Nýi tíminn - 16.07.1953, Page 4
4) — NÝI TÍMINN — Fimnitudagur 16. júlí 1953
Han.s Hedtoft ber vitni gegn
Hermanni Jónassyni
" ÁHfur íormaSur Framsóknarflokksms
formann danskra sósiqldemókrafa ganga
ennda Rússa þegar hann hafnar banda-
riskum hersföSvum i Danmörku?
FJarátta. íslenzku þjóðarinnar
** gegn bandarísku liernámi
cg þeim innlendu erindrekum
Bandaríkjastjórnar, sem fóru
á bak við ísiendinga og
liieyptu hernum inn í landið
á næturþeli þvert ofan á ský-
laus stjórnarskráratkvæði og
hátíðleg loforð, er farin að
hafa áhrif alla leið út fyrir
landsteinana. Þáð sýna orð
Hans Hedtoft, formanns
danskra sósíaldemókrata, á
þingi flokks hans fyrir stuttu
Hann kvað þá upp úr með það
'eftir' eins' árs hik áð danskir
sósialdemókratar tækju ekki í
mál að afhénda bandarískum
flugher stöðvar í Danmörku
efns cg síendur. Ein af megin
rök.'-emdunum sem hann færði
"fyi’ir þessari. ákvöreun var
reynzlan af bandaríska her-
náminu á Islandi. Þróunina
hér kvað Hedtoft sýna
okkert væri til þe:;s fallnara
en erlent herlið í laadi smá-
þjóðar að vekja almenna and-
stöðu gegn þátttöku 1 Atlanz-
haísbandalaginu.
¥ ærdómsríkt er að bera um-
mæli Hedtofts um erlenda
hcrsetu í Danmörku saman
við “ réttlætingu Hermanns
Jónassoaar á hernámi Islands.
Ráðlierrann hefur undanfarið
birt réttlætingarrollu sína
hvað eftir annað í Tím-
anum og flutti hana svo í út-
vai’pið nýlega. Hermanni
er mjög tamt að vitna til af-
stöðu og reynslu hinna Norð-
urlandaþjóðanna þegar hann
er að reyna að sætta Islend-
inga við setu erlends hers í
landinu. Það er því ekki úr
vegi að athuga, hvernig þessi
rök koma heim við það sem í
raun og veru hefur gerzt og
er að gerast í Noregi og Dan-
mörku, sem ásamt Islandi eru
í Atlanzhafsbandalaginu.
Ræða Hans Hedtofts gerir
slíkan samanburð enn auð-
veldari og tímabærari.
¥¥ermann mótmælti því harð-
* lega í útvarpsræðu fyrir
kosningar að nú væru friðar-
tímar í heiminum. Hang Hed-
toft er á öðru máli. Hann tók
það sérstaklega fram í flokks
þingsræðu sinni, að ein af á-
stæðunum fyrir því að dansk-
ir sósíaldemókratar hafna
bandarískri hersetu er sú að
þeir telja að friðarhorfur í
heimmum hafi vænkazt veru-
lega upp á síðkastið. Noi-ska
ríkLsstjórnin hefur einnig
hafnað bandarískum flug-
stcðvakröfum á þeirri for-
sendu, að Noregur telji sér
enga árásarhættu búna.
Treystir hinn rökfimi Fram-
sóknarráðherra sér til að
skýra það, hveraig íslencfing-
um getur stafað yfirvofandi
háski af rússneskri árás þeg-
ar Danmörk og Noregur, sem
liggja milli Islands og Sovét-
ríkjanna, telja sér enga slíka
hættu búna? Hans Iied.toft
lýsti því meira að segja yfir
að flokkur hans teldi aðgerðir
sovétstjórnarinnar undanfarið
•eina megin sönnunina fyrir
Hedtoft
því að friðvænlega horfi nú í
heiminum.
‘BT’itt af því sem Hermann
Jónasscn hamrar statt og
stöðugt á jafnt í ræðu og riti
er að hernám Bandaríkja-
manna á Islandi bægi árásar-
hættu frá landinu. Ekki telur
Hans Hedtoft þessa kenningu
gilda um Danmörku. Hann
sagði flokksbræðrum sínum,
að vafasöm vernd væri að
bandarískum flugstöðvum í
landinu. Eins líklegt væri að
þær ykju hættuna fyrir Dani
ef til stríðs kæmi og því taldi
hann glapræði að leyfa þær
nema fyrir headi væri ógrynni
annars herafla til að vega
upp á móti þeirri auknu liættu
sem flugstöðvarnar hlytu að
leiða jdir landið. Sama máli
gegnir auðvitað um Island.
