Prentarinn - 01.01.1980, Síða 1
1.-4. ’80
o
STEFÁN
ÖGMUNDSSON
kjörinn heiðursfélagi
Hins íslenzka prentarafélags
A aðalfundi félagsins 10. mai 1980 var Stefán
Ögmundsson kjörinn heiðursfélagi HÍP. í hófi
sem stjórn félagsins hélt Stefáni af þessu tilefni í
félagsheimilinu flutti formaður félagsins, Ólafur
Emilsson, eftirfarandi rœðu:
Góðir félagar.
Á síðasta aðalfundi var Stefán Ög-
mundsson kosinn heiðursfélagi Hins ís-
lenzka prentarafélags. Tillögunni var fylgt
úr hlaði með því að upp voru talin helstu
störf, sem Stefán hefur gegnt í þágu félags-
manna og verkalýðshreyfingarinnar. Þó að
stiklað væri á stóru var lesturinn langur því
víða hefur Stefáns notið við.
Hann gerðist félagsmaður 22. ágúst 1929.
Þá hafði hann verið í fyrstu stjórn Prent-
nemafélagsins, sem var stofnað 1926, og
sýnir það að fljótt hefur vaknað áhugi hans
fyrir félagsmálum.
í stjórn Prentarafélagsins kom hann sem
meðstjórnandi 1932 og hefur síðan gegnt
mörgum störfum í stjórn og nefndum
félagsins. Formaður var Stefán 1944—1945
og 1947, ritari 1965—1969, formaður fast-
eignanefndar 1943. ritstjóri Prentarans 1931
og 1932, formaður bókasafnsnefndar frá
1945, og í trúnaðarmannaráði (fulltrúaráði)
frá stofnun þess 1969.
Stefán var helsti hvatamaður þess að
keypt var orlofssvæði til útivistar fyrir
félagsmenn. Hann hefur og skrifað mikið
um málefni félagsins í Prentarann, m.a.
rakið í afmælisblöðunum gang kjaramál-
anna síðustu áratugina.
Sem fulltrúi félagsins hefur Stefán notið
mikils trausts innan verkalýðshreyfing-
arinnar og orðið félaginu til álitsauka þar
sem hann hefur komið við sögu. Varaforseti
ASÍ var hann 1942—1948, í stjórn Lista-
safns ASÍ frá stofnun 1961. formaður milli-
Stefán flytur ávarp sitt.