Ný vikutíðindi


Ný vikutíðindi - 07.06.1974, Blaðsíða 1

Ný vikutíðindi - 07.06.1974, Blaðsíða 1
IRflu WOœCLD Föstudagur 7. júní 1974. — 15. tbl., 17. árg. — Yerð 80 krónur EFNI MEÐAL ANNARS: Ferðamál. — Greenwich Village. — Kompan. — Blóðbaðið í New Orleans. — Keflavíkursjónvarpið. — Krossgáta. — Bridge. — Úr bréfabunkanum. — Brandarar. TÓRGRÓÐIFYRIRTÆKJA - Eymdarvæl útgerðarmaana Þrátt fyrir það, aö for- svarsmenn fyrirtœkja barma sér stööugt hástöf- um vegna síhœkkandi rekst urskostnaðar, kemur í Ijós, aö hagnaöur margra fyrir- tœkja hefur verið mikill á síöasta ári. Nœgir þar aö nefna, að hagnaöur Eimskips varö á árinu liölega 42 milljónir króna, eftir aö eignir höföu veriö afskrifaðar um 175,5 milljóni.r. Hagnaöur af rekstri KEA varö 14 millj- ónir, eftir afskriftir og fyrn ingar, að upphœö 62 millj- ónir, höföu veriö reiknaöar. Af þessum dæmum má Fatafella vLkunnar sjá, aö vel rekin fyrirtæki skila góö’um hagnaöi, þrátt fyrir veröbólgu og vinstri stjórn. Sífelldur barlómur at- vinnurekenda á því engan rétt á sér, og yfirlýsingar um aö atvinnuvegirnir rambi á barmi gjaldþrots og allt sé aö stöövast eru í algjörri mótsögn viö staö- reyndir. Þó viröist algjörlega úti- lokaö aö láta einn megin- atvinnuveginn bera sig á pappírnum, og þaö er sjáv- arútvegurinn. Skuttogararnir Næstum því hver krummaskuö á landinu hef ur nú keypt einn eða fleiri skuttogara, samkvæmt á-; eggjan ríkisstjórnarinnar. Togarar þessir eru settir á nafn hinna og þessa út- ger'öarmanna og félaga, en í raun eru þeir greiddir meö lánsfé frá ríkinu að svo til öllu leyti. Lánin eru til muna hagstæöari en hægt er a'ö fá í öðrum at- vinnugreinum. Þrátt fyrir þaö lýsa for- stjórar skuttogaraútgerðar yfir því í blööum, að ekki sé unnt að reka þessi skip Framhald á bls. 5. stolnum bíl eftir viku! „Heiðarlegir" þjófar! Togarasjómaður einn var staddur á skemmtistað fyr- ir nokkru og hitt þar kátt fólk, sem liann bauð heim til sín aö loknum dansleik. Hann var nýbúinn aö fá sér bíl, sem liann geymdi viö hús sitt, en var búinn að ákveða ferðalag á hon- um í sumar. Daginn eftir partíiö fór 'hann aftur á sjóinn, en þegar hann kom. næst í land varð ljóst, að gestir hans höfð'u brugðið sér í reisu á bílnum og komu aftur til bæjarins um líkt leyti og sjómaöurinn kom að landi! Stofnað til vinskapar Það voru þrír piltar og ein stúlka, sem sjómaöur- inn hitti þarna á ballinu og bauð hann þeim heim upp á drykk á eftir. Ekki þekkti hann fólkið áður, en þótti skemmtun að rabba við það, og fór hið bezta á með þeim um nóttina. Sjó- maðurinn ræddi um fyrir- hugaöa ferð sína út á land á bílnum eftir næsta túr og sýndi þeim nýja bílinn hátt og lágt. Gestirnir kvöddu undir morgun, og sjómaðurinn svaf fram til hádegis og fór þá beint um borö í togar- ann, sem sigldi á haf út. — Bíllinn nýi stóö . þá viö garðshliðið og athugaöi maöurinn hann ekkert frekar. Takk fyrir lánið Eftir tólf daga kom tog- arinn aftur til hafnar, og flýtti