Ný vikutíðindi


Ný vikutíðindi - 07.06.1974, Blaðsíða 2

Ný vikutíðindi - 07.06.1974, Blaðsíða 2
2 NÝ VIKUTÍÐINDI Eitt kynlegasta hverfi Htw York-borgar NÝ VIKUTÍÐIND UtgeíancU og rítstjóri: Geir Gunnarsson. Ritstjórn og auglýsingar: Þingholtsstræti 27. (timburhúsið) Simi 28120. Pósth. 5094. Prentun: Prentsmiðja Þjóðviljans. Setning: Félagspr entsmiðj an. Myndamót: Nýja prentmyndagerðin. j Ferðamál Nú fer sá tími í hönd, sem mest er notaSur til ferðalaga af landsmönnum. Næstu vikur og mánuði verða tugþúsundir fólks á faraldsfæti til annarra landa og innanlands. Þótt einkennilegt sé, er meirihluti íslendinga enn haldinn þeirri firru, að há- sumarið sé bezti tíminn til að heimsækja suðræn sól- arlönd. Þeir eru margir, sem undanfarin sumur hafa flogið til Spánar eða Ítalíu í júlí eða ágúst og eytt þar sumarleyfisdögun- um. Þannig hafa þeir al- gjörlega farið á mis við okkar stutta, en oft og tíð- um dásamlega sumar og hafa ekki hugmynd um alla þá möguleika, sem þeirra eigið land hefur upp á að bjóða í náttúrufegurð, sem oft og tíðum er mun meira hælt af útlendingum £n okkur sjálfum. Enda hafa margir erlendir ferða- menn séð meira af landinu en innfæddir, þótt tækifær- in hafi þeir fleiri. Nokkur óvissa er nú ríkj- andi um framtíð ferðamála hérlendis. Valdamenn þjóð- arinnar virðast ekki gera sér grein fyrir því, hvað þurfi til að laða hingað er- lenda ferðamenn og gera þeim til hæfis. Þeir viröast þeirrar skoðunar, að ef nóg sé af flugferðum til og frá landinu sé vandinn leystur. Ferðaskrifstofa ríkisins ræður yfir lang-mestu hót- elrými hérlendis yfir sum- armánuðina þar sem Eddu- hótelin eru. Fyrir nokkrum mánuðum var Sigurður Magnússon ráðinn forstjóri Ferðaskrifstofunnar og töldu allir, sem til þekkja, að þar með væri það sæti eins vel skipað og nokkur væri kostur á, enda hefur Siguröur yfir eindæma mikilli þekkingu á ferða- málasviðinu að ráða. Hann hefur nú sagt starfi sínu lausu og er ástæðan öllum kunn eftir þau blaðaskrif, sem fram hafa farið. En þrátt fyrir að Sigurð- ur hefur skýrmerkilega sagt frá því, að óframkvæman- legt sé að starfrækja Ferða- skrifstofu áfram með ó- reiðuskuldum og vanefnd- um. lætur kerfið ekki að sér hæða. í stað þess að er ekki nema tíu mínútna ferð frá Kínahverfinu. Berfættar stúlkur, íklæddar þröngum buxum og með stór sólgler- augu, láta vel að karlkynsvin- um sínum fyrir utan hinar mörgum listsýningar og bari, sem finnast í þessu bæjar- hverfi. Við skulum labba um tíma- korn í Greenwich Village, og byrja á horninu á Fjórða vest- urstræti og Sjötta stræti, rétt hjá neðanjarðarjárnbrautar- stöðinni. Ef við förum fyrir hornið, rekumst við á Capucc- inos-kaffi, þar sem framreiddar eru 25 tegundir af kaffi, með mismunandi bragði, og sem er ítalskari útlits en nokkur stað- ur á Ítalíu. í sama hverfinu eru átta næturklúbbar, bróðurlega skipt beggja megin götunnar, og dyraverðirnir, sem reyna að lokka vegfarendur inn, eru miklu skemmtilegri að sjá, heldur en það sem fram fer inn an dyranna. Aðalgata bítnikkanna er kölluð Christophe-Street og er rétt handan við hornið, og þar finnum við veitingastað, kall kallaðan „The Pad“. Það sem gerir hann frægan, er eigand- inn, sem lílur út eins og Harry Belafonte og Marlon Brando í einni og sömu persónu. Hann talar mikið um sjálfan sig sem heilmikið skáld. Sannleikurinn er aftui' á móti sá, að hann lif- ir af háborgaralegri iðju — er auglýsingatextahöfundur og á koriú og barn í Br'ookýn:' Eri á' kvöldin, og þá sérstaklega um helgar setur hann á sig sólgler- augun sín, fer í sandala og peysu og fer til bítnikkanna og talar um jazztónlist. Nafn hans er Joey Cupman en vinir hans kalla hann bara Feita-Jóa. En þið skuluð fara varlega í að stoppa hjá honum, því þið get- ið átt von á því, að hann setj- ist við borðið hjá ykkur og haldi ykkur uppi á snakki um listir, sálfræði, útlendar kvik- myndir, póker og önnur skyld efni. Allt þetta fær maður fyr- ir sama verð og éinn