Nýi tíminn - 22.07.1954, Síða 11
Fimmtudagur 22. júli 1954 — NÝI TlMINN — (II
CH3PLIN
Framhald af 9. síðu.
mitt. Hvað sem fyrir kemur
býst ég við að snúa aftur til
Kaiiforníu að vörmu spori, en
þar hef ég bráðum átt heima
í fjörutíu ár. Atvinna mín
heimtar mig heim. Eg er mjög
ánægður með að vera kominn
til Evrópu, en ég mun ekki
hætta við neinar framtíðar-
áætlanir mínar.
Enn einu sinni var hann
spurður um stjórnmálaskoðan-
ir sínar.
Eg er ekki stjórnmálamaður.
Eg er fyrst og fremst einstakl-
ingshyggjumaður. Eg trúi á
frelsið. Það er mín stjórnmála-
stefna. Eg styð málstað mann-
kynsins. Það er eðli mitt. Eg
lit ekki á mig sem neinn ákaf-
an föðurlandsvin. Þjóðrembing-
ur leiðir til hitlerisma.
Allmargir blaðamanna virt-
ust hafa að markmiði að afla
vitneskju er létt gæti Mac
Granery rannsókn hans. Spurn-
ingum þeirra linnti, en þá tóku
aðrir við og spurðu Chaplin
um list hans.
Dauði minn mun einn fá
mig til að hætta að búa til
kvikmyndir, Eg hef enga oftrú
á tækninni, á kvikmyndavél-
unum sem mynda dyggilega
nef og eyru leikaranna. Eg
treysti á svipbrigðalistina, á
stílinn. Sumir kalla mig gam-
aldags, aðrir nýtízkulegan.
Hverjum á ég að trúa?
Svipur hans varð dimmari
og hann hélt áfram:
Eg er uggandi um framtíð
okkar. Heimur okkar getur
ekki veitt miklum listamönnum
starfsskilyrði. Hann er friðlaus
og beizkur, herjaður og um-
flotinn af pólitík.
Er „Queen Elizabeth“ kom
til Southampton beið Chaplins
þar enn fjölmennari hópur
blaðamanna en í Cherbourg.
Nokkrir blaðamenn fengu tæki-
færi til að vera með Chaplin
tímakorn. Hann lék fyrir þá á
píanó, söng, lék á fiðlu í stil
Jascha Heiíetz og dansaði létti-
lega einn af sínum frægu döns-
um.
Eftir að hann hafði rætt um
Lundúnir og hið gamla föður-
land sitt, Bretland, var hann
spurður um næstu kvikmynd.
Hann lék fyrir þá á píanóið
nokkur smálög tekin úr sam-
hengi og sagði þeim söguþráð
myndar sem hann kvaðst hafa
í huga:
Maður nokkur er riýslopp-
inn úr fangabúðum nazista.
Hann hefur mísst minnið og á
erfitt með að tala. Hann kem-
ur til New York. Innflytjenda-
yfirvöld halda stranga yfir-
heyrslu yfir honum. Hafið þér
í huga að steypa stjórn Banda-
ríkjanna af stóli? Er erindi
yðar til Bandaríkjanna að
myrða forsetann? Eina svar
hans er óákveðin óp, sem
hann rekur upp með harm-
kvælum. Það er hið eina mál
sem hann kann eftir að hafa
sloppið úr dauðabúðum nazista.
Hefur Charles Chaplin raun-
verulega í huga að taka kvik-
mynd um þetta efni? Eða er
þetta táknræn saga sem hpnum
datt í hug til að getja í blaða-
mennina? Söguefninu svipar til
þess sem hann notaði í „Ein-
ræðisherranum": Eitt fómar-
lamb stríðsins kemur til föð-
urlands síns eftir margra ára
minnisleysi. En í millitíðinni
hefur faistískt stjórnarfar náð
völdum í heimalandi hans.
