Nýi tíminn - 20.09.1951, Page 7
Fimmtudagur 20. september 1951 — NÝI TÍMINN — (7
SAMV
SVIVI
Framhald af 5. síðu.
auðvaldi skyldi takast að koma
saman nýrri styrjöld. Af und-
irdánugri þjónkun ykkar við
glæpahyskið bak við auðstjórn
Bandaríkjanna leiðir aðild ykk-
ar að hverju því verki sem
verst er unnið í heiminum á
vorum dögum: sættirnar við
böðul Splnar, múgmorðin í Kór
eu, samsærið gegn Bandalagi
Sameinuðu þjóðanna sem varð-
veitanda friðar á jörð.
Þið fjötrið efnahagslíf Is-
lendinga 1 ameríska dollara-
hlekki, svo það sé alveg öruggt
að við missum ekki Ameríku
strax og við kynnum að gefa
ykkur upp á bátinn. Það er
sérgrein yðar, hæstvirtur fjár-
málaráðherra, að veltast í ó-
botnandi skuldum. Þið eruð bún
ir að koma því. svo fyrir að
við getum ekki einu sinni reist
okkur smáverksmiðju án þess
að hlaupa fyrst út og suður
um allan heim eftir torfengn-
um leyfum. Þið sláið mánaðar-
lega ykkar eigið heimsmet í
skipulagðri dýrtíð. Þið dragið
úr atvinnuframkvæmdum svo
fólkið verði sams konar aum-
ingjar og þið eruð sjálfir. Eða
livað munduð þér vilja segja
um atvinnuhorfurnar í íslenzk-
um bæjum núna undir veturinn,
herra Eysteinn Jónsson? Og
þær hörmungar í íslenzku at-
virmulífi, sem ekki heyra beint
undir skemmdarverk ykkar,
eiga rætur sínar í hinu gjald-
þrota auðvaldsskipulagi sem
þið hafið tekizt á hendur að
verja til síðasta blóðdropa. Þið
hafið byrjað ofsóknir gegn því
fólki sem liefur aðrar hugmynd
ir um skipan þjóðfélagsmála
en þið hafið játazt. Þannig haf-
Guðimindur biskup góði
Framhald af 3. síðu.
úr Fiatey, tengdasonur Hrafns
Sveinbjarnarsonar lionum úr
höndum óvina lians, og var
biskup síðan á hrakningum um
landið í þrjú ár. Arnór frestaði
utanför sinni til ársins 1221 og
varði biskupi að komast í kyrr-
sæti á Hólum. Yfirleitt átti
biskup ekki náðuga daga eftir
þetta, því að höfðingjar sáu
svo um, að hann fékk aldrei
tækifæri til þess að búast um á
biskupsstólnum, stofna skóla og
■kcma skipan að sinni vild á
málefni kirkjunnar.
Arnór andaðist úti í Noregi,
en Tumi, sonur Sighvats
Sturlusonar, gerðist forystu-
maður Skagfirðinga gegn Guð-
mundi biskupi. Biskup hrökkl-
aðst með lið sitt undan Tuma út
í Málmey, en Tumi bjóst um á
Hólum. Aðfaranótt 4. febr.
1222 komu biskupsmenn á stað-
inn og drápu Tuma. Eftir það
flýði Guðmundur til Grímseyj-
ar, því að hann átti vísa von
greypiLegrar hefndar af hálfu
Sighvats Sturlusonar. Sighvat-
ur fór til eyjarinnar um vorið
m.eð um 350 manna, en biskup
.hafði um 70 vígfqjrum mönnum
á að skipa. Það varð snarpur
bardagi og féll margt af mönn-
um biskups, en hann var sjálf-
ur tekinn höndum og rekinn ut-
an um sumarið „liarðlega leik-
inn af óvinum sínum.“ Þá
stefndi erkibiskup helztu höfð-
ingjum á sinn fund, en enginn
þeirra gegndi stefnunni.
