Ný vikutíðindi - 18.08.1972, Page 4
4
NÝ VIKUTÍÐINDI
Astfús kona
Framh. af bls. 3
ur einnig verið mjög ánægju-
legur. Gagnstætt mörgum nú-
tíma tómstunda-iðkunum, kref-
ur hann engan sérstakan út-
búnað, eða neina erfiða þjálf-
un. Það fylgir heldur ekki nein
hætta við þetta, sem hægt er
að kalla svo.
Maður, sem hefur það að
tómstundagamni að kyssa, get-
ur sparað útgjöld 1 félagsgjöld,
golfkylfur, skíðaferðir, hesta-
sveina og vélaviðgerðir. Hann
getur látið sér alveg standa á
sama um veðrið, og getur kom-
izt hjá að brjóta á sér hand-
legginn eða fæturna, tognaða
vöðva og sólsting. Hann get-
ur einnig losnað við hið venju-
lega íþróttaskvaldur, sem gerir
klúbblífið svo æsandi.
Listin að gera áætlanir.
Það dugar samt ekki að
gleyma skipulaginu, sem þessi
tómstundaiðja krefur. Maður
verður að geta lagt áætlanir
Jafn þýðingarmikið og það
er að vita hvernig maður á að
kyssa, er það að vita hvar mað
ur á að kyssa og hverja maður
á að kyssa.
Enn þýðingarmeira er að
muna, hvenær maður á ekki
að kyssa.
Ef þér í hjónabandi náið
því sorglega stigi, þegar kon-
an yðar tekur á móti yður
klædd leiðinlegum formiðdags-
kjól, er tími til kominn að
koma á aga og reglu aftur.
Hinn gleymdi koss.
Kyssið konuna yðar næstu
daga. Ef hún er vön að fá
kossinn sinn, mun hún ef tiJ
vill, þegar þér komið heim
af skrifstofunni, setja sííj 1'
venjulegar stellingu, standa á
tánum og stút á munninn, of-
uriítið titráridi 'og með' kjána-
lega auðsveipni í svip sínum.
Þá verðið þér af hafa afsökun
á reiðum höndum.
„Æ, nei, Lise, ég vil ekki
smita þig.“
„Ég hafði ekki hugmynd um
að þú værir kvefaður, Davíð.“
„Það myndirðu fljótt kom-
ast að raun um, ef ég kyssti
þig, vina mín.“
Næsta sinn, þegar tækifæri
býzt, verðið þér að koma með
aðra afsökun.
„Ó, nei, vina mín, ef ég
smita þig, verður þér illt í
hálsinum.“
„Ég hélt bara að þú værir
kvefaður, Davíð?“
„Hvernig gat þér dottið það
í hug?“
Sjálfvirki kossinn.
Um hann er stundum talað
sem riinn ástríðulausa koss, og
þá er hægt að kyssa á kinnina,
einnið eða einhvern annan
hættulausan stað. Sérfræðingar
geta hins vegar kysst þannig
beint á varirnar án þess að
hann breytist. Hann heldur
áfram að vera þurr, kaldur
ástríðulaus, og ef maður getur
staðist þessa erfiðu æfingu, er
hann lang áhrifamestur.
Hinn gamansama koss á nef-
broddinn er alveg eins kyn-
laus, en hann gefur fyrirgefn-
ingu í skyn, sem ekki er mein-
ingin.
Seini morgunkossinn.
Eftir að nokkrar vikur hafa
liðið á þennan hátt mun hún
vafalaust hafa lært lexíu sína,
ef hún er sú rétta. Og ef hún
er það, þá skuluð þér vera stór
lyndur. Takið hana aftur í náð.
Gerið þetta á áhrifaríkan hátt.
Ágætis-meðal í þessu augna-
miði er seini morgunkossinn.
Akið snemma að heiman.
Keyrið kringum húsið og aftur
að dyrunum.
„Gleymdir þú nokkru, Da-
víð?“
„Morgunkossinum mínum.“
Kyssið hana heitt, en farið
ekki út í öfgar. Þessi aðferð
hefur bezt áhrif, ef þér hafið
ekki kvatt hana með kossi tvo-
þrjá daga í röð. Gangið svo ör-
uggur út í bílinn og akið til
skrifstofunnar Hún mun bíða
heimkomu yðar með ákefð í
sinni litlu sál.
