Nýi tíminn - 21.05.1953, Blaðsíða 5
---------Fimmtudagur 21. maí 1953 — NÝi TÍMINN — (5
in, og nú síðast andspyrnu-
Að lokinni fyrstu þjóðar-
ráðstefnu gegn her á íslandi,
munum við, — hinn fjölmenni
hópur, sem þar var saman
kominn, — minnast daganna
5.—7. maí sl. sem tímaskipta
að vetri loknum, þegar vor-
dagar fara í hönd, og við
göngum sameinúð til starfs til
þess að vinna að endurheimt
sjálfstæðis landsins, Við mun-
um minnast þess, að nýtt ár
er hafið, hið fyrsta sóknarár
gegn her á Islandi og gegn
íslenzkum forsvarsmöimum
hersins. Við munum telja okk-
ar 365 daga frá 7. maí 1953
og árin eftir því.
Það ríkti svo skær gleði yfir
ráðstefnunni að fátítt mun
vera, og aldrei verðum við
svipt þeirri auðlegð, sem við
gáfum hvert öðru í ósam-
þykktum fyrirheitum um að
standa sameinuð í baráttunni
fyrir málstað íslands og barna
þess. Frá unga piltinum, sem
gaf okkur fyrsta ævintýrið
sitt og til öldungsins, sem í
djúpri alvöru minntist ferm-
ingarheits síns fyrir 60 ár-
tmi og hins helga trúnaðar við
ættjörðina og þjóðina, var
allt, sem fram kom á ráðstefn-
unni mótað einni sterkri meg-
inhugsun: Merki okkar skal
borið fram til sigurs-
' En silfurmerkið Þveræingur
hefur sögulega og sterka þýð-
ingu: Þveræingur hafnaði ekki
vináttu - konungs, en vilcii
ekki kaupa þá_vináttu fyrir
afsal lands í hendur erlends
þjóðhöfðingja. Við Þveræing-
ar, sem göngum í röðum and-
spymuhreyfingairnnar, viljum
vináttu við Bandaríkin, svo
sem aðrar þjóðir, en neitum
að selja þeim eða gefa þeim
iand undir víghreiður eða
veita þei.m önnur réttindi á
íslandi, og við krefjumst þess
afsláttarlaust að hver og eian
einasti bandai’ískur hermaður
hverfi héðan af landinu hið
bráðasta. Merkið táknar því
hug okkar um vináttu við all-
ar þjóðir og trúnað við ínál-
stað ís'ands.
Þveræingi hefur verið fagn-
að af miklum innileika. Öll
rnerki sem við höfðum á boð-
stólum 1. maí, seldust, á svip-
stundu, eða á tveimur klst.,
og daglega hefur selzt jafn-
harðan það, sem komið hefur
frá framleiðanda. Til þessa
dags hefur ekki verið hægt
að sinna pöntunum utan af
iandi, en um miðja vikuna
verða pantanir settar í póst.
^ið höfðum húsnæði, sem
rúmaði 330-340 manns í sæti.
Þegar ráðstefnan var sett, var
hvert sæti skipað, en brátt
var húsnæðið allt of litið fyr-
ir þann mikla mannfjölda,
sem sótti til okkar sem á-
heyrnarfulltrúar undir merki
Þveræings. Menn tóku stöðu
inn með veggjum og í básum
og fyrir aftan sætaraðir, svo
að brátt fylltist út úr dyrum.
Mannflest mun hafa verið á
miðvikudagskvöldið 6. maí,
þegar flutt var samfellda dag-
skráin, sem öll laut að stefnu
og takmarki andspyrnuhreyf-
ingarinnar. Salurinn var troð-
fullur, svo og skipað á gangi
fram að stiga. Munu þá hafa
verið yfir 500 manns áheyr-
endur, en margir urðu frá að
hverfa. Síðasta kvöldið tók
fólk að koma í fyrra lagi til
þess að tryggja sér sæti, enda
reyndist svo sem hin fyrri
kvöldin að troðfúllt var út úr
dyrum.