Biskup sat nú í fjcgur ár í
Noregi að nýju, en saina ára-
bil var Iiðið, síðari hanri hafði
kvatt Guttorm erkibiskup.
Erkibiskupi þóttu mál hans
horfa þunglega og skaut þeim
undir dóm páfa, en nú eru að-
eins kunn fjögur orð úr páfa-
bréfinu: ,,Si vult cedere, cedat“,
ef vilji hann víkja, víki hann.
Þessi ummæli munu þýða það,
að páfi taldi eðlilegast, að Guð-
mundur léti af embætti. Svo
fór þó sem áður, að honum
tókst að vinna hylli erkibiskups,
þegar hann hafði kynnzt ullum
málavöxtum, Erkibiskupsskipti
voru tíð í Niðurósi um þessar
mundir, og tafði það allan mála-
rekstur. Árið 1226 hélt Guð-
mundur til ísland með bréf
erkibiskups þess efnis, að emb-
æti var tekið af Magnúsi Skál-
holtsbiskupi og honum og Þor-
valdi, bróður hans, Sighvati
Sturlusyni og Sturlu, syn-i hans,
stefnt utan. Erkibiskup lézt
sama ár, svo að enginn þeirra
gegndi utanstefnunni. Þegar
nýr erkibiskup kom að Niðar-
ósi, voru stefnurnar endurnýj-
aðar, og fór Magnús utan og
sat þar í fjögur ár. Því miður
er lítið vitað um málaferlin
í Niðarósi, en þeim lauk
á þann veg, að hann hélt æmb-
ættinu og kom út meo nýjar
stefnur á hendur höfðingjum,
og embætti var tekið af Guð-
mundi Arasyni. Hann var nú
kominn á áttræðisaldur, svo að
höfðingjum gat ekki staðið
frarnar mikil ógn af honum.
Kolbeinn ungi gerði honum þó
atför á staðinn 1232 og rak
burt allf lið hans, en hneppti
liann sjálfan í varðhald. Þetta
var síðasta ofbeldisverk norð-
lenzkra höfðingja við biskup
sinn. Þegar Magnús Skálholts-
biskup kom út, var Guðmundi
sleppt úr haldi, en embættinu
hélt hann, þótt aldrei næði hann
fullum staðarforráðum á Hól-
um eftir þetta. Tvö síðustu ævi-
ár sín sat hann á staðnum og
lifði þá líkar „hljóðlyndum og
hæglátum einsetumanni en
harðlyndum biskupi sem óvinir
hans höfðu orð á“. Hann and-
aðist 1237 og hafði verið nær
blindur síðasta árið.
ið þið svipt okkur frelsinu, stol
ið af okkur sjálfstæðinu, rænt
okkur viðunanlegum lífskjörum,
myrt gleði okkar. Allt lífið birt
ist ykkur í öfugu ljósi — af
því þið standið sjálfir á haus,
í feigðarflanandi öngþveiti
þeirra þjóðfélagshátta sem
ekki geta framar nærzt á öðru
en styrjöld og stríðsundirbún-
ingi. Þetta hafið þið gert ís-
lenzkri þjóð á undanförnum ár-
um. I dag gangið þið hreyknir
fram undir svörtum tuskufána
auðvaldsins, og hafið byssur á
bak við ykkur. En það verður
ekki hátt á ykkur risið í ís-
landssögu þessara ára.
