Ný vikutíðindi


Ný vikutíðindi - 13.03.1970, Side 5

Ný vikutíðindi - 13.03.1970, Side 5
NY VIKUTlÐINDt 5 tíefilaiJíkui'AjcHiJarpið Hér eru nokkrir Iiðir úr dag- skrá fyrri hluta þessarar viku, sem ætla mætti að væru fastir liði og gætu því orðið til við- miðunar næstu viku, en því miður fáum við ekki dagskrána fyrr en svo seint, að síðustu dagar vikunnar eru einir full- gildir. Á sunnudögum er byrjað að sjónvarpa kl. 2, „The Answer“, „This is the Life“ og „Pro Foot- bolI“, kl. 3:30 er gólfkeppni, kl. 4:30 kvikmynd, kl. 5:40 Waterfront, kl. 7:30 Fractured Flickers, kl. 8:00 Ed Sullivan, kl. 9:00 Green Acres, kl. 9:30 er Felony Squad, kl. 10:00 The Big Valley og kvikmynd kl. 11:15. Mánudagur byrjai. .neð Danny Kaye kl. 4:00, kvikmynd kl. 5:00 „Crossroads kl. 6:30, Bewitched“ er kl. 7:30, „Wild Wild West“ kl. 8:00, The Goldiggers kl. 9:00, Burkes Law kl. 10:00 og kvik- mynd kl. 11:15. Síðdegismynd sunnudags endursýnd. Á þriðjudögum er Bob Cummings kl. 4:00, Coronado 9 kl. 4:30, kvikmynd kl. 5:00, Behind Closed Doors kl. 6:30, Rawhide kl. 7:30, The 21st Century kl. 8:30, sjó kl. 9:00. „The UntouchabIes“ kl. 10:00 og hnefaleikar kl. 11:15. Á miðvikudögum er „Gentle Ben“ kl. 3:55, Fljúg- andi fiskimenn kl. 5:30 Hawaii Calls kl. 9:05, The King Family kl. 6:30, Daniel Boone kl. 7:30, Julia kl. 8:30, „The High Chaparral“ kl. 9:00, Jimmy Rodgers kl. 10:00 og kvikmynd kl. 11:15. Fréttir eru kl. 3:55, 7:00 og 11:00. Svo er hér dagskráin seinni hluta vikunnar samkvæmt upp- lýsingum frá Varnarliðinu THURSDAY, MARCH 12 4.00 Dobie Gillis 4.30 Shari Lewis 5.00 Theater 8 — 8.00 Thursday Theater — CARMENJONES — Harry Belafonte, Dor- othy Dandridge. 6.55 Moments of Reflection. 7.30 Wrestling from the Olympic 8.00 Thursday Theater — ESCAPE IN THE SUN Repeat of Monday’s Northern Lights Play- house. 9:00 Hawaii Five-O 10.00 The Defenders ’1 18 The Tonight Show FRIDAY, MARCH 13 4.00 Voyage to the Bottom of the Sea 5.00 All Star Theater 5.30 Dupont Cavalcade 6:00 Wanted Dead or Alive 6.30 Impression ’70 6.55 Moments of Reflection 7.30 It’s A Wonderful World 8.00 Project 20: Mirror of America. 9.00 The Mod Squad 10.00. The Outcasts 11.18 The Northern Lights Playhouse — LOST — Repeat of Sun- day’s Afternoon Movie SATURDAY, March 14 10:30 Captain Kangaroo 11.20 The Flintstones — 11.40 Cartoon Carnival — 1.00 Sergeant Preston. 1.30 My Favorite Martian 2.00 Animal Secrets 2.30 The Beverly Hillbillies 3.00 Game of the Week 5.00 Meet the Press 5.30 The Flying Nun OLD CARS FOR NEW 6-nn On Campus — BENNET CERF 6.30 News Special 7.15 The Christophers — 7.30 Accent 8.00 Here Come the Brides 9.00 Gunsmoke — 10.00 Perry Mason 11.18 CARMEN JONES — Repeat of Thursdays Theater 8. yfir 3/4 af atkvæðamagni fé- lagsins, og aðeins eigin hags- muna sjónarmið í huga ... Þá er það og vitað að fyrir árið 1965 greiddu þeir svipaða pró- sentutölu og árið áður í hækk- uðu fiskverði. Með allar slík- ar greiðslur, hvað margar sem verið hafa, hafa þeir logið sig úr og í eftir aðstæðum, og það þó fullar sannanir liggi fyrir. Þeir hafa farið með þessar greiðslur eins og um manns- morð af þeirra völdum væri að ræða. Hafa þeir jafnvel gerzt svo djarfir, að falsa bókhald... Þetta verður allt mjög skilj- anlegt, því þeir vita að