Kossinn, sem beðið er eftir.
í sambandi við ofannefnt
má nefna kossinn, sem beðið
er eftir, sem sérfræðingar
kalla einnig hin seina koss, nr.
tvö.
Látið sem þér ætlið að kyssa
hana. Beygið yður yfir hana
og svo.. . einmitt er varir ykk
ar mætast, hlægið þér glað-
lega.
„Ó, ég man allt í einu eftir
dálitlu gríni, sem ég lenti í á
skrifstofunni í gær ...“
Brennheiti kossinn.
Aðferðin við þennan koss er
ósköp einföld.
Aðalatriðið er að þér gerið
það hægt.
Spurning um eyru.
Hægt er að skipta konum í
tvo hópa eftir viðbrögðum
þeirra við eyrnakossi eða í sér
stökkum tilfellum eyrnabiti.
Sumar konur elska það; aðrar
hata það.
Maður getur prófað sig áfram.
Ef hún hefur gaman af að láta
kyssa sig á eyrað, hafið þér
aflað yður viðbótarbirgðum af
skotum ' vopnabúrið heima.
Munið það og notið það í við-
eigandi tilfellum.
Á ég að kyssa hana á hönd-
ina?
Þessi koss er ekki byltingar-
kenndur, en hann er glæsi-
mannlegur. Samt á hann að-
eins að notast í ýtrustu neyð.
Þó er rétt að koma með
nokkur aðvörunarorð: Kossar
á höndina vilja gjarnan engu
síður en hnetuát verða að
vana, og ef maður er byrjaður
á annað borð, er erfitt að
hætta aftur. Það getur auk
þess valdið því, að hendur
konu yðar líti út eins og hún
hafi staðið yfir þvottabalanum
í tólf tíma samfleytt. Ennfrem-
ur getur það valdið smitun og
rænt yður matarlystinni í há-
deginu.
Kynlífið er ckki allt.
Brátt munuð þér komast að
raun um, að kynlífið er ekki
aðalatriðið í hjónabandinu.
Kátur eiginmaður er alveg eins
góður, já betri en ástríðufulli
elskhuginn. Hann fyllir líf
konu sinnar með glöðum stund
um og eflir ást hennar.
Samtöl.
Munið, að meðan þér eruð
á skrifstofunni önnum hlaðnir,
er konan yðar heima í friðsæld
og ró og lifir lífi, sem að vísu
er hollt og róandi, en ekki
beinlínis skemmtilegt.
Flytjið henni því frétlir af
hinu fjölbreytta lífi utan
heimilisins og tendrið ljós í
lífi hennar. Hún mun verða
þakklát fyrir það. Á leiðinni
heim úr vinnu ættuð þér á-
vallt að rifja upp skemmtileg-
ar endurminningar eftir dag-
inn, t.d. alla brandarana, sem
hafa hrotið af vörum yðar á
skrifstofunni í samtölum yðar
við aðra. Notið hugmyndaflug
yðar við þetta.
Hlægið hátt, látið bjarma
koma 1 augun og segið:
.....Og einmitt þegar við
sátum á fundi hjá forstjóran-
um, opnaðist hurðin — og
hver heldurðu að hafi komið
dansandi inn önnur heldur en
einkaritari hans. Hún var sko
hátt uppi.“
(Einkaritari forsetans er 62
ára gömul, og líkist sunnudaga-
skólakennara — sem hún
reyndar er líka. Hún snertir
aldrei við áfengi, drekkur að-
eins hálft glas af sherry á
gamlárskvöldi, en þar eð þér
vitið að kona yðar hefur lif-
andi áhuga á þeim stúlkum,
sem eru á skrifstofunni, megið
þér ekki valda henni vonbrigð-
um).
„Hafði hún drukkið aftur,
Davíð?“
„Hvort hún hafði! Og svo
lyfti hún upp pilsinu, og ...“
„Nú og hvað sagði forstjór-
inn?“
„Hvað gat hann sagt? Það
var einmitt hann, sem var
upphafsmaðurinn að þessu öllu
saman. Nú, jæja, til að lýsa
öllu ástandinu, við sátum sem
sé þarna ... eða réttara sagt:
Það byrjaði allt saman með,
að. ..“
Svona smásaga kostar ekk-
ert, en hún veitir birtu inn í
líf konu yðar.
