Ný vikutíðindi - 31.05.1968, Qupperneq 5
N Y VIKUTIÐINDI
a
Sjónvarpsdagskráin
Dagskrárliðirnir um Hvíta-
sunnuna birtust í síð-
asta blaði.
Þriðjudagur 4. júní.
8.00 Fréttir.
8.30Erlend málefrii.
8.50 Denni dæmalausi.
9.15 Kísilgúrvinnsla á ís-
landi. Baldur Líndal,
verkfræðingur, skýrir
frá.
9.45 Glímukeppni sjónvarps-
ins (2. hluti). Vestfirð-
ingaf jórðungur og Aust
firðingafjórðungur
keppa.
10.15 íþróttir.
Miðvikudagur 5. júní
8.00 Fréttir.
8.30 Davíð Copperfield.
8.55 Ungverskir þjóðdansar.
9.20 Á norðurslóðum. Ferða
lag til Alaska og eyjar
innar Litlu Díómedu í
Beringssundi.
9.50 Þjónninn. Brezk kvik-
mynd. Dick Bogarde,
Sara Miles o.fl. leika.
Myndin var áður sýnd
11. maí.
Föstudagur 7. júní.
8.00 Fréttir.
8.35 Fjallaslóðir. Skyggnzt
um á ýmsum gömlum
slóðum Fjalla-Eyvindar
og Höllu í óbyggðum.
Myndin er gerð af Ós-
valdi Knudsen.
9.05 Kærasta í hverri höfn.
Ballett. Nemendur úr
Listdansskóla Þjóðleik-
hússins dansa.
9.15 Dýrlingurinn.
10.05 Hljómleikar unga
fólksins.
Laugardagur 8. júm.
8.00 Fréttir.
8.25 Lúðrasveitin Svanur
leikur.
8.40 Pabbi.
9.05 Höggmyndir í Flórens.
9.30 Ríkisleyndarmálið.
Bandarísk kvikmyynd.
Susan Hayworth og
Kirk Douglas leika.
■ UtgerSarmenn
Framhald af bls. 1
sem áður veðsett bönkunum
allt fiskimagnið, eins og það
hefði verið fullgreitt.
Ef Landssamband útvegs-
manna hefði verið sá for-
svari útgerðarinnar sem sam
tök þessi eiga að vera, þá
hefðu samtökin verndað út-
gerðina fyrir þeirri fjárhags-
ágengni og áhættu, sem
þessu fyrirkomulagi fylgir.
Útgerðarmennirnir, nema
þá ef til vill allra aflahæstu
bátarnir, þurfa á öllu sínu að
halda jafnóðum. Þykir gott,
þegar það hrekkur til. En
þetta bakar þeim fjár-
hagsleg óþægingi, því þeir
þurfa að standa undir hærri
lánum, sem þeir verða að
borga vexti af, en munu ekki
fá vexti af hinu ógreidda af-
urðaandvirði. Svo er loks á-
hættan um, að fullar efndir
fáist um lokaskil fiskvinnslu-
fjnrirtækjanna.
Þótt gjaldeyrisbankarnir
hafi fastar og strangar regl-
ur um gjaldeyrisskil útflytj-
enda, þá eru dæmin nærtæk
t.d. með Friðrik Jörgensen,
hversu allt fór úr böndunum,
og endurtók sig með fárra
ára millibili, þannig að fisk-
eigendur urðu fyrir tugmillj-
óna tjóni. I ljós kom, að Frið-
rik hafði tekist að flytja út
á eigin nafni nokkra f arma er
virðast bókstaflega hafa far-
ið framhjá gjaldeyrisbönkun
um og öryggiskerfi þeirra.
Svo þegar upp var staðið,
þrátt fyrir allar reglurnar og
greiðslukerfin, þá sátu af-
urðaeigendurnir uppi með töp
in og bankarnir þóttust
hvergi vera ífundnir, hvað á-
byrgðir snerti.