millj- ónir þær, sem þeir hafa þann- ig ráðstafað, eru ekki ein — heldur tvístolnar. í fyrsta lagi er þeim stolið af öðrum hluthöfum en þeim sjálfum, en þeir gera hlut sinn meiri sem því nemur þar sem fé þetta er ekkert annað en arður af rekstri félagsins. f öðru lagi er þeim hrein- lega stolið af sjómönnum þeim, sem á þeim bátum eru eða hafa verið, sem skipta við ís- félag Vestmannaeyja . . . Formaður útvegsbændasam- takanna hér, Björn Guðmunds son, sem er líka stjórnarmað- ur í stjórn ísfélags Vestmanna eyja, hefur oft bæði í ræðu og riti talað fjálega um það ... þetta er ósköp fallega sagt, ef til vill hafa einhverjir bætzt í sjómannahópinn vegna þess- ara fallegu orða Björns Guð- mundssonar . . . Enn skal það undirstrikað, að þeir vilja hvorki viðurkenna þetta fjármagn sem arð af rekstri fyrirtækisins eða sem hækkað fiskverð, af því að hvort sem þeir viðurkenndu yrðu þeir að sjá af talsverðum hluta þess úr sínum vösum til annarra, svo skefjalaust er takmark þeirra að ná í þetta fé, að þeir víla ekki fyrir sér að fremja hvert lögbrotið af öðru til að ná þessu marki. Er ekki vægt að orði kom- ist að líkja slíkum mönnum Hvernig getur ísfélag Vest- við úlfa í sauðagærum .. ? mannaeyja verið svo sem ár- um skiptir undanþegið hinni almennu reglu um mat á verð- gildi eignarinnar og hækkun á nafnverði hlutabréfa í hlut- falli við verðmæt þerra . . . Fátt eitt er tiltínt af kjarna málflutnings Jó- hanns Pálssonar, og þarna er ekki seilst um lága veggi, en grein Jóhanns beinist fyrst og fremst að eftirtöld um mönnum, Birni Guð- mundssyni, formanni ísfé- lags Vestmannaeyja, rit- stjóra og ábyrgðarmanns Fylkis, flokkshhiðs Sjálf- stæðisflokksins, formanni fulltrúaráðs sjálfstæðisfé- laganna í Vestmannaeyj- um, bæjarfulltrúa flokksins og fulltrúa flokksins í bæj- arráði og lielztu nefndum bæjarstjórnar, formanns Útvegsbændafélags Vest- mannaeyja og stjórnar- manns Landssambands ísl. útvegsmann, útsölumanns Morgunblaðsins í Vest- mannaeyjum og fasta við- skiptamanns skattalögregl- unnar. Þá beinast ummæli Jóhanns Pálssonar að Mar- teini Tómassyni, stjórnar- manns lijá Isfélaginu, for- manns Bátaábirgðafélags Vestmannaeyja, formanns Lifrasamlags Vestmanna- eyja, varabæjarfulltrúa Sjálfstæðisfloklcsins, um- boðsmanns Skeljungs í Vestm.eyjum og einn af burðarásum Sjálfstæðis- flokksins. Ennfremur bein- ast ummæli Jóhanns Páls- sonar gegn Einari Sigurjóns syni stjórnamanni Hrað- frystiliúsanna, formanna þurrkubússins Stakkur, stjórnarmanna hjá Lifrar- samlagi Vestm.eyja og i fleirum efnum og stjórnum. Og loks beinast geirar Jó- lianns Pálssonar gegn endur skoðanda Isfélags Vestm.- eyja, Sigurði Stefánssyni, lögg. endurskoðanda i Rvík, trúnaðaraðila helztu banka og fjármálastofnana lands- ins, svo fátt eitt sé nefnt. En þá kann ýmsum að verða á að spyrja, liver við- brögð framangreindra manna og annarra þeirra, er Jóhann Pálsson vegur að, liafi orðið, að þvi er fljót- svarað. í flokksráði Sjálfstæðis- flokksins, Fylkir, sem kom út 5. febrúar s. 1. — ritstjóri að framan margnefndur Björn Guðmundsson og á- byrgðarmaður — birtist á forsíðu blaðsins athuga- semd i ramma, til að vekja frekari eftirtekt lesendanna, þar segir ritstjórinn svo: „Eins og kunnugt er rit- aði Jóliann Pálsson grein í síðasta blaði Fylkis, er bar yfirskriftina „Á hnefarétet- urinn að gilda?