Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.03.1911, Qupperneq 18

Sameiningin - 01.03.1911, Qupperneq 18
12 snertir liygg eg, að eg liafi nokkrn áðr komizt að fastri niðrstöðu. Þyngra en þetta á metum var þó það, að þótt lítið væri um efni það sagt, var því ávallt föstu lialdið, að Jesús væri drottinn. Þótt elíki væri neitt átt við liina guðdómlegu lilið þess máls, lifði það þó í hugum manna stöðugt. En kví fyrir mig að taka þetta til íhugunar nú, ef eg sinnti því ekki þá? Fyrir því eru ýmsar ástœð- ur, þar á meðal þessi: Mér virðist ljóst, að miklu máli skifti, liverju menn trúa og hvað um trúna er kennt. Svo leit eg ekki á áðr, og vel man eg eftir því, hve forviða eg varð, er eg las ritgjörð Newman’s, þar sem hann gjörir grein fyrir því, hví hann hvarf inní kaþólsku kirkjuna, yfir því, að nokkur maðr skyldi telja það svo stórkostlega mikilvægt, hvað kennt væri um efni trúarinnar. En fyrir langa umhugsan hefi eg sannfœrzt um það, að trú, einkum um andleg efni, er oiss lífsnauðsyn, þótt oft sé ervitt að ákveða hana með orðum. Án þess að eiga nokkuð við þá spurning frá sjónarmiði sálarfrœðinnar eða heimspekinnar, hvort sá eða sá getr haft trú á það, sem hann hefir ekki með- vitund um, skal tekið fram, að almennt er það eflaust í reyndinni haft fyrir satt, að breytni vor sé komin undir því, hverju vér trúum, og að trúarlíf vort eigi að vera komið undir efni persónulegrar trúar vorrar. Sá maðr, sem engu trúir um stjórnmál, hneigist að því að gjöra ekkert á því svæði nema aðeins að nafninu. Sá, sem engu trúir mn verzlunarmál, hneigist að því að gjöra ekkert í þeim efnum. Eigi menn að eignast nokkurt trúarlíf, verða þeir því að hafa einhverja á- kveðna trú slíku lífi að undirstöðu. Þá er eg tókst á hendr hitt og annað verk meðal vinanna, sem eg liafði umgengizt, varð mér ljós einn stór munr á trú minni einsog þá var komið og trú minni einsog hún hafði áðr verið. Áðr hugsaði eg um Jesúm Krist sem þann, er verið hefði vitr kennari og fyrirmynd frábær að líferni til. Eg ímyndaði mér þá, að með því að tileinka sér speki hans og hagnýta sér hana myndi mönnum geta tekizt að verða að eðlisfari

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.