Vitanlega ætti, ef nokkurt
vit eða öryggi væri í þessum
bankareglum og kerfum, að
ganga þannig frá, að þegar
fiskafurðir, eins og aðrar
eignir skipta um eigendur,
þá taki hinir nýju eigendur á
sig veðböndin á afurðunum,
en þeir, sem selja, verði los-
aðir við sínar skuldbinding-
ar. Fyrr verður þetta ekki í
því lagi sem viðunandi er.
- Rangt blóð-
sýnisiorn
Framhald af bls. 1.
Nú virðist það liggja fyrir,
að annar maður hafi verið
dæmdur samkvæmt áfengis
menguðu blóðsýnishorni úr
manni þeim, sem hlaut frá-
vísun máls síns, svo sem að
framan greinir, og þá fengið
of vægan dóm, hafi hið áfeng
ismengaða blóðsýnishorn, er
lá fyrir í málinu, sem Hæsti-
réttur vísaði frá dómi, verið
úr honum, en mergurinn
málsins virðist þá sá, að hin
réttarfarslega meðferð mál-
anna hafi verið slík, að ekki
hafi verið hægt samkvæmt
því að kveða upp sektar-
dóma.
Það er að vísu ekkert eins-
dæmi, að Hæstiréttur breyti
imdirréttardómum, og til
þess er Hæstiréttur að leið-
rétta imdirréttardóma og
mistök þeirra. En ýmsum
verður á að spyrja: eru dóm-
arar og þeir, sem um dóms-
mál f jalla, algerlega ábyrgð-
arlausir gerða sinna, og
hvers vegna er ekki komið
fram ábyrgð á hendur þeim,
eins og öðrum mönnum, sem
misstíga sig, viljandi eða ó-
viljandi? Og að því er Vest-
mannaeyjum viðkemur er
hér um sérstakt vandamál að
ræða, sem lítillega skal vikið
að.
Fyrir nokkrum árum voru
nokkrir fiskibátar teknir
vegna meintra brota á fiski-
veiðalöggjöfinni í nánd við
Vestmannaeyjar og færðir
til hafnar og skipstjórar bát-
anna ákærðir. Dómari sá,
sem með málið fór í Vest-
mannaeyjum, sló því föstu,
að skipstjórarnir á hinum
teknu bátum væru allir sekir
og hagaði sér með þeim ó-
venjulega hætti, að hann
samdi réttarhöld, þar sem
hann bókaði hina ákærðu
mætta, án þess þeir væru
mættir í réttinum. Sumir
þeirra voru á þeim tíma, sem
réttarhöldin voru bókuð að
hafa farið fram, á síldveiðum
úti fyrir Norðurlandi og víðs-
fjarri réttarhöldunmn. En
dómarinn dæmdi þá alla og
fékk venzlafólk sitt og aðra
fleiri til að undirrita bækur
sínar sem réttarvottar.
Hæstiréttur felldi þessa
landhelgissektardóma að vísu
úr gildi, en ekki mun undir-
réttardómarinn hafa hlotið
vítur eða önnur viðurlög fyr
ir sín verk og athafnir. Og
svo er það sagan um timbur-
okrarann, sem fyrndi mál
sitt dómtekið, og fékk svo
um líkt leyti Fálkakrossinn.
Nú er það haft að gaman-
málum í Vestmannaeyjum, að
einn af dómurum staðarins
hafi sjálfur verið tekinn ölv-
aður við akstur, en hann sé
sjálfur búinn að reikna það
út, að áfengismagnið í blóði
hans hafi verið alltof lítið,
þannig að valdstjórnin sé nán
ast skaðabótaskyld gagn-
vart honum vegna ótíma-
bærra afskipta. Dettur mönn-
um í hug að lítill reki verði
að því máli gerður.
En svo eru aðrir, sem
spyrja í fullri alvöru, hvort
ekki sé tími til þess kominn,
að dómsmálastjómin, og þá
ekki sízt sjálfur forsætisráð-
herrann, dr. jur. Bjarni
Benediktsson, geri ráðstafan-
ir til þess að aflagt verði að
láta dauðadrukkna óreglu-
menn, sem ekki eru dómhæf-
ir eða ættu ekki að hafa dóm-
araréttindi, halda áfram að
annast dómarastörf og lög-
gæzlu í landinu. — y.
