Nýi tíminn


Nýi tíminn - 19.02.1953, Blaðsíða 5

Nýi tíminn - 19.02.1953, Blaðsíða 5
FLmmtudagur '19 febrúar 1953 — NÝI TÍMINN — (5 Þegar stjóm MÍR bað mig um að segja hér nokkur inn- gangsorð og varð ásátt um að kalla þau: Eru Gyðingaofsókn- ir austan járntjalds? — þá varð mér það fyrst ljóst, hve auð~ valdsáróður nútímans, hið æru- lausa níð um alþýðuríkin, er í raun og veru orðinn fáránleg- ur. Mig hefði aldrei grunað, að ég þyrfti að flytja ræðu með slíkri fyrirsögn. En svo ennis- lágur er rógurinn orðinn, að það virðist sem þess sé þörf. En þessi rógur veitir _ manni þó eina huggun: hann ber vott um, að vopnabúr áróðursins gegn alþýðuríkjunum eru orð- in æði fátækleg, að áróðurshá- vaðinn fer fram á kostnað frumlegra áróðurshugmynda. Þegar öskurapar heimspress- unnar bera þau tíðindi út um heiminn, að kommúnistaflokk- ar austan járntjalds hefji Gyð- ingaofsóknir, þá mundi mann helzt langa til að hlæja að slík- um áburðd, ef hér væri ekki um mál að ræða, sem er allt ann- áð en hlátursefni. Gyðingaof- sóknir okkar aldar eru nefni- lega með þeim hætti, að öll sápa tilverunnar mundi ekki nægja fyrirsvarsmönnum krist- innar menningar til þess að þvo af henni þann blett. En hinu má eklti gleyma í þessu sambandi, að um langan aldur hefur það veri'ð tízka í heimi vestrænnar kristinnar menning- ar, að leggja Gyðingdóm og kommúnisma að jöfnu, að gera verkalýðshreyfingu nútímans og þær byltingar, sem siglt hafa í kjölfar hennar að myrkra- verkum Gyðingdómsins, að þátt- um í fyrirætlun hins júðska kynstofns um að leggja undir sig heiminn. Þessar hiigmynd- ir um samhengi Gyðingdóms og kommúnisma hafa alls ekki verið einkaéign nazismans, þær hafa gengið ljósum logum í borgaralegum flokkum, sem að minnsta kosti þessa stundina telja það heppilegra að áfneitá frændsemi sinni við nazismann. Um 2000 ára skeið hefur Gyðingaþjóðin verið dreifð eins og duft um þessa jörð, tvístr- uð, ofsótt leynt og ljóst, á sí- felldum flótta fyrir fjandniönn- um sínum, einkum og sér í lagi hinum sannkristnu fulltrúum fagnaðarerindisins. En þeita hundelta flóttafólk veraldarsög- unnar hefur senniiega lagt ríf- legri skerf til heimsmer.ning- arinnar en flestar aðrar þjóðir. Gyðingar gáfu kristnum mcnn- um guð sinn, son hans anda helgan og allar ritningarnar. Þetta virðast kristnir menn aldrei ætla aö fyrirgefa þeim. En Gyðingar hafa auk þess unnið mörg mestu afrck, sem um getur í sögunni á sviði vís- inda og lista, og þar sem þeir hafa átt kost á því að slíta þá fjötra, er lagðir voru á þá fyrir sakir þjóðernis þeirra og trúar, hafa þeir orðið boð- berar réttlætisins og rist. djúpt piógfar í þeirri sögu mannkyns- ins, sem fjallar um mannlegt frelsi. Enginn kommúnisti gleymir því, að höfundur hins visindalega sósíalisma, Karl Marx, var Gyoingur að ætt, kominn af rabbínum að iang- feðgatali. Þegar barizt hefur verið fyrir málstað mannsins, hvort sem það var í verkalýðs- hreyfingunni eða í öðrum frels- ishreyfingum mannanna, liafa nöfn júðskra manna jafnan tindrað á festingunni. Þótt ekki væri nema fyrir þá sök. þá er sósíalistum austan tjalds og vestan og öllum frelsisuunandi mönnum skylt að minnast Gyð- inga með þakklæti og virðingu og ganga fram fyrir skjöldu hverju sinni, er gengið er á rétt þessa harmkvælafólks sög- unnar, Sósíalistar og kommún- istar austan járnjalds og vest- an