Nýi tíminn


Nýi tíminn - 20.09.1951, Blaðsíða 8

Nýi tíminn - 20.09.1951, Blaðsíða 8
Bjarni Benediktsson- frá Hofteigi: Hin samvirka svívirðing. Sjá 5. síðu. TIMINN Gunnhilrtur kóngamóðir fær uppreisn æru. Sjá 2. síðu. Rússneskt síldveiðiskip dæmt í B þús. kr. sekt fyrir að salta innan landhelgi Nýlega tók varðbáturinu Blátinrtur eitt hinna rússnesk'u síldveiðiskipa í landhelgi úti af Sandgerði. Var skipstjóri hins rússneska skips dæmdur í 8 þús. kr. sekt. skip og hefði hann talið nauð- synlegt að láta i hana meira salt er hún var færð úr köss- um í tunnur. Skipstjórinn var sem fyrr segir dæmdur í 8 þús. kr. sekt eða 50 daga varðhald hafi hann ekki greitt sektina innan fjög- urra vikna. Honum var og gert að greiða sakarkostnað. Skip- stjórinn ákivað ekki 'Strax hvört hann áfrýjaði dóminum, en setti tryggingu fyrir grsiðslu sektarinnar og var því heimilt að fara sína leið. Skip þetta var 2,7 sjómílur innan landhelgislinu úti af Sandgerði, en rússnesku síld- veiðiskipin leituðu þar land- vars um helgina. Lá skip þetta næst landi og annað skip fast við það, lágu bæði fyrir akk- erum. Voru skipverjar áð salta síld á þilfari skips þess er næst lá landi. Kvaðst skipstjór- inn hafa verið að flytja síldina yfir í annað skip, hefði hann tekið hana úr biluðu skipi, en ekki haft pláss fyrir hana leng- ur, og hefði sér því verið sagt að færa hana yfir í annað Tók áletrunina bókstaflega 1 Rudköbing í Danmörku hef- ur maður verið dæmdur í fang- elsi fyrir að stela eða reyna að stela úr samskotabaukum í öllum kirkjum á Langalandi nema einni og mörgum kirkj- um á Fjóni. Sökudólgurinn bar það fyrir réttinum, að hann hefði ekki séð neitt athugavert við að hirða innihald samskota- baukanna, því að á þeim öllum hefði staðið: „Handa fátækum". Sjónvarpstæki eyðileggja úr Útvarpsvirkjar í London, sem unnið hafa við að setja saman sjónvarpstæki, hafa lengi kvartað yfir því, að vasa- og armbandsúr, sem þeir ganga með, séu alltaf að bila. Rann- sókn vár gerð á þessum bilana- faraldi og í ljós kom, að hann stafaði frá sjónvarpstækjun- um. Umhverfis hvert þeirra myndast segulsvið, og það getur verið svo öflugt, að úrin verða segulmögnuð og eyði- leggjast gersamlega. Ekki létu verndaramir á sér standa að bægja frá Reykvík- ingum þeirri ægilegu hættu sem stafaði af rússneska síldveiði- skipinu þar sem það lá á ytri höfninni. Öðara voru komnir tveir bandarískir tundurspillar og lagstir sinn hvoru megin við það. Bókaútgefandi fangelsaður í Verzlunartíðindum farast þannig orð um söluskattinn: „Söluskatturinn er með þrenn um hætti: í heildsölu, í fram- leiðslu og í smásölu. Auk þess hefur hann áhrif til hækkunar álagningar þar eð smásöluá- lagning verður óhjákvæmilega að koma á söluskatt í heildsölu og stundum líka á söluskatt í framleiðslu, og söluskattur í smásölu síðan á þá hvorn fyrir sig og stundum báða. Upphæð söluskattsins í krónum og eft- Sköllóttir geta drengi gigtveikir menn stúlkur Ef sköllóttur maður getur barn eru meirj líkur til að það verði drengur en stúlka. Sé faðirinn hinsvegar gigtveikur eru meiri líkindi til að afsprengi hans verði stúlkur. Þessar niðurstöður og aðrarins og kyns barnanna. Kenninj? fleiri um sambandið milli kyns barna og faðernis þeirra setur vísindakonan Marianne E. Bernstein fram í grein í banda- riska tímaritinu „Science". Hún fæst við þá fræðigrein, sem nefnist lífmælingar, og er fólg- in í því að beita tölulegum rann- sóknaraðferðum við líffræðileg fyrirbrigði. Bemstein dettur auðvitað ekki