Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.03.1911, Qupperneq 8

Sameiningin - 01.03.1911, Qupperneq 8
Fram að ársþingi kirkjufélagsins 1905 liafði út- gáfa „Sam.‘1 verið í liöndum útgáfunefndar, er kosin var árlega á þingi. Höfðu svo ýmsir fyrir hönd nefnd- arinnar ráðsmennskuna á liendi. Lögðu þeir menn mikla vinnu á sig fyrir blaðið, oftast fyrir alls enga borgun. Má þar til nefna brœðrna Magnús og Wilhelm Paulson, Pál S. Bardal, Sigurð J. Jóbannesson, Jón A. Blöndal og Ólaf S. Thorgeirsson. Á þinginu 1905 var h;ntt við nefndar-fyrirkomulagið, en kosinn sérstakr ráðsmaðr með ofr litlum árslaunum, er annast að öllu icyti útgáfu blaðsins. Hr. Jón J. Vopni í Winnipeg var ráðinn í þá stöðu, og liefir bann síðan annazt blaðið af miklum dugnaði. Sem geta má nærri átti „Sam.£í framan af æfinni og frarn til síðustu ára œði-örðugt uppdráttar. Olli því ekki svo mjög fæð kaupenda sem vanskil á and- virði. Nú er þó svo komið, að fjárbagr blaðsins er í góðu lagi. Hin síðari ár hefir blaðið átt nokkuð afgangs kostnaði. Enda befir kaupendum stöðugt fjölgað bin síðari ár. Svo sem gunnugt er, befir ritstjóri „Sameiningar- innar' ‘ verið einn og hinn sami öll þessi tuttugu og fimm ár: dr. theol. séra Jón Bjarnason í Winnipeg. Fáir eru þeir víst með þjóð vorri, júbíl-ritstjórarnir. Hér á ekld við að fara mörgum orðum um hið mikla verk dr. J. B. í ritstjórastöðunni. Það verðr þáttr ekld lítill í æfisögu lians, er hún verðr skráð á sínum tíma og lögð fyrir dómstól komandi lcynslóða. Það skal þó tekið fram, sem raunar er á allra vitorði, að fyrir það verk allt befir dr. J. B. aldrei þegið einn einasta pening. Eftir fyrsta árgang blaðsins afbenti kirkjufélagið bon- um að sönnu hundrað dollara sem þóknun fyrir starf bans það ár, en bann afbenti það fé jafnskjótt kirkjufé- laginu aftr með þeim ummælum, að það skyldi vera vísir til skólasjóðs. Nokkra aðstoð bafa að sönnu prestar kirkjufélagsins veitt ritstjóranum, og á kirkju- þingi 1907 var eftir óslc lians skipaðr sérstakr maðr honum til aðstoðar, en sú ráðstöfun hefir verið aðeins til málamyndar.

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.