Ný vikutíðindi


Ný vikutíðindi - 09.05.1969, Blaðsíða 7

Ný vikutíðindi - 09.05.1969, Blaðsíða 7
NÝ VIKUTÍÐINDI 7 Krossgátan LÁRÉTT: 50. skemma 23. yfirforingja 1. svíni 52. stafurinn 29. sama og 30. 7. alfræði 53. snáðar lárétt 13. þreyttar 55. fóthvatur 30. stafirnir 14. voði 56. nag 31. slæmt 16. sífellt 57. grjótið 32. sama og 59. 17. gróður 59. vesöl lárétt 18. ógagnsæ 60. þjóta 33. egnt 19 trylltar 62. lit 34. ósoðin 21. upphrópun 63. hljóðfæri 37. nötrar 23. vatnafiskur 39. sænum 24. tveir óskildir LÓÐRÉTT: 42. minnkaðar 25. at 1. guðlegur 43. ölstofa 26. einkennis- 2. hvíldist 44. skemmd stafir 3. kvikar 46. braka 27. söngva 4. þreytir 47. gangur 28. næði 5. bogi 48. nær miðbik- 30. ármynni 6. hljóðstafir bikinu 32. flýti . 7. á reikningum 49. meina 34. hvað 8. einkennis- 51. gróðursettar 35. rói stafir 54. gróf nál 36. lokaðar 9. angan 58. einkennis- 37. frumefni 10. mýrargras stafir 38. veiðitæki 11. húsdýra 59. sýl 40. sigraður 12. síðasta 60. þyngdar- 41. háspil 15. glenta eining 43. ílát 20. skemmdar- 61. danskt dag- 45. er blettur blað 47. herdeild 21. fótabúnað - 49. kaupstaður 22. ending fóstrað dóttur sína í dyggð og sakleysi, var næstum búin að eyðileggja hjónabandið — án þess að ætla sér það. „Þú verður að einbeita þér að því að þóknast Ranieri,“ sagði hún við dótturina. „Eina takmark þitt og hugsun a að vera að gera honum til hæfis og láta hann elska þig.“ Þegar Ranieri var orðinn einn með brúður sinni í hjónaherberginu, veitti hann því eftirtekt, að hún hvorki roðnaði né hlédró sig frá honum. Þvert á móti kastaði hún sér í faðm hans og svaraði kossum hans af þeirri ástríðu er gerði hann forviða. Og þegar hann fór í Venusarleikinn, kom hún óðara til móts við hann feimnislaust, og meira að segja lagði hún sig fram af slíkri áfergju og unaði að ánægja hans brejdtist í súrasta gall, og ást hans í vonbrigði. Samt gérði hann skvldu sína sem eiginmaður. En um morguninn reis hann úr rekkju, leit Lrúna- þungur á Teresu og sagði bjrrstur: „Þú ert ekki eins og ég hélt þú værir, og þetta er í siðasta skiptið, sem þú sængar með mér.“ Litlu seinna fór ungi brúðguminn með brúður sína til móður hennar og skildi hana eftir hjá henni með þeim ummælum að hann myndi vitja hennar seinna. Þegar hann kom ekki á umtöluðum tima, álykt- aði móðirin að einhver tortryggni hefði gripið hann. Hún gekk á dótturina, og stúlkan hafði svarið á reið- um höndum. „Hann elskar mig ekki lengur, mamma,“ kvein- aði hún. „Hann heldur að ég hafi verið með öðrum karlmönnum áður en ég giftist honum.“ „Hefurðu gert eins og ég sagði þér?“ spurði móð- irin. „Hefurðu reynt að þóknast honum? Hefurðu látið hann finna, að þér geðjist að atlotum hans?“ „Ég hef farið eftir ráðum þínum, alveg eins og eg hef getað. En það er einmitt það, sem ég held að hann setji fyrir sig. Ef til vill var það rangt af mér.“ „Maðurinn þinn er vafalaust erkifífl, en mér skilst, að þú elskir hann og þess vegna skal ég kalla hann hingað og tala yfir hausamótunum á honum.“ Ranieri kom — hikandi og rjóður í framan — og Madonna Riccarda fór i göngutúr með honum í hall- argarðinum, þar sem enginn truflaði þau. „Svo virðist sem þú sért ekki ánægður með dótt- ur mína,“ sagði hún. „Er hún ekki indæl og falleg stúlka?“ „Hún er mjög falleg, Madonna.“ „Er hún ekki lika girnileg, eins og stúlkur eiga að vera?“ „Hún er girnileg, Madonna.“ „Er hún ekki ástúðleg og hjartahlý?“ „Það er hún, Madonna. Hún er alltof ástúðleg og hjartahlý. Og það skapar mér þá hugsun, að hún hafi ekki verið jómfrú, þegar ég gekk að eiga hana.“ Madonna Riccarda leit undrandi á hann. „Þú heldur þá að dóttir mín hafi haft kennara i ástarlifinu, Raineri. En ef þú, ungur og friskur mað- ur, nauzt ánægju í ástaratlotum hennar, hvernig get- ur þér þá fundizt athugavert að hún, ung og frísk kona, skyldi hafa yndi af atlotum þínum?