Ný vikutíðindi - 08.10.1971, Síða 7

Ný vikutíðindi - 08.10.1971, Síða 7
NY VIKUTIÐINDI 7 LÁRÉTT: 45. táldregur 14. farvegurinn 1. rausnarleg 48. eldstæði 16. kletts 7. uppþotum 49. hreinn 17. byrjendanna 12. taldi 50. endar 20. afurð 13. yrkir 52. vatnsfall 21. andaðist 15. þegar 54. suð 22. tvíhljóði 16. mannvænlegan 55. eins 23. hrúga 18. tímabil 56. arfborna 26. ekið 19. stúlka 59. skóli 27. fuglar 20. brodd 60. leiða 31. gjöf 22. utan 63. spilinu 32. drulla 24. fiskur 65. sparsemin 35. mongólsk 25. miðju 66. stillt 37. bjart 26. hópum LÓÐRÉTT: 38. rándýr 28. drykkurinn 41. stal 29. forsetning 1. eyðilegjpa 42. ráka 30. drykkur 2. lindi 43, ritast 31. eins 3. rándýr 46. fénaður 33. spil 4. topp 47. fótarhluti 34. frumefni 5. borðandi 51. gufu 35. illviðri 6. yggldur 53. ávallt 36. ríki 7. mynni 57. ætt 38. mælir 8. vélarhluta 58. hnus 39. skip 9. ílát 61. borða 40. glíma 10. samstæðir 62. skammst. 42. skammst. 11. fjáðar 63. nes 44. brynja 12. réttargerð 64. vafaorð stunu og féll í öngvit. Klukku- stundum saman var leitað að Noel, en án árangurs. En þeir bjartsýnustu vonuðu; að Noel hefði tekizt að synda til einnar af Fiji-eyjunum, sem var ekki langt undan. Þegar skipið lagðist við land- fsstar í San Francico, bárust dánarfregnir úr annarri átt: Pat Hull hafði sýkzt af heift- arlegri lungnabólgu og dáið. Nnia tók þessari fregn með daufum eyrum. Það var eins og andlit hennar hefði misst all- an lit og tilfinningu, eins og öll manneskjan væri slegin doða. Eftir það var hún ekki við karlmann kennd. HÚSIÐ númer 194 í Sjöunda Stræti var mjög hrörlegt, enda í því hverfi New Yorkborgar, sem bráðlega hlotnaðist nafnið „Eldhús vítis“. Læknirinn hrað- aði sér að banabeði konunnar, sem gekk undir nafninu Fanny Gobbons. Lækninum hnykkti við, er hann leit draslarabraginn á öllu þarna innan dyra. Fyrir brot- inn gluggann var hengt slitur af snjáðu gólfteppi. Rúm var ekki- ert, en konan lá á gólfinu á skítugri dýnu með þrjú lök sem ábreiðu. Þótt konan væri ekki nema fjörutíu og tveggja ára gömul, leit hún út fyrir að vera gamalmenni, sem ekkert var annað en skinnið og beinin. Vinstri helmingur líkamans var máttlaus, og húðin yfir kinn- beinunum var óhugnarlega gul. Þegar konan varð vör við lækninn, greip hún þétt um handlegg hans og mændi á and lit hans sóttheitum vonaraug- um. „Ég er svo hrædd Alex,“ mælti hún rámri röddu. „Yfir- gefðu mig ekki.“ „Ég skal ekki fara,“ svaraði læknirinn næstum við eyra hennar. „Þú ERT Alex, er það ekki?“ spurði hún tortryggin. „ Já... ég er Alex,“ svaraði læknirinn, sem vissi, að allt það, sem hann gat gert fyrir þennan vesæla sjúkling, var að svara á þennan veg. Hún dró djúpt andann og bros færðist yfir varir hennar. Nokkrum andartökum síðar féll hönd hennar af armi lækn- isins. J ARÐ ARFARARD AGIJR- INN var drungalegur og níst- ingskaldur. Einungis læknirinn gerði sér ómak að aka út til Greenwood-kirkjugarðsins í Brooklyn til að votta sína síð- ustu virðingu. Á legsteininum stóð: FRÚ ELIZA GILBERT 42 ÁRA ANDAÐIST í JANÚAR 1861 Þannig endaði hin umbrota- sama