Við bíðum þeirrar sögu enn
um nokkur ár. Maran mun
troða yður í myrkri margra ó-
kominna nótta,- herra Eysteinn
Jónsson. Og fyrst um sinn verð
ur það átölulaust af minni
hálfu þótt þér hrópið hverju
sinni: Það var ekki ég! Það
var ekki ég sem gerði það I
Ef ýður er þá einhver fróun í
því. Og samt voruð það þér
sem gerðuð. það — þegar öll
kurl koma til grafar. I mynd
yðar hef ég séð íslands ó-
hamingju uppmálaða. Og þess
vegna get ég horft á það ró-
sömu geði hvernig klipptar
fjaðrir yðar sviðna nú í þeim
eldi siðleysis og ófrelsis sem
þér hafið kynt með félögum
yðar hér á landi undanfarin ár
— og er loksins byrjaður að
brenna á ykkur sjálfum. Skugg
inn sem nú grúfir yfir þjóð
vorri og fósturjörð er að síð-
ustu lokum ekki annað en mynd
in af svartadauða auðvalds-
skipulagsins á Islandi.
Bjarni Benedikts. on.
Gimnfeildur kóngamóðir
Framhald af 2. síðu.
arfars og refsinga, og meira
að segja í daglegu tali nútíma-
fólks eru menjar, sem minna á
þær. Við skiljum til dæmis öll
orðatiltækið ,,að kveða niður“
illgjarnan orðróm. Það merkir
að sínu leyti það sama og með-
ferðin á óheiðarlegum karl-
manni — eða ótrúrri konu —
sem voru hæluð niður í vota
gröf sína til að þola ævarandi
refsingu.
(Á enskunni nefnist grein þessi
,,The False Queen Gunhild
from Jutland". Kaflafyrirsagn-
ir eru Þjóðviljans. Frekari
fróðleik um Gunnhildi er að
finna í Áföngum Sigurðar Nor-
dals prófessors).
Skáli NjáEs á BergþórshvoH
fsndinn og frásögn Njálu af
ÞjóðmÍEjavörður, Kristján Eldjárn, hefur nú unnið
við finunta mann á þriðju viku að uppgreftri á Berþórs-
hvoli. Var uppgreftrinum haldið áfram út frá í kulagi
sem fannst í fyrra.
Fundizt hefur öskulag byggingar sem hefur verið
15 metrar á annan veginn en rúmir 4 metrar á hinn. Þyk-
ir stærðin benda til þess að þar hafi skáli staðið og brunn-
ið.
Öskulag þetta er neðst í mannvistarlögunum í jarð-
veginum og þykir þar með sannað að það sé frá uppliafi
byggðar á íslandi. Kemur þessi fornleifafundur heim við
frásögn Njálu af brennunni á Bergþórshvoli.
öskulag þetta fannst rétt vestan við íbúðarhús það
sem nú er á Bergþórshvoli.
################################<##############################i
Folki Valtýs Stefónssonar
þykir gott að hofa kanana
Einhver Peter Jackson sendi blöðum á megin-
landi Evrópu íréttabréf frá Keflavík á íslandi
fyrir skcmmu, og segii þar frá hvernig* 1400.
flugstöðvasveitin og 270. fótgönguliðsregímentið,
aðallega írá Tennessee, só að koma sér fyrir á
vellinum. Kvarta liðsforingjarnir sáran að geta
hvorki fengið til sín bíla sína eða konur, og að
flugstöðin sé enn sem komið er „ákaflega ein-
angruð".
„Sambúðin milli íslendinga og Banda-
ríkjamannanna er yfirleitt góð”, segir þessi
blpssaður Pétur Jakksor. Og hefur ekki slor-
legar heimildir fyrir því.
„Herra ¥a!týr SSefáitsson, dtstjóri dag-
Maðs í Heykjavfk, sagðs mér. að fóíkinu þætti
vænt \m að feafa Eanáaríkjainermina. Eina
andsíaðan kemust frá kemmúnistum, bætti
hann við."
Það var vissara fyrir þennan vin Valtýs að
nefna ekki Morgunblaðið, því alltaf gæti einhver
vitað að það er ritstjóri eins bandaríska blaðsins á
íslandi sem talar, og þau þykja hvergi fínir pappír-
ar er dæma skal um sambúð húsbænda þeirra og
hinna hernumdu þjóoa.