Daginn eftir komu Chaplin
og fjölskylda hans tii Water-
loo-stöðvar í Lundúnum. Þar
beið þeirra grúi manns. „Eg
hafði aldrei gert mér neitt
þessu líkt í hugarlund", sagði
Chaplin við konu sína. Hann
hafði tæplega búizt við að
Englendingar myndu fjölmenna
svo til að taka á móti honum
eftir öll þau ár sem hann
hafði verið í burtu. Tryggð
fólksins snart hann djúpt.
Konungur og drottning undir-
stéttarinnar í Lundúnum,
klædd í hjákátlegan búning,
réttu honum „vináttufull" cg
gríðarstóran blómvönd með
orðunum: „Velkominn, Char-
lie!“ Fjöldinn hrópaði: „Vel-
kominn heim til þíns eigin
lands! Vertu hér hjá okkur!
Heima er fcezt!“ Löng stund
leið áður en vagn Chaplins gat
brotið sér leið gegnum hinn
húrrahrópandi mannfjölda.
Chaplin og fjölskylda hans
settust að á Savoy hóteli í
Lundúnum. Er dimmdi að
kvöldi var framhlið hótelsins
lýst allavega litum ljósum.
Strætisvagna- og leigubílstjór-
ar beindu ljóskösturum sínum
að framhlið hússins, til heið-
urs vini þeirra, Chaplin. Mann-
fjöldi er beið fyrir utan hótel-
ið hrópaði: „Við viljum fá að
sjá Charlie!“
Mikill . meirihluti hlaða í
Bretlandi tók málstað Chaplins
gegn Mac Granery, „sem hafði
beðið með að láta til skarar
skríða þar til fórnardýr hans
var víðs fjarri“. í „Manchester
Guardian" stóð þetta: „Chaplin
er líklega eini maðurinn í
heiminum sem hver maður á
götunni þekkir, sá eini sem
sérhver minnist með þakklæti”.
Daily MaU birti teikningu þar
sem Chaplin sést í sínu gamla
gerfi og ber við sjóndeildar-
hring. Á myndinni sést og
glæsilegt hótel sem ofbeldis-
giarn dyravörður hafði rekið
Chaplin út úr, en dyravörður-
inn bar mikinn svip af Sámi
frænda.
Þessa daga var tekin ljós-
mynd af Chaplin, sem stendur
nú á skrifborðinu mínu. Hún
var tekin í Southampton og
sýnir Chaplin gefa rithandar-
sýnishorn, brosandi og glaðleg-
ur á svip, og stendur í þröng-
inni við hlið útitékins hafnár-
verkamanns nokkurs.
Charles Chaplin settist að
með fjölskyldu sinni í Vevey
í Sviss. Og hann hefur ákveðið
að snúa ekki aftur til Banda-
ríkjanna. Fréttastofan United
Press hefur eftir honum að
frjálshuga fólk geti ekki leng-
ur átt þar heima. Hann hafi
flutt frá Bandaríkjunum
vegna þess að slúðursagnablöð
og afturhaldsklíkur ofsæki allt
hugsandi fólk þar i landi.
Chaplin lýsti því ennfremur
yfir að auðvelt væri það ekki
að yfirgefa það land sem hann
hafði lifað og starfað í um
fjörutíu ára skeið. En að lok-
inni síðusfu heimsstyrjöld hafi
honum verið bar illvært vegna
„Ég horfði á höndina á mér minnka þar
tU hún varð eins og á sjö ára barni44
Nýtt lyf lætur menn lifa affur liSna atburSi
Á síðilstu áratugum hafa vísindamenn fundið ýmis efni,
sem geta haft hin kynlegustu áhrif á hugarástand manna
og sálarlíf ef þeir neyta þeirra. Tekið er að beita sumum
þessum efnum við geðlækningar með töluverðum árangri.
Það af þessum efnum, sem
athygli geðlæknanna beinist
einkum að sem stendur, er tví-
ethylamíd lysinsýrunnar, oftast
nefnt LSD 25. Tveir svissneskir
vísindamenn, Stoll og Hoffman,
fundu efnið árið 1938.