“ Mjög leið- inleg mistök áttu sér því miður stað, línubrengl, rugl ingur á mannanöfnum o. fl. Sérstaklega á þetta við um nokkurn hluta upplags- ins, en hinn hhitann tókst að leiðrétta að mestu, þó alls ekki nógu vel, þvi enn eru margar leiðinda vill- ur i greininni. Blaðið harmar þessi mis- tök, sem átt hafa sér stað og biður Jóhann mikillar velvirðingar á þeim.“ V- Veður- Framb. af bls. 1. Sjálfstæðisflokkurinn i Eyjum, sem minnililuta- flokkur, befur undanfarið sótf mjög á hina vinstri samstarfsflokka, en upp- Ijóstranir skattsvikanna hafa reynzt flokknum skæð ur Ijár í þúfu, og svo bæt- ast árásir Jóhanns Pálsson- ar á ofan, sem líklegar eru til þess að viðbótarathugan- ir verði framkvæmdar í skattamálunum, sem gætu liaft ófyrirsjáanlegar afleið- ingar, þannig, að segja má um stjórnmálaástandið i Eyjum og undirbúning bæj- arstjórnarkosninganna þar, að veður séu öll mjög vá- lynd.. ☆ SVÖR við dægradvöl BRIDGE Fyrstu slagirnir fara sem liér segir: Vestur Norður L: 7 L: 8 T: K T: 2 L: 9 L: 10 T: Á T: 3 L: G L: D L: K L: Á Austur Suður H: 6 L: 2 T: G L: 3 S: 6 L: 4 T: D L: 5 S: 7 L: 6 H: 7 S: 2 Nú eru öll tromp búin, og þar sem Norður bafði sjö fría tígla eftir, gat hann lagt; bann á það sem eftir er. Alslemm! SKÁK Hvíta drottningin flytzt á e8, þá er sama hvað hinn gerir; það er mát í næsta leik. STAFAGREIÐA S ó LM U N D U R K E N I A A I N Ð G F F D R N T U Ó I A I R R K R REIGNISGÁTA 30 ára. SPURNIR 1. Upp, uþp mín sál og allt mitt geð. 2. 156. " 3. Nei. Rétt er að segja: ég lilakka til. 4. Graham Bell. 5. Haag. GÁTUVÍSA Hatturinn. * Leynimakk Framhald af bls. 1. misferli sitt — og var svo af- hent önnur lykilaðstaða með auknum möguleikum til djarfra aðgerða. I nýju stöðunni end- urtók sama sagan sig í enn- þá stærri stíl, og horfðu leynifélagsbræður mannsins á þetta með velþóknun að því er virðist. Að lokum var svo komið að allir fjármun- ir viðkomandi fyrirtækis voru uppetnir og ekkert framundan, nema fullkom- ið fjárhagshrun. Þegar svo var komið, gripu menn utan leynifé- lagsins til björgunarráða og björguðu því, sem bjargað varð, afstýrðu frekara fjár- hagsafhroði heldur en orð- ið var og gerðu upp við hinn brotlega bróður á tölulegum grundvelli, án ihlutunar af opinberri bálfu. Þá brá svo kynlega við, að mennirnir í leynifélag- inu, sem þó höfðu enga kæru i höndunum, hröktu liinn fyrrverandi leynifél- agsbróður sinn út fyrir vé- | bönd sín og kváðust ei þekkja slíkan mann. En sagan endurtekur sig. Annar af leynireglubræðr- unum varð uppvís að stór- felldu misferli og lá að auki undir brigzlum um þungar sakir, þjófnað og falsanir. Nú spyr hinn burtrekni leynifélagi, hver verða fé- lagsleg örlög hins brotlega bróður, sem opinberlega er sannur að sökum. Verður honum vísað út fyrir vé- bönd leynifélagsins og lát- inn hverfa í umkomuleysi og gleymsku, eða verður hann látinn halda aðstöðu sinni, félagsréttindum og flokkslegri forystu á vegum leynifélagsins? Nokkur eftirvænting er á meðal manna, hversu þessu lyktar. (Aðsent).

x

Ný vikutíðindi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný vikutíðindi
https://timarit.is/publication/881

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.