kaffif- bolla. Við hliðina á „The Pad“ er ítalskur veitingastaður, þar sem maður, fyrir einn dollara og fimmtíu sent, getur fengið framborinn sérrétt hússins, spaghetti með bláskel og flösku af Chianti. Veitingamaðurinn hefur unun af því að syngja fyrir sjálfan sig, sérstaklega, ef hann veit að hann hefur á- heyrendur. Tveim dyrum lengra finnum gera gangskör að því að kippa starfseminni í lag er einfaldlega auglýst eftir nýjum forstjóra í stað Sig- uröar. Ef aö líkum lætur verður einhver lítilþægur maður ráðinn í starfið, sem í einu og öllu mun fara eftir ráð- um steinblindra embættis- manna. Slík er reisnin yfir forystu ferðamála á íslandi í dag. við Andree, sem þrátt fyrir að hann sé frá Texas, talar með frönskum framburði. Sérfag hans er að gera skartgripi úr steinum, sem finnast á hinum og þessum ströndum um allan heim. Andrée hefur unun af að ferðast og talar fjögur mis- munandi tungumál, plús ein- hvers konar heimabakaða skandinavísku. Krafa hans til frægðar byggist á því, að Soph- ia Loren keypti einu sinni af honum hring, og bað hann að heimsækja sig og mann sinn, ef hann skyldi einhvern tíma eiga ferð um Ítalíu. Ef honum líkar vel við einhvern við- skiptamann sinn, á hann það til að læsa dyrunum að gull smiðsverzluninni sinni, taka gítar ofan af vegg og fara að syngja ástar- og þjóðvísur. Hann er þess virði að hann sé heimsóttur af öllum, sem tií þessa borgarhluta fara. Næsta gata, sem við kíkjum á, heitir Manetta Lane. Hún er aðeins 4 metra löng og sam- an stendur af fjórum kaffihús- um, armensku veitingahúsi og litlu leikhúsi. í miðju hverf- inu býr Mamma Pugialis með sínum átta köttum og sjö páfa- gaukum og ekki má gleyma írskum náunga, sem líkist manninum hennar. Hann rekur „Gömdu ftölsku Krána.“ Á Waverley Place er skemmti legur veitingastaður í Vestur- Indverskum stíl. Eigandinn er sænsk kona — málari sem gengúr undir nafninu „Kalda Kiki“. Hún gekk í leikskóla í Stokkhólmi og var seinna svo heppin að komast í sjónvarpið. Góðan tíma af frístundum sín- um hefur hún eytt í að hlusta á V-Indverska tónlist, sem hún elskar. Nú er hún búin að ráða söngvara frá Jamica sem bar- þjón. Konan hans lagar V-Ina- verskan mat, sem er fullt eins góður og sá sem maður fær i heimalandinu. Hér er óþving- aður og skemmtilegur blær og verðlagið hóflegt. Þeir sem hafa gaman af að syngja Vest ur-Indverska söngva, geta bara staðið upp og byrjað, þá verða áreiðanlega einhverjir til að taka undir. New York er borg fjarstæðn- anna. Ein af þeim er veitinga- stofa, með rakarastofu bak við. Þó þetta virðist ótrúlegt, er það þó ekkert á móts við eig- andann, sem er skínandi sköll- óttur Japani, sem fullyrðir, að hann sé nauðalíkur Yul Brinn- ar, og það er hann reyndar. Hann kallar rakara-veitinga stofuna sína „Tvennt-í-einu“. Matseðillinn samanstendur af réttum, sem eru fundnir upp ai eiginkonu hans, hinni holi- enzku Louise frá Haag. Meðan Sarakee, vertinn, sér um raksturinn og veitingarnar, eldar frúin. Ef nauðsyn krefur, getur hún einnig rakað og klippt hár, og það kemur oft fyrir, að hann byrjar á verk- inu, en að hún lýkur því. Góð- ur hádegismatur, klipping og rakstur kosta þrjá dollara og fimmtíu sent. Þessi staður er orðinn samkomustaður fyrir flesta unga leikara og leikkon- ur, sem í hverfinu búa. Stephans-bar er' staðurinn fyrir þá, sem eru að leita að bar, eins og þeim, sem kapp- aksturshetjurnar í Evrópu eru vanar að safnast að. Eftir að hafa fengið hár- og skeggsnyrt- ingu og borðað sig vel saddan hjá Sarakee, er kominn tími til að fara til Stephans, sem er til húsa nokkrar húslengdir frá. Hann er hár, laglegur Pólverji, sem segir, að fjölskylda hans tilheyri hinum gamla aðli Pól- lands. Stephan er einn af fljót- ustu kappakstursmönnum Ame- ríku, og hann er einnig meist- ari í að blanda drykki. Flestir kappakstursmenn, amatörar og atvinnumenn, líta við hja Stephans, þegar þeir eiga leið um borgina. Af einhverri á- stæðu er staðurinn einnig