„Lísa í Undralandi"
Fyrstu verulegu tdraunirnar
með LSD 25 fóru þó ekki fram
fyrr en nú nýskeð í geðveikra-
hælinu Powick í Englandi. —
Læknarnir sem beittu því við
sjúklinga sína hafa skýrt frá
reynslu sinni. Þeir stinga upp
á því að lyfið fái nýtt nafn,
Lísa í Undralandi, eftir sögu-
hetjunni í bamasögunni frægu.
Lísa varð fyrir hinum kynleg-
ustu myndbreytingum í Undra-,
landi.
Vitutídin klofnar
Álirif LSD 25 eru einkum
fólgin í því, að sá sem tekur
það inn getur lifað aftur löngu
liðna atburði, fundizt að þeir
séu að gerast og þó vitað að
þeir em ekki verule;ki. Þetta
er ekki ósvipað því, þegar menn
dreymir en vita jafnframt af
því að draumurinn er draumur.
Reynt á 36 sjúklingum
Ensku geðlæknarnir Sandi-
son, Spencer og Whitelaw, sem
reyndu LSD 25 við 36 sjúk-
linga, segja í grein I lækna-
blaöinu Journal of Mental Sci
ence, að það sé áhrifaríkast
allra slíkra lyfa, sem þe'r hafa
spurnir af.
Venjulegur skammtur, sem
heir gáfu sjúklingunum, var
25 míkrógrömm. Fyrstu áhrif-
in eru lík og af neyzlu hashish.
Neytandinn fer að flissa eða
gráta, svo þagnar hann en
rekur öðru hvoru upp óp. Hann
titrar og svitnar og sýnir öll
merki um nagandi kvíða. Síð
an hefst „reynsla“ hans, sem
getur verið margskonar.
Allt ljóst og skýrt
Stundum lifðu sjúklingarnir
á ný löngu l'ðna atburði eins
skýrt og þeir væra að gerast
á ný.
Kona nokkur komst svo að
orði: „Mér varð ljóst að ég var
að lifa aftur atburð, sem gerð-
ist þegar ég var lítil og við
vorum í sumarleyfi........ Ég
varð ekki hið minnsta hissa
þótt ég horfði á höndina á mér
og handiegginn minnka, þangað
til þau urðu eins lítil og á sjö
til átta ára barni, og mér
fannst ég vera úti með mömmu
að fara í búðir. Hún hafði
gengið spölkorn á undan mér,
og þegar ég varð þess allt í
einu vör að ég gat ekki fundið
hana, fannst mér ég vera svo
einmana og yfirgefin".
..Aðsfoð" skal varið til að
koma offramleiðslu í verð
Óseljanlegum, bandarískum landbúnaðar-
aíurðum troðið upp á aðrar þjóðir
Bandarísk þingnefnd hefur ákveöið að rúmur sjöundi
hluti af dollara-„aðstoð“ Bandaríkjanna við önnur ríki
skuli bundinn því skilyrði að landbúnaðarafurðir af of-
framleiðslubirgðum Bandaríkjastjórnar séu keyptar fyrir
féð.
Þessi aðferð stjórnarinnar við
að koma landbúnaðarframleiðslu
sinni í verð dregur auðvitað úr
sölumöguleikum á framleiðslu
annarra landbúnaðarlanda.
Bitnar það harðast á ýmsum
bandamönnum Bandaríkjanna,
svo sem Kanada, Danmörku og
Hollandi. Ríkir þar mikil gremja
yfir þessum söluaðferðum og
lygaáróðurs og rógburðar gegn
honum.
Þannig lýkur þessari bók og
aðstæðurnar valda því að end-
irinn er líkur og í gamalli
Chaplin-mynd. Litli flækingur-
inn er enn einu sinni staddur
á þjóðveginum. Og við vitum
enn ekki hvaða örlög bíða hins
ofsótta listamanns.
En milljónir manna um allan
heim standa að baki hans.
Milljónir sem hylla hann með
djúpri virðingu og af heilum
huga sem snllldarlegan . Hsta-
mann og hrelnskilið, óbugandi
mikilmenni. . .
tala menn mjög um óheiðarlega
samkeppni.