ævi Lolu Montez. Efnaleg verðmæti lét hún engin eftir sig en hennar vegna samdi Franz Liszt sónötu, og Jósef Steiler málaði af henni mynd, sem slapp ósködduð gegnum stríð Adolfs Hitlers og fékk aftur sinn stað í Listasafn- inu. Einu sinni hafði hún skrifað í bréfi til góðs vinar: „Líf mitt hefur verið svo margbreytilegt og ævintýraríkt, að ég held það standist samanburð við flestar skáldsögur. Stundum, þegar ég rifja upp fyrir mér það, sem ég hef upplifað, verður mér á að hugsa: Getur þetta allt verið raunveruleiki? Er ég í raun og veru til — eða er þetta allt saman draumur?" * Fóstureyðingar Framhald af bls. 1 benda á, að um 70% af rúm- lega 1000 fæðingalæknum, sem spurðir voru álits á frelsi til fóstureyðinga, voru því meðmæltir. í mörgum ríkjum Banda- ríkjanna hafa fóstureyðing- ar verið gefnar frjálsar, og er kostnaður við slíka að- gerð nokkuð mismunandi eftir því, hvort um er að ræða einkasjúkraliús, rekin af bísnessmönnum, eða al- menn sjúkrahús. 1 liinum fyrrnefndu mun kostnaður- inn vera um 400 dollarar (eða um 35.000 krónur), en á almennum sjúkrahúsum 150-200 dollarar. Það er sannarlega margt, sem mælir með því að þessi mál verði tekin til alvarlegr ar yfirvegunnar liérlendis, og ber þá ef til vill fyrst og fremst að hafa í huga breytt viðhorf sérfróðx*a manna og lækna — og þá ekki hvað sízt almennings- álitið. Talsvert mun liafa verið um það, að ráðþrota og nið- ui-bi'otnar stúlkur, sem hafa orðið vanfærar liérlendis, hafa í örvinglan leitað á náð- ir sterkra lyfja — drukkið ofan í antabus, og þar frarn eftir götunum, og reynt að losna þannig við fóstur; og ótalin eru þau dauðsföll, sem hlotist hafa af slíku. Þá munu og leynast hér einhverjar kellingar og hómópatar, sem eitthvað liafa gert af því að fást við fóstureyðingar. Ekki þai’f að taka það fram, hve ógeðslegt slíkt kx*ukk er, en óhætt er að segja, að ástandið liér- lendis í þessum efnum er fyrir neðan allar hellui*. * Samfarfr Framhald af bls. 1 innar um það sem í Amer- iku vestur er kallað „Love Treatment“ og fólgið í nánu kynfei’ðislegu sambandi sál- fi'æðings og sjúklings. Hins vegar halda aði*ir sérfræð- ingar því fram, að slíkar að- gei*ðir verki eins og LSD á sjúklinga og séu því i vafa- samara lagi! Þetta mál hefur ekki ver- ið rannsakað til neinnar hlýt ar, og er ekki úr vegi að is- lenzkir sálfræðingar riði á vaðið í þessum efnuni! * Raddir Framhald af bls. 1 svona i*usli á vinnustað. Enn eitt skil ég aldrei: hver leigir þessum lýð ???? Finnar liafa nýlega útilok að hálf-svertingja frá vinnu- mai’kaði, og Danir, Svíar og Norðmenn eru alvarlega, að huga að svipuðum aðgerð- um, enda mótmæla vei’ka- lýðsfélögin ákaft, að fólk þetta sé tekið í vinnu. Að lokum skora ég á alla, sem hlut eiga að máli, að sjá svo urn, að flóðbylgja af þessum lýð, komi ekki inn i landið, þegar Danir, Svíar og Noi'ðmenn fara oð hreinsa til hjá sér. Virðingarfyllst, Jón Sigurðsson, sjómaður. KROSSGÁTAN mmamsBEammsssammmmmtmmmmmmmmtammmasmmaBKMam Lifandi lík krufið Á miðöldunum var ekki far- ið í launkofa með lík, sem þurfti að