Nýi tíminn


Nýi tíminn - 15.12.1955, Side 5

Nýi tíminn - 15.12.1955, Side 5
Fimmtudagur 15. desember 1955 — NÝI TÍMINN — (5 áttaátök i Árásir á svertingja sem krefjasf réttar sins - Hœstaréffardómur fótum troSinn Svertingj aprestur hefur orðið a'ö' flýja frá South Caro- lina fylki í Bandaríkjunum til New York til a'ö bjarga lífi sínu. Hann hélst ekki lengur vi'ö í heimkynnum sínum eftir a'ö trylltur múgur haföi brennt kirkju hans til grunna og látið skothríö dynja á heimili hans. Þessi atburður er eitt af mörgum merkjum þess að kyn- þáttaátök fara sem stendur harðnandi í suðurríkjunum. Verulegur hluti hvítra íbúa þeirra og yfirvöldin í sumum ríkjunum eru sýnilega staðráð- in í að beita öllum ráðum til að hindra sókn svertingjanna til fulls jafnréttis við hvíta menn. KRAFÐIST AFNÁMS SÉRSKÓLA Ástæða ofsóknanna gegn séra Joseph A. DeLaine, meþódista- presti í Lake City í South Caro- lina, var að hann krafðist þess af yfirvöldunum að þau fram- fylgdu dómi Hæstaréttar Banda- ríkjanna um að aðskilnaður hvítra barna og svartra í sér- stökum skólum væri brot á mannréttindaákvæðum stjórnar- skrárinnar. HÚSDD BRENNT OFAN AF HONUM bílunum var skotið á húsið, þar sem prestshjónin voru ein heima. Séra DeLaine þekkti sýslumann- inn, sem hann hafði leitað lið- sinnis hjá, í hópi árásarmann- anna. Árásarmennimir sneru frá þegar prestur svaraði skot- hríðinni í sömu mynt. Beið hann ekki boðanna og hélt til New York. FRAMSALS KRAFIZT Réttarhöldin í New York stöfuðu af því að fylkisstjórn- in í South Carolina hefur kraf- izt þess af fylkisstjórninni í New York að fá prestinn framseld- ann sem hvern annan saka- mann. Hefur hann verið lög- sóttur fyrir að verja hendur sinar þegar sótzt var eftir lífi hans. Nichols, biskup meþódista- kirkjunnar í New York, hefur skotið skjólshúsi yfir séra Ðe- Laine, og samtök svertingja hafa bundizt samtökum um að berjast gegn því að framsals- krafan verði tekin til greina. MORÐ OG MORÐTIL- RAUN í bænum Belzoni í Mississippi var á mánudaginn í síðustu viku skotið á svertingjakaupmann, Gus Courts að nafni. Hann ligg- ur nú í sjúkrahúsi allmikið særður. Hann segir að skotið hafi verið á sig „vegna þess að ég vildi fá að kjósa“. Skotið kom úr bíl útifyrir búðarglugga Courts. Kaupmaðurinn er formaður deildar úr Framfarafélagi hör- undsdökks fólks í Belzoni, Ann- ar af— for*iséumöaiu*m deiidar-. innar, svertingjaprestur að nafni G. W. Lee, var myrtur á götu í bænum í sumar. Þeir Courts höfðu unnið saman að því að koma svertingjum á kjörskrá í bænum. í Belzoni búa um 4000 manns. „Ég er 65 ára gamall og hef aldrei fengið áð kjósa en ég vil fá kosningarétt", sagði Courts við blaðamenn sem ræddu við hann í sjúkrahúsinu. FÆRRI FÁ AÐ KJÓSA Adam Powell, þingmaður svertingjahverfisins Harlem í New York á þinginu í Washing- ton, hefur tilkynnt að hann muni leggja til þegar þing kem- ur saman í vetur að allir þing- menn frá Mississippi verði sviptir þingBíT.i, „vegna þess að íbúar í því li er sviptir kosn- ingarétti.