Hver maður, sem um málið
hugsar, hlýtur að gera sér
ljóst að viðbúnaður Banda-
ríkjamanna hér miðast við það
að héðan sé hægt að reka
hernaðaraðgerðir ef í odda
skerst en sem vernd fyrir Is-
lendinga, sem eru svo fá-
mennir að hervernd fyrir þá
verður að vera alger ef hún á
að vera nokkurs virði, er hann
einskis verður. En væri slík
alger vernd tekin upp myndi
þjóðin drukkna í flóði er-
lends hers. Islendiagar geta
því vegna sárstöðu sinnar al-
drei sótt neitt traust í vopn
og vígvélar kjarnorknaldar-
innar. Reynsla síðustu styrj-
aldar er alrangur leiðarvísir
um það sem framundan væri
ef friðslit yrðu á þessum
hjara.
Dylgjur Ilermanns Jónasson-
ar um að allir þeir Is-
lendingar, sem ekki vilja er-
lendar herstöðvar í landi sínu,
séu vitandi eða óafvitandi er-
indrekar Rússa og vinni að
því að gera þeim fært að her-
nema landið, eru enn fárán-
legri en áður eftir að Hans
Hedtoft og aðrir danskir sósí-
aldemókratar hafa tekið af-
stöðu gegn bandaríákum her-
stöðvum í Danmörku. Heldur
ráðherrann að honum takizt
að telja nokkrum manni trú
um að danskir sósíaldemókrat
ar séu að vinna að því að land
þeirra verði hernumið af
Rússum? En það verður hann
að gera ef hann ætlast til að
teknar séu alvarlega staðhæf-
ingar hans um að íslenzkir
sósíalistar og aðrir hernáms-
andstæðingar séu verkfæri
Rússa. Herbúnaður Dana
sjálfra annarsvegar og vopn-
leysi íslendinga hinsvegar ger
ir hér engan teljandi mun.
Hershöfðingjar A-bandalags-
ins á Norðurlöndum hafa
hver um annan þveran full-
vissað Dani og Norðmenn
um það að herir þeirra sjálfra
séu einskis megnugir ef til
stríðs komi og því beri þeim
tafarlaust að veita viðtöku er
lendum liðsauka, einkum flug-
her.
l¥íkisstjórn Noregs hefur
hvað eftir annað hafnað
bandarískum herstöðvakröf-
um og nú liafa stjórn-
málaflokkarnir, sem hafa að
baki sér mikinn meirihluta
dönsku þjóðarinnar og hrein-
an meirihluta á þingi lýst yf-
ir andstöðu við herstöðvar-
kröfurnar á hendur Dönum.
Þær eru því úr sögunni.
-Danskir og norskir stjórn-
málamenn hlýða á mál banda-
manna sinna en gera það eitt
sem þeim sjálfum sýnist. Her
mami Jónasson og aðrir for-
vígismenn hernámsflokkanna
hér á landi dansa hinsvegar
nákvæmlega eftir pípu banda-
rísku herstjórnarinnar án
nokkurs sjálfstæðs mats á
því, hvað íslendingum sjálfum
er fyrir beztu. Þess vegna á
andstaða íslendinga gegn her
náminu, sem Hans Hedtoft tel
ur svo lærdómsríka, eftir að
eflast og sigra hvað sem Her-
mann Jónasson og aðrir her-
námspostular kunna á páfa-
gaukavísu að hafa eftir banda
rískum lærifeðrum sínum.
Þótt þeir mæli á islenzku eru
röksemdirnar bandarískar.
M.T.Ó.
FÆaimtjón U. S. A.
Útvarpið í Pyongyang, höfuð-
borg Norður-Kóreu, skýrði frá
því nýlega að manntjón Banda-
ríkjamanna og bandamanna
þeirra í styrjöldinni hefði á'
þrem árum numið 989.000 fölln-
um, særðum og handteknum,
þaraf 380.000 Bandarikjamenn.
Norðanmenn hafa skotið niður
5431 flugvél og sökkt 320 her-
skipum.
Þótt hernámsflokkarnir þrír töpuöu allir fylgi og sam-
eiginlegt tap þei>'ra næmi um 6% af kjósendafjölda lands
ins, er einn þeírra þó sigurvegari í kosningunum: íhalds-
ílokkurinn. Hann hefur nú haft sama hag af ranglátri
kjördæmaskipun og Framsóknarflokkurinn og við blasir
aö hann geti hremmt þrjú þingsæti í viöbót, þótt hann
aaldi áfram aö tapa fylgi í heild. Hann náði í kosning-
unum nýjum þingmönnum í fjórum kjördæmum í viö-
bót, en missti í staöinn tvö uppbótarþingsæti. Sérstak-
lega er athyglisvert aö íhaldsflokkurinn hefur helming
þingsæta í Reykjavík og alla kjördæmakosnu þingmenn-
ma í kaupstööunum utan Reykjavíkur, þar af þrjá nýja í
þessum- kosningum. Völd flokksins eru þannig mest þar
rem verkalýðsfylgið er mest, og er þó íhaldið í miklum
minnihluta 1 kaupstööunum.
