Ný vikutíðindi


Ný vikutíðindi - 13.03.1970, Blaðsíða 7

Ný vikutíðindi - 13.03.1970, Blaðsíða 7
NÝ VIKUTÍÐINDI 7 Kvöldið var kæfandi heitt, og til þess að anda að mér fersku lofti, gekk ég út á Besik-Tasbrúnna. Það var miðnætti og ég sá Achmed Bey standa einan við hrúar- sporðinn. Ég hafði hití hann einu sinni áður í opin- berum erindum, svo að ég gaf mig á tal við liann. Allt i einu komu tíu uxa- kerrur að brúarsporðinum. Þær voru hlaðnar þungum leðursekkjum, og Achmed Bey lét þá sökkva i sjóinn hvern af öðrum, og ég taldi þá — þeir voru yfir hundr- að. Þetta var góð dagsupp- skera. Ég spurði Achrned Bey hvað væri í sekkjunum, og hann svaraði með djöful- legu glotti: „Menn og konur, sem var ofaukið. En ég segi yður þetta einum, sendi- herra. Hefði einhver annar hvítur maður spurt, hefði ég sagt það vera brotajárn!” Þannig var lífið í Tyrk- landi Abduls Hamids í byrj- un þessarar aldar. Það var því ekki að undra þótt stoð- ir þessarar stjórnar tækju að ramba með komu hinnar nýju aldar. Óánægjuradd- irnar urðu smátt og smáll að örvæntingarfullu hrópi. Fjandskapur í garð Abdul Hamids og hinnar rotnu ógnarstjórnar tók á sig fast- ara form. Hinir ýmsu flokk- air, sem áttu allir eitt sam- eiginlegt, hatrið gegn soldáninum, urðu gróðrar- stía ungtyrkj ahreyfingarinn- ar. Það voru einkum ungir menn, liugsjónamenn með vestrænar skoðanir, en þeir kunnu einnig að notfæra sér baráttuaðferðir austur- landabúa, þegar þeirra tími kom. Hin frægu „augu og eyru soldánsins” urðu að litlu liði, því ungtyrkirnir njósnuðu um njósnarana, og afgreiddu þá f skyndi út úr veröldinni. Abdul Hamid gerðist nú gamall, aldurinn og ólifnað- urinn svipti hann andlegu og líkamlegu þreki. Kóngu- lóarvefurinn grotnaði í sundur. Þessi fundur i sjónum hjá Gullna Horninu í nóv- ember 1939 segir sina sögu. Hann segir frá sautján ung- um stúlkum, sem saumaðar voru inn í leðursekki og var drekkt, þrjátiu árum áður. —★— Síðasta óskin Fanginn fékk aðeins eina ósk áður en hann var hengdur. Hann kaus sér nýja vatns- melónu og aftökunni varð að fresta um 6 mánuði. Vísindi — Geturðu sagt mér hvers vegna jörðin er hnöttótt? — Af því þú hefur sagt mér það. — Nú, það er einhver sem hefur sagt mér það. ☆ DÆGRADVÖL ☆ BRIDGEÞRAUT: Hér er skemmtilegt og frægt spil, sem spilað var fyrir meira en einni öld. Spiluð voru trompvist, því þá var bridge ekki til, og lauf er tromp. Hertoginn af York spilaði Vestur og veðj aði mikilli fjárhæð um að hann myndi vinna. Spilin voru sem hér segir; E R R R K A I 0 T U R N I U N A K 0 D F I I s N F G N L M D Ð A R U REIKNISGÁTA Ég á tvo bræður; annar þeirra er hálfu yngri en ég, en aldur hins er þriðjung- ur af aldri minum. Til sam- ans vantar þá 20 ár upp á að vera jafngamlir systur minni, sem hafði lifað þriðj unð núverandi aldurs sins, þegar ég fæddist. Hve göm- ul er ég? GÁTUVÍSA Býr mér innan rifja ró, reiði, hryggð og kæti. Kurteisin og kári þó koma mér úr sæti. S: A K D H: Á K D G T: Á K L: K G 9 7 S H T L 10 98765432 Á D 10 8 S: G 10 9 8 7 6 H: 10 9 8 7 6 T: D G L: — S: 5 4 3 2 H: 5 4 3 2 T: — L: 6 5 4 32 Vestur þ. e. hertoginn, spilaði út lauf sjö. — Svo er að vita, hvað Suður og Norður fengu marga slagi. SKÁK Svart: kóngur á c5, hisk- up á b6, peð á a5, c3 og d6. Hvítt: Kóngur f8, drottn- ing e3, riddarar á d2 og d4 og biskup á f2. Hvítur mátar í öðrum leik. STAFAGREIÐA Notaðu bókstafina í stafa- greiðunni hérna til þess að mynda sex karlmannsnöfn, eitt í bakkanum (9 stafa) og síðan eitt í hverjum tindi með upphafsstafinn í hakk- anum. SPURNIR 1. Hvernig er fyrsta línan i passíusálmunum ? 2. Hver er útkoman, ef þú margfaldar 12 sinnum 13? 