Eins og kunnugt er var þvi
harðlega neitað þegar bandaríska
„aðstoðin“ við önnur lönð hófst,
að hún stæði í nokkru sambandi
við þörf Bandaríkjanna fyrir
markaði erlendis. Nú er sjálft
Bandaríkjaþing búið að staðfesta
að þeir sem héldu þessari skoð-
un fram höfðu rétt fyrir sér.
Ævafornir síu-
vindlingar
Indíánar í Norður-Mexíkó
ræktuðu tóbak og reyktu vind-
linga með reyksíum fyrir þús-
undum ára. Mannfræðingur frá
háskólanum í Ottawa í Kanada
skýrir frá þessu. Hann hefur
unnið að uppgreftri á þessum
slóðum og segist hafa náð i
yfirgrjpsmesta safn um sögu
jarðræktarinnar í Norður-Am-
eriku sem. til. er.
Aftur í aldir
Öorum finnst þeir fara langt
aftur í tímann: „Það var. eins
og hluti af mér væri skiiinn frá
mér. .. . Þegar ég horfði á
höndina á lækninum, sá frá-
skildi hlutinn hana eins og hún
var, hinn hlutinn fylltist hryll-
ingi.... höndin var svo forn að
hún hefði getað verið til frá
örófi alda.... það var sand-
ur og skærir litir.... egypzk
skreyting og sfinx“.
Lifðu aftur fæðingu sína
Enn öðrum fannst þeir verða
að vinum sínum e!a ættingj-
um. Allmargir héldu sig vera
mæður sínar, en vissu þó að
svo var ekki, cg tve'r lifðu aft-
ur fæðingarstund sína með allri
þeirri reynslu, sem henni
fylgdi.
Ensku læknarnir segja að
LSD 25 hafi sjálft engan lækn-
ingamátt en geti þó komið að
miklu gagni við lækningu geð-
sjúklinga. Það hvetur þá t’l að
túlka ímyndanirnar, sem þjaka
hug þeirra, og minningarnar
sem rifjast upp koma læknun-
um að haldi yið að ákveða frek-
ari meðferð sjúklinganna. Af
23 sjúklingum, sem hlotið höfðu
fulla meíferð með LSD 25 og
geðlækningum, telja læknarnir
14 a’.bata og einum að auki fór
mik:ð fram.
Hernámsútvarpið
Framhald af 5. síðu.
ingu á eðli málsins og sögu, eru
því yfirleitt hlyntir, að orðið
verði við réttmætum óskum og
kröfum íslendinga. Vill fundur-
inn benda á þessar leiðir til
kynningar:
1. Gefin verði út á dönsku
bók um handritamálið, ýtarleg,
en alþýðleg, og ennfremur smá-
rit, sem dreift sé út á meðal
almennings í Danmörku á þann
hátt, sem virkastur verður tal-
inn við nána athugun.
2. Flutt verði erindi um málið
sem víðast í Danmörku og til
þess fengnir valdir menn, ís-
lenzkir og danskir.
3. Skrifaðar verði greinar um
málið í sem flest dönsk blöð og
tímarit.
Við alla kynningu handrita-
málsins í Danmörku verði gætt
fyllstu vinsemdar og kurteisi í
garð dönsku þjóðarinnar sem
frændþjóðar vorrar og einnar
hinnar gagnmenntuðustu, en
hins vegar ekki dregin fjöður
yfir þá skuld, sem hún á íslend-
ingum að gjalda frá liðnum öld-
um.
Þá skorar fundurinn á ríkis-
stjórn fslands að bera fram við
stjórn Danmerkur, með skírskot-
un til gildis íslenzkra bók-
menntaafreka fyrir menningar-
lega þróun allra Norðurlanda-
þjóðanna, óskir um spmasam-
lega og örugga varðveizlu Árna-
safns, meðan það er í höndum
Dana, þar sem þar er um að
ræða dýrgripi, sem ekki verði
metnir til fjár, hvort sem á þá
er litið frá íslenzku, samnor-
rænú éða alþjóðlegú ajónarm!0j&