- Ferða-
tékkar
Framhald af bls. 1.
Útvegsbankinn selur slíka
ferðatékka, frá viðurkennd-
ustu erlendum bönkum,
brezkum, amerískum og
skandinavískum.
Allir vita, að óráðlegt er að
bera á sér peninga að nokkru
ráði til að greiða ferðakostn-
að sinn og útgjöld á ferða-
lögum.
En hér eru því miður rót-
gróin vandkvæði á að selja
venjulegar tékkaávísanir, þó
að menn eigi vel fyrir þeim í
banka sínum. Þrátt fyrir
margra ára baráttu bank-
anna fyrir því að gera al-
mennar tékkaávísanir áreið-
anlegan gjaldmiðil, hefir það
ekki tekist sem skyldi enn. Á
ferðalögum úti um land fá
menn yfirleitt ekki keyptar
almennar tékkaávísanir fyr-
ir nauðsynjum sínum. Eiga
þeir þá að bera á sér þús-
undir króna 1 peningum, ef
þeir vilja ferðast um sitt eig-
ið land? Það er óráðlegt og
jafnvel hættulegt.
Útvegsbankinn vill nú gera
sitt til þess að leysa þetta
vandamál fyrir innlenda
jafnt sem erlenda ferðamenn
sem vilja ferðast um ísland.
Hann hefir látið gera ís-
lenzka ferðatékka.
Þeir eru seldir í bankanum
gegn staðgreiðslu við mót-
töku. Ekki þarf að óttast, að
þeir séu innistæðulausir og
einskis verðir pappírar.
Frágangur þeirra er þann-
ig — eftir beztu erlendum
fyrirmyndum — að nær því
útilokað er að falsa þá. Hver
maður skrifar nafn sitt eigin
hendi á ferðatékkann, að
bankastarfsmanni áhorfandi
þegar hann tekur við honum
í bankanum — gegn stað-
greiðslu, eins og áður segir.
Hann skrifar í annað sinn
vist viðtakanda, þegar hann
framselur hann. Viðtakandi
gengur úr skugga um, að bar
sé um sömu undirskrift að
ræða. Ferðatékkarnir eru síð-
an innleystir viðstöðulaust í
Útvegsbankanum og útibúum
hans um land allt.
Ef ferðatékkahefti glatast
sannanlega, gilda sérstakar
reglur — einnig eftir erlend-
um venjum og fyrirmyndum
— um það, hvemig sá ó-
heppni eða gálausi maður
verður gerður skaðlaus í slík-
um vandræðum.
Ferðatékkar Útvegsbank-
ans eru öruggur gjaldmiðill,
hvar sem er á landinu. Ferða
skrifstofum, flug- og skipa-
félögmn, hótelum, veitinga-
stöðum, bönkum og sparsjóð-
um og hverjum öðrum, á að
vera fullkomlega óhætt að
veita þeim viðtöku fyrir
veitta þjónustu, eða gegn
greiðslu í peningum.
Þeir geta auðveldað mönn-
um að ferðast um sitt eigið
land.
Ferðatékkar Útvegsbank-
ans verða til sölu í Útvegs-
banka Islands, aðalbankan-
um og öllum útibúum hans.
Notið yður þessa nýjung í
íslenzkri bankastarfsemi.
— r.
SjónvaiDsIoftnet
Tek að mér uppsetningu, viðgerðir og brejrtingar
á sjónvarps- og útvarpsloftnetum. Útvega allt
efni, ef óskað er. Sanngjamt verð og fljótt af
hendi lejrst-
Upplýsingar í síma 1-6-5-4-1 frá M. 9—6 og
1-4-8-9-7 eftir kl. 6.
Gí tarkenn sla
Kenni á gítar, mandólín, banjó, balalaika
og gítarbassa.
Gunnar H. Jónsson
Framnesvegi 54 — Sími 2 3 8 2 2