“ Ranieri tuldraði eitthvað um of mikla áfergju, og hin aðalborna dama þagði, því að hún ígrundaði hvernig hún ætti að sannfæra liann um sakleysi dótt- urinnar. f sama mund kom þjónustustúlka hlaupandi með svuntuna fulla af gulum, nýútunguðum andar- ungum. „Sjáið þér hvað þeir eru litlir og saklausir, Mad- onna!“ kallaði stúlkan. Og nú hafði Madonna Ricciarda svarið á reið- um höndum. Áður en stúlkan eða Ranieri grunaði hvað hún hefði í hyggju, tók hún svuntuna með and- arungunum af þernunni og henti þeim út í tjörn, sem var við fætur þeirra. „Ó, Þeir drukkna áreiðanlega,“ sagði stúlkan hræðslulega, skelfd yfir grimmd húsmóður sinnar. „Þeir voru rétt í þessu að koma i heiminn.“ „Lítið á þá,“ sagði frúin. „Þeir drukkna ekki. Þeir synda eins vel og fullorðnar endur. Strax og þeir voru i egginu hafa þeir haft bezta kennara sem um getur verið að ræða, og þeir kunna sitt fag.“ „Beztu kennara?“ át Ranieri eftir henni. „Hvað eigið þér við?“ „Eg á við, að kennari sá, sem hefur skólað ást þessara andarunga á vatninu áður en þeir sáu dags- ins ljós, hefur einnig skólað núttúrlega ást konu þinnar til mannsins, sem hún hefur valið og gert hana hæfa til að njóta þeirra atlota, sem þið eigið saman.“ „Segið ekki meira!“ sagði Ranieri. „Ég skal strax sækja konuna mína og fara með hana heim.“ Þegar ungu hjónin riðu i burtu yfir blómstrandi akrana, brosti Madonna Ricciarda með sjálfri sér og sagði:: „Eins og andarungar á vatninu.“ Gítarkennsla Kenni á gítar, mandólín, banjó, balalaika og gítarbassa. Gunnar H. Jónsson Framnesvegi 54 — Sími 23822 LAUSN á síðustu krossgátu LÁRÉTT: farsótt, 5. rótföst, 10. ær, 11. sæ, 12. leistar, 14. lafandi, 15. iðulega, 17. Kain, 20. knött, örnin, 27. trúa, 29. ýfði, 30. riklingur, 32. gana, 33. snýr, 36. lausn, 38. odd, 40. dreif, 42. valt, 43. spara, 45. trygg, 46. runnann, 48. lampana, 49. gnöldur, 50. NN, 51. af, 52. tengdar, 53. annarar. LÓÐRÉTT: 1. falskur, 2. reiðist, 3. óæti, 4. traðk, 6. ósagt, 7. tæfa, 8. örnefni, 9. teinana, 13. runa, 14. leti, 16. löggildan, 18. af, 19. narrast, 21. arðrýrt, 22. L. I., 24. rú- inn, 26. öfund, 28. aka, 29. ýgs, 31. ylvolgt, 32. gullmen, 34. reyndur, 35. afgerir, 37. aa, 38. opna, 39. draga, 41. l. G., 43. sunna, 44. annan, 46. rand, 47. nöfn. „Þolinmæðin þrautir vinnur allar. Ekkert í heiminum er svo erfitt, að það sé ekki frarrv kvæmanlegt, ef vilji og þrauÞ seigja eru fyrir hendi. „Jæja, hefurðu nokkurntíma reynt að troða tannkremi aftur inn í kremtúbuna?“ Læknirinn: — Þér eruð alveg heilbrigðar, frú mín. Þér þurf- ið bara að hvíla yður. Konan: — Læknir! Þér hafið ekki einu sinni litið á tunguna í mér. Sko. Læknirinn: — Hm, já. Hún þarf að hvíla sig líka. ☆ — Skrifstofustúlkan mín er alltaf í bölvuðu rifrildi síðustu dagana. — Er það? — Já, hún veit ekki af því að kjóllinn hennar er rifinn að aftan. ☆ Halli litli kom þjótandi inn til pabba síns og sýndi honum nýjan vasahníf, sem hann sagð- ist hafa fundið úti á götu. „Ertu nú viss um, að honum hafi verið týnt?“ spurði faðir- inn. „Náttúrlega var hann týnd- ur“ svaraði drengurinn. ,,Ég sá mann vera að leita að honum." Erfið kona Óli gamli var spurður, hvað það tæki hann langan tíma að fá konuna sína á sama mál og hann. „Það verða fjörutíu og fimm ár um næstu jól,“ svaraði Óli. ☆ Það var vissara Siggi: „Hún er voða hrifin af mér. Ætti ég að kynnast henni nánar?“ Kiddi: „Nei, láttu hana held- ur halda áfram að vera hrifna af þér.“ * Latir vinnumenn Húsbóndinn: „Hvað varstu að gera þarna útfrá?“ Gvendur: „Ekkert.“ Húsbóndinn: „En hvað varst þú að gera?“ Jónsi: „Hjálpa honum.“

x

Ný vikutíðindi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ný vikutíðindi
https://timarit.is/publication/881

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.