Það var auðséð, að fólk var
komið liér saman af mikilli
þörf til þess að sjá og kynn-
ast samherjunum, taka þátt í
störfum og tjá sig á marg-
víslegan hátt til nytsemdar
fyrir málefnið. 1 andrúmslofti
ráðstefnunnar lá samhugur og
tilhlökkuei, svo sem við vær-
um að knýtast tengslum til
þess að hefja mik'la sigurför.
Og það var. Frá fyrstu stundu
til hinnar siðustu á þessari
fjölmennu þriggja daga ráö-
stefnu kom ekkert atvik fyrir
sem skyggði á vonir okkar,
— öðru nær. Hver ræða, sem
flutt var og hvert atriði ann-
að á dagskrá okkar, söngur
og önnur hljómlist og upp-
lestur, fékk innilegar og sann-
ar. undirtektir, og oft greip
djúpstæð hrifning alla við-
stadda. I þessu liggur okkai’
mikla fyrirheit um stuðning
allra hugsandi landsmanna vio
málstað okkar.
Við fengum líka hinar ágæt-
ustu gjafir.
Þegar ráðstefnunni lauk
höfðu okkur borizt 15 kvæði
auk einstakra vísna. Það er
scm á skáldin hafi verið
brugðið töfrasprota,' þau rísa
upp hvert af öðru og ljóðin
streyma fram. Þau berast
vestan af Snæfellsnesi, austan
af Reyðarfirði, úr Árnessýslu,
sunnan úr Keflavík og 3 ljóð
voru ort á sjálfri ráðstefn-
unni. Þessi ljóð eru liið mikla
og merkilega fyrirbrigði í ís -
lenzku þjóðlífi. Þau munu
tákna þáttaskil í íslenzkri
ljóðagerð, því að allt stefnir
að því að andlegar uppsprett-
ur þjóðarinnar gangi í þjón-
ustu andspyrnuhreyfingarinn-
ar. Þau eru mörg innblásin
frelsisþörf, þau eru hvatning
og eggjun til dáða, þau eru
skírskótun til helgi landsins
undir stjórn sannra, viturra
og þjóðhollra íslendinga. Jafn-
vel danslagatextarnir, sem við
eignuðumst, eru með hinum
nýja þjó&lega blæ, sem við
viljum setja á allt okkar um-
hverfi. Og fyrsta atómljóðið
höfum við eignazt. Þetta gef-
um við allt út innan tíðar til
þess að kynna þjóðinni hinar
ágætu Ijóðagjafir. Og við höf-
um eignazt lög við mörg lög-
marsinn, sem ungur Vestur-
Isfirðingur færði mér.
Ríkharður Jónsson mynd-
höggvari, einn hinn þjóðleg-
asti listamaður okkar, til-
kynnti okkur, að hann myndi
síðar á árinu gefa andspyrnu-
hreyfingunni fundarhamar,
sem tákn þess, að jafnan
skyldi kveðja til ráðstefciu,
þegar íslandi lægi mikið á,
svo sem nú, en líklegt mætti
telja að á næstu misserum
og næstu árum þyrfti oft að
kalla fylgjendur andspyrnu-
hreyfingarinnar saman til al-
varlegra ályktana og starfa.
Guðmundur Hannesson ljós-
myndari tilkynnti i byrjun
ráðstefnunnar, að hann ætl-
a&i að gefa myndatökur alla
þessa daga á ráðstefnunni,
það væri sitt framlag i fyrstu
við andspyrnuhreyfinguna. —•
Guðmundur tók fjölda ágætra
mynda, sem brátt munu verða
aimeaningi til sýnis. Ef til
vill gefum við út póstkort til
ágóða fyrir starfsemina.
