Ný vikutíðindi


Ný vikutíðindi - 01.12.1967, Blaðsíða 8

Ný vikutíðindi - 01.12.1967, Blaðsíða 8
N Y VIKUTIÐINDI SKellur < flugfélðgin AF BLÖÐUM SÖGUNNAR: Deilur um hækkun á (armiðum keyptum fyrir gengisíellingu Gengislækkunin kemur ad sjálfsögðu misjafnt niður á ýmsum aðilum, sem hún snertu-, en óliætt er að full- yrða að engum þegn þjóðfé- lagsins er hún óviðkomandi. Meðal þeirra fyrirtækja sem verst fara út úr þessari ráð- stöfunum ríkisstjórnarinnar, ber fyrst að nefna Flugfélag ísiands, en við gengisfelling- r:na hækka skuldir Flugfé- lagsins erlendis um 100—200 milljónir króna. Blaðið hefur fregnað að deila hafi risið upp milli þe: rra, sem búnir voru að kaupa farmiða til útlanda áð ur en til gengislækkunarinn- ar kom, og Flugfélagsins hins vegar. Halda þeir fyrr- nefndu þvi fram, að hinu ís- lenzka flugfélagi beri skylda til að standa við gefnar skuldbindingar um að flytja farþega á leiðarenda fyrir það verð, sem farmiðamir hljóða upp á, þegar þeir eru keyptir. Flugfélögin halda því hins vegar fram, að samkvæmt al þjóðlegum reglum og milli- ríkjasamningum um farmiða gjald, eigi þau rétt á því að krefja farþega um viðbótar- greiðslu fyrir farmiða, þótt þeir séu keyptir fyrir geng- isfellinguna. Það mun vera regla, að flugfélögin greiða ekki ávís- aða miða á önnur flugfélög fyrr en 10 dögum eftir að miðinn hefur verið notaður og gefur því auga leið, að það er drjúgur skildingur, sem hin íslenzku flugfélög UK VÖNDU Att VELJA Taiið er að ríki banka- stjórinn í Vestmannaeyjum eigi um þrennskonar störf að velja, er hann hverfur úr þjónustu Útvegsbankans. Hann eigi kost á tveimur stöðum hjá fyrirtækjum Gísia Gíslasonar, varabanka ráðsmanns, að eigin vali, — skrifstofustjórastarfi hjá Hafskip eða Verzlanasam- bandinu, sem yrði í fram- kvæmdinni forstjórastarf, og hliðstæðu starfi, en bet ur launuðu, við hið nýja heildsölufyrirtæki Jörgen- sens. ENGINN FAKMIttASKATTIK Við höfum frétt, að skuld ir Flugfélags Islands erlend is vegna flugvélakaupa liækki um ca. 150 milljónir króna vegna gengisbreyting arinnar — upp í ca. 600 millj. kr. Flugfélagsmenn bera sig yrðu að greiða aukalega til annarra flugfélaga, sem þau hafa skipti við, ef það reyn- ist rétt að ekki sé hægt að krefja farþega, sem þegar hafa greitt miða sína sam- kvæmt gamla genginu, um viðbótargreiðslu. Blaðið hefur innt lögfræð- ing eftir því, hvernig líkleg ast væri að þessum málum lyktaði og fékk það svar, að hér væri um mjög tvísýnt mál að ræða. Skellurinn, sem Flugfélag íslands fær við gengisfelling una, er svo alvarlegur að varla er á bætandi. Ef það verður hins vegar talið rétt, að Flugf élagið eigi ekki rétt á að hækka verðið á miðum, sem seldir voru fyrir gengis-fellingu, þá er það þungt áfall til viðbótar þvá, sem á undan er gengið og er talið vafasamt, hvort Flugfélagið geti staðist slík áföll. ■<0saBfeS mennu ámæli vegna að- gerða sinna, og prestastétt- in ber kinnroða vegna af- skipta kirkjunnar þjóna af máli þessu. samt karlmamilega, þótt fargjöld hækki um nálega þriðjung, einkum þar sem það er nú talið öruggt, að ekkert verður úr farmiða- skattinum. EINFÖLD I F.Itt Léttlyndir menn og gam- ansamir hafa á orði, að heilsölunum sé ekki mikill vandi á höndum vegna geng isfellingariunar; þeir hafi margir hverjlr þá einföldu leið að borga erlendar skuldir sínar með gjald- eyri, sem þeir eigi falinn erlendis. KJAFTASLÚÐUR Frammámenn Sjálfstæð- isflokksins, þeir sem stóðu •fyrir því að dæma Sigfús Johnsen fyrirfram, vegna alls konar kjaftaslúðurs, sem rakið er til ákveðinna manna, liggja uudir al- GRÓÐI Á FISKVINNSLU Blaðið hefiu’ aflað sér ársskýrslu KASK (Kaup- fél. A.