“ í Mississippi er búsett milljón svertingja en af þeim eru aðeins 8000 á kjörskrá. Hefur þeim fækkað úr 22,000 á síðustu ár- um. Tilgangurinn með morðun- um á svertingjum er að hræða þá frá að krefjast réttar síns. Það kemur aldrei fyrir að morð- ingjunum sé refsað. SKÓLASKYLDA AF- NUMIN Fylkisþingin í þeim suðurríkj- um sem alræmdust eru fyrir kynþáttakúgun, Soth Corolina, Georgia og Mississippi, hafa sam- þykkt lög um að leggja skuli niður alla opinbera skóla og fá í hendur einkaaðilum heldur en hlýðnast fyrirmælum Hæsta- jættao- um afnám aðskilnaðar kynþáttanna í opinberum skól- um. Nú eru horfur á að Virginia, sem liggur sunnan að höfuðborg- inni Washington og hefur ver- ið talið eitt mesta framfara- fylkið í hópi suðurrikjanna, fylgi því fordæmi. Thomas Standley fylkisstjóri hefur kallað fylkisþingið saman á aukaþing til að ræða frum- varp um breytingu á stjórnar- skrá fylkisins. Markmiðið með því er að gera fylkisstjórninni fært að leggja alla opinbera skóla niður og fá einkaaðilum skólahaldið í hendur. Úrskurður Hæstaréttar um afnám kynþátta- aðskilnaðar nær ekki til einka- skóla. iijörn Magnússon fyrrum kennari og bóndi varð bráð- kvaddur í fyrrakvöld. Björn var íæddur á Ægissíðu í Húnavatnssýslu og ólst upp í þeirri sýslu. Hann stundaði nám í Gagnfræðaskólanum á Akureyri og stundaði síðan kennslustörf um margra ára skeið á Blöndósi. Síðar bjó hann á ýmsum bæjum í Húna- vatnssýslu, unz hann fluttist hingað til bæjarins fyrir aldar- fjórðungi. Lengstan þess tíma er hann átti heima hér dvaldi liann í sjúkrahúsi sökum astma. Björn Magnússon var greind- ur maður og fjölfróður, skemmtilegur og hugarhlýr og því vinmargur. Píslarganga séra DeLaine var rakin fyrir rétti í New York í fyrri viku. Árið 1949 var hann búsettur í Clarendon sýslu. Það- an fór hann eftir að honum hafði verið tilkynnt að hann yrði „borinn burt í furukistu“ ef hann hefði sig ekki á brott. Presturinn settist þá að í bæn- um Summerton. Þar var húsið brennt ofan af honum og fjöl- skyldu hans, vegna þess að hann hélt því fram opinberlega að binda ætti enda á aðskilnað kynþáttanna í skólum. ÁRÁSARMENN í BÍLALEST Eftir brunann flýði prestur- inn til Lake City. Þar var hann þegar hæstaréttardómurinn um kynþáttaaðskilnað í skólum var kveðinn upp. í september í haust kom bílalest að prestsetrinu. Úr bílunum var grjóti og flöskum kastað í húsið svo hver einasta rúða brotnaði. Séra DeLaine sá númerið á einum af bílum á- rásarmannanna og skýrði sýslu- manni frá því. Hann neitaði að gera nokkuð í málinu, en réði presti til að skjóta á bílana ef þeir kæmu aftur „og ef við finnum kúlugat fer ekkert milli mála“. Enginn af heimilisfólkinu gat sýnt sig óhultur á götunum. i SÝSLUMAÐUR í HÓPN- UM Sjötta október var svo kirkj- an brennd, og prestur fékk hót- unarbréf, þar sem honum var tilkynnt að hann yrði fluttur burt í líkkistu ef hann hætti ekki að dreifa sínu „sauruga, skítuga eitri“, því að hundruð manna hefðu strengt þess heit að losa bæinn við hann. Fjórum dögum síðar kom átta bíla lest að prestsetrinu. Úr HANNES PETURSSON KVÆBA BÓK >■■1 Höfundurinn er rúmlega tvítugur, og- þetta er fyrsta bók hans, en kvæöi eftir hann hafa birzt í tímarit- um og- í Ljóöum ungra skálda 1954. Hafa menn sjaldan verið eins samdóma um afburða hæfileika ungs skálds — og hið’ óvenjulega hefur gerzt, aö útgefendur hafa keppzt um að fá þessa fyrstu bók hans til útgáfu. Hannes velm* sér fjölbreytt yrkisefni, m.a. sögu íslands, viðhorf hans eru frumleg og málfari'ð á kvæ'ðunum mjúka og fagurt. Kvæðabók Hannesar Péturs- sonar er ungu kynslóöinni til vegsauka og útkoma hennar merkur viðbur'ður í íslenzkri ljóðagerð. Er komin i bókaverzlanir! HEIMSKRINGLA n

x

Nýi tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýi tíminn
https://timarit.is/publication/883

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.