Þá vakti það mikla gleði
er ráSstefnunni barst skjal
undirritað af 25 ungum skáld-
um og öðrum listamönnum,
þar sem þeir heita fullu fylgi
sínu stefnu þeirri, sem and-
spyrnuhreyfingin markar. —
Margir þessara listamanna
eru þjóðkunnir þegar á unga
aldri fyrir ágætan skerf til
menniagar þijóðarinnar. —
Við vitum um fjölda aðra
unga listamenn, sem ætla að
skrifa undir skjalið, svo að
sennilega verða komnir 40-50
á&ur en langt um líður. Um
leið og þeir veita okkur þessa
ágætu viðurkenningu, þá skul-
um við muna nöfn þeirra sem
okkar manna og í hvívetna
standa með þeim og stýðja,
svo sem við erum megnug
hvert á sínum vettvangi. En
að eiga utigu listamannakyn-
slóðina því nær óskipta er
mikil auðlegð. En í því sam-
bandi má líka minnast þess,
að jarðvegurinn, sem þeir eru
sprottnir úr er alþýða lands-
ins, en úr röðum hennar
myndast hin mikla fylking
andspyrnuhreyfingarinnar.
Við fengum mörg éijæt
skeyti, þar sem okkur var
heitið stuðningi frá einstak-
lingum og félögum og árnað
heilla. Og á síðasta fundin-
um bárust okkur peningagjaf-
ir. Áheyrnarfulltrúi, Ingibjörg
Guðmundsdóttir, sendi okkur
500 00 krónur með þeim orð-
um, að þeim skyldi verja tiL
útgáfustarfsemj í þágu and-
spymuhreyfingarinnar, Jó-
hannes Úr Kötlum færði okk-
ur 500,00 krónur frá Hver-
gerðdngum og tveir Austfirð-
ingar 80.00 kr.
Það má nefna fjölmargt,
sem þakka ber: Hina nýju
lúðrasveit verkalýðsins, undir
stjórn Haralds Guðmundsson-
ar 1 og Söngfélagi verkalýðs-
samtakanna, undir stjórn Sig-
ursveins D. Kristinssonar,
söngvarana Kristján Krist-
ján Kristjánsson, Sigurð Ól-
afsson og Láru Magnúsdóttur,
leikkonurnar Gerðd Hjörleifs-
dóttur og Önnu Stínu Þórar-
insdóttur, rithöf. Halldór K.
Laxness og Agnar Þórðarson,
fyrirlesarana alla og fjöl-
marga enn. Við þurftum ekki
að greiöa neinum neitt í pen-
ingum, allt var framlag til
andspyrnuhreyfingarinnar.
Á þriðjudaginn 5. maí kl. 6
síðdegis hófst ráðstefnan með
því að lúðrasveitin og kórinn
léku og sungu: Island ögrum
skorið. Klukkan eitt eftir mið-
nætti, að lokinni langri dag-
skrá og mjklum störfum, beið
mannftöldinn þar til ráðstefn-
unni var slitið og söng allur
þingheimur Ísland ögrum
skorið.
Fyrir skikkan skaparans,
vertu blessaS, blessi þls
blessað nafnið hans
voru síðustu orðin sem hljóm-
uðu í söng á ráðstefounni. Og
við gengum út í húmaða vcr-
nóttina með hin andlegu vopn-
in að veganesti. til þess að
hefja fyrsta sóknarár gegn
her á íslandi og íslenzkum
forsvarsmönnum og með það
heit að standa vörð um ís-
lenzkan málstað.
Göngum glöð og heil iil
starfa. G. M. M.
Svo þéttskipaður var samkomusalur Mjólkurstöðvariimar meðan Þjóðarráðstefnan gegn lier í
landi fór fram. Myndin er tekin annað kvöldið, stundarfjórðungi fyrir miðnætti. —. Guðmundur
Hanncsson tók myndina.
Gunnar M. Magnúss flytur ræðu á ráðstcfnunni