörgum fundizt óeðlilegt að forstjóri ríkiseinka-
sölu hefði mikil umboðslaun af einkasöluvörunum of-
an á gífurieg laun hjá ríkissjóði.
„There is something rotten in the State of Dan-
mark,“ lét Shakespeare eina söguhetju segja. — Og
kannske verður aldrei komið í veg fyrir að eitthvað
rotið eigi sér stað í öllum þjóðfélögum heims.
En til þess er hin frjálsa pressa, að benda á það
sem miður fer, einkum ef það fær að þróast í skjóli
pólitískra flokka, hvetja til nýrra átaka, skerpa rétt-
lætisvitundina og stuðla að þvi sem betur má fara.
Við erum ekki að áfellast núverandi forstjóra ÁT-
VR né nokkum annan persónulega. Við viljum ein-
ungis vekja athygli á ósið, sem hefði löngu átt að
uppræta — einn af mörgum í þjóðfélagi okkar.
BóksalafélagIslands
75 ára
Hinn 12. þ. m. hélt Bók-
Bóksalafélag íslands 75 ára
ára afmæli. Gaf það í því til-
efni út mjög vandað afmæl-
isrit, sem Sveinn Sigurðsson
fyrrv. ritstjóri tók saman,
auk þess sem því fylgdi
skýrsla um bókaútgáfu 1888
—1962, eftir Ólaf F. Hjart-
ar.
Stofnendur félagsins voru
þeir Sigfús Eymimdsson,
Björn Jónsson og Sigurður
Kristjánsson. Voru á stofn-
fundinum samþykktar reglur
fyrir félagið og gerð skrá
yfir 27 útsölumenn víðsveg-
ar um land, sem félagið
veitti sérstök forréttindi
gegn tilgreindum skilyrðum.
Áður en stofnárinu lauk
voru þó útsölumennifnir
orðnir 35 alls.
Fyrstu 20 árin var Sigfús
Eymundsson formaður fé-
lagsins.
Þegar farið er yfir nafna-
skrá fyrstu útsölumannanna,
rekur maður augun í nöfn
Sjónva~pstœkin—
(Framh. af bls. 1)
alltaf takast sem skyldi, en
lagfæringar fást seint eða
aldrei.
Fullyrt er einnig að kass-
inn sé reiknaður á 5—8 þús.
kr. í söluverði tækjanna en
smíðin kosti varla mikið yf-
ir 1000 krónur.
Fróður maður um þessi
mál hefur ennfremur tjáð
blaðinu, að þegar Evrópu-
tækin eru stillt inn á Amer-
íkukerfið, séu yfirleitt ekki
notuð til þess sérstök og
nokkuð dýr mælitæki, eins
og nauðsynlegt er ef vel á
að fara, heldur sé notast við
skrúfjárn.
Sjónvarpstækið sé svo
aldrei í fullkomnu lagi, en
ef hringt er í seljenduma
komi viðgerðarmaðurinn
ekki, eða þá eftir dúk og
disk, og þá með skrúfjárnið
í hendinni.
Sé þetta rétt veitir sann-
arlega ekki af því að vekja
athygli á slíkum vinnubrögð
um, því hér er um dýr tæki
að ræða, og menn eiga heimt
ingu á því að þau og við-
ekki mun ástæða til slíkra
umkvartana nema á fáum
sölustöðum siónvarpstækja.
Skylt er að geta þess, að
gerðarþjónustan sé fyrsta
flokks.
eins og Hallgrímur Jónsson í
Guðrúnarkoti, Magnús Jóns
son á Steinum undir Eyja-
fjöllum, Ari Hálfdanarson á
Fagurhólsmýri, Sigurður Ól-
afsson á Kirkjubæ, Sigurður
Erlendsson á Álftanesi, Jó-
hann Gunnlaugsson, Ytra-
Lóni, Hermann Jónasson á
Hólum, Gísli Jónsson á
Hjarðarholti og Jón Jóns-
son á Sleðbrjót.
Þetta er glöggt dæmi um
hina breyttu tíma á ekki
lengra tímabili. Fyrir 75 ár-
um voru bóksalar í sveitum
og kostað var kapps um að
ná til bændanna. Nú eru bók
salar hinsvegar flestallir í
kaupstöðum og kauptúnum.
Allt til 1952 höfðu mörk-
in milli útgefenda og bók-
sala verið óljós, en þá eru
samþykkt ný lög, þar sem
tekið er fram að í Bóksala-
félagi íslands geti þeir ein-
ir einstaklingar eða fyrir-
tæki orðið, sem reka bóka-
útgáfu að staðaldri og sem
aðalstarf, enda séu þeir ekki
innan félagasamtaka bók-
sala. Þá hafði verið stofnað
sérstakt félag íslenzkra
bókaverzlana.
Þannig stendur á því, að
félag þetta, sem raunveru-
lega ætti að heita Bókaút-
gefendafélagið, nefnist Bók-
salafélag Islands, sem hljóm
ar dálítið ankannalega í eyr
um ókunnugra og er raun-
ar orðið rangnefni.
Núverandi stjórn félagsins
skipa þessir merm: Gunnar
Einarsson, form.; Oliver
Steinn, varaform.; Ambjöm
Kristinsson, ritari; Steinar
Þórðarson gjaldkeri; Valdi-
mar Jóhannsson, meðstjóm-
andi; Gísli Ólafsson, með-
stjórnandi, og Gunnar Þor-
leifsson, meðstjómandi. ■
Endurskoðendur em þeh*
Ragnar Jónsson, hrl., °S
Sveinn Sigurðsson. — 1 skila
nefnd félagsins em þeir Guð
mundur Jóhannsson, Guð-
mmidur Jakobsson og Þor-
kell Jóhannesson.
1 lok síðasta árs vom út-
sölumenn Bóksalafélagsins
um 90 á landinu, þar af 18 í
Reykjavík. Félagar voru
hinsvegar 64, þar af 50 i
Reykjavík.
Við óskum félaginu til
hamingju með afmælið.
öppsagnir —
(Framh. af bls. 1)
stenzt ekki í janúar. Svo
losaralegt er allt opinbert
fjármálakerfi hér á landi.
Samt em þessar áætlanir
drifnar í gegn, þótt þær séu
fyrirsjáanlega út í bláinn.
Er þetta ábyrg forusta, ef
svona er á öllum sviðrnn hjá
okkur? — Og ólíkt er að-
hafzt hjá stórveldinu Banda-
ríkjunum. Þar verða áætl-
animar að standast, og þar
em ekki teknar á sig afleið-
ingar vinnulaunahækkana.
VETRARFRÍ
Munið hinar ódým vetrarferðir m.s. GULLFOSS
sem þekktar era orðnar fyrir vinsældir. Enn fást
miðar í næstu ferðir.
H.F. EIMSKIPAFÉLAG ISLANDS
\