í hug, að beint samband sé milli skalla eða gigtar föðurs- Smásöluverzlanir um söluskattinn alræmda: Söluskafturinn hækkar víslföluna um uær 5 stig og útsöluverðið um Krafan um afnám hins rangláta og óþolandi sölu- skatts verður æ liáværari og almennari. Samband smá- söluverzlana skýrir frá því í blaði sínu, Verzlunartíðind- um, að það hafi látið rannsaka hver áhrif söluskatturinn hefur á víöitöluna og hafi hún leitt í Ijós að afnám sölu- skattsins myndi lækka vísitöluna um 4,88 stig, og aö hver 5 manna fjölskylda greiði um 864 kr. í söluskatt á ári vegna þeirra vara sem ganga inn í vísitöluna, eða öll þjóðin um 26 millj. kr. — Söluskatturinn reyndist hækka útsöluverð varanna um 8,67%. ir tegundum reyndist sem hér segir: Söluskattur í heildsölu kr. 405,08 eða 2,29 vísitölustig. Söluskattur í smásölu kr. 202,23 eða 1,14 vísitölustig. Söluskattur í framleiðslu kr. 197,27 eða 1,11 vísitölustig. Áhrif söluskatts á álagningu kr. 59,20 eða 0,34 vísitölustig. Samtals kl. 863,78 eða 4,88 vísitölustig. Þannig eru útgjöld hverrar 4,8 mrtnna fjölskyldu kr. 863,78 á ári í söluskatt vegna þeirra vara. sem ganga inn í vísitöl- una. Samsvarar það um 26 millj. kr. á ári, miðað við tölu allra landsmanna um síðustu áramót. M ö. o.: Neytenduf greiða sem þeirri upphæð nem- ur meira fyrir hrýnustu neyzlu- vörur en clla myndi. Þess ber svo vel að gæta, að kaupi neyt- endur samanlagt meira af vísi- töluvörum, sem söluskattur kemur á, en nemur því magni, sem iagt er til grundvallar í vísi'ölunni, hækkar þessi upp- hæð í sama hlutfalli.“ Þessi útreikningur sam- bandsins er miðaður við vísi- töluna eins og hún var 1. ág., og hefur þetta því hækkað síð- an. Kuldmn og kolaverðið Tíminn 22. desember 1949: „í síðasta kuldakasti áttu þau engin kol, svo að þau urðu að hírast i kuldanuni sem var litlu minni í þessu brag;gaskrifli en undir ber- um himni. AHt stokkfraus um nætur . . . drenguiinn tveggja ára gamall hefur tvívegis fengið Iungnabólgu frá því kólna tók í haust.“ „Vatn sem hún hefur í bolla við liöfðalagið frýs á hverri nóttu ef frost er þrjú eða fjögur stig . . . Hún hefur fjórum sinnum fengið lungnabólgu. Kuldinn er svo mikill í þessari „íbúð“ þegar frost er að húsmóðirin verður að fara á fætur tvisvar á nóttu til þess að halda við elrti í ofni í „svefnherberginu" ef ekki á að stofna lífj harn- anna í voða. En nú í haust hefur hún ekki átt kol nema stundum. Þegar ekki er hægt að kynda er slagi svo mikill að sá sem hallar sér upp að þili gegnblotnar ef hann er ekkí sjóklæddur". Þegar þessi lýsing var skrifuð kostaði kolatonnið 240 krónur. Það kostar nú 650 kr. og hefur því hækk- að um 410 kr. eða 171%. Hvernig halda menn að á- standið verði í vetur í léleg- ustu ibúðunum í Reykjavík, þar sem þúsundir manna neyðast til að búa? Að minnsta kosti 360 kr. af okurverðinu á kol- um bein afleiðing gengis- lækkunarinnar, sem fram- kvæmd var undir forustu Framsóknar og með innileg- ustu þátttöku Rannveigar Þorsteinsdóttur. hennar er, að hlutfallið milli kynjanna standi í sambandi við hormónajafnvægið í iíkömum foreldranna, skalla telur hún merki þess að karllegir hor- mónar föðursins séu ríkulegir en gigt bendi til að þeir séu af skornum skammti. Sömuleiðis telur Bernstein að „karlmennskustigið", sem ráði því, hvaða starf menn velji sér, hafi einnig áhrif á kynferði barna þeirra. Hlutfallið milli drengja og stúlkna var sex á móti fimm í 5400 barna hóp, sem áttu fyrir feður her- menn, kaupsýslumenn, stjórn- málamenn, lögfræðinga, bænd- ur