hafa jafnan gert þessa sjálfsög&u skyldu og gera það . enn. í flestum þeim löndum, sem nú eru í hópi hinna sósialísku alþýðulýðvelda, hafa Gyðinga- hatur og Gyðingaofsóknir ver- ið mjög tíðar og ógeðslegar á þeim tímum, er þessi lönd lutu ekki stjórn guðlausra kommúnista, heldur var stjórn- að af sannkristnum mönnum. leikum sem lærðum. Rúss- neska keisarastjórnin var iæri- meistari nazistanna þegar um það var að ræða að afvegaleiða almenning og snúa reiði hans gegn Gyðingum. Þegar Pól- land varð sjálfstætt ríki eft- ir hina fyrri heimsstyrjöld, létu hinar sanntrúuðu og kaþólsku pólsku yfirstévtir það verða sitt fyrsta verk að hef ja ofsóknir gegn Gyðinguni, og minntust svo sinnar frelsis- töku. Og þó var allt þetta barnaleikur samanborið við það, sem síðar varð. Árið 1939 bjuggu 9,600,000 Ovðing- ar í þeim löndum, sem þýzki nazisminn drottnaði yfir á stríðsárunum síðari. Árið 1945 voru eftir í þessum löndum 3,900,000. Meira en hríming- ur allra Gyðinga í Ezrópu hafði verið myrtur. Að þessu vérki stóðu forráðamenn þjóð- ar, sem taldir voru af kristn- um yfirstéttum vestan hafs og austan styrkasta f.amvirki. kristinnar vestrænnar menn- ingar. Og í dag er verið að vopna þetta kristna Þýzkaland á nýjan leik, og enn á ný er okkur sagt, að Vésturþýzka- land sé síðasti útvörður krist- innar menningar, morðingjar Gyðinga ganga þar ekki að- eins lausir, þeir skipa valda- mestu stöðurnar í her iög- reglu, stjórnarvörzlu og at- vinnuiífi Vesturþýzkalands, og um lágnættið ganga nazistar á kirkjugarða Gyðinga þar í landi og raska ró þeirra sem þar hvíla og krota k!ám á legsteina þeirra. Og það eru fulltrúar þessarar menningar, sem dirfast að Ijúga Gyðinga- ofsóknum á alþýouríkin, þau ríki, sem hafa í fyrsta skipti veitt mönnum af júðsku kyni fullt félagslegt jafnrétti í Austurevrópu og hafa öll í stjórnarskrám sínum refsiá- kvæði gegn hverjum þeim, er gerir sig sekan um virkan kynþáttaáróður eða reynir að vekja hatur manna af ólíku þjóðerni innan vébanda ríkis- ins. Það má sannarlega vera auðtrúa sál og sauður, sem getur i alvöru lagt trúnað á svo hundflatan áróður! I raun og veru er ekki orð- um eyðandi að þessum fregn- um um ofsóknir gegn Gýð- ingum í alþýðuríkjunum. Þeg- ar staðhæft er, að alþýðurik- in hafi byrjað Gyðingaofsókn- ir vegna þess, að nokkrir Gyð- ingar hafa orðið sannir aö sök um giæpi gegn guðs og manna stríði. Af henni má einnig sjá, að samsæri auðvaldsríkj- anna gegn heimi sósíalismans fær.st æ í aukana og verður þvi trvllínra sem lengra líður. ' Aiit frá því að Ráöstjórn- arríivín urlu til hefur aldrei linnt á þeírrí viðleitni að g.rafa grundvöllinn undan þjcðíálagj þeirra innan frá. Þcgar ai; ýðuríki'A-Evróþu og. As’u • bæltust við hinn sósí- ahska -h?:m varð sóknin cnn æðisgengnari. Fjandmenn al- þýbuiýðveldanna vita það vel, að þessi riki verða ekki unnin og var veitt 100 millj. dollara fjárfesting, sem nota skal til að veita fé fólki, sem býr í Ráðstjórnarríkjunum og al- þýðulýðveldunum, eða er að fara þaðan. Fénu skal varið til þess að stofna herdeildir með þessu fólki til stuðnings Atlanzhafsbandalaginu „eða til annarra þarfa“. Bandaríski þingmaðurinn Charles Kersten, sem var flutningsmaður frv., bætti því við í ræðu á þingi, að auk þess skyldi verja fénu til þess að „styrkja menn austan Járn- tjaldsins, er kunna að vinna að því að