Prentarinn - 01.01.1980, Blaðsíða 14

Prentarinn - 01.01.1980, Blaðsíða 14
verðsins og greiðsluhætti og að endurskoðaðar verði reglur um greiðslu stofnkostnaðar. í fimmta og síðasta lagi er þess krafist að verkalýðsfélög verði undanþegin ábúðar- skyldu. Ljóst er af framansögðu að ýmislegt er að gerast í þessum málum hjá ASÍ og vonandi tekst vel til eins og við vonuðum þegar bréf okkar var sent í upphafi. Erlend samskipti Ársfund NGU, sem haldinn var í Svíþjóð, sótti Ólafur Emilsson. Hann sótti einnig IGF-þingið sem að þessu sinni var í Stokkhólmi 8. —12. okt. s.l. Þing Danska prentarasam- bandsins sótti Hafsteinn Hjaltason og þess norska Ólafur Björnsson. Á vegum NGU voru haldnar tvær ráðstefnur. Sú fyrri var í Noregi um atvinnuöryggi o.fl. og hana sótti Þórir Guðjónsson. Hin var í Danmörku og var um tölvutækni o.þ.h. Hana sóttu Ólafur Björnsson og Magnús Einar Sigurðsson, sem var einn framsögumanna. Félagadeildir í höfuðborgum Norðurlanda héldu fund í Finnlandi. HÍP var boðið að eiga þarna áheyrnarfulltrúa og var Ólafi Emilssyni falið að sækja fundinn. Sameiningarmálin Eins og fram kom í inn- gangsorðum þessarar skýrslu má segja að starfsárið hafi ein- kennst öðru fremur af þeirri vinnu sem innt hefur verið af hendi í sameiningarmálum. Um þessi mál hefur verið fjallað á tveimur félagsfundum, „opnu húsi“ og á sérstökum kynn- ingarfundi þar sem samein- ingarnefndin skilaði tillögum sínum. Þar gerði nefndin grein fyrir því hvaða umfjöllun breytingarhugmyndir HÍP fengu. A þessum aðalfundi liggur fyrir félagsslitatillaga sem sér- stakur dagskrárliður og því ekki rakin hér frekar sameiningar- málin. Rétt þykir þó að minna á, að 222 félagsmenn úr öllum þrem- ur félögunum sendu stjórnum félaganna áskorun um að láta sameininguna gerast sem allra fyrst. Vinnustaðasamningar? Eftirfarandi barst stjórninni: „Reykjavík, 17. október 1979. Til stjórnar hins íslenska prentarafélags. Að undanförnu hafa starfs- menn Morgunblaðsins og Myndamóta rætt möguleika á gerð heildarkjarasamnings milli starfsmanna annars vegar og fyrirtækjanna hins vegar. Und- irbúningsnefnd fulltrúa starfs- hópa innan fyrirtækjanna hefur haft með höndum könnun og kynningu málsins, og er nú komið í ljós að eindreginn vilji beggja aðila er fyrir því að koma á slíkum heildarsamn- ingi. 2. október s.l. efndi Starfs- mannafélag Morgunblaðsins og Myndamóta, til fundar þar sem meirihluti starfsfólksins var samankominn. Á fundinum var eftirfarandi ályktun samþykkt einróma: „Félagsfundur Starfs- mannafélags Morgunblaðs- ins og Myndamóta, haldinn að Hótel Loftleiðum 2. október 1979, samþykkir að fela nefnd fulltrúa og trúnaðarmanna starfshópa innan fyrirtækjanna að halda áfram viðræðum um gerð heildarkjarasamnings við Morgunblaðið og Myndamót í samráði við hlutaðeigandi stéttarfélög.“ í framhaldi af þessu leyfum við okkur í umboði félaga í Hinu íslenska prentarafélagi hjá Morgunblaðinu, að fara þess á leit við félagið, að það samþykki fyrir sitt leyti að sam- ið verði sérstaklega um kaup og kjör félagsmanna við fyrir- tækið, í grundvallaratriðum eins og tíðkast hefur hjá ís- lenska Álfélaginu og viðsemj- endum þess, enda hafi hver starfshópur neitunarvald gagn- vart samningnum og afsali sér engum réttindum. Væntum við þess að stjórn Hins íslenska prentarafélags fjalli um erindi þetta svo fljótt sem kostur er, þannig að svar hafi borist eigi síðar en 17. nóvember næstkomandi. Virðingarfyllst, Baldur Garðarsson, Viðar Janusson. Þessu bréfi svaraði stjórnin á þessa leið: „Félagsmenn HÍP við Morg- unblaðið — Trúnaðarmenn, Baldur Garðarsson, Viðar Janusson. Reykjavík, 21. nóvember 1979. A fundi stjórnar Hins ís- lenzka prentarafélags, 13. nóv. s.l., var til umfjöllunar bréf ykkar dagsett 17. október s.l. Stjórn félagsins heimilar fyrir sitt leyti, að haldið verði áfram að kanna hvort grundvöllur sé fyrir gerð svokallaðs „vinnu- staðasamnings“ á Morgunblað- inu, ef eftirfarandi skilyrðum er fullnægt: 1. Stjórn HÍP eigi fulltrúa í öllum viðræðum þar sem hugsanlegur vinnustaða- samningur er til umræðu, jafnt við mótun krafna og í 14 — ^rentarfnn

x

Prentarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Prentarinn
https://timarit.is/publication/732

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.