Nýi tíminn - 17.09.1953, Page 6
6) — NÝI TÍMINN — Fimmtudagur 17. septembcr 1953
NYl TlMINN
Útgefandi: Sameiningarflokkur ail>ýðu — Sósíalistaflokkurinn.
Ritstjól’i og ábyrgðarmaður: Ásmundur Sigurðsson
Áskriftargjald er 25 krónur á ári.
Greinar í biaðið sendist til ritstjórans. Adr.: Afgreiðsla
Nýja tímans, Skó'avörðustig 19, Reykjavík ,
Afgreiðsla og auglýsingaskrifstofa Skólav.st. 19. Sími 7500.
Prentsmiðja Þjóðviljans h.f.
>____________________________________________________________________y
Breytt Nernámsstjórn
Eftir mijkið þóf og þrengingar hefur verið mynduð ný
ríkiistjórn, og hún er auðvitaö skilgetið afkvæmi kosn-
inganna í sumar. í þsim kosningum lýsti mikill meiri-
híuti þjóðarinnar yfSr fylgi við flokka þá sem kallað
höfðu yfir þjóðina hernámið og rýrt kjör almennings
jafnt og þétt með veröhækkunum og stórfeildu atvinnu-
Jeysi, sem nú hefur breytzt í hernaöarframkvæmdir
meöan innlendar athafnir eru látnar sitja á hakanum.
Hin nýja stjórn |mun halda þessari stefnu áfram með
einhverjum minniháttar tilbrigðum.
En þó hafa orðiö nokkrar athyglisverðar breytingar
frá íyrri hernámsstjóminni.
Björn Ólafsson, einn óvinsælasti auömaður landsins,
er látinn víkja eftir hörð átök innan flokksins. í ríkiis-
stjórninni var litið á hann sem sérstakan fulltrúa heild-
salavaldsins innan Sjálfstæðisflokksins, enda hegöaði
hann sér samkvæmt því, beitti sér fyriir afnámi verð-
lagsákvæða, tryggði hömlulausan innflutning á hvers-
kyn? gróðaskrani og lagði íslenzkan iðnaö sérstaklega í
einelti til þess aö heildsalarnir heföu sem mest áð flytja
inn, í kosningunum í sumar var Björn strikaöur út á
niiklum fjölda seðla, og nú hefur verið talið ráölegast
að varpa honum fyrir borð. Með þessu er þó engan veg-
jnn sagt aö eftirmaðurinn víki í nokkru út af hinujm
óskemmtilega ferli fyrirrennara síns.
Önnur breyting er sú að Bjarni Benediktsson hefur
verið sviptur utanríkismálunum. Hann hefur haft þau
með höndum aila tíð síðan ríkisstjórn Stefáns Jóhanns
Steíánssonar var mynduö og hann hefur litið á þau
sem aðaiverkefni sitt, enda hefur hann haft mikla forustu
í þeirri landráðaþróun sem mótað hefur íslenzk utan-
rikismál um sjö ára skeið og orðið sérstaklega illræmdur
fyrir lítilmótlegustu þjónustusepni og flaöur. Þáö er per-
sónuiegt áfall fvrir Ejarna Benediktsson að láta þessi
mál af höndum, og þó mun hann hafa gert sér fullljóst
að það var skynsamlegasti kostur hans. Óvinsældii' her-
námsins hafa farið sívaxandi, einnig innan stjórnarflokk-
anna, og hernámið var oröið persónugért í Bjarna Bene-
diktssyni. Þess vegna flýr hann nú úr starfinu. Hann
gerir það þeim mun rólegri sem hann hefur þegar lokið
þeim störfum sem honum voru falin í upphafi, og her-
námssteínunni verður ekki haggað af þessari stjórn. Hinn
nýi ráðherra fær ekke.i t svigrúm til neins nema einhverra
sýndarráðstafana, en hann á að mæta vaxandi andstöðu
þjóöarinnar í stað Bjarna! Það er nokkur huggun fyrir
persónulegan ósigur.
í þriðja lagi hverfur Hermann Jónasson úr stjórninnii.
Á síðasta ári tók hann þann kost aö gerast hávaðasam-
asti málsvari hernámsstefnunnar. Hann fór hamförum af
ofstæki í verkföllunum miklu í vetur, utm áramótin bar
hann fram tillögu um þaö áö stofnaður yrði innlendur
her til að berja á verkiýðsfélögunum, og fyrir kosningarn-
ar tók hann aö sér það hlutverk að verja hernám landsins
sérstaklega í útvarpsumræöunum. Uppskeruna fékk hann
í kosningunum, stórfellt tap Framsóknar og enn víð-
tækari upplausn og urg innan flokksins. Brottför Her-
manns úr stjórninni ér flótti, hann þorir ekki áð halda
áfram hinn hávaðasömu málsvörn sinni fyrir hernáms-
stefnuna og hyggst nú efiaust hefja bros til vinstrii til
þess að friða hina óánægöu fylgismenn sína. Þó munu
honum ganga þau umskipti erfiðlegar nú eftir þá reynslu
sem fengin er af koilveitum þessa misvitra stjórnmála-
leiðtoga.