kolivarpa stjórnum kommúnista". Þetta væri að- ferð, er Bandaríkin gætu beitt til þess að hjálpa neðanjarð- arhreyfingum þeim, sem and- vígar eru valdhöfum alþýðu- ríkjanna. Hinn nýi utanríkis- ráðherra Bandaríkjanna, John Foster DuIIes, lýsti því yfir við utanríkismálanefnd öld- ungadeildarinnar hinn 15. jan- úar síðastl., að það yrði að vera fremsta markmið amer- ískrar utanríkisstefnu að ,,frelsa“ hinar undirokuðu þjóðir austan járntjalds. „Við getum framkvæmt þetta án styrjaldar“, sagði hann. ,,Það verður að 'finna önnur ráð til þess að komast að þessu marki." Margir kunnustu og áhrifamestu Ieiðtogar alþýðuríkjanna eru af Gyðingaættum. Hér sjást þrír þeirra: Rakosi forsætisráðherra Ungv'erjalands, Kaganovitsj einn af varaforsætisráðherrum Sövétríkjanna og Ehrenburg, rithöfundurinn heimsfægi sem íékk friðarverðlaun Stalíns fyrir nokkrum vikum. lögum í Ráðstjórnarríkjunum og Tékkóslóvakíu, þá er það álíka sannleikur og staðhæf- ing nazista og þeirra fylgjai'a, að verkalýðsbyltingarnar séu verk Gyðinga, Báðar þessar staðhæfingar bera þjófsmark blekkingarinnar á kinnum sér. Ásökunin um Gyðingaofsóknir í alþýðuríkjunum er einn þátt- ur í því kalda stríði, sem Vesturveldin, Bandaríkin fyrst og fremst, heyja nú gegn heimi sósíalismans. Þessi á- kæra er Ijósasti vottur þess, live hitnað hefur í þessu kalda í heiðarlegri pólitískri baráttu. Það verður aðein3 unnið á þeim með svikum og samsæri og öðrum myrkraverkum. Það vill raunar svo vel til, að hin- ir málglöðu Bandaríkjamenn eiga ákaflega erfitt með að þcgja yfir fyrirætlunum sín- um. Þeir segja hreinsltilnis- lega, frá hlutum, sem ætla mastti að heyrðu undir ríkis- leyndarmál, Jafnvel fjárlög Bandaríkjastjórnar geta ekki þagað yfir þeim. í okt. 1951 voru sett lög í Bandaríkjun- um um Sameiginlegt öryggi Ekki ófínna tímarit en Wall Street Journal gat þess 13. des. síðastl., að það væri stefna Bandaríkjanna austan járntjalds að vinna að skemmdarstarfsemi í verk- smiðjum og atvinnulífi, lauma fölsuðum skömmtunarseðlum og fölsuðum peningum inn í þessi lönd, og stofna svo til uppþota og óeirða. Biaðið' bætti því við, að það væri vax- andi skoðun i utanríkisráðu- neyti Bandaríkjanna, að ef Tékkar, Pólverjar eða Ung-’ 'verjar gerðu uppreisn gegn stjórnum sínum, þá ættu Bandaríkin að skerast í leik- Talið cr að þýzku nazistarnir hafi myrt 6 millj. Gyð- inga. — Nú eru Vesturveldin að hefja teiðtoga naz- ista til nýrra valda í heimalandi sínu, svo að unnt sé að hefja sömu verkin á nýjan Ieik. inn með vopnum, svo sem þau ✓ gerðu í Kóreu. Þegar Bandaríkin eru ekki myrkari í máli um fyrirætlan- ir sínar, þá finnst mér það dá- lítið slcrýtið er menn unörast það, að menn séu dregnir fyr- ir lög og dóm í iöndum aust- an járntjalds. sannir að sök um lahdráð og skemmdar- starfsemi. Og því sterkara sem skipulagið er og þrosk- aðra í þessum löndum, því lík- legra er, að sökudólga megi finna í æðstu stöðum þessara ríkja, svo sem var um Slan- sky, fyrrum ritara kommún- istaflokksins. Menn mega ekki gleyma því, að þvi styj’kari sem alþýðuríkin verða, því hamslausari og ævintýralegri verða þær aöfercir, er auð- valdið beitir til þesg að komn Framhald á 11. síðu.

x

Nýi tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýi tíminn
https://timarit.is/publication/883

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.