kryfja. Það var gert í eins konar „leikhúsi“, þar sem stórt borð var á miðju gólfi fyrir líkið, og bekkir allt í kring, þar sem áhorfendur gátu setið. Það var litið á slíka viðburði sem beztu skemmtanir, og menn skemmtu sér þá einnig um leið á annan hátt, svo að oft varð að kasta fólki út, eins og það væri á illræmdri ,,knæpu“. Einu sinni kom það fyrir, að það varð að hætta við allt í miðju kafi, vegna þess, að þeg- ar farið var að kryfja líkið, en það var af nýhengdum manni, þá lifnaði hann við. Líf á Marz ? Dagurinn á Marz er mjög lík- ur degi jarðarinnar að lengd, aðeins rúmum hálftíma lengri. En Marz er miklu kaldari en jörðin. Heitustu dagar þar við miðjarðarlínu eru varla mikið yfir 10° C, og þá má geta nærri hvernig hitinn er, þegar nær dregur heimskautunum. Gaman verður að fá úr því skorið í vetur, hvort nokkurt ÞETTA líf þróast á Marz en þá verður sent geimskip þangað til rann- sókna. Þarfar mýs í Englandi eru mýs ræktaðar til skemmtunar, og hafðar í hús um. í nærri því hverri stór- borg er „Músaklúbbur“, þ. e. músavinafélag. Mýsnar sem ræktaðar eru, eru útlendar að uppruna en við víxlun tegund- anna eru komin fram mjög mörg litarafbrigði. Sumar af þessum músum eru hvítar eða gular, brúnar, rauðar, fjólublá- ar_ bláar, silfurlitaðar, svartar, o. s. frv. í fyrra stríðinu komu þessar mýs að góðu liði. Þær voru flutt ar milljónum saman til víg- stöðvanna; þeim var varpað nið- ur í skotgrafir og kafbáta, til þess að séð yrði, hvort þar væru eitraðar lofttegundir. Eft- ir stríðið gaf enska stjórnin „Músavinafélagi Breta“ (The National Mouse-Club) stóra silf urskál, en á hana var letrað þökk fyrir hjálp þá, sem mýsn- ar höfðu veitt í stríðinu. Jarðskjálftar Það sem almennt og einu nafni er nefnt jarðskjálftar, eru snöggir kippir í jarðskorpunni. Jarðskjálftar eru mjög almenn- ir víða um lönd, og sums stað- ar eru þeir daglegir viðburðir, eins og t. d. í Japan^ þar sem koma um 600 jarðskjálftar aS meðaltali á ári, og margir mjög miklir. f höfuðborg Japans hafa verið taldir yfir 2000 jarð- skjálftakippir á síðustu 25 ár- um. Hér í Evrópu eru jarðskjálft- ar algengastir í Grikklandi, þar næst í Suður-Ítalíu og loks hér á landi. Sums staðar í álfunni, eins og t. d. í Danmörku og norðanverðu Þýzkalandi^ verð- ur þeirra varla nokkurn tíma vart. Úreltar reglugsröir Stúdent einn við Oxford-há- skólann fór að gramsa í göml- um reglugerðum skólans og komst að þeirri niðurstöðu, að hann ætti heimtingu á að fá edna ölkrús á dag á meðan hann væri í prófinu. Eftir allmikið þjark neyddist skólaráðið til að láta undan kröfum hans, vegna þess að reglugerðin, sem hann vitnaði í, hafði aldrei verið numin úr gildi. En skólaráðið gróf upp fleiri ákvæði í þessari reglugerð, því að daginn eftir að þeir höfðu orðið að láta undan kröfum piltsins, tókst þeim að sekta hann um 5 sterlingspund vegna þess að hann gengi ekki með sverð.

x

Ný vikutíðindi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný vikutíðindi
https://timarit.is/publication/881

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.