Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.03.1911, Page 16

Sameiningin - 01.03.1911, Page 16
10 eins orðatiltœki. Auðsætt var þó, að um miklu meira var að rœða en orðatiltœki tómt fyrir vini mínum, er hún tók fram, að Jesús væri með sér á göngu liennar framhjá drykkjukránum og gegnum fólksþyrpinguna á strætinu. Hún var víst um annað að hugsa. Er það orðatiltœki aðeins, er sagt er, að Jesús sé með oss? eða er hann með oss í raun og veru? Af öllu því, sem trúin á guðdóm Krists hefir í sér fólgið, virðist mér þetta það, er mestu máli skiftir. Trúir þú því, að Kristr sé guð? Fimm ár eru nú liðin síðan eg snerist til kristinnar trúar og gjörði skýra grein fyrir aftrhvarfi mínu á tnivakningarfundi. Sumt var það, er að því studdi, að atburðr sá varð öðrum ákugamál ekki síðr en sjálfum mér. Meðal annars var í alla staði eðlilegt, að þeir, sem í alvöru trúðu á frelsarann og návist hans, gleddist af því, að annar maðr hefði lært að meta það, sem þeim svo lengi hafði verið svo mikils virði; enda komu þá til mín mörg bréf, sem eg varð sterklega snortinn af í innra manni mínum, frá þeim mönnum, sem langaði til að tjá mér hjartfólg'inn samfögnuð sinn. Aðrir voru þó þeir, sem svo litu á, að atburðr sá væri ljóst dœmi þess, livílíkt afl evangeliskr kristindómr hefir í sér fólgið, og svo sem við mátti búast voru meðal þeirra nokkrir, sem fýsti að vita, hvernig á því liefði getað staðið, að maðr, sem um mörg ár hafði fundið full- nœgju í því, er oft er nefnt frjálslyndr kristindómr, skyldi hneigjast inná þá stefnu í trúmálum, sem talin myndi í hinni áttinni aftrhald. 1 fjölda bréfa til mín var eg þá líka beðinn að g'jöra grein fyrir trú minni og breytingunni, sem orðið hafði á hugsunum mínum um það efni. Þótt ekki væri neitt af þessu sérlega mikilvægt í sjálfu sér, þá var það þó talsvert áhugamál /- þeim mönnum, sem til þess fundu, að slíkr vitnisburðr studdi að einhverju leyti trúarskoðan þeirra, eða kom með ný rök því til sönnunar, að sá trúarskilningr væri réttr. Meðal spurninganna, sem fyrir mig voru lagðar, hljóðaði ein svo: „Trúið þér því, að Kristr sé guð?“

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.