Farið út að borða með henni.
Matarbiti á veitingahúsum
við og við mun gleðja konu
yðar mjög mikið. Bjóðið konu
yðar út Hún mun finna að
þér elskið hana virkilega og
viljið gera eitthvað fyrir hana.
Það barf ekki að kosta nein
ósköp, ef þér bara gerið áætl-
un áður.
(a) Látið hana velja staðinn.
„Hvert langar þig til að
fara, Lise?“
„Það er til dæmis Belle
Terrasse!“
(Hún mun ávallt velja það
bezta og dýrasta).
„Prýðilegt."
(Verið aldrei nánasariegur.
Takið vel undir. Þegar þið er-
uð á leiðinni, segið þér:)
„Æ, asninn ég! Belle Terr-
asse er lokuð á fimmtudögum.“
„Er hún lokuð?“
„Já, ég veit það af tilviljun.
Lars reyndi að komast inn
síðastliðinn fimmtudag, en það
var lokað. En nú veit ég, hvað
við gerum. Það er snotur lítil
veitingastofa hérna rétt hjá.“
(Og hún hefur tveggja rétta
miðdegisverð á boðstólum fyrir
lítinn pening).
Forðist rifrildi.
Rifrildi á ekki heima í góðu
vel skipulögðu hjónabandi.
Munið, að hjónaband er sam-
starf. Rifrildi má aðeins eiga
sér stað, þegar konan yðar hef-
ur á röngu að standa.
Þegar konan yðar er einu
sinni búin að komast að raun
um yðar frábæru forustuhæfi-
leika, munu allir árekstrar
hverfa úr sögunni og heimilið
verður hamingjusamt.
En þrátt fyrir það geta þau
augnablik samt komið, að rödd
hinnar veltömdu konu yðar
verði skrækróma. Þá kemur
orðaskakið með öllum sínum
leiðindum.
Þér þurfið samt ekkert að
óttast, ef þér lærið eftirfarandi
reglur — og munið þær.
Verið aldrei rökfastur.
Að deila við konu er eins
og að leika tennis með golf-
kylfu. Maður hefur á tilfinn-
ingunni, að maður leiki tvær
íþróttagreinar samtímis.
Ef þér notið röksemdir í
málflutningi yðar, gerið þér
yður sekan um mikla skyssu,
og munið fá ærið tilefni til
að sjá eftir því. Kona lítur
aðeins á málin út frá sjónar-
miði tilfinninganna, en slíkan
málflutnning kann hún betur
að nota en þér. Leyfið æst-
um tilfinningum að jafna sig.
Æstar tilfinningar konunnar
líkjast vorregni. Þær eru ofsa-
legar, en á næsta augnabliki
er það yfirstaðið. Þegar tárin
fara að renna stríðum straum-
um, eigið þér að vera samúð-
arfullur, en dálítið utan við
yður. Verið fljótur að finna eitt
hvert verkefni, sem þolir enga
bið.
„Húh .. . húh . . þú elskar
mig ekki, Davíð?“
„Ég kem strax, Lise, en ég
verð að stilla þrýstinginn á
hitageyminum.“
„Þú elskar mig ekki!“
„Víst elska ég þig, en þar
fyrir vil ég ekki að þú spring-
ir í loft upp ásamt öllu hús-
inu.“
(Verið nú burtu 30-40 mín-
útur og komið svo aftur með
gleðibros á vör).
,Nú er það komið í lag elsk-
an mín. En það var vissulega
á síðasta augnabliki. Nú hvað
vorum við að tala um?“
Á þessari stund er mesti
vindurinn sennilega farinn úr
henni.
Verið sterkir og þögulir.
Þegar til lengdar lætur mun
þó engin aðferð taka algerri
þögn fram.
Það þarf skapstjórn til að
halda sér saman, en þér hafið
jú meira en nóg af sterkri
skapgerð. Margra daga þögn
mun sigrast á jafnvel mögn-
uðustu og heiftarlegustu sorg,
gremju, afbrýði o. s. frv.
Ef til vill munuð þér ein-
staka sinnum freistast til að
brosa dularfullu brosi eða
raula stef úr gömlu lagi. Ger-
ið það ekki!