orð- inn mótstaður fyrir skandinava. Það er kannski ekki svo skrítið, þegar við heyrum að konan hans er sænsk. Stephan bland- ar sérstakan drykk, sem hann kallar „Grand Prix“, og hefur þau áhrif á mann, að manni finnst höfuðið vera á meira en tvö hudruð kílómetra ferð á klukkustund. Stephan er vanur að halda því fram, að sá sem hefur drukkið fjóra „Grand P.rix-‘, fái aldrei timburmenn daginn eftir, einfaldlega vegna þess að þeir vakna hreinlega ekki aftur___ Hingað til höfum við hald- ið okkur við vesturhluta Green- wich Village, svo að nú skul- um við líta á eystri hliðina. Milli Fyrsta og Fjórtánda strætis liggur sá hluti bæjar- hlutans, sem ferðamenn heim- sækja aldrei. Hér búa flestir hinna raunverulega stritandi og iðnu listamanna í New York, og hér eru einnig flest smáleikhúsin og reynslusen urnar — langt frá Broadway. Við Eystra Sjötta stræti er Barnies-restaurant með sína Ijúffengu gyðingarétti. Það er hægt að fá hreinustu kræsingar hjá Barnie fyrir fimmtíu sent til einn dollara, og það eru fimmtíu réttir, sem maður hef- ur úr að velja. Þegar vel geng- ur sitja stjörnur framtíðarinn- ar, meðlimir gyðingaleikhús- grúppunnar, Broadwaleikstjór. ar, sjónvarpsfólk, blaðamenn og fyrirsætur og borða sams- konar mat. Á sunnudagsmorgn- unum kemur kannski líka Stephan, sænska konan hans, og síamski kötturinn þeirra, Picles, til að snæða morgun- verð. Ekki langt frá Barnie, er kaffibar, sem Hafif Judella á. Hann er amerískur negri frá Harlem, sem meðal annars spilar frábærlega vel á afríska flautu. Áður en Hafif varð kaffihússeigandi, var hann dansari, og þar áður hlaupa- stjarna við Columbía Universi- tet, þar sem hann tók einnig magisterpróf í svokallaðri „Business Administration“. — Innst inni við hjartaræturnar hefur Hafif alltaf verið þjáður af löngun til að vera listamað- ur, og þess vegna eru það kona hans og tvær systur hennar, sem sjá um rekstur fyrirtækis- ins, meðan hann þýðir afrísk Ijóð og segir frá mannlífinu í Afríku. Hafif á marga vini um allan heim, sem bera virðingu fyrir honum, sem grípandi per- sónleika. En hvað þá með kaff- ið? Það gerist ekki verra í Nev/ York eða nokkurs staðar í heim- inum, en það er heldur ekki vegna kaffisins, sem fólkið kemur til Hafif. Það munu all- ir, sem einhverntíma koma þangað, skilja. Við hliðina á málurum, rit- höfundum, skáldum, bítnikk- um, kaffihúsum og strip-tease- holum Greenwich Village, skín einnig fjöldi skemmtistaða og danshúsa. Hér geta ferðamenn frá útlöndum og annars staðar úr Ameríku fengið að drekka lélegt viský, oft blandað vatni, og dansa við nokkrar þær minnst laglegu konur sem finn- ast í Ameríku. í bezta falli líkj- ast þær þreyttum fyrrverandi „glamour-girls“ og eru venju- lega orðnar samdauna þeim tóbakt- og víndauns, sem ein- kennir atvinnustaði þeirra. Karlmaður þarf aðeins að Ráðning á krossgátunni á bls. 7. LÁRÉTT: 1 slokaði, 7 eðli- leg, 13 káfar, 14 inn, 16 aðall, 17 ásar, 18 nufa, 19 langa, 21 tjá, 23 einum, 24 dr, 25 af- lausnin, 26 rp, 27 Una, 28 ró, 30 lág, 32 vit, 34 ár, 35 snótir, 36 línuna, 37 ók, 38 ann, 40 agg, 41 rs, 43 ara, 45 ak, 47 aðfangana, 49 UN, 50 grana, 52 asi, 53 aðild, 55 laug, 56 Alli, 57 engar, 59 aga, 61 ell- in, 62 gaurana, 63 leysing. LÓÐRÉTT: 1 skáldar, 2 lás- ar, 3 ofan, 4 karga, 5 ar, 6 II, 7 en, 8 la, 9 iðnin, 10 laun, 11 elfur, 12 glampar, 15 nýj- ung, 20 afvatnaða, 21 tau, 22 ása, 23 eininguna, 29 ósk, 30 áar, 37 ólagleg, 39 arnsúg, 42 áar, 37 ólagleg, 39 arnsúg, 42 sending, 43 aaa, 44 agi, 46 krana, 47 engar, 48 aðals, 49 ullin, 51 augu, 54 illi, 58 Ra, 59 AA, 60 al, 61 ey. Ibúarnir í Greenwich Village eru þekktir fyrir taumleysi í lifnaSi og haía engar áhyggjur af því, sem nágranninn kann aS halda um þá, — enda er nágranninn yfirleitt ekki hótinu betri...

x

Ný vikutíðindi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ný vikutíðindi
https://timarit.is/publication/881

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.