3. Segirðu mér hlakkar til, eða mig hlakkar til? 4. Hver fann upp talsim- ann? 5. Iivað heitir höfuðborg Hollands ? (Svör annars staðar í bl.) * “'Ur licim§priks§n iini LAUSALEIKSBÖRN Nú er j>að ekki lengur aðeins íslenzk tízka að eignast bani utan hjónabands, heldur færist sá siður óðum í vöxt með- al kvikmyndastjarna. Ungverska stjarnan Eva Bartok eign- aðist nýlega barn og neitaði að nafn- greina föðurinn. En hún hafði verið mikið með enskum lávarði, náfrænda Elizabeth drottningar, svo að blaða- menn lögðu saman tvo og tvo, einkum þar sem hann var einn af þeim fyrstu til þess að heimsækja hana eftir að barnið fæddist. — Þeir spurðu hana, hvei’s vegna hún hefði viljað eignast barn í lausaleik. „Ég Iiefði getað afstýrt því,“ svaraði Eva hreinskilnislega. „Læknamir ráð- lögðu mér fóstureyðingu, af því barns- fæðing yrði lífshættuleg fyrir mig. Og vinir mínir sögðu, að framtíð mín sem kvikmyndaleikkona yrði að engu, ef ég eignaðist barn utan lijónabands.“ En Eva Bartok tefldi á þessar tvær hættur og eignaðist fallega dóttur, án þess að það hefði slæm áhrif á vinsæld- ir hennar sem leikkonu. Enska filmstjarnan Vanessa Red- grave eignaðist fyrir nokkm barn með ítalska leikaranum Francisco Nero, en vildi ekki giftast honum. Hún hefur kannske verið undir áhrif- um frá ballettdansmærinni Isadora Duncan, en hún lék hana í ágætri kvik- mynd fyrir nokkru. Isadora var mikil listakona og bóhem, sem einnig eignað- ist lausaleiksbarn. — ★ — Það nýjasta í þessum siðferðismálum er, gð Mia Farrow, sem áður var gift Frank Sinatra, á von á barni með hin- um fertuga kompónista og stjórnanda Londonar-sinfóníunnar, André Previn, sem er kvæntiu’, en býr ekki með konu sinni — og hefur ekki i hyggju að kvongast Miu. Móðir hennar, kvikmyndaleikkonan Maureen O’Sullivan, tekur þessu með ró. „Ég veit, að Mia og André munu annast bamið af ást og umhyggju,“ sagði hún, þegar blaðamenn vildu heyra álit hennar á þessari „spillingu“. -★- HNlFSSTUNGA James Roosevelt, elzti sonur Roose- vélts, Bandaríkjaforseta, 61 árs gamall bankaforstjóri, búsettur í Sviss, hefur nú skilið við eiginkonu sína og kvænst 32 ára gamalli enskri kennslukonu. Hann hafði góða og gilda skilnaðar- ástæðu, þar sem fyrrverandi eiginkona hans rak hníf í bakið á honum í af- brýðisemiskasti. Sjálfsagt hefur hún haft ástæðu til að vera afbrýðisöm, eftir því að dæma hvað hann var fljótur að gifta sig að skilnaðinum loknum. TIL MINNIS úv dámóöunna Þegar efni hefur verið hreinsað með benzíni þarf að gæta þess, að það sé veí þurrt áður en það er press- að. Annars getur svo farið að kvikni í því. Festið spegli á vegginn gegnt glugganum svo að út- sýnið endurspeglist í hon- um. Óinnrammaðir vegg- speglar fegra og stækka herbergi og gera það bjart- ara. Við nefkvefi er gott að hella sítrónusafa í lófa sér og sjúga hann upp í gegn- um nefið. Endurtakið það þrisvar, fjórum sinnum. Hengið upp nokkrar myndir á vegginn meðfram stiganum i stað þess að hafa vegginn beran. Það er smekklegast að hafa þær all ar eins innrammaðar. Ef stórar myndir og smá- ar hanga á sama vegg eiga stærri myndirnar ekki að lianga neðar en smærri heldur eiga neðri brúnir þeirra að standast á. —•— Ef þú hefur ramma utan um spegilinn yfir snyrti- borðinu skaltu ekki hafa hann einfaldan og kuldaleg- an heldur skrautlegan, breiðan og iburðarmikinn. —•— Ef bæta þarf vatni i pott- inn eða á pönnuna, meðan verið er að matreiða kjötið, skal það alltaf gert með heitu vatni eða sjóðandi, en aldrei með köldu. Þegar þú viðrar sængur og svæfla skaltu varast að láta þau vera lengi i heitri sól. Hitinn þurrkar eðlilega fitu úr fiðrinu svo að það verður ekki eins endingar- gott. Ef þú átt erfitt með að þræða nál, skaltu nudda bandendanum með þurri sápu. Láttu ullarföt vera ofan í vatninu á meðan þú þværð þau. Þau þæfast á þvi að lyfta þeim oft úr vatninu.

x

Ný vikutíðindi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ný vikutíðindi
https://timarit.is/publication/881

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.