Sameiningin - 01.03.1911, Side 41
1
23
sinn, sem œskilegt hefSi veriö. En vona má, ai5 úr þessu rætist
síöar.
Svo óska eg yðr og hinu góða og göfuga kirkjufélagi allrar
blessunar drottins í bráð og lengd.
MeS mikilli virðingu og vinsemd.
YSar skuldbundinn
Valdimar Briem.
Frá því var skýrt í „Sam.“ fyrir fimm árum (Marz 1906^ er
Edward Everett Hale prófessor ('hinn yngriý, þjóðkunnr lærdóms-
maðr í Bandaríkjum, snerist frá skoöunum Únítara til evangeliskrar
kristinnar trúar. Þótti aftrhvarf þess manns mikil tíðindi. Saga
hans sjálfs um þann atburð rifjast upp fyrir lesendum vorum viö
ritgjörö þá eftir sama mann, sem vér birtum nú í þessu blaði, þýdda
úr Sunday School Times frá n. Febr.
Kristján Abrahamsson lézt hér í Winnipeg 27. Febr., fimmtíu
og sjö ára aö aldri. Fœddr í Hlíöarhaga í Eyjafirði 25. Nóv. 1857,
þar sem hann bjó um hríð áðr en hann 1883 flutti sig til Vestrheims
með dóttur sinni og konu sinnar Jakobínu Ingibjargar Ketilsdótt-
ur, þá nýlega látinnar. Bjó hér fyrst í Víðinesbyggð í Nýja ís-
landi, en síðan í Pipestone, seinast í Winnipeg frá 1906. — Kristján
heitinn var skýr vel og mesta valmenni. Tók mikinn og góðan
þátt í kirkjumálum vorum, enda hafði ákveðnar og heilbrigðar
kristindómsskoðanir; sat fyrir hönd Jóhannesarsafnaðar á síðasta
kirkjuþingi. Útför hans frá Fyrstu lút. kirkju, sem hann tilheyrði
síðan hann fluttist hingað til bœjarins.
Sigrbjörg Hannesdóttir, húsfreyja Jónasar Guðmundssonar
Miðdals, vel metin heiðrskona, skagfirzk að uppruna, andaðist hér
í bœ sama dag sem Kristján heitinn. Hún var á 55. aldrsári, hafði
verið í hjónabandi með manni sínum síðan 19. Ágúst 1886; þá stóð'
brúðkaup þeirra hér í Winnipeg. Lætr eftir sig uppkomna dóttur
og velmennta með ekkjumanninum. Útför hennar frá kirkju Tjald-
búðarsafnaðar.
í I'urudals-byggð fPine ValleyJ, Man., andaðist merk kona,
Helga Jóhannesdóttir, ekkja Gottskálks Þorvaldssonar, úr Skaga-
firði, 5. Febr., 68 ára (í. 20. Sept. 1842J. Fluttist með Birni syni
sínum til Vestrheims 1887 og bjó fyrst í N.-Dak. Jarðsungin af
séra N. Steingrími Þorlákssyni.
Á almenna sjúkrahúsinu hér í Winnipeg lézt Árni Sigfússon
Gillies 6. Marz, myndarmaðr ókvæntr, úr íslendinga-byggðinni út-
frá Brown-pósthúsi ('Morden-nýlenduJ, Man., um fertugt, — skag-
firzkr að uppruna, sonr hjónanna Sigfúsar Gíslasonar og Rannveig-