maðurinn sér frá boröi. Hann haf'öi tekið sér frí næsta túr og ætlaöi nú aldeilis aö bregða sér í reis- una. Þegar hann kemur heim, stendur bíllinn fíni á sama stað og sér ekki á honum blett eða beyglu. Svo þegar sjómaöurinn opnar dyrnar aö íbúð sinni, veröur fyrir honum umslag, sem stung- iö hafði verið inn um bréf- rifuna. í ljós kemur aö þaö hefur að geyma lyklana aö bílnum og stutt bréf. Þar sagði, að partígest- irnir hefðu haft meö sér bíllyklana, óvart auövitað, þarna um nóttina. Þar sem hann hefði verið farinn út á sjó daginn eftir, heföu þau ekki staðist freisting- una, heldur fengiö bílinn „lánaöan“. Síöan kom lýsing á feröa lagi noröur í land og bíln- um hælt mjög. Jafnframt var sagt aö lokum, aö bíll- inn væri nú fullur af benz- íni, nýbónaöur og allur í bezta lagi. Bréfið var und- irritaö meö þrem gælunöfn- um. Sjóma'öurinn fór nú og skoöaði bílinn vandlega, en gat hvergi komið auga á nokkrar skemmdir. Hins vegar sýndi mælirinn aö honum heföi veriö ekiö eina þrjú þúsund kíló- Framhald á bls. 5. Léletf sjénvsrps- dagskrá Lengi getur vont versnað og sannast það máltæki á dagskrá sjónvarpsins. Þess- ar fáu vikur til sumarleyfis sjónvarps verða svo sannar- lcga ekki upplífgandi fyrir sjónvarpsnotendur. Fyllt er upp í dagskrána með samtíningi úr öllum áttum, og allskonar fræðslu myndir verða þar aðal uppi staðan. Góðar bíumyndir sjást ekki í sjónvarpinu, nema tvisvar á ári, og það er cngu líkara en sjónvarp- ið sé aðeins rekið frá degi til dags, en ekki mcð eitt- hvert ákveðið markmið í huga. Og vart hatnar cfnið ef stofnunin losnar við sinn eina keppinaut, Keflavíkur- sjónvarpið. FURÐULEG ÞÖGI\I UIVI ÞJÓÐHÁTÍÐIIMA Helztu fjölmiðlar lands- ins, dagblöðin og Ríkisút- varpiö, hafa brugöist herfi- lega í sambandi viö hátíöa- höldin í tilefni af 1100 ára afmœli íslandsbyggöar. Rit- stjórar blaðanna og yfir- menn Ríkisútvarpsins virö- ast álíta, að hér sé um eitt- hvert einangrað fyrirbœri að rœða, sem bezt sé aö minnast ekki á nema aö mjög takmörkuðu leyti. Hvar eru helztu atburðir íslandssögunnar rifjaöir upp í fjölmiölum? Jú, í síðasta barnatíma sjón- varps fyrir sumarfrí var sýndur stuttur leikþáttur skólabarna, og þar með er upptalið á hvern hátt þess- um þætti hefur verið gerö skil í fjölmi'ölum. Sjónvarpið Þetta 11 alda afmæli hef- ur fært sjónvarpinu stór- kostlegt tækifæri upp í hendurnar, en því miöur viröast forráöamenn þess ekki hafa gert sér það ljóst. í samvinnu viö hæfa rit- höfunda er hægt aö gera fjöldann allan af leikþátt- um úr sögu lands og lýðs og hafa á dagskrá tvisvar í mánuöi eöa svo. Engar fréttir hafa borist um aö slíkir þættir hafi verið gerðir. Framlag sjónvarpsins verö ur sennilega það, aö í haust og fram eftir vetri veröa sýndar fréttamyndir. sem Framhald á bls. 5.

x

Ný vikutíðindi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ný vikutíðindi
https://timarit.is/publication/881

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.