Enda mun sú raunin að Valtýr tali hér ein-
ungis um íólk sitt í þrengstu merkingu, um leppana
og Bandaríkjadindlana, fólkið sem lagzt heíur svo
lágí að svíkja land sitt á vald hinu stríðsóða Banda-
ríkjaauðvaldi. Hitt mun sanni nær að heiðarlegum
íslendingum standi nú cins cg alltaf stuggur af
bví að haía erlendan her í landi, og það her á
frioartímum . Og séu þao allt „kommúnistar" sem
hafa illan bifur á dvöl útlends herliðs á íslandi,
eru þeir áreiðanlega orðnir stærsti flokkur lands-
ins! Og Valtýr varð fyrstur með fréttina!
um gróður-
sjúkdoma
,-Rannsókn á gróðursjúk-
dómum“ nefnist rit er Land-
búnaðardeild Atvinnudeildar
Háskólans hefur gefið út, og
er höfundur þess Ingólfur Da-
víðsson magister.
Er þetta framhald á ritinu
„Rannsóknir á jurtasjúkdóm-
um 1937—1946“, sem kom út
á vegum Atvinnudeildar Há-
skólan.s fyrir fjórum árum.
Aðalkaflar bókarinnar eru
þessir: Sjúkdómar í káli og
rófum; sjúkdómar í skrúðgarði
og skógi; sjúkdómar í blóm-
laukum og hnýðum; jarðar-
berjakvillar; grasdrjólar, rann-
sóknir á kartöflum. — Ritinu
fylgir útdráttur á ensku og
skrá um bækur og tímarits-
greiiiar um gróðursjúkdóma.
Viðskipta jöí nuðurinn
Framhald af 1. síðu.
þús. kr., en á sama tíma í
fyrra voru flutt inn skip fyrir
27.821 þús. kr.
I ágústmánuði var vöruskipta
jöfnuðurinn hagctæður um 4
millj. 686 þús. kr. Fluttar voru
út vörur fyrir samtrds 80 millj.
449 þús. kr., en innflutt fyrir
75 millj. 763 þús. kr.
1 ágústmánuði í fyrra voru
fluttar út vörur fyrir 30.751
þús. lcr. og innflutningurinn
nam þá 43.149 þús. kr. Við-
skiptajöfnuðurinn var því óhag-
stæður um 12.398 þús. kr. i
þeim mánuði.
Stal hökliím úr
dórnk 1 rkjirniii og
keypti brennivíii
Lögreglan í Árósum í Ðan-
mörku er búin að hafa upp á
náunga þeim, sem nýlega stal
þremur höklum úr dómkirkj-
unni þar: Hann hafði laumast
inní kirkjuna í vinnufötum,
þegar verið var að vinna þar
við viðgerð, óg stal höklunum
án þess að eftir því væri tek-
ið. Síðan reif hann þá niður og
seldi og keypti sér brennivin
fyrir andvirðið.
Stjórnarblað lýsir dóms-
málaráðherra
Framhald af 8. síðu.
ar opinskáu lýsingar á manni
þeim sem falið hefur verið
æðsta vald dómsmála Iandsins
— og það einmitt af Framsókn-
arflokknum. Undir manni, sem
annað aðalblað ríldsstjórnar-
innar Iýsir á þessa leið, eiga
íslendingar réttaröryggi sitt!
Og Framsókn lætur bjóða sér
að bora ábyrgð á honum.
Sækja villta hestinn
Dýraverndunarfélag Akur-
eyrar sendi í gær tvo menn til
að reyna að handsama hestinn
sem sást í sumar irini í Jökul-
dal við Tugnafellsjökul. Talið
er ólíklegt að hesturinn fari aif
sjálfsdáðum til byggða fyrir
veturinn ,en álitið er að þetta
sé strokuhestur frá Páfastöð-
um í Skagafirði, ættaður frá
Suðurlandi.