Prentarinn - 01.01.1980, Blaðsíða 2

Prentarinn - 01.01.1980, Blaðsíða 2
Ólafur Emilsson, formaður HfP afhendir Stefáni heiðursskjalið. milliþinganefndar ASÍ um fræðslumál og formaður Menningar- og fræðslusam- bands alþýðu frá stofnun 1969. Hér verða ekki rakin frekar öll þau trúnaðarstörf önnursem Stefán hefur gegnt, en það er ljóst af framangreindu að Stefán hefur ekki setið auðum höndum það sem af er og engin ástæða að halda að þar verði breyting á, sem betur fer. Það gefur einnig auga leið, að sá sem svo er mikilvirkur eins og Stefán, verður að njóta mikils skilnings hjá nærkomnum og ég hygg að leitun sé að eins skiln- ingsríkum lífsförunaut og Stefán hefur haft, þar sem er kona hans, Elín Guðmunds- dóttir. Henni á félagið einnig margt að þakka í gegnum árin. Við vitum líka öll, að þeir sem láta að sér kveða, eins og Stefán hefurgert, hvortsem það er í Prentarafélaginu eða á öðr- um vettvangi í þjóðlífinu, eru umdeildir menn. En það er mikilla manna að láta slíkt ekki hafa áhrif á gerðir sínar, heldur vinna af einurð og ósérhlífni að framgangi hugmynda sinna. Og hver og einn uppsker eins og hann sáir. Því er það að Stefán Ögmundsson var kosinn heiðursfélagi Hins íslenzka prentarafélags. Að svo mæltu vil ég biðja þig, Stefán Ögmundsson, að koma hér og veita viðtöku skjali, undirrituðu af stjórn félagsins, sem vottar að þú ert heiðurs- félagi Hins íslenzka prentara- félags. Þegar formaður hafði flutt sina rœðu og afhent Stefáni heiðursskjalið tók Stefán til máls og sagði: Kæru félagar. Mér er í raun og veru mikill vandi á höndum, þegar ég vel þakkarorð fyrir þá viðurkenn- ingu, sem félag mitt er að veita mér. Ég er sem sagt óvanur öllu slíku sem þessu. Hef þó síður en svo farið varhluta af gæða- stimplum af ýmsu tagi. Ég vil segja ykkur það nú á þessari sérstæðu stund að enn er ég sömu skoðunar og fyrr um það, hvað vandmeðfarin er öll viðurkenning á störfum og verðleikum fólks. Ég þykist t.d. vita það manna bezt, að það sem á skortir verðleika mína er mikið. Einkum á það við um þau störf sem ég aldrei vann. Allt sem ég á ógert, og hefði viljað vinna félagi okkar en mun aldrei leysa af hendi. Hið islenzka prentarafélag er mitt félag í þeim skilningi að markmið þess og störf hafa verið samofin lífi mínu og minna, allar götur síðan ég lærði Helgakver undir fermingu á altaninu í Gútenberg 13 ára gamall. Þessvegna er það, að ég met viðurkenningu H.Í.P. á störfum mínum meir en nokkurs annars aðila í þjóðfélagi okkar. Þessvegna er mér það kærara en orð fá sagt, að taka við sæmd frá ykkur mér til handa og þá ekki síst úr hendi þess manns, sem nú er formaður H.Í.P. Vegna alls þessa er ég ykkur þakklátur fyrir þá viðurkenn- ingu, sem ég veit mesta og besta. Heill sé ykkur og félagi okkar og þeim, sem eiga eftir að bera hugsjónir þess fram á veg- inn. 2 — ^reníarinn

x

Prentarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Prentarinn
https://timarit.is/publication/732

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.