eða abstrakt vísindamenn. En hlutföllin voru þveröfug meðal barna, sem áttu að feðr- um menn, sem unnu störf, er konur skara oft framúr í, svo sem leikarar, kennarar, félags- málafulltrúar, skáldsagnahöf- undar og myndlistarmenn. Bernstein lætur undir höfuð leggjast að skýra frá því, hvað verður uppi á teningnum, ef sköllóttur maður með gigt get- ur barn. (Ur Time). Alþlngi kvatt saman 1. okt. Alþingi hefur verið kallað saman til funda mánudaginn 1. október næstkomandi. Verð- ur það sett að aflokinni guðs- þjónustu i Dómkirkjunni sem hefst kl. 13.30. Séra Jón Auð- uns dómprófastur prédikar. Hvað um alúmiiií" umvinnslu hér á landi? Að því er íslenzkur iðnaður, blað F.I.I. segir í síðasta tbl. ha.fa Norðmenn nýlega samið við efnahagssamvinnustofnun- ina í Washington um byggingu aluminíumverksmiðju í Sun- dalsöra í Noregi. Ársfram- leiðsla þessarar verksmiðju á að vera 400 þús. tonn á ári. Stofnkostnaður verksmiðj- unnar og raforkuver fyrir hana er áætlaður 500 milljónir doll- ara og hefur ECA samþykkt að verja megi sem svarar 24 milljónum dollara úr mótvirð- issjóðnum í þessu skyni. Norð- menn fá ennfremur dollaralán frá Danmörku, V-Þýzkalandi og Frakklandi, en frá þessum lönd um fá þeir vélar til verksmiðj- unnar og ætla að greiða lán- ið á næstu 10 árum, að mestu leyti með framleiðslu verk- smiðjunnar. Síðan spyr blað ísl. iðnrek- enda: Hvenær verðnr gengið úr skugga um það, hvort mögu- leikar eru á alúminíumfram- lelðslu hér á tandi? Bandaríkjastjórn hefur látið handtáka Alexander Trachten- berg, stjórnanda bókaútgáfunn- ar Internafional Publishers. Þetta útgáfufélag er gamult og þekkt og gefur aðallega út marxistisk rit. Bandaríkjastjórn hyggst kæra Trachtenberg fyr- ir það, að með því að gefa út bækur Marx og Engels og ann- arra hinna sígildu höfunda Marxismans, hafi hann tekið þátt í samsæri um að steypa henni af stóli með ofbeldi! Þetta er í fyrsta skipti, sem bandarískur bókaútgefandi er settur i fangelsi fyrir útgáfu- starfsemi sína. Stjórnarblað lýsir dómsmálaráð- herra Framsóknar ★ I blaði Steingríms for- sætisráðherra, Hermanns land- búnaðarráðherra og Eysteins fjármálaráðheri'a Var sam- starfsmanni þeirra og dóms- málaráðherra af Framsóknar - náð sent skeyti nú fyrir nokkr- um dögum. Þar er það harð- lega átalið að Bjarni Ben. hafi tekið að clta ritstjóra með innhcimtu meiðyrðasekta. Seg- ir orðrétt í blaði forsætisráð- herrans: ★ „Hitt er alvörumál, að dómsmálaráðherra er hér að brjóta niður hefð, sem hefur skapað ritfrelsinu verulega vernd, Það er líka alvörumál, hvernig ráðherrann beitir eða misbeitir hcfðarréttinum eftir persónulegum geðþótta. I um- ræddu tilfelli afneitar hann hefðarréttinuin og telur lögin liafa ríkara gildi. Þegar hann er hins vegar að láta veita Sjálfstæðishúsinu vínveitinga- leyfi telur hann hefðarréttinn æðri lagaréttinum, því að þá lætur hann þverbrjóta skýr lagafyrirmæli með þeirri rök- semd, að það sé orðin hefð að brjóta þau! Þetta sýnir glöggt, hve núv. dómsmálaráðherra er ósýnt um að breyta réttvísi og rökvísi, heldur fer hann eftir persónulegum duttlunum og flokkshagsmunum. Fleiri enn augljósari dæmi má þó nefna þess, að áhættusamt er að hafa dómsmálastjórnina í höndum slíks manns“. ★ Skyldi ekki hafa farið um einhvern heiðarlegan Fram- sóknarmann \ið lestur þessar- Framh. á 7. síði\

x

Nýi tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýi tíminn
https://timarit.is/publication/883

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.