A'lar eru þessar breytingar athyglisvert undanhald
hernámsflokkanna, sem gera sér Ijóst að fylgistap þeirra
í kosningunum var vísbending um margfalt víðtækari
andstöðu. Þetta undanhald er enn í smáum stíl. En það
geturorðið stórvægilegra ef unnt verður að koma á sam-
starfi andstæðinga stjómarstefnunnar, því til þessa hef-
ur sívaxandi sundmng vinstri aflanna verið skæðasta
vopn afturhaldsflokkanna.
ER VERID AÐ SPOTTAST AÐ ÍSLENZKUM BÆNDUM?
Herraþjóðin eyðilagði í meðf örunum úr-
valsmjólkina sem ísL bændnr framleiða
En jbaS er hervörSur / mjólkursföSinni til
að hindra að bœndur fremji vörusvik!!
Er því líkast sem takmark Bandaríkjamanna með
mjólkurkaupunum sé það eitt að lítillækka ísl.
bændur.
íslendingar sem vinna hjá Iiamiltonfélaginu á
Keflavíkurflugvelli hafa fengið eftirminnileg kynni
af gömlum og skemmdum bandarískum mat sem
herraþjóðin hefur boðið þeim til neyzlu. Það vakti
því almenna ánægiu meðal þeirra þegar byrjað var
að flytja þangað íslenzka úrvalsmjólk. Sú ánægja
stóð þó ekki lengi því herraþjóðin meðhöndlaði úr-
valsmjólkina þannig að hún er orðin að óþverra
begar hún er borin íram til neyzlu.
U.S.A.-ltusa.
Þær gyllivonir sem mörgum
höfðu verið gefnar um að með
komu bandaríska hersins til
landsins myndi opnast mark-
aður fyrir íslenzkar framleiðslu
vörur reyndust, eins og allt
annað sem hernámsflokkarnir
reyndu að afsaka hernámið
með, falsvonir einar.
Þar til rétt fyrir kosningarn-
ar s.l. sumar að bændur hér
í nágrenninu fengu heimsókn
af liáttsettum bandarískum
foringja, dýralækni frá Kefla-
víkurflugvelli. Skoðaði hann
kýreiga bænda með spekings-
svip og merkti þær útvöldu
meðal kúnna með stöfunum
U.S.A. Varð einhverjum sveita-
manni þá að orði að líklega
fylgdi allri alvöru eitthvert
gaman.
Herraþjóðarverðirnir í
Mjólkurstöðinni.
Svo liðu kosningar og ekkert
bar til tíðinda í kusumáli land-
söluflokkanna, þar til settar
voru upp nýjar vélar í Mjólk-
urstöðinni og einn daginn birt-
ist þar vörður frá bandariska
hernum til að gæta þess að úr-
valsmjólkin rynni á herraþjóð-
arflöskurnar.
Mjólkurframleiðsia undir
herverði.
Var þá svo komið að ísjenzk-
ir bændur voru látnir fara að
framleiða rhjólk undir erlend-
um herverði. Þótti það sjálf-
stæðismerki mikið í herbúðum
Tímamanna og Moggaliða og
óræk sönnun um fullveldi þjóð-
arinnar. Hvað bændur hafa al-
mennt hugsað er ekki getið.
Annaðhvort eða
Það er ævinlega eins og kom-
ið sé við kviku Morgunblaðsins
ef sannleikurinn er sagður um
Bandaríkjamenn. H:nu banda-
ríska málaliði við Morgunblað-
ið finnst ekkert sjálfsagðara
en kýr á íslandi séu merktar
bandarískum, settar upp sérvél-
ar til að framleiða úrvalsmjólk
fyrir bandaríska — og hafður
strangur vörður frá hernum
um að bændur svíki ekki jafn
göfuga þjóð.
Um hitt verður eliki deilt að
stjórnarvöld hernámsflokkanna
hafa með fyrirkomulaginu á
mjólkursölunni til hersins við-
urkenni það bandaríska sjónar-
mið að mjólkin sem islenzkir
bændur framleiða sé ekki boð-
leg vara. Jafnframt felst í
samningi þessum að engu skipti
um íslenzk börn, aðeins sé
heilsu herraþjóðardátanna í
Keflavik borgið — því hvergi
hefur þess verið getið að stjórn-
arvöldin hafi krafizt strangari
vöruvöndunar við framleiðslu á
mjólk fyrir íslenzk börn.
Annaðhvort hlýtur að vera
rétt, h:na bandariska skoðun að
íslénzk mjólk sé almennt ekki
boðieg vara, eða að kröfur
bandarískra um mjólkurfram-
leiðsluna séu gikksháttur einn.
