Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.03.1911, Qupperneq 36

Sameiningin - 01.03.1911, Qupperneq 36
i8 Dr. Erik Norelius. Dr. E. Norelius er fœddr 26. Okt. 1833 í Hassela-sókn á Hels- ingjalndi í Svíþjó'S. Hann er kominn af bœndaætt efnaSri. Settr var hann ungr til náms og var kominn í latínuskóla, er hann áriS 1850 fluttist til Vestrheims. Yfir hafiö kom hann í selglbát og var ellefu vikur á leiöinni til New York. ÞaSan hélt hann vestr um land, og voru þá samgöngufœri ólík því, sem nú er. Eoks fór hann fótgangandi vestr um Iilinois, unz hann staSnæmdist í Rock Island. VoriS eftir komu hans til landsins fór hann til Columbus, Ohio, og tók aS stunda nám viS Capital University, en þaS er lút- ersk menntastofnun tilheyrandi Ohio-sýnódunni sameinuSu. Eftir fimm ára nám var honum faliS trúboSstarf í sœnskri nýlendu í grennd viS LaFayette, Indiana. Sama ár kvæntist hann ungfrú l'ngu Charlotte Peterson. ÁriS 1856 var hann kvaddr til prests- þjónustu í Red Wing og Vasa í Goodhue Co. í Minnesota, og var þá um haustiö’ prestvígSr í Dixon, 111., af lútersku kirkjufélagi því, er kennt er viö NorSr-Illinois. ÁriS 1857 fór hann aS gefa út Minnesota-Posten, fyrsta sœnskt blaS í Minnesota. Næsta ár gekkst hann fyrir stofnun Minnesota-konferenzunnar sœnsku. Skömmu þar á eftir var blaS hans, Minn-Post., sameinaS aSal-blaSi Svía, Hemlandct, í Chicago og varS dr. Norelius ritstjóri þess. Sökum heilsu-bilunar varS hann innan skamms aS láta af ritstjórn, og gjörSist hann prestr í Attica, Indiana, áriS 1859. ÁriS 1860 var stofnaS allsherjar kirkjufélag Svía, Ágústana-sýnódan, og var þar dr. Norelius einn helzti hvatamaSr. Sama ár var honum faliS allt triiboS Ágústana-sýnódunnar í Minnesota-ríki, og settist hann þá aS í St. Paul. Næsta ár gjörSist hann aftr fastr prestr hins gamla prestakalls síns í Goodhue Co. Flutti hann þá til Red Wing og bjó þar í 17 ár. Áriö 1862 stofnaöi dr. Norelius skóla í Red Wing, og uppaf þeim skóla er vaxiS Gustavus Adolphus College í St. Peter, Minn. 1865 stofnaði hann sœnska lúterska MunaSarleysingja-heimiliS í Vasa, Minn., og annaSist þaö aS öllu leyti sjálfr í 11 ár. Þá tók Minnesota-konferenzan þaS aS sér. ÁriS 1868 bilaöi dr. Norelius á heilsu. EerSaöist hann þá til SvíþjóSar í von urn heilsubót, en kom aftr miklu lakari en hann fór. Neyddist hann þá til aS segja af sér embætti hjá söfnuöi sín- um í Red Wing. Flutti hann sig þá út á landsbyggSina í sveitar- þorp örlítiö, sem heitir Vasa, og hefir hann búiS þar síSan til þessa dags. Þar hefir hann þjónaS all-stórum sveitar-söfnuöi í 25 ár, og litlum sveitar-söfnuSi viö Goodhue hefir hann samfleytt þjónaö 47 ár — þjónaöi honum áSr meS prestakallinu í Red Wing. Auk prestþjónustu hefir dr. Norelius gegnt mörgum opinberum störfum. Fyrst var hann skrifari og síSan lengi formaSr Minne- sota-konferenzunnar, sem er ein aSal-deild Ágústana-sýnódunnar. Nú er hann búinn aS vera 19 ár forseti Ágústana-sýnódunnar. Hún

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.