-Skaft., Höfn, Homa firði) fyrir s.l. ár og kemur þar í ljós, að reksturhagn- aður félagsins af fisk- vinnslustöð þess er næstum 6.6 millj. kr., af rúmlega 54.6 millj. kr. mnsetningu. Þó þurfti félagið að borga nærri 2,5 millj. kr. í vexti á árinu, og sem auðvitað dregst frá hagnaðinum. Það er vert að hafa þetta í huga til samanburðar við rekstursreikning ýmissa annarra fiskvinnslustöðva. Hefnd Allahs „Kafteinn Avery“ var einhver illræmdasti sjóræn- inginn í lok 16. aldar. Allir sjófarendur nefndu nafn hans með óttablandinni virðingu. ¥ ¥■ ■¥ ■¥ ■¥ ¥ •¥ •¥■ ■¥ •¥■ Stærsta herfang hans var, þegar honum tókst að hertaka eitt af skipum Stórmongulsins, sem var hlað- ið ógrynni auðæfa, þegar það var á leiðinni til Mekka í pílagrímsför. Um borð var m.a. hin fagra dóttir þessa volduga þjóðhöfðingja. Kafteinn Avery ihafði veitt skipinu fyrirsát við mynni Indusfljótsins. Eftir heiftúðlega orrustu urðu Austurlandabúarnir að gefast upp. Með dýrmætasta farm af gulli og gimsteinum, sem nokkur sjóræingi hefur nokkru sinni tekið herfangi, stýrði kafteinn Avery til Bahamaeyjanna, þar sem hann steig á land nokkru seinna. En hefnd Allahs varð grimmileg. Enginn vogaði sér að kaupa hina aJkunnu demanta. Hinn mikli sjóræn- ingi varð hundeltur flóttamaður, sem að lokum varð aði betla sér brauð. Hann dó sem beiningamaður í enskum hafnarbæ. •¥ -¥■ •¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ -K-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K'K-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K'K-K-K-lc-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K' arinn diplómatiskur, „ég var átta árum yngri þá...“ og dirfsku. Seidi hann a.m. k. 32 af þeim 47 myndum sem hann sýndi. BRANDARI VIKUNNAR Ráðherrafrúin kom inn á ljósmyndastofu og lét taka af sér mynd, sem frúin varð síður en svo ánægð með. ,Ég botna ekkert í þessú, sagði hún. „Þér tókuð miklu betri mynd af mér síðast þegar ég lét yður ljósmynda mig.“ „Frú,“ svaraði ljósmynd- MÁLVERK Tvær málverkasýningar hafa verið haldnar að tmd- anförnu; aðra hinn ktmni listamaður Jón Engilberts, en hina kaupsýslumaðurinn Kristján Friðriksson. Kristján kom mjög á ó- vart með ágætar myndir, þótt ekki hafi hann farið í ,,skóla“ til Parísar enda seldi hann 12 málverk af af þeim 29, sem á sýning- unni voru. Sýning Engilberts var stórglæsileg, miklu betri en sú síðasta, sem hann hélt, og einkenndist af litagleði Hversu lengi ætla reyk- vískar húsmæður að láta bjóða sér það, að þeim sé selt ólseigt kjöt af gömlum mjóllcurkúm fyrir allt að 300 kr. kg. sem 1. flokks nautakjöt?

x

Ný vikutíðindi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ný vikutíðindi
https://timarit.is/publication/881

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.