Starfsmaður hjá Hamilton
hefur orðlð.
Þjóðviljinn hefur liaft fregn-
ir af hraklegri meðferð herra-
þjóðarinnar á íslenzkri mjólk —
eftir að bændur hafa verið látn
ir leggja fram mikla fyrirhöfn
og kostnað við sérstaka vöru-
vöndun.
Nýlega birti Þjóðviljinn um-
sogn mar.ns sem starfað hef-
ur í mötuneyti bandarískra á
Keflavikurflugvelli. Hún er
þannig:
„Ég undirritaður réðist til
starfa í mötuneyti Hamiitonfé-
lagsins á Keflavíkurflugvelli þ.
12 júlí 1953, og voru störf mín
almennar hreingerningar. Þar
sem starfsemi þessi mun heyra
undir íslenzk lög vakti það
undrun mína, að læknisskoðun
var aigin framkvæmd á starfs-
fólkinu.
Um þessar mundir var þarna
í mötuneytinu aðeins á boð-
stólum amerisk mjólk, niður-
soðin, sem Islendihgunum þótti
vond, vegna óbragðs sem að
henni var. en hún. var þó tölu-
vert drukkin. þar eð hún þótti
meðal þess bezta sem þarna
var framreitt".
Sú dýrð stóð ekki lengi.
„Se'nna var svo tekið að hafa
þarna á borðum íslenzka mjólk
í pelaflö.skum, og var því mjög
fagnað af íslendingum. Þessi
mjólk var flutt í kæli í mötu-
neytinu strax þegar hún kcm
°g géymd þar til hún var bor-
in á borð í luktum flöskum. En
mjög fljótlega fór að bera á
því að tekið var að tæma sumt
af flöskunum í ílát í eldliúsinu
cg bera mjólkina á borð í könn-
um, og síðan að mjólkin var
pöntuð í hálfslítra flöskum eru
allar flöskurnar tæmdar á und-
an máltíðum".
Herraþjóðarhreinlæti
„Flöskurnar eru tæmd-
ar af ólæknisskoðuðu
fólki, sem kemur til þessar-
ar vinnu frá hverskonar öðr-
um störfum og skiptir ekki
fötum fyrst. Mjólkin er
tæmd í stóra alúminíum-
potta, sem á miili eru notað-
ir á ýmsan hátt við mat-
reiðsluna og þvegnir upp
mjög lauslega á íniili. Þegar
ílát þessi eru ekki í notkuu
starda þau cða hvolfa á
rimlabekk sem sjaldan er
þveginn og ber þess merki.
Bekkurinn stendur imdir
glugga, sem gler er ekki í,
en rimlar. Útilyrir er fjöl-
farin gata með miklu ryki.
Ekki veit ég til að ílátin séu
skoluð á undan notkun“.
Hrátt kjöt — salerni —
léleg loftræsting
„Þar sem mjólkin er tæmd
úr flöskucúm er einskonar
almcnningur, þar sem öllu
ægir saman, ætu og óætu, og:
miki! umferð er af gangandi
fólki. Rétt hjá, í sama her-
bérgi, er hrátt kjöt sem ver-
ið er að þíða og vinna við,
og inngangurinn á salernin
er fáa metra í bnrtu, en til
skamms tíma var alls eiigin
loftræsting á þeim. Almcnnt
mun vera frá 20-30 stiga
hiti og megn lykt af matar-
b:rgðum og ólcft frá eld-
húsinu, því að loftræstingu
er mjög ábótavant i eldhús-
inu, eítir íslenzkum mæli-
kvarða“.
Ausið úr óbyrgðum pottum.
„Þegar búið er að tæma
mjólkina í alúminíumpottana
eru þeir bornir í mátskálaná,
og standa þar í megnum hita
frá eldhúsinu og diskaþvotta-
herbergjuoum, í óbyrgðum pott
um, sem ausið er uppúr i smá-
könnur sem bornar eru á borð-
in. Þá er mjólkin orðin volg
og cftast nær komið að henni
óbragð.
Reykjavík 8.9 1953
Ejnar Petcrsen frá KIeif“.
Gikksháttur eða heilsu-
gæzla.
Ekki verður annað séð en
vcrið sé að ovirða íslenzka
bændur og hafa þá að fiflum
með því að láta þá leggja á
sig sérstaka fyrirhöfn til að
framleiða úrvaísmjólk, og her-
vörður settur til höfuðs þeim
svo þeir svíki ekki vöruna!
fyrst hún er þannig ineðhöndl-
uð af herraþjóðinni.
Bændur munu sjálfir einfær-
ir að dæma um hvort kröfur
bandarískra varðandi mjólkina
eru sprottnar af umhyggju
bandarískra fyrir heilsugæzlu
eða gikkshætti þeirra og áhuga
fyrir að lítillækka íslenzka
bændastétt.