Þögn og svipbrigðalaust and-
lit eru leiðinleg áhrifmeðul, en
þau eru áhrifamikil.
Ómaksins vert.
Munið , að vingjarnleg fram-
koma cg umhyggjusemi gagn-
vart konunni borgar sig ávallt.
Eigingjarni eiginmaðurinn,
sem fer sínar eigin leiðir án
þess að taka tillit til konunn-
ar sinnar, mun brátt setja sitt
góð heimili í hættu.
Verið góður við konu yðar,
og hún mun verða góð við yð-
ur.
* Persóituleg
vandamál
Framh. af bis. 8.
Það er ósköp eðlilegt að
mann Iangi, þegar hann sér
mynd aí fallegu pari vera að
eðla sig. einkum ef um nær-
mynd er að ræða, sem er sér-
lega skýr. Svo við getum bara
óskað ykkur til hamingju með
tiltækið.
Þegar börnin vaxa, getið þið
látið þau fá seríuna, t.d. í
fermingargjöf. Því eins og
gömlu mennirnir sögðu, þá er
ekki ráð, nema i tíma sé tekið.
* Georg Eaton
cnnRiiiiiniHiiBBBMiiRMiiHniaiii
Framh. af bls. 7.
henda Mary allan ágóða af
sölunni á laugardaginn. Olíu-
félagið, sem hann verzlaði við,
tók í sama streng og ákvað að
gefa Mary hluta af heildsölu-
ágóðanum. Leigubílstjórafyrir-
tæki eitt kvaðst myndi kaupa
allt sitt benzín sitt þann dag
þar og gefa ágóðann af allri
keyrslu. Fjöldi manns bauðst
til að vinna fyrir ekkert allan
daginn við benzínafgreiðsluna.
— ★ —
Á FIMMTUDAGINN biriist
teikning Barros í blöðunum,
og fólk, sem kannaðist við and-
litið, var beðið að gefa sig
fram.
Það stóð ekki á því. Blaða-
sali einn kom með írafári inn
á lögreglustöðina og kvaðst
hafa hitt þennan náunga í
billiardstofu á mánudagskvöld-
ið. Þeir hefðu spilað nokkur
spil, og sá feiti hefði tapað 7
dollurum, en þegar hann átti
að borga, sagðist hann enga
peninga eiga. Blaðasalinn
kvaðst hafa vorkennt honum
og ekkert veður gert út af því,
heldur farið með hann heim til
sín og lofað honum að vera um
nóttina. Um morguninn skildu
þ'eir, en um kvöldið hitti blaða-
salinn hann aftur í sömu billi-
ardstofunni um ellejju leyUð.
Þa var hann kominn í ljósan
jakka eg nýjar buxur, kom til
hans og rétti honum sjö doll-
ara og sagði um leið, að gamli
maðurinn hefði sent sér 100
dollara. Blaðasalinn sagði, að
hann hefði sagzt heita Paul
Edwards.
Leigubílstjóri einn þekkti
manninn af mynd Barros og
kvaðst hafa ekið þessum ná-
unga frá áðurnefndri billiard-
stofu til langferðabílastöðvar
við Broadway, rétt fyrir mið-
nætti á þriðjudagskvöldið, og
þar sem leiðin á milli er ör-
stutt, kvaðst bílstjóranum hafa
fundizt þetta asnalegt ferðalag,
Skóburstari á langferðabíla-
stöðinni kvaðst hafa séð þenn-
an mann fara inn í snyrtiher-
bergi stöðvarinnar um tíu-leyt-
ið um kvöldið og koma þaðan
út aftur í nýjum glæsilegum
fötum og sagði við hann um
leið, að fólkið hans hlyti að
hafa sent honum peninga, en
þá sagði hinn, að vinur sinn
hefði lánáð séi
Enginn vissi samt, hvar
hann átti heima eða hvaðan
hann \ar ættaður, en öllum
bar þeim saman um, að fram-
burður hans hefði bent til þess
að hann væri úr suðurríkjun-
um, svo að Montoya ákvað að
senda myndina í hraðpósti til
Oklahomaborgar og biðja lög-
regluna þar að grafast fyrir
um, hvort þessi náungi væri
■þaðan.
Á föstudaginn langa bárust
þær fregnir frá Oklahoma, að
myndin líktist mjög mikið Paul
Lee Edwards, 20 ára gömlum