Þaö er engum efa bundiö aö atvinnuástandið víða úti
um land hefur íært íhaldinu þenrian árangur. Ástandiö
er mjög hörmulegt á ýmsum stööum, á Siglufiröi, ísafiröi
og víöar, og fjölmargir menn hafa ályktað sem svo að
eina vonin um opinberar aðgeröir væri sú að kjósa íhaids-
mann á þing; stjórnarvöldin vildu ekkert fyrir stjórnar-
andstæöinga gera. En þetta er mjög háskaleg og röng á-
lyktun. Ráðiö til þess aö knýja stjórnarvöldin til skárri
athafna var vissulega ekki að beygja sig fyrir þeim,
heldur hitt aö rísa gegn þeim og neyöa þau til undan-
láta. Þeir sem þekkja sögu verkalýösbaráttunnar vita full
vel að þettaer satt; allir sigurvinnirigar íslenzkrar alþýðu
hafa unnizt eftir harðvítugá og fórnfúsa baráttu, þegar
ihaldsöflin þoröu ekki annaö en ganga til móts viö vilja
fólksins. Þetta mun enn eiga eftir aö sannast.
Þaö er engum efa bundið aö íhaldiö lætur nú kné
fylgja kviöi eftir þennan árangur sinn. Framundan eru
harövítugri árásir á lífskjör og réttindi alþýöunnar en
nokkru sinni fyrr. Svariö viö því er eitt og aöeins eitt:
eining verkalýössamtakanna þrátt fyrir allan skoöanaá-
greining um þjóöfélagshætti. Það verður sem allra fyrst
c.ö afmá völd íhaldsins í verkaiýöshreyfingunni og fylkja
raman öllum auövaldsandstæöingum í eina baráttuheild;
aöeins með því móti veröur hægt að verjast þeim árás-
um sem frarnundan eru, halda íhaldinu í skefjum og
hrekja þáö til undanhalds. Þaö verður aö gera varanlega
þá einingu sem tókst í desemberverkföllunum miklu.
Þaö er engum efa bundið að þetta hefur verið fyrsta
ályktun allra verkalýössinna þegar fregnirnar bárust um
ávinninga íhaldsins í kaupstööunum, og þessari afstcöu
þurfa verkamenn aö halda aö leiötogum sínum. Það hlýt-
ur t.d. að hafa einkennileg áhrif á lesendur Alþýðublaðs-
ins iú’ verkalýösstétt aö lesa þar þessa dagana óraunhæft
bláður um kosningaúrslitin, þar sem talaö er um „sigra“
Alþýðuflokksins:, þótt aliir viti að fylgi flokksins í Iandinu
liefur lækkað úr 16,5% í 15,5% og aö hann hsfur misst
traustustu vígi sín, Hafnarfjörö og ísafjörð, til íhaldsins.
Lesendunum mun nær skapi aö spyrja Hanníbal Valdi-
marsson og félaga hans: Ætliö þiö enn að halda áfram að
hlaöa undir íhaldiö í verkalýðshreyfingunni og ala þannig
tylgismennina upp til þess aö kjósa íhaldið? Þáö verður
krafizt raunliæfra svara af Alþýöuflokksleiötogunum viö
þeirri spurningu.
Einirig verkalýðssamtakanna gegn íhaldinu er eitt mik-
ilvægasta verkefnið sem nú er framundan. Kosningaúr-
slitin hafa opnað augu þúsunda manna fyrir nauösyn
emingarinnar. íslenzkri verkaiýöshreyfingu ríöur nú á aö
þora að horfast í augu viö veruleikann af fullri djörfung
og raunsæi og hegöa sér í samræmi við þaö.
Síldarveróið ébreftt:
Atvinnumá'aráðherra liefur ákveðið bræðslusíldarverðið í sum-
ar kr. 60.00 fyrir málið samkvæmt einróma tir.ögu stjórnar Síld-
arverksmiðja ríkisins. Er það sama verð og: síðast liðið sumar.
AS þessu sinni er ekki gert ráð
fyrir greiðslu á afborgunum á
nýju síldarverksmiðjunum á
Siglufirði og Skagaströnd og
hækkar bræáslusílduarverðið af
þeim sökum frá áætlunarverði um
kr. 5,31 hvert mál sildar eða úr
kr. 54,69 upp í kr. 60,00.
Viðskiptamönnum Síldarverk-
a
smiðja rikisins er einnig heimilt
að leggja síldina inn til vinnslu,
ef þeir segja til þess fyrir 7. júlí
n. k. og fá þá greitt 85 prósent af
áætlunarverðinu, krónum 54,69,
þ. e. kr. 46,49 við afhendingu og
endanlegt uppgjör síðar, þcgar
